Morgunblaðið - 07.11.2009, Side 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2009
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
„VIÐ í Sjálfstæðisflokknum erum
tilbúnir að taka þátt í að axla
ábyrgð á erfiðum ákvörðunum,
bæði sem leiða til þess að það þurfi
að skera niður og ákvörðunum sem
lúta að því að koma hjólum atvinnu-
lífsins aftur í gang.“ Þetta sagði
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, en hann var
málshefjandi umræðu utan dag-
skrár á Alþingi í gær um stöðu
efnahagsmála í kjölfar vaxtaákvörð-
unar Seðlabankans.
Bjarni sagði að þó 1% vaxtalækk-
un Seðlabankans væri jákvæð að-
gerð, þá ylli það vonbrigðum að
ekki væri gengið lengra á braut
vaxtalækkana. „Hvorki fjölskyldur
né atvinnustarfsemi geta staðið
undir þessari vaxtabyrði. Og það
dugar ekki að vísa til þess að stór
hluti atvinnustarfseminnar sé með
lán sín í erlendum myntum, vegna
þess að við þurfum að brjótast út
úr því ástandi og koma fjármagni
aftur á hreyfingu sem safnast [hef-
ur] upp í innlánum í bankakerfinu,“
sagði hann. Bjarni gagnrýndi harð-
lega stefnuleysi ríkisstjórnarinnar,
sem skorti festu og skýra sýn.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra sagði að ramminn um
efnahagslífið til næstu ára hefði nú
verið mótaður en gríðarlega mikið
hefði áunnist að undanförnu. Von-
andi yrði áframhald á lækkun vaxta
í næsta mánuði. Fram kom í máli
hennar að útboð á samgöngufram-
kvæmdum væru vel á veg komin
„og ýmsar framkvæmdir settar í út-
boðs- og framkvæmdaferil á rík-
isstjórnarfundi í morgun,“ sagði
hún. Þá væru viðræður um Búð-
arhálsvirkjun í fullum gangi.
„Það er margt sem bendir til
þess að við séum að ná tökum á
efnahagslífinu,“ sagði Björn Valur
Gíslason þingmaður Vg, við umræð-
urnar. Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson, formaður Framsóknar-
flokksins, sagði að í þeim gríðarlega
erfiðu aðstæðum sem hér ríktu í
efnahagsmálum gerði ríkisstjórnin í
raun allt öfugt við það sem hún ætti
að gera, „ýtir undir óvissu, hækkar
álögur á heimili og fyrirtæki og
heldur peningum og fjármagni úr
umferð þegar við þurfum hvað mest
á því að halda.“ Margrét Tryggva-
dóttir þingmaður Hreyfingarinnar,
sagði að læra ætti af mistökum
þeirra fjölmörgu landa sem farið
hefðu flatt á að fylgja ráðleggingum
AGS í blindni.
„Skortir festu og skýra sýn“
Snarpar umræður urðu um stöðu efnahagslífsins við umræður utan dagskrár á
Alþingi Ríkisstjórnin ákvað í gær að setja verklegar framkvæmdir í útboð
Morgunblaðið/Kristinn
Alþingi Snarpar umræður urðu á Alþingi í gær um efnahagsmál.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
MENNTA- og leikskólasvið Reykjavíkur vinna að athug-
un á mötuneytisrekstri í leik- og grunnskólum borg-
arinnar. Markmiðið er að finna út hvar besti reksturinn
er og nýta þær aðferðir víðar.
Kostnaður var dreginn mjög saman í skólum borg-
arinnar á þessu ári. Gerð var krafa um 7% lækkun kostn-
aðar. Ragnar Þorsteinsson fræðslustjóri segir að vel hafi
gengið enda skólastjórarnir jákvæðir í að láta þetta
ganga.
Í einhverjum skólum eru áhyggjur af rekstri mötu-
neyta og að hallarekstur þar geti bitnað á öðru starfi.
Borgin ákvað að samræma gjald sem innheimt er af for-
eldrum vegna skólamáltíða nemenda. Samsvarar það
250 krónum fyrir hádegismat. Þurftu sumir skólar þá að
lækka gjaldskrána. Síðan hefur hráefni hækkað veru-
lega í verði án þess að hægt hafi verið að hækka.
Ragnar segir að komið hafi ljós, þrátt fyrir sameig-
inleg innkaup á hráefni, að hráefniskostnaður að baki
hverrar máltíðar sé mismunandi á milli skóla. Hann seg-
ir að stjórnendur mötuneytanna hafi verið duglegir að
spara í innkaupum og telur að mötuneytisreksturinn sé
almennt í góðu lagi. Athugun á þessum rekstri, sem haf-
in var áður en gjaldskráin var samræmd, sé ætlað að
hjálpa til við að finna bestu leiðirnar.
„Reksturinn er víða þungur en menn gera sitt besta til
að endar nái saman. Ástandið virðist vera ágætt og
börnunum líður vel. Mæting er góð og vanskil ekki óeðli-
leg, jafnvel ekki meiri en í góðærinu,“ segir Ragnar.
Þórður Kristjánsson, skólastjóri Seljaskóla, segir að
mötuneytið þar sé tiltölulega hagkvæm eining og flest
börnin noti það. „Við reynum að láta enda ná saman. Það
er ekki auðvelt en við erum með góðan mann í því,“ seg-
ir Þórður. Stjórnandi í minni skóla sem rætt var við
hafði áhyggur af stöðu mötuneytisins en sagðist treysta
því að það yrði ekki látið bitna á öðru starfi.
Verið er að vinna að fjárhagsáætlun borgarinnar fyrir
næsta ár. Umræða hefur verið um að spara þurfi enn
frekar en ekkert hefur verið gefið út um það hversu
mikið.
Morgunblaðið/RAX
Í matsalnum Gleði var ríkjandi hjá strákunum í Langholtsskóla í hádeginu í gær. Þeir fúlsuðu ekki við matnum.
Borgin fer yfir rekstur
mötuneyta skólanna
Gjaldið hækkar ekki þótt hráefniskostnaður vaxi
Skólastjórnendur óttast að tapið bitni á skólastarfi
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
SMITANDI lungnabólga hefur
komið upp á minkabúum hér á landi
flest ár. Veikin sem grasserar í
minkabúi í Skagafirði nú er svæsnari
en upp hefur komið í mörg herrans
ár. Vonast er til að hægt verði að
hefja bólusetningu næstu daga.
Veikin hefur drepið hátt í þrjú
þúsund dýr af um fjórtán þúsund í
minkabúinu á Syðra-Skörðugili en
þar kom hún upp fyrir rúmri viku.
Hrund Lárusdóttir, dýralæknir loð-
dýrasjúkdóma, segir að bakterían
finnist í umhverfinu og við ákveðnar
aðstæður geti hún komið upp hvar
sem er. Hún segir að tilvikið á Syðra-
Skörðugili sé mjög alvarlegt og dýr-
in strádrepist.
Erfitt er að eiga við lungnabólg-
una þegar hún er komin af stað. Ein-
ar Eðvald Einarsson, bóndi á Syðra-
Skörðugili, er farinn að gefa sýklalyf
með fóðri en ekki er komin reynsla á
það hvort það dugar til að hægja á
veikinni. Hrund telur best að bólu-
setja dýrin.
Hvorki var til bóluefni né viðeig-
andi sýklalyf í landinu, þótt smitandi
lungnabólga komi upp hér á landi á
hverju ári. Það tók um viku að fá
sýklalyfin til landsins og ekki var
hægt að fá heppilegt bóluefni. Hafist
var handa við að framleiða bóluefnið
á Tilraunastöð Háskóla Íslands á
Keldum og er vonast til að það verði
tilbúið um helgina.
„Ég bíð eftir bóluefninu, það er
það eina sem stoppar veikina. Þetta
tekur allt óratíma. Hægt hefði verið
að minnka skaðann verulega ef bólu-
efnið hefði verið tiltækt. Ég er að
ganga í gegnum nákvæmlega sama
ferli og bóndinn sem varð fyrir þessu
í fyrra. Það er eins og enginn hafi
lært af reynslunni,“ segir Einar.
Dýrin hafa ekki náð fullum feld-
þroska og þótt þau séu pelsuð og
skinnin sett á markað falla þau mikið
í verði. Auk þess truflast allt kyn-
bótastarf. Einar telur að tap búsins
skipti milljónum króna.
Svæsin lungna-
bólga í minkum
Engar birgðir af lyfjum eða bóluefni
DÓMUR féll í erfðamáli Bobby
Fischer fyrir Héraðsdómi Reykjavík-
ur í gær. Niðurstaðan var sú að kröfu
systursona Fischer, um að dánarbú
hans yrði tekið til opinberra skipta,
var hafnað og var þar með viður-
kenndur erfðaréttur Myoko Watai,
sem segist vera eiginkona Fischers.
Í kröfu systursona Fischers um op-
inber skipti kemur fram að þeir séu
nánustu ættingjar hans en Watai ósk-
aði hinsvegar eftir einkaskiptum dán-
arbúsins. Málstað sínum til stuðnings
lagði hún fram fyrir sýslumann stað-
festingu, útgefna á ensku af sendiráði
Japans á Íslandi, hjúskap þeirra Fisc-
her. Þar kemur fram að þau hafi
kynnst fyrst árið 1973 en hafið sam-
band 1992 og dómsmálaráðherra Jap-
ans hafi staðfest hjúskap þeirra árið
2005.
Morgunblaðið/Golli
Á Íslandi Fischer og Miyoko Watai.
Erfðamál í
Hæstarétt