Morgunblaðið - 07.11.2009, Blaðsíða 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
EIGNARHALDSFÉLAGIÐ Hvíts-
staðir, sem er í eigu sex af fyrrver-
andi yfirmönnum Kaupþings, skuld-
ar um einn milljarð króna. Eignir
félagsins eru fjórar jarðir á Mýrum,
en bókfært verðmæti þeirra er um
400 milljónir. Markaðsverð jarða er
þó enn lægra.
Við sameiningu sveitarfélaga í
Borgarfirði eignaðist Borgarbyggð
nokkrar jarðir sem voru í eigu Álfta-
neshrepps. Þetta voru Hvítsstaðir,
Árbær og helmingur jarðarinnar
Grenjar. Sparisjóður Mýrasýslu
eignaðist jarðirnar í makaskiptum.
Sveitarfélagið fékk enga peninga í
þessum viðskiptum, einungis hús-
eignir. Þegar Hvítsstaðir og Árbær,
sem eru jarðir við Langá, voru seld-
ar 2002 var jarðaverð miklu lægra
en það varð nokkrum árum síðar.
Sparisjóðurinn seldi jarðirnar
strax áfram til félagsins Hvítsstaða
ehf. með talsverðum hagnaði.
Eigendur Hvítsstaða ehf. eru
Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrver-
andi forstjóri Kaupþings, Þorvaldur
Lúðvík Sigurjónsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri eigin-viðskipta
Kaupþings og núverandi forstjóri
Saga Capital, Steingrímur Páll
Kárason, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri áhættustýringar
Kaupþings, Sigurður Einarsson,
fyrrverandi stjórnarformaður Kaup-
þings, Ingólfur Helgason, fyrrver-
andi forstjóri Kaupþings á Íslandi
og Magnús Guðmundsson, fyrrver-
andi forstjóri Kaupþings í Lúx-
emborg. Þorvaldur segist hafa selt
hlut sinn fyrir nokkru, en hann er
samt skráður hluthafi hjá Hlut-
hafaskrá og í ársreikningi félagsins.
Félagið skuldar milljarð
Hver og einn eigandi lagði fram
100 þúsund krónur í hlutafé og því
var hlutafé félagsins aðeins 600 þús-
und. Hlutféð var reyndar aukið um 6
milljónir árið 2007.
Árið 2005 keypti félagið hálfa
jörðina Grenjar á 68 milljónir. Jafn-
framt keypti það félagið Langárfoss
ehf. á 300 milljónir af Jóhannesi
Kristinssyni, sem kenndur er við
Fons.
Í ársreikningi Hvítsstaða fyrir ár-
ið 2007 eru eignir félagsins bókfærð-
ar á um 400 milljónir, en skuldir
nema hins vegar 428,6 milljónum.
Eigið fé félagsins var því á þeim
tíma neikvætt um 24,4 milljónir.
Lánardrottnar félagsins eru tveir,
SPRON, sem lánaði félaginu um 300
milljónir og Sparisjóður Mýrasýslu
sem lánaði félaginu um 120 milljónir.
Lán félagsins er kúlulán með gjald-
daga árið 2010. Lánið er í jap-
önskum jenum, samtals 745 milljónir
jena. Á þessum tíma stóð jenið í tæp-
lega 0,6 krónum, en í dag er jenið
komið upp í 1,38 krónur. Lánið
stendur því í 1.028 milljónum í dag.
Bókfært verðmæti eigna félagsins
er eins og áður segir rúmlega 400
milljónir, en jarðaverð hefur lækkað
eins og allt eignaverð á landinu.
Menn sem Morgunblaðið ræddi við í
gær töldu ólíklegt að Langárfoss,
verðmætasta eign félagsins, færi á
meira en 100-200 milljónir, líklega
nær 100 milljónum. Það væri enginn
í dag að kaupa jarðir á 200 milljónir.
Lánardrottnar félagsins, SPRON
og Sparisjóður Mýrasýslu, komust
báðir í þrot og runnu eignir sjóðanna
inn í Kaupþing.
Ekki náðist í fyrirsvarsmenn
Hvítsstaða í gær. Ekki liggja því fyr-
ir upplýsingar um hvort félagið er
enn í umsjón hlutahafa eða hvort
Kaupþing hefur tekið félagið yfir.
Lögðu fram 600 þúsund og
fengu 400 milljónir að láni
Sex fyrrverandi stjórnendur Kaupþings fengu 400 milljónir að láni til að kaupa
fjórar jarðir á Mýrum Jarðafélag þeirra skuldar einn milljarð króna í dag
RAGNA Árna-
dóttir, dóms-
mála- og mann-
réttindaráðherra,
hefur skipað sér-
fræði- og sam-
hæfingarteymi
um mansal. For-
maður er Hildur
Jónsdóttir.
Aðrir í teyminu eru Guðlaug Jón-
asdóttir, dómsmála- og mannrétt-
indaráðuneyti, Sveinn Magnússon,
heilbrigðisráðuneyti, Ingibjörg
Broddadóttir, félags- og trygginga-
málaráðuneyti, Berglind Eyjólfs-
dóttir frá ríkislögreglustjóra, Guð-
rún Jónsdóttir, Stígamótum, Sig-
þrúður Guðmundsdóttir, Samtökum
um kvennaathvarf, Ágúst Flygen-
ring, utanríkisráðuneyti, og Hreið-
ar Eiríksson frá Útlendingastofn-
un.
Vegna rannsóknar lögreglunnar
á meintu mansalsmáli að und-
anförnu hefur verið starfandi svo-
kallað neyðarteymi en í teymið eru
kallaðir til þeir aðilar sem sérstaka
aðkomu hafa að málum þar sem
grunur er um mansal.
Neyðar-
teymi að
störfum
Sérfræðihópur um
mansal skipaður
PÁLMI Jónsson, fjármálastjóri
KSÍ, segir að fjórir menn hafi játað
að hafa misnotað kreditkort hans á
næturklúbbi í Sviss, hann hafi fengið
endurgreiðslu og því telji hann að
mannorð sitt hafi verið hreinsað.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu
Pálma til Morgunblaðsins um málið í
gær. Þar rifjar hann upp að í nóv-
ember 2005 hafi tvö kreditkort í
hans umsjón verið gróflega misnot-
uð og honum gert að greiða 3,2 millj-
ónir króna. Hann hafi greitt reikn-
ingana en kært misnotkunina. Í
mars á þessu ári hafi hann fengið
bréf frá saksóknaraembættinu í Zü-
rich, þar sem fram hafi komið að
einn maður hefði játað sök í málinu
og væri tilbúinn að endurgreiða það
sem honum bar vegna misnotkunar.
Í júlí sl. sumar hefðu þrír menn til
viðbótar játað sök og sagst tilbúnir
að endurgreiða það sem þeim bar ef
ákæra gegn þeim yrði látin falla nið-
ur.
Helmingurinn endurgreiddur
Þessar endurgreiðslur voru helm-
ingur af því sem kortamisnotkunin
hljóðaði uppá. Hann hefði gengið að
því „enda ég ekki í góðum aðstæðum
að sækja mál í Sviss. Ég taldi líka að
með þessum játningum væri mann-
orð mitt hreinsað og ég fékk til baka
helming af því sem ég þurfti að
greiða í upphafi.“ Pálmi segist ekki
hafa vitað að málinu væri ekki lokið
fyrr en hann heyrði af því í fyrradag.
Telur mann-
orð sitt hafa
verið hreinsað
Fjárfestingar Sigurðar Einarssonar, stjórnarformanns Kaupþings, á jörð-
inni Veiðilæk í Borgarbyggð, hafa talsvert verið í fréttum enda er þar í
byggingu glæsilegt hús sem verður fullbyggt án efa eitt stærsta og best
búna einbýlishús landsins. Veiðilækur ehf. skuldar þó miklu minna en
Hvítsstaðir ehf.
Sigurður á einn eignarhaldsfélagið Veiðilæk. Í árslok 2007 námu eignir
félagsins 284 milljónum, en skuldir námu um 40 milljónum króna. Til við-
bótar er skráð í bókhaldi um 200 milljóna skuld við eiganda félagsins,
þ.e. við Sigurð.
Í ársreikningi fyrir síðasta ár kemur fram að félagið hafi selt fasteignir
fyrir 207 milljónir, en þar er væntanlega átt við sveitasetrið margumtal-
aða. Ekki kemur fram hver kaupandinn er en væntanlega koma aðeins
tveir aðilar til greina, þ.e. Sigurður Einarsson eða viðskiptabanki hans.
Lánið sem hvíldi á Veiðilæk er í japönskum jenum og stóð í um 40 millj-
ónum í árslok 2007, en ári síðar er það komið í 103 milljónir. Eigið fé fé-
lagsins er neikvætt um rúmlega 50 milljónir. Skuldir félagsins eru 118
milljónir. Jörðin Veiðilækur er bókfærð í ársreikningi á 63 milljónir.
Veiðilækur ehf. búinn að selja sveitasetrið
Hreiðar Már
Sigurðsson
Magnús
Guðmundsson
Ingólfur
Helgason
Steingrímur
Páll Kárason
Þorvaldur Lúðvík
Sigurjónsson
Morgunblaðið/Einar Falur
Veiðimenn Félagið Hvítsstaðir ehf. er í eigu sex fyrrum stjórnenda Kaupþings. Athygli vekur að endurskoðandi
tekur fram í áritun á ársreikningi að hann hafi ekki verið endurskoðaður eða grundvöllur hans sannreyndur.
Útlit er fyrir að Kaupþing tapi
nokkrum hundruðum milljóna
króna vegna kaupa sex fyrrver-
andi stjórnenda bankans á jörð-
um á Mýrum. Félag í eigu sex-
menninganna skuldar milljarð.
Sigurður
Einarsson
GRUNUR hefur vaknað um að
inflúensa sé komin upp á öðru
svínabúi, í þetta skiptið í Eyjafirði.
Sýni voru tekin í gær og send til
rannsóknar á Tilraunastöðinni á
Keldum. Að sögn Matvælastofnunar
smitast svínaflensa ekki með svína-
kjöti og stafar fólki því engin hætta
af neyslu þess. Hinsvegar hefur
bann verið sett á flutning dýra til og
frá búinu til að hindra útbreiðslu
smits. Engin tengsl eru talin vera
milli þessa tilfellis og flensunnar
sem staðfest var í svínum á Minni-
Vatnsleysu í lok október. Einkenni
eru m.a. hár hiti, lystarleysi og hósti.
Flensa líklega
á svínabúi
„VIÐ ákváðum bara að slá til,“ seg-
ir Svava Johansen í 17 en hún ætlar
ásamt Birni Sveinbjörnssyni manni
sínum að opna nýja tískuverslun í
Smáralind 19. nóvember nk. Fylgd-
ust þau með framkvæmdum í gær-
kvöldi. „Við opnum 700 fermetra
Gallerí 17 búð og 100 fermetra Foc-
us skóbúð,“ segir Svava og blæs á
allt krepputal. „Fólk verslar meira
á Íslandi, sem er bara jákvætt því
þetta skapar aukna atvinnu. Við
höfum fundið fyrir aukningu, þess
vegna erum við svona bjartsýn.“
Bjartsýni í
Galleríi 17
Morgunblaðið/Ómar