Morgunblaðið - 24.10.2009, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 2009
• Framkvæmdastjóri – meðeigandi óskast að innflutningsfyrirtæki með bílavarahluti.
• Þekkt heimilisvöruverslun. Ársvelta 120 mkr.
• Framkvæmdastjóri – meðeigandi óskast að arðbæru þjónustufyrirtæki. Ársvelta
80 mkr.
• Markaðsmaður – meðeigandi óskast að innflutnings- og þjónustufyrirtæki.
Ársvelta 100 mkr.
• Mjög arðbær heildverslun á landsbyggðinni. Tilvalið fyrir markaðsfólk sem vill
breyta til. Ársvelta 140 mkr.
• Rótgróið iðnfyrirtæki með öruggan markað. Ársvelta 220 mkr.
• Lítið innflutnings- og iðnfyrirtæki með álprófíla og fleira. Ársvelta 90 mkr.
• Heildverslun með stórmarkaðsvörur (ekki matvæli). Ársvelta 120 mkr.
• Rótgróið framleiðslu- og innflutningsfyrirtæki sem selur að stórum hluta beint til
neytenda. Ársvelta 160 mkr.
• Lítil en rótgróin bílaleiga. Auðveld kaup.
• Rótgróin heildverslun með gjafavörur. Auðveld kaup.
• Lítil heildverslun með byggingavörur. Ársvelta 80 mkr. Hentar vel til sameiningar.
• Vinsælt veitingahús. Ársvelta 230 mkr.
• Framkvæmdastjóri-meðeigandi óskast að þjónustu- og innflutningsfyrirtæki.
Ársvelta áætluð um 200 mkr. Ágætur hagnaður.
• Heildverslun með byggingavörur. Ársvelta 170 mkr. Mjög skuldsett.
www.gisting.dk/gisting.html
sími: 499 20 40 (Íslenskt símanúmer)
Ódýr gisting í Kaupmannahöfn
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 1200
Hollráð gegn innbrotum
oryggi.is
Hringdu í 570 2400 og fáðu ókeypis öryggisráðgjöf heim!
Verðmæti utandyra
Hafið öll áhöld, reiðhjól og önnur tæki læst inni.
Fleiri hollráð gegn innbrotum er að finna á oryggi.is
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
9
1
3
4
0
AUKIN áhrif borg-
arbúa á stefnumótun
Reykjavíkurborgar er
markmið allra flokka í
borgarstjórn Reykja-
víkur. Við viljum veita
borgarbúum ný tæki-
færi til þátttöku í því
spennandi starfi sem
fram fer á vettvangi
höfuðborgarinnar og
við viljum tryggja að
skoðanir sem flestra
heyrist og geti orðið þáttur í því að
móta framtíð borgarinnar okkar.
Þess vegna boðar borgarstjórn
Reykjavíkur til Hugmyndaþings í
Ráðhúsi Reykjavíkur næstkomandi
sunnudag kl. 13.
Með Hugmyndaþinginu vill
borgarstjórn skapa nýjan vettvang
fyrir íbúa borgarinnar til að hafa
áhrif á þróun hennar. Hug-
myndaþingið er nú haldið í fyrsta
sinn og verður vonandi að árlegum
viðburði í borgarlífinu. Á þinginu
gefst borgarbúum kostur á að
koma hugmyndum
sínum milliliðalaust á
framfæri við borg-
arfulltrúa og starfs-
menn borgarinnar í
sérstökum hugmynda-
smiðjum. Boðið verður
upp á fimm smiðjur
með yfirskriftunum:
„Í hvernig borg viltu
lifa?“, „Í hvernig borg
viltu læra?“, „Í hvern-
ig borg viltu starfa?“,
„Í hvernig borg viltu
leika þér?“ og „Í
hvernig borg viltu eld-
ast?“ Í hverri hugmyndasmiðju
verður hægt að skrifa niður hug-
myndir, teikna þær eða velja.
Nokkrir áhugaverðir fyrirlesarar
munu kynna fyrir okkur hug-
myndir sínar um þróun borg-
arinnar í stuttum erindum, auk
þess sem íbúar fá tækifæri til að
bregðast við drögum að sókn-
aráætlun fyrir Reykjavíkurborg
sem unnin voru á vormánuðum að
ósk borgarstjórnar. Að gerð þeirra
komu á annað hundrað fulltrúa
víða að úr samfélaginu.
Nú sem aldrei fyrr þurfum við
að taka höndum saman um framtíð
Reykjavíkur til að tryggja að í
þessari góðu borg við sundin blá,
haldi tækifærum áfram að fjölga,
íbúar skynji kraftinn, gleðina og
lausnirnar í samfélaginu. Hug-
myndaþingið sem borgarstjórn
Reykjavíkur boðar til á sunnudag-
inn er mikilvægt skref í þá átt. Ég
vil því hvetja borgarbúa til að
þiggja boðið og gefa Reykjavík-
urborg góðar hugmyndir í Ráðhúsi
Reykjavíkur á sunnudaginn.
Vilt þú hafa áhrif
á framtíð Reykjavíkur?
Eftir Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur » Á Hugmyndaþingi
geta borgarbúar
komið hugmyndum sín-
um milliliðalaust á fram-
færi við borgarfulltrúa
og starfsmenn borg-
arinnar.
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
Höfundur er borgarstjóri í Reykjavík.
ÞANN 22. október
sl. var kveðinn upp
dómur í Hæstarétti Ís-
lands í máli Jóns Pét-
urs Kristjánssonar
gegn Vátrygginga-
félagi Íslands.
Málavextir voru þeir
að áfrýjandi sem starf-
ar sem smiður hafði
slasast við vinnu sína
þann 27. desember
2006 þegar hann féll úr stiga. Mað-
urinn leitaði strax til slysadeildar í
kjölfari slyssins og í vottorði kemur
fram að hann hafi fengið högg á
hnakka og hægri fótlegg.
Á árinu 2007 fór áfrýjandi svo að
finna fyrir stigversnandi verk í
hægri öxl. Um haustið 2007 leitaði
hann ítrekað til heimilislæknis síns
vegna þessa og í desember 2007
ákvað heimilislæknirinn að senda
hann í sjúkraþjálfun. Í marsmánuði
2008 hafði sjúkraþjálfun ekki borið
neinn árangur og sendi heim-
ilislæknir áfrýjanda þá til sérfræð-
ings í bæklunarlækningum. Við
rannsókn þann 17. mars 2008 var
leitt í ljós að mikill áverki var á
hægri öxl áfrýjanda og var það nið-
urstaða að áfrýjandi þyrfti að gang-
ast undir aðgerð til að fá bót meina
sinna.
Þann 5. maí 2008 til-
kynnti áfrýjandi slysið
til tryggingafélagsins
þar sem hann taldi sig
tryggðan samkvæmt
slysatryggingu laun-
þega annars vegar og
slysa- og sjúkdóma-
tryggingu hins vegar.
Bótaskyldu var hafnað
af hálfu trygginga-
félagsins þar sem
meira en eitt ár væri
liðið frá því slys varð.
Því var haldið fram af
hálfu tryggingafélagsins að sam-
kvæmt lögum um vátryggingasamn-
inga nr. 30/2004, 1.mgr. 124.gr. sem
tóku gildi þann 1. janúar 2006 hafi
orðið sú breyting frá fyrri lögum að
skylt væri að tilkynna slys innan
eins árs frá því að slys verður. Í nið-
urstöðu Hæstaréttar segir: „Eins og
málið liggur fyrir er ekkert fram
komið um að áfrýjandi hafi orðið fyr-
ir tímabundnu atvinnutjóni fyrir 17.
mars 2008 eða verið kunnugt um að
hann hafi orðið fyrir slíkum
meiðslum vegna vinnuslyssins að af
hlytist varanleg örorka. Fyrir síð-
astgreindan dag hafði áfrýjandi
samkvæmt þessu ekki vitneskju um
atvik, sem hann gæti reist bótakröfu
á gagnvart stefnda á grundvelli
þeirra vátrygginga, sem um ræðir í
málinu. Var því frestur samkvæmt 1.
mgr. 124. gr. laga nr. 30/2004 ekki
liðinn 5. maí 2008 þegar áfrýjandi til-
kynnti stefnda um vinnuslys 27. des-
ember 2006.“
Með þessum dómi Hæstaréttar er
staðfest sú mikilvæga regla að ekki
stenst sú framkvæmd sem trygg-
ingafélög hafa tíðkað frá gildistöku
laga nr. 30/2004 að hafna bótaskyldu
hafi sá sem verður fyrir tjóni af völd-
um slyss ekki tilkynnt um slysið inn-
an eins árs frá því að það varð.
Þá er staðfest að nýju lögin hafi í
engu breytt þeirri meginreglu sem
gilti í gildistíð eldri laga að um leið
og sá sem verður fyrir tjóni gerir sér
grein fyrir að varanlegt tjón hefur
orðið af slysi hvílir sú skylda á hon-
um að tilkynna slys. Dómur þessi er
mikilvægur fyrir alla þá sem verða
fyrir tjóni af völdum slyss.
Fjöldi slysamála hefur beðið nið-
urstöðu í þessu máli enda er hér um
að ræða fyrsta mál sem rekið er
vegna þessa eftir gildistöku nýrra
laga um vátryggingasamninga.
Tímamarkandi dómur
Hæstaréttar Íslands
Eftir Huldu Rós
Rúriksdóttur »Dómur þessi er mik-
ilvægur fyrir alla þá
sem verða fyrir tjóni af
völdum slyss.
Hulda Rós Rúriksdóttir
Hæstaréttarlögmaður hjá Borg-
arlögmönnum í Reykjavík, flutti mál-
ið af hálfu áfrýjanda í héraði og
Hæstarétti.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn