Morgunblaðið - 07.11.2009, Blaðsíða 37
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2009
á skipinu auk þess sem taka þarf
skipið fljótlega í slipp til botn-
hreinsunar.
Samkvæmt frumvarpi til fjárlaga
fyrir árið 2010 hefur framlag til
Hollvinasamtakanna vegna v/s Óð-
ins verið skorið alveg niður í 0.
Þetta er náttúrlega alveg út úr
korti. Skipið er tengt við rafmagn
og heitt vatn frá landi og ekki er
orkan gefin.
V/s Óðinn er hluti af sýningar-
svæði Víkurinnar, sem er eitt
stærsta sjóminjasafn landsins og
væntanlega hefur skipið verið
hugsað sem skrautfjöður í hatti
safnsins þegar ákveðið var að
leggja því við bryggju við hliðina á
safninu.
Vonandi verða þessar línur til
þess að vekja ráðamenn fjármála til
umhugsunar um þessi mál og leið-
rétta þau því ekki viljum við sýna
ryðkláf, þegar gestir skoða safnið.
BIRGIR VIGFÚSSON,
er í Hollvinasamtökum
v/s Óðins.
V/s Óðinn
Frá Birgi Vigfússyni
Í „sparifötunum“ V/s Óðinn liggur við festar.
HAUSTIÐ 2006 voru að frumkvæði
Guðmundar Hallvarðssonar, fyrr-
verandi alþingismanns, stofnuð
Hollvinasamtök varðskipsins Óðins.
Tilgangur þessara samtaka var að
bjarga skipinu frá því að verða selt
í brotajárn. Nokkrir af þáverandi
ráðamönnum þjóðarinnar voru við-
staddir og tóku þátt í stofnun þess-
ara samtaka, sem sýnir að þeir
höfðu áhuga á verkefninu enda er
þetta sögufrægt skip, sem hefur
tekið þátt í þorskastríðunum ásamt
mörgum verkefnum sem hafa aukið
hróður þess innanlands sem utan.
Þetta tókst og nú eru um 20
mánuðir síðan þáverandi fjár-
málaráðherra afhenti Hollvina-
samtökunum skipið og man ég ekki
betur en að þá hafi verið talað um
að það fengi 12 milljónir króna á
ári úr ríkissjóði. Það hefur ekki
gengið eftir og hefur því ekki verið
hægt að ráða starfsmenn til við-
halds og eftirlits með skipinu. Það
er hins vegar nauðsynlegt því að 50
ára gamalt skip þarfnast stöðugrar
vinnu við viðhald o.þ.h. Dæmi um
það hvernig getur farið ef þessu er
ekki sinnt er gamla varðskipið Þór
sem er því miður að grotna niður
vegna lélegrar umhirðu.
V/s Óðinn er nú þegar farinn að
bera þess merki, að frekara við-
halds er þörf og er víða farið að sjá
Í HEIMILDARÞÆTTINUM
„Konur í rauðum sokkum“ kom
fram sú skoðun að fóstureyðinga-
löggjöfin, eins og við þekkjum hana
í dag, hefði verið
stærsti sigur
kvennabarátt-
unnar á Íslandi.
Löggjöfin snýst,
að mati þeirra
sem kættust svo
mjög yfir henni,
um að konur hafi
umráðarétt yfir
eigin líkama.
Annað sem
kom fram í þætt-
inum var að áður hefðu konur dáið
unnvörpum af völdum ólöglegra
fóstureyðinga. Þeirri kvöl sem kon-
ur gengu í gegnum þegar þær létu
framkvæma ólöglega fóstureyðingu,
var einnig komið til skila.
Þetta eru skoðanir og upplýs-
ingar sem mega alveg koma fram
að mínu mati. Það sem má hins
vegar ekki koma fram er að fóstur
hafa dáið unnvörpum til að kosta
þennan umrædda sigur. Það er
bara staðreynd sem rauðsokkum
hefur gengið ÓTRÚLEGA vel að
líta framhjá. Fóstureyðingum hefur
nefnilega fjölgað mjög á Íslandi eft-
ir þessa löggjöf. Nú er svo komið
að um 17% allra þungana enda með
fóstureyðingu.
Önnur staðreynd sem ekki var
minnst á í þættinum er að fóstur,
ekkert síður en fædd börn, upplifa
sársauka, hvort sem þeim er eytt
með löglegum eða ólöglegum hætti.
Enn annað sem erfitt er að af-
neita er að fóstur eru með sinn eig-
in líkama. Það þarf því mikinn vilja
til að færa rök fyrir því að fóstur-
eyðingar snúist bara um konurnar
og minnast ekki einu orði á börnin.
Hvað er þá til ráða? Hvernig get-
um við tekið tillit bæði til kvenna
og barna? Það er fær leið og hún
felst í að konurnar gefi börnin til
ættleiðingar, en tilvonandi for-
eldrar, sem geta ekki eignast börn
með náttúrulegu aðferðinni, bíða í
röðum eftir að fá að taka að sér
barn.
MELKORKA MJÖLL
KRISTINSDÓTTIR,
B.A. í heimspeki.
Okkar
stærsti sigur
Frá Melkorku Mjöll Kristinsdóttur
Melkorka Mjöll
Kristinsdóttir
Reykjavík
Sími 588 9090
Síðumúla 21 • 108 Reykjavík
www.eignamidlun.is
Sverrir Kristinsson, lögg. fasteignasali
Sérhæð eða hæð og ris óskast
– góðar greiðslur í boði
Traustur kaupandi óskar eftir 150-200 fm sérhæð
eða hæð og risi. Þessir staðir koma vel til greina:
Vesturbærinn, Hlíðar eða nágrenni Miklatúns.
Allar nánari uppl. veita Sverrir Kristinsson
og Hilmar Þór Hafsteinsson.
Glæsilegt og vel staðsett
259,4 m2 einbýlishús
á tveimur hæðum með
miklu útsýni í litlum
botnlanga við Þrastar-
höfða 35 í Mosfellsbæ.
Aðalhæð skiptist í stóra
forstofu, þvottahús,
hol, 3 góð svefnher-
bergi, baðherbergi
með tvöfaldri sturtu og
hornbaðkari, gestasalerni, sjónvarsholi
(getur verið svefnherbergi), stofu með arni,
borðstofu og stóru eldhúsi, auk bílskúrs.
Á efri hæð er setustofa og svefnherbergi
með sér baðherbergi m/sturtu. V. 74,0 m.
! !
OPIÐ HÚS
ÞRASTARHÖFÐI 35 - MOSFELLSBÆR
Opið hús sunnudaginn 8. nóvember frá kl. 15:00 til 15:30
Sóttvarnalæknir hvetur vanfærar konur og sjúklinga í
tilgreindum forgangshópum til að panta þegar í stað
tíma fyrir bólusetningu gegn inflúensu A(H1N1) á næstu
heilsugæslustöð.
• Eindregið er mælst til þess að aðstandendur barna
og aldraðra með „undirliggjandi sjúkdóma“ sjái til
þess að viðkomandi láti bólusetja sig.
Þúsundir manna úr þessum hópum hafa látið bólusetja
sig og fengið þar með vörn gegn veikinni en betur má
ef duga skal. Starfsmenn heilbrigðisþjónustunnar hafa
vissar áhyggjur af því að þessir sjúklingar í skilgreindum
forgangshópum skili sér ekki til bólusetningar eins og
æskilegt væri, sjálfra þeirra vegna og samfélagsins.
Landsmenn allir geta pantað tíma á
heilsugæslustöðvunum fyrir bólusetningu gegn
inflúensunni frá og með mánudegi 16. nóvember.
Mánudaginn 23. nóvember verður byrjað að bólusetja þá
sem fyrstir skrá sig og þar með hefst almenn bólusetning
gegn inflúensunni hérlendis.
Afleiðingar inflúensufaraldursins geta verið mjög alvarlegar
eins og dæmin sanna hérlendis og erlendis. Bólusetning er því
sjálfsagður hlutur enda fullvíst og margsannað að bóluefnið
veitir góða vörn gegn veikinni.
Ekki er vitað um nein tilfelli alvarlegra aukaverkana
bólusetningar, hvorki hérlendis né erlendis.
Bólusetning?
Já takk!
Nánari upplýsingar um bóluefnið og bólusetningu vegna A(H1N1) er að finna á influensa.is.
Tilkynningar og upplýsingar um viðbúnað vegna inflúensu A(H1N1) eru á influensa.is og á almannavarnir.is.
Landlæknisembættið
sóttvarnalæknir
Ríkislögreglustjórinn
almannavarnadeild
Bólusetning hjá Heilsugæslunni Árbæ er ánægjustund! Ingibjörg
Sigmundsdóttir yfirhjúkrunarfræðingur og Margrét Henný Gunnarsdóttir.