Morgunblaðið - 24.10.2009, Síða 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 2009
Frægt er að lúðrasveit héltáfram að leika þótt Titanic
væri farið að hallast.
Á Íslandi er allt á hverfandihveli. Landið steytti á borg-
arís bankakreppunnar. Stjórnkerfi
landsins er fámennt og því var
þess vænst að sérhver starfsmaður
þess legði dag og nótt við að vinna
landið út úr vandanum og koma
fólki og fyrirtækjum á réttan kjöl.
En þá, einmitt þá, þótti ein-
hverjum rétt að setja allt stjórn-
kerfið í dag-, nætur- og helgidaga-
vinnu við spurningaleik við
Evrópusambandið.
Ekki þótti einu sinni nauðsynlegtað sýna íslensku þjóðinni þá
tillitssemi að kynna henni á móð-
urmálinu þau svör sem send yrðu í
hennar nafni.
Hér á landi hefur verið látið aðþví liggja að umsóknin að
Evrópusambandinu sé gerð til
þess að „sjá hvað við getum feng-
ið“.
Þess vegna væri einkar fróðlegt
að fá að sjá spurningalistann, sem
hlýtur að hafa verið sendur af Ís-
lands hálfu.
Því verður nefnilega ekki trúaðað samningaviðræðunum við
Evrópusambandið verði hagað
eins og við Breta og Hollendinga
og aðeins setið þar öðrum megin
við borðið. Íslendingar hafa þegar
dýrkeypta reynslu af þeirri samn-
ingatækni.
Utanríkisráðuneytið.
Eru svörin við okkar
spurningum komin?
VERÐ á leigukvóta í þorski hefur
verið mjög hátt undanfarið. Verð á
aflamarki og krókaaflamarki hefur
hækkað mikið frá því snemma í vor
og nú um stundir er verð á afla-
marki í hæstu hæðum eða 270 krón-
ur fyrir kíló, segir á heimasíðu
Fiskistofu. Miðað er við hæsta verð
hvern dag í viðskiptum með afla-
mark/krókaaflamark sem flutt er
milli óskyldra aðila.
Undanfarið ár hafa verið miklar
sveiflur á verði á afla- og krókaafla-
marki í þorski. Eftir stöðugt verð í
aflamarki þar sem það hélst í kring-
um 250 krónur á kíló í um ár á fisk-
veiðiárinu 2007/08 varð mikil verð-
lækkun í kjölfarið á bankahruninu
síðastliðið haust og fór verð á afla-
marki niður í 160 kr/kg.
Verð á krókaaflamarki sveiflaðist
á sama hátt en meiri sveiflur hafa þó
einkennt krókaaflamarkið á undan-
förnum misserum.
Lækkun á mörkuðum
Verð á fiskmörkuðum hefur að-
eins gefið eftir síðustu daga og verið
um 310 krónur fyrir kíló af óslægð-
um þorski í vikunni og um 270 krón-
ur að meðaltali fyrir kíló af ýsu,
óslægðri.
Meðalverð af óslægðum þorski á
fiskmörkuðum fór yfir 400 krónur
fyrir um hálfum mánuði og meðal-
verðið á ýsunni var þá um 330 krón-
ur. aij@mbl.is
Verð á leigukvóta í hæstu hæðum
Miklar sveiflur hafa verið undanfarið ár
í verði á afla- og krókaaflamarki
Morgunblaðið/RAX
UMHVERFISSTOFNUN hefur ákveðið að loka tímabundið gönguleið sem
liggur frá neðra bílastæði að fossbrún Gullfoss. Aðstæður geta skapast á
veturna sem kunna að vera hættulegar og er stígnum því lokað í örygg-
isskyni, segir á vef stofnunarinnar.
Stígurinn verður lokaður til 31. mars. Skilti hafa verið sett upp á fjórum
tungumálum til upplýsingar um að stígurinn sé lokaður vegna hættu. Eftir
sem áður verður efra svæðið við útsýnispall opið.
Morgunblaðið/RAX
Stíg lokað í öryggisskyni
FLUGSLYSANEFND hefur lokið
rannsókn á flugatviki á flugvellinum
á Skógum í maí í vor. Loftskrúfa
rakst þá í jörð og eyðilagðist auk
þess sem loftinntak dældaðist. Við
skoðun RNF kom í ljós að skrúfan
hafði snert brautina um tíu sinnum
þar sem flugbrautin hækkar aðeins.
Fram kemur í skýrslu flugslysa-
nefndar að flugmaðurinn hugðist
fljúga vélinni, TF-BCX, af gerðinni
Yakolev Yak-52 í lágflugi í þriggja
metra hæð yfir flugbrautinnni. Eftir
að hafa flogið eftir hluta brautar-
innar snerti skrúfan brautina með
þeim afleiðingum að mikill titringur
kom upp í vélinni. Flugmaðurinn
hækkaði þá flugið og ákvað að nauð-
lenda á næsta túni og tókst lend-
ingin giftusamlega. Engar öryggis-
tillögur eru settar fram vegna
atviksins. aij@mbl.is
Loftskrúfan snerti flug-
brautina um tíu sinnum
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 6 rigning Lúxemborg 10 þoka Algarve 22 heiðskírt
Bolungarvík 0 snjókoma Brussel 14 léttskýjað Madríd 18 heiðskírt
Akureyri 3 skýjað Dublin 13 skýjað Barcelona 20 heiðskírt
Egilsstaðir 4 léttskýjað Glasgow 13 skýjað Mallorca 20 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 8 alskýjað London 16 léttskýjað Róm 18 léttskýjað
Nuuk 1 léttskýjað París 13 skýjað Aþena 20 skýjað
Þórshöfn 11 þoka Amsterdam 14 skýjað Winnipeg 1 alskýjað
Ósló 5 skýjað Hamborg 8 skýjað Montreal 2 skýjað
Kaupmannahöfn 9 alskýjað Berlín 7 þoka New York 12 alskýjað
Stokkhólmur 5 skýjað Vín 12 skýjað Chicago 14 skúrir
Helsinki 3 skýjað Moskva 7 þoka Orlando 28 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
24. október Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3.34 1,2 10.05 3,4 16.25 1,4 22.29 3,0 8:47 17:38
ÍSAFJÖRÐUR 5.19 0,7 11.47 1,8 18.26 0,7 9:01 17:33
SIGLUFJÖRÐUR 2.02 1,1 7.44 0,6 14.05 1,2 20.38 0,4 8:45 17:16
DJÚPIVOGUR 0.35 0,6 7.00 1,9 13.26 0,8 19.07 1,6 8:19 17:05
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á sunnudag
Norðan og norðaustan 5-10
m/s og él á norðanverðu land-
inu, en annars hægari og létt-
skýjað að mestu. Frost 0 til 6
stig, en frostlaust við S- og V-
ströndina.
Á mánudag
Hægviðri og léttskýjað með
köflum, en él á stöku stað í
fyrstu. Víða frost.
Á þriðjudag
Austanstrekkingur og rigning
með S-ströndinni, en annars
hægari og víða bjart veður.
Hlýnar S-lands.
Á miðvikudag
Austanstrekkingur um sunn-
anvert landið, en annars hæg-
ari. Rigning eða súld S- og A-
lands, en annars skýjað og
þurrt að mestu. Hlýnar í veðri.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Norðan- og norðaustanátt, víða
5-13 m/s, hvassast norðvest-
anlands. Slydda eða rigning
norðan- og norðvestanlands,
annars skýjað og úrkomulítið.
Stöku él norðan til á landinu, en
léttir víða til sunnan heiða.
Kólnar og hiti 2 til 8 stig, en um
eða undir frostmarki norð-
anlands.