Morgunblaðið - 24.10.2009, Síða 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 2009
FJÖLGAÐ hefur
verið hjúkr-
unarfræðingum
sem svara í síma
Læknavakt-
arinnar, númer
1770, á kvöldin og
um helgar vegna
aukins álags sem
rekja má til inflú-
ensufaraldursins. Hjúkrunarfræð-
ingar frá Læknavaktinni og Land-
spítala sitja fyrir svörum og enn
verður fjölgað í hópi þeirra ef þörf
krefur.
Hringingar á Læknavaktina eru
núna að jafnaði tvöfalt til þrefalt
fleiri en áður.
Ef upp koma veikindi sem benda
til inflúensu er bent á að hringja á
dagvinnutíma, frá kl. 8-16, í næstu
heilsugæslu. Eftir dagvinnutíma og
allan sólarhringinn um helgar er
ýmist hægt að hringja í vaktþjón-
ustu viðkomandi landshluta eða í
Læknavaktina. Ef upp koma bráð,
alvarleg veikindi skal hringja í 112.
Símaráðgjöf í
inflúensufaraldri
BALDUR Guð-
laugsson ráðu-
neytisstjóri í
mennta- og
menningar-
málaráðuneytinu
hefur ákveðið að
láta af störfum.
Þetta kemur
fram í tilkynn-
ingu frá ráðu-
neytinu. Fram
hefur komið í fjölmiðlum að sér-
stakur saksóknari hafi til skoðunar
hlutabréfaviðskipti Baldurs á þeim
tíma sem hann var ráðuneytisstjóri
í fjármálaráðuneytinu. Í bréfi sem
Baldur hefur sent starfsfólki
mennta- og menningarmálaráðu-
neytisins segir að umfjöllun sem
síðustu daga hafi blossað upp í fjöl-
miðlum um viðskipti sem hann átti
með hlutabréf í Landsbanka Íslands
haustið 2008 og um athugun á þeim
hafi truflandi áhrif á hans daglegu
störf, auk þess sem hún sé til þess
fallin að hafa neikvæð áhrif á starf
og trúverðugleika ráðuneytisins.
Baldur kveðst gjarnan vilja að
ráðuneytið og starfsfólk þess geti
ótruflað af sínum völdum gengið til
sinna krefjandi starfa. Hann hafi
því haft frumkvæði að því að óska
eftir að láta af störfum í ráðuneyt-
inu og í Stjórnarráðinu um næstu
mánaðamót.
Baldur hættir
sem ráðu-
neytisstjóri
Baldur
Guðlaugsson
BLAÐAMANNAFÉLAG Íslands
hefur vísað kjaradeilu félagsins við
Samtök atvinnulífsins til ríkis-
sáttasemjara en það er í fyrsta sinn
í aldarfjórðung að slíkt gerist.
Samningar hafa verið lausir í um
ár en fyrri viðræðulotu lauk þegar
íslenska bankakerfið hrundi.
Þegar viðræður hófust að nýju
hinn 16. september gerði samn-
inganefnd Blaðamannafélagsins
kröfu um sambærilegar kjarabætur
og fengist höfðu á almennum
vinnumarkaði en því var hafnað af
hálfu viðsemjenda þótt samið hefði
verið við aðrar stéttir á fjölmiðlum
um þessar hækkanir, segir í frétt
frá félaginu.
„Blaðamannafélagið getur ekki
sætt sig við að blaðamenn einir fái
ekki þær lágmarks kjarabætur sem
tryggðar eru á almennum vinnu-
markaði,“ segir í tilkynningunni.
Deila blaðamanna til
ríkissáttasemjara
OFSAGT er að
Bændasamtök
Íslands hafi farið
yfir svör við
landbúnaðar-
kafla spurninga-
listans. Þetta
segir Haraldur
Benediktsson,
formaður
Bændasamtak-
anna. Samtökin
veittu sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðuneytinu aðstoð við hluta af
svörum kaflans. Svörin í heild sinni
hafa ekki komið til formlegrar yfir-
ferðar hjá Bændasamtökunum.
Íslensk stjórnvöld hafa skilað
svörum við spurningalista fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins, sem er hluti af umsóknarferli
að ESB. Í fréttatilkynningu frá
utanríkisráðuneytinu er tekið fram
að náið samráð hafi verið haft við
félagasamtök og hagsmunahópa og
Bændasamtökin nefnd þar til sög-
unnar ásamt fleirum.
Samningahópi um landbúnaðar-
hluta viðræðna við ESB var m.a.
ætlað að fara yfir svörin samkvæmt
ályktun Alþingis. Hann hefur hins
vegar ekki enn verið skipaður og
BÍ hefur ekki borist formlegt erindi
um tilnefningu fulltrúa bænda í
hópinn.
Hafa ekki farið yfir
spurningalistann
Haraldur
Benediktsson
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
181 frambjóðandi, sem tók þátt í
prófkjöri eða forvali stjórnmála-
flokka fyrir síðustu alþingiskosning-
ar, hafði skilað Ríkisendurskoðun
upplýsingum um fjárframlög til próf-
kjörsbaráttu sinnar um miðjan dag í
gær. Frestur frambjóðenda til að
skila uppgjöri eða yfirlýsingu rennur
út á morgun, 25. október.
Alls eiga 318 frambjóðendur að
skila upplýsingum til Ríkisendur-
skoðunar vegna fjárframlaga í
tengslum við prófkjör eða forval. Því
áttu 137 frambjóðendur eftir að skila
upplýsingum í gær. Af þeim sem
höfðu sent Ríkisendurskoðun upp-
lýsingar höfðu tuttugu skilað upp-
gjöri vegna prófkjörsbaráttunnar en
161 frambjóðandi hafði skilaði undir-
ritaðri yfirlýsingu um að framlög til
hans hefðu ekki verið umfram 300
þús. kr.
Lárus Ögmundsson, skrifstofu-
stjóri Ríkisendurskoðunar, taldi að
upplýsingar um framlög til fram-
bjóðendanna yrðu birtar fljótlega
eftir næstu mánaðamót. Hann sagði
að fara þyrfti yfir upplýsingarnar og
ákveða framsetningu þeirra. Lárus
sagði koma til greina að birta nöfn
allra frambjóðendanna 318 og gera
þar grein fyrir því hverjir skiluðu
yfirlýsingu eða uppgjöri og hverjir
ekki skiluðu neinu.
Ríkisendurskoðun skrifaði fram-
bjóðendunum 9. mars síðastliðinn
vegna kosninganna 2009 og kallaði
þar eftir upplýsingum um fjárhags-
legt uppgjör vegna persónukjörs,
þ.e. þátttöku í prófkjöri eða forvali. Í
bréfinu kemur meðal annars fram að
stofnunin muni birta útdrátt úr upp-
lýsingunum á heimasíðu sinni. Þar
verða heildartekjur, flokkaðar eftir
framlögum frá lögaðilum, einstak-
lingum og eigin framlögum. Einnig
verða birt heildarútgjöld hvers fram-
bjóðanda við kosningabaráttuna.
181 var búinn að skila fjár-
hagsupplýsingum í gær
Upplýsingar um kostnað frambjóðenda vegna prófkjöra verða birtar fljótlega
Í HNOTSKURN
»Samkvæmt lögum um fjár-mál stjórnmálasamtaka og
frambjóðenda eiga frambjóð-
endur sem hafa meiri kostnað
en 300.000 kr. af prófkjörsbar-
áttu sinni að skila fjárhags-
legu uppgjöri, staðfestu af
endurskoðanda.
»Þeim sem eyða 300.000 kr.eða minna vegna persónu-
kjörs nægir að skila skriflegri
yfirlýsingu um það.
„ÞAÐ er ekki á
dagskrá að ríkið
sleppi hendi sinni
af Landsvirkjun.
Hvort lífeyris-
sjóðirnir koma að
fyrirtækinu með
nýtt hlutafé er
möguleiki sem
mætti skoða, sem
og kannski að-
koma þeirra að
fjárfestingum og fjármögnum í
orkumálum,“ sagði Steingrímur J.
Sigfússon fjármálaráðherra þegar
hann var spurður hvort til greina
kæmi að lífeyrissjóðirnir keyptu
eignarhlut ríkisins í Landsvirkjun.
Ragnar Önundarson, stjórn-
arformaður Lífeyrissjóðs versl-
unarmanna, varpaði fram þessari
hugmynd á fundi á fimmtudag.
Hann sagði að þessi leið tryggði að
erlendir kröfuhafar í Icesave gætu
ekki gengið að Landsvirkjun, en sá
möguleiki hefur verið nefndur. Í erf-
iðleikum ríkissjóðs væri sala eigna
skynsamleg. Það sparaði lántökur
og vaxtagreiðslur.
Steingrímur sagði þörf á að skoða
heildarskipulag þessara mál. Orku-
fyrirtækin væru mjög skuldsett og
réðu ekki við nýjar fjárfestingar.
egol@mbl.is
Útilokar að
Landsvirkj-
un verði seld
Steingrímur J.
Sigfússon
Gætu hugsanlega
komið með hlutafé
„ÞETTA er allt að skella á og við opnum um leið og búð-
in verður tilbúin,“ segir Jón Gerald Sullenberger sem
vonast til að geta opnað nýja lágverðsverslun sína inn-
an nokkurra vikna. Verið er að leggja lokahönd á inn-
réttingar og vörurnar að koma til landsins. Búðin hefur
fengið nafnið Kostur og segist Jón Gerald hæstánægð-
ur með nafnið sem sé alíslenskt og viðeigandi. Kostur er
til húsa að Dalvegi 10 í Kópavogi í um 1.900 fermetra
húsnæði og segir Jón Gerald að búðin verði að mörgu
leyti öðruvísi en Íslendingar eigi að venjast. jmv@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Kostur opnar senn á Dalvegi
RÍKISSTJÓNRNIN lagði fjögur frumvörp fram á
Alþingi í gær. Allt eru þetta frumvörp sem lögð voru fyr-
ir sumarþingið en hlutu ekki afgreiðslu þá.
Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra endurflytur
dómstólafrumvarpið, sem m.a. gerir ráð fyrir því að einn
hérðasdómstóll verði í landinu. Þá endurflytur ráðherra
frumvörp til breytinga á kosningum til Alþingis og
sveitarstjórna. Frumvörpin gera ráð fyrir því að viðhaft
verði persónukjör sem felst í því að flokkarnir bjóða
fram óraðaða lista og kjósandinn raði frambjóðendum í
sæti í kjörklefanum.
Þá lagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra
fram á Alþingi lagafrumvarp um þjóðaratkvæða-
greiðslur. Með frumvarpinu er lagt til að sett verði
almenn lög um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslu.
Frumvarpið var unnið í samráði við fulltrúa allra þing-
flokka.
Það er endurflutt frá síðasta löggjafarþingi og er það
efnislega óbreytt að öðru leyti en því að tekið hefur verið
tillit til nokkurra athugasemda sem settar voru fram í
umsögnum um frumvarpið til allsherjarnefndar Alþing-
is, annars vegar frá landskjörstjórn og hins vegar frá
Skúla Guðmundssyni, skrifstofustjóra hjá Þjóðskrá.
Fram kemur í athugasemdum við lagafrumvarpið að
markmið þess sé að kveða með almennum lögum á um
framkvæmd og tilhögun þjóðaratkvæðagreiðslu. Hvort
sem um sé að ræða þjóðaratkvæðagreiðslur sem skylt sé
að halda samkvæmt ákvæðum stjórnarskrárinnar eða
ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslur sem Alþingi ákveði
að efna til með samþykkt þingsályktunartillögu.
Þá segir að lög um þjóðaratkvæðagreiðslur hafi ekki
verið sett fyrr hér á landi þrátt fyrir að gert sé ráð fyrir
slíkri atkvæðagreiðslu í nokkrum tilvikum í stjórnarskrá
lýðveldisins. Þjóðaratkvæðagreiðsla hafi þó ekki farið
fram hér á landi á lýðveldistíma. Ekki hafi verið deilt um
að þörf sé á setningu sérstakrar löggjafar um þjóð-
aratkvæðagreiðslur. sisi@mbl.is
Þjóðaratkvæði og per-
sónukjör á þingi á ný
Ríkisstjórnin endurflytur fjögur stjórnarfrumvörp
Morgunblaðið/Árni Sæberg