Morgunblaðið - 24.10.2009, Qupperneq 44
44 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 2009
✝ Guðbjörn Inga-son fæddist á
Ísafirði 17. ágúst
1937. Hann lést 16.
október síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru hjónin María
Sveinfríður Svein-
björnsdóttir frá
Laugum í Súgandaf-
iði, og Ingi Guðjón
Eyjólfsson, skó-
smiður, frá Kaldr-
ananesi. Systkini
hans eru: Erla, f.
1929, Haukur, f.
1930, d. 2003, Þorbjörg, f. 1935,
Steingerður, f. 1939, Elvar, f.
1941, Reynir, f. 1943, d. 1999,
Ester, f. 1945, Ernir, f. 1947.
Guðbjörn kvæntist Elínborgu
Sigurðardóttur frá Nauteyri 1.
apríl 1961. Foreldrar hennar voru
Sigurður Pálsson og Sigurveig
Jónsdóttir. Börn Guðbjörns og El-
ínborgar eru Dagný, f. 1961, d.
1979. 1) Sveinn Ingi, f. 1963,
kvæntur Önnu Jakobínu Hinriks-
dóttur. Börn Sveins Inga frá
fyrra hjónabandi eru Dagný og
hennar sonur Aron Ingi, Axel og
Elín Lóa, barn hans með Önnu
Jakobínu er Brynjar Ari, börn
Önnu Jakobínu úr fyrri sambúð
eru Guðrún H. Thoroddsen og
Dagur Elí Ragnarsson. 2) Veigar
Þór, f. 1968, kvæntur Kristjönu
Birnu Marthensdóttur Olsen.
Barn Veigars Þórs úr fyrri sam-
búð er Guðbjörn Hólm, börn hans
og Kristjönu eru Marthen Elvar,
María Birna, Særún
Thelma, Kolfinna
Rós og Sólveig
Perla.
Guðbjörn lærði
bakaraiðn í Gamla
bakaríinu á Ísafirði
hjá Aðalbirni
Tryggvasyni og tók
meistarapróf í þeirri
iðn. Hann tók sér hlé
frá bakstri og vann í
Steiniðjunni, við
múrverk, með góð-
um félögum eins og
Guðmundi Helgasyni
og Árna Höskuldssyni, einnig í Ís-
húsfélagi Ísfirðinga. Árið 1961
fór hann til Bolungarvíkur og var
þar bakari í þrjú og hálft ár hjá
Einari Guðfinnssyni hf., þá keypti
hann bakarí á Ísafirði sem hann
skýrði Búbbabakarí, sem hann
rak um árabil. Seinna gekk hann
til samstarfs við Bökunarfélag
Ísafirðinga. Síðar vann hann hjá
Skipasmíðastöð Marzellíusar, Vél-
smiðjunni Þristi, og síðast hjá
Hraðfrystihúsinu Gunnvöru.
Guðbjörn var mikill íþrótta-
maður, stundaði knattspyrnu og
starfaði lengi í knattspyrnuráði,
einnig vann hann bikar til eignar
fyrir víðavangshlaup. Hann starf-
aði að ýmsum félagsmálum, t.d.
Rauða krossinum, starfaði í fjöl-
mörg ár í Lionsklúbbi Ísafjarðar
og í Oddfellow-hreyfingunni.
Útför Guðbjörns fer fram frá
Ísafjarðarkirkju í dag, 24. októ-
ber, og hefst athöfnin kl. 14.
Fallinn er frá fyrir aldur fram
Guðbjörn Ingason (Búbbi bakari),
svili minn, kær vinur og félagi í sam-
tökum sem hafa að leiðarljósi í sínu
starfi vináttu, kærleika og sannleika.
Í þessum félagsskap naut vegferð
Búdda í lífinu sín mjög vel og var
hann kjörinn til forystu þar um ára-
bil. Ég var svo heppinn að vera hon-
um samferða á þessum vettvangi í
rúman aldarfjórðung og hefur það
þróað enn betur okkar vináttu í leik
og starfi. Aldrei hefur gefið svo mikið
á bátinn að við næðum ekki lendingu
á farsælan hátt.
Ég kynntist Búbba fyrir nær
fimmtíu árum þegar hann og Ella
Bogga mágkona mín voru að hefja
samleið sína í lífinu.
Þegar ég var landpóstur í Ísafjarð-
ardjúpi, sem var í þrjátíu ár, átti ég
hauk í horni sem Búbbi var, hann
hljóp oftar en ekki í skarðið fyrir mig
og leysti það svo vel af hendi að betur
varð ekki á kosið. Þá kom hugsun
hans um miskunnsama samverjann
mjög vel í ljós.
Það fer margt í gegnum hugann
þegar ég minnist Búbba, bæði í póst-
ferðum og öðrum ferðum. Þær voru
ófáar ferðirnar sem við fórum tveir
að Nauteyri til viðgerða og lagfær-
inga á gamla húsinu. Einnig minnist
ég veiðiferðanna sem voru fastur lið-
ur á hverju ári, annaðhvort tveir
saman eða í félagi við aðra. Þá vil ég
nefna verslunarmannahelgarnar,
það hefur verið fastur liður hjá af-
komendum þeirra Nauteyrarhjóna,
Sigurveigar og Sigurðar, að hittast
þá helgi á Nauteyri síðastliðin þrjá-
tíu og fimm ár.
Fyrir allt þetta vil ég þakka og
geymi minningarnar í huganum um
ókomna tíð.
Ég og Valgerður kveðjum Búbba
af heilum hug og ég veit að hann fær
góða heimkomu hjá þeim sem öllu
ræður.
Ellu Boggu og afkomendum henn-
ar sendum við hugheilar samúðar-
kveðjur og ég veit að góður Guð
verður þeim skjól og styrkur í þeim
harmi sem fráfall Búbba er.
Far þú heill kæri vinur í vináttu,
kærleika og sannleika.
Gunnar Pétursson og
Valgerður Jakobsdóttir.
Afi okkar var allt það sem afar
eiga að vera. Hann var mjúkur og
gott var að sitja í fangi hans þegar
við vorum lítil og þótti okkur oft
spennandi að fá að kúra í hæginda-
stólnum hans. Það eru svo ótal marg-
ar góðar minningar sem við geymum
um afa okkar. Allar þær verslunar-
mannahelgar sem við eyddum saman
á Nauteyri, þar sem honum þótti svo
gaman að vera, og auðvitað okkur
líka, hann hjálpaði okkur að smíða
báta, tilbúinn að smakka allar drullu-
kökurnar sem við „bökuðum“ og kom
alltaf með fisk í soðið úr netinu sem
lá í fjörunni. Afi fylgdist mikið með
boltanum og fóru strákarnir oft sam-
an til afa að fylgjast með ýmsum
leikjum sem fönguðu athygli þeirra.
Uppáhaldið okkar frá bakaranum,
honum afa, voru kransakökurnar
sem þau amma bökuðu í sameiningu.
Það er undarleg tilhugsun að hugsa
ekki um þau sem eina heild, Ella og
Búbbi, amma og afi.
Minning þín er mér ei gleymd;
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.
(Káinn)
Dagný, Axel, Dagur Elí, Elín
Lóa, Brynjar Ari og Aron Ingi.
Búbbi afi, eins og hann var kall-
aður af okkur, barnabörnunum sín-
um, var frábær maður og algjör gjöf
frá Guði. Hann kom fram við okkur
líkt og við værum kóngar og drottn-
ingar, eins og við værum æðislegustu
manneskjur í heimi og að það væri
ekkert sem við gerðum rangt. Hann
var þekktur af öðrum sem Búbbi
bakari og var algjör orkubolti. Það
var virkilega gaman að honum elsku
afa okkar og alveg æðislegt að sjá
hann leika við yngstu fjölskyldumeð-
limina enda höfðu þau með eindæm-
um gaman af honum. Hann var alltaf
brosmildur og jákvæður og mun bros
hans ávallt búa í hjörtum okkar.
Minning hans mun fylgja okkur um
ókomin ár og við vitum að hann fylg-
ist með okkur og styður við bakið á
okkur hvað sem við tökum okkur fyr-
ir hendur.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Ástarkveðjur frá barnabörnum
þínum.
Guðbjörn, Marthen, María,
Særún, Kolfinna og Sólveig.
Hann Búbbi Inga hefur kvatt Ísa-
fjörð, sína nánustu ættingja og vini
óvænt og fyrr en nokkurn gat órað
fyrir. Það er mikill söknuður að þeim
öðlingsdreng.
Mig langar í örfáum orðum að rifja
upp fáeinar góðar minningar um
Búbba minn ágæta frænda, ömmu-
barn Guðmundínu ættmóður Lauga-
ættar. Sú fyrsta er frá mínum smá-
púkaárum á Ísafirði þegar Búbbi var
kornungur. Sögusviðið er gamli fót-
Guðbjörn Ingason
✝ Vegna mistakabrenglaðist eft-
irfarandi formáli að
minningargreinum
um Kristján Hafliða-
son, sem var jarð-
sunginn í gær. Ævi-
ágripið er því birt
aftur og biður Morg-
unblaðið hlutaðeig-
andi innilega velvirð-
ingar á mistökunum.
Kristján Hafliðason
fæddist í Hergilsey á
Breiðafirði 29. apríl
1919. Hann andaðist á dvalarhem-
ilinu Hrafnistu í Reykjavík 16. októ-
ber 2009.
Foreldrar hans voru hjónin Haf-
liði Þórður Snæbjörnsson Krist-
jánssonar í Hergilsey og Matthildur
Jónsdóttir frá Skeljavík í Stein-
grímsfirði. Kristján var næst-
yngstur þriggja barna foreldra
sinna, auk þess átti hann einn hálf-
bróður, samfeðra, allmiklu eldri.
Systkini hans, Kristján Pétur, Snæ-
björn Gunnar, Guðrún Sigríður og
Hafliði, hálfbróðir Kristjáns, eru öll
látin. Uppeldissystir þeirra, Svava
Lárusdóttir, er einnig látin.
Föður sinn missti Kristján af slys-
förum haustið 1926, þegar Kristján
var á áttunda árinu, en Hafliði var
þá aðeins 39 ára að aldri. Árið 1934
flutti ekkjan, Matthildur, með börn-
in til Reykjavíkur.
Árið 1945 kvæntist Kristján Gyðu
Gunnarsdóttur kaupmanni. For-
eldrar hennar voru Gunnar Sig-
urðsson kaupmaður í Von og Mar-
grét Gunnarsdóttir. Eignuðust þau
hjónin þrjú börn. Þau eru: 1) Snæ-
björn verkfræðingur, var kvæntur
Helgu Steinsson skólastjóra, þau
eiga eitt barn, Heiðrúnu Helgu, hún
á þrjú börn. Seinni kona hans var
Lilja Ágústa Guðmundsdóttir,
kennari, og eiga þau tvö börn,
Kristján, sem er í sambúð með Þór-
dísi Örnu Stefánsdóttur, og Sól-
veigu Lilju, sem er í
sambúð með Snorra
Guðbrandssyni og
eiga þau einn son. 2)
Matthildur lífeinda-
fræðingur. Hún er
gift Jóni Má Jak-
obssyni vélstjóra og
eiga þau einn son,
Jakob Má; Matthildur
á tvö börn, Gyðu, sem
er gift Einari Frey
Sverrissyni, eiga þau
þrjú börn; og Kristján
Þór, í sambúð með
Brynju Pétursdóttur.
3) Gunnar, búfræðingur og sjálf-
stætt starfandi atvinnurekandi.
Hann á eina dóttur, Elísabetu, sem
er gift Gylfa Sigurðssyni og eiga
þau eitt barn.
Kristján vann m.a. við vitabygg-
ingar norður í Strandasýslu, vega-
vinnu og girðingavinnu norður á
Kjöl og símalínulögn norður við
Dumbshaf. En þó var Kristjáni
mest að skapi, þegar hann var við
fornleifagröft í Stöng í Þjórsárdal
m.a. undir leiðsögn dr. Kristjáns
Eldjárn. Kristján þreytti inntöku-
próf við Menntaskólann á Akureyri
og stóðst það með prýði, en á þeim
árum var ekki nema fjórðungur af
hundrað umsækjendum, sem prófi
náði. En þegar hann fór að telja
krónurnar úr vasa sínum um haust-
ið voru þær ekki nógu margar til
eins vetrar uppihalds. Kristján lauk
síðar prófi frá Ingimarsskóla í
Reykjavík. Árið 1939 gerðist Krist-
ján lögregluþjónn í Reykjavík, til
ársins 1945, er hann réðst í póst-
þjónustuna, seinna Póst og síma,
allt til 1988, fyrst á bréfadeild en í
seinni tíð sem yfirdeildarstjóri m.a.
á bögglapóststofunni í Tryggva-
götu og seinna sem póstrekstr-
arstjóri í Ármúla. Síðustu árin var
Kristján sérlegur ráðgjafi í þjón-
ustu við fyrirtæki.
Útför Kristjáns fór fram frá Ás-
kirkju 23. október sl.
Kristján
Hafliðason
AÐ SKRIFA MINNINGARGREIN
Sami skilafrestur er á greinum vegna útfara í kyrrþey.
Minningargreinar sem berast blaðinu innan tilskilins frests verða birtar
í blaðinu. Leitast verður við að birta þær á útfarardegi eða sem næst þeim
degi.Hvemargar greinar birtast í blaðinu á útfarardegi viðkomandi, ræðst
af stærð blaðsins hverju sinni.
Minningargreinar, sem berast eftir tilskilinn frest eða útfarardag,
verða eingöngu birtar á vefnum á www.mbl.is/minningar. Tilvísun á
vefslóðina verður í greinum eða æviágripi sem birtast í blaðinu.
Netgreinarnar eru öllum opnar.
Þeim, sem vilja fá birta minningargreinar í Morgunblaðinu,
er bent á að skilafrestur til birtingar í blaðinu er á hádegi
tveimur virkum dögum fyrir útfarardag, þ.e.:
Birtingardagur Skilatími
Mánudagsblað Hádegi föstudag
Þriðjudagsblað Hádegi föstudag
Miðvikudagsblað Hádegi mánudag
Fimmtudagsblað Hádegi þriðjudag
Föstudagsblað Hádegi miðvikudag
Laugardagsblað Hádegi fimmtudag
✝
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu
við andlát og útför elskulegrar sambýliskonu,
móður, tengdamóður, ömmu, systur og mágkonu,
GUÐRÚNAR LÁRU KJARTANSDÓTTUR,
Heiðarhjalla 29,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki líknardeildar
Landspítalans Kópavogi.
Bjarni Sólbergsson,
Jón Kjartan Kristinsson, Elsa Guðrún Jóhannesdóttir,
Arnar Jónsson,
Karítas Jónsdóttir,
Kjartan Kjartansson, Halla Guðmundsdóttir,
Kristín Kjartansdóttir.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför föðursystur
okkar,
RAGNHEIÐAR KARLSDÓTTUR,
Tjarnarlundi 3f,
Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks í Bakkahlíð og
Skógarhlíð fyrir góða umönnun.
Karl Haraldsson, Steingerður Ósk Zóphoníasdóttir,
Haraldur Haraldsson, Sigurlaug Bára Jónasdóttir
og fjölskyldur.
✝
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför okkar ástkæra föður, tengdaföður
og afa,
GUNNARS HVAMMDALS SIGURÐSSONAR
veðurfræðings.
Guð blessi ykkur öll.
Guðrún Ingibjörg Gunnarsdóttir, Bill Jenkins,
Helga Gunnarsdóttir, Val Bracey,
Ásta Kristín Gunnarsdóttir, Oddur Björnsson
og barnabörn.