Morgunblaðið - 07.11.2009, Page 56
56 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2009
Heimildamyndin Draumalandið
eftir þá Þorfinn Guðnason og
Andra Snæ Magnason tekur þátt í
aðalkeppninni á Alþjóðlegu heim-
ildamyndahátíðinni IDFA í Amst-
erdam sem fer fram 19. - 29 nóv-
ember í ár. Þetta er í fyrsta skipti
sem íslensk heimildamynd er valin í
aðalkeppnina á IDFA, sem er
stærsta heimildamyndahátíð í
heimi.
Draumalandið í aðal-
flokknum á IDFA
Fólk
„ÞAÐ er mikil grægði í þessari mynd, mikið
borðað, og hún vísar svolítið í samfélagið eins og
það hefur verið undanfarin ár,“ segir Gunnur
Þórhalls Von Matern um stuttmynd sína, Dinner
is Served, sem bar sigur úr býtum á Ljósvaka-
ljóðum, stuttmyndahátíð unga fólksins, sem fór
fram á fimmtudagskvöldið.
„Fjölskyldan í myndinni er mjög sjálfhverf og
það er þarna lítil stelpa sem verður útundan, hún
fær enga athygli því hinir eru svo uppteknir af
sjálfum sér,“ bætir Gunnur við.
Dinner is Served er fyrsta stuttmynd Gunnar
sem er 22 ára nemi í Söngskólanum í Reykjavík.
Hún er sjálflærð í kvikmyndagerð og með margt
á prjónunum. „Ég er með aðra mynd núna í
hljóðvinnslu og svo byrja ég að taka þá þriðju um
næstu páska,“ segir Gunnur sem stefnir á kvik-
myndanám erlendis í framtíðinni. Spurð hvað
hún haldi að hafi ráðið úrslitum um að mynd
hennar vann segir Gunnur að það hafi líklega átt
stóran þátt að myndin er stutt, um sjö mínútur,
hnitmiðuð og kómísk á dramatískan hátt. Næst á
dagskrá hjá Gunni er að sækja um í fleiri keppn-
um með myndina og svo þætti henni ekki verra
ef hún kæmi henni að til sýningar í sjónvarpi.
Í fyrsta skipti í sögu Ljósvakaljóða unnu stelp-
ur alla flokka keppninnar. Handrit Höllu Míu
Ólafsdóttur að myndinni Lítil hjálp var valið
besta handritið og Pitch-keppnina sigraði Ás-
laug Friðriksdóttir en í þeim flokki voru hug-
myndir að myndum kynntar.
ingveldur@mbl.is
Stelpur sigursælar á stuttmyndahátíð
Sigur Gunnur er efnileg kvikmyndagerðarkona.
Hægt er að sjá myndirnar sem tóku þátt í Ljós-
vakaljóðum á dvoted.net.
Dagur Kári Pétursson kvik-
myndaleikstjóri leitar fjármagns
svo hann geti ráðist í gerð til-
raunakenndrar kvikmyndar eftir
óútgefinni skáldsögu vinar síns,
Daniels Denciks, Den sidste idiot.
Að sögn Dags Kára svipar sögunni
nokkuð til Nóa albinóa, segir af
ungum manni sem hefur hefur
hreinar og rómantískar hug-
myndir um lífið, býr á afskekktum
stað en er sendur af afa sínum og
föður til borgarinnar. Dagur tók
upp kynningarmynd fyrir kvik-
myndina á Íslandi til að selja hug-
myndina. Myndin verður á dönsku
og mögulegt að hún verði tekin á
Íslandi.
Dagur Kári leitar að
framleiðslufjármagni
Nei, ekki sá Berndsen, heldur
tónlistarmaðurinn Berndsen.
Kauði hefur vakið allnokkra at-
hygli fyrir grafískt myndband við
lag sitt „Supertime“, svo mikla
reyndar að það er komið inn á
Queens International Film Festival
þar sem það er tilnefnt sem besta
tónlistarmyndbandið. Listrænni út-
rás landans halda engin bönd.
Berndsen á kvikmynda-
hátíð í New York
Eftir Kristrúnu Ósk Karlsdóttur
kriskar@hi.is
CRAZY Love Butter eru þrír
dansdúettar sem sýndir verða um
helgina. Þríleikurinn sam-
anstendur af dansverkum eftir
Steinunni Ketilsdóttur og Brian
Gerke.
Fyrsta verk sýningarinnar er
Crazy in Love with MR. PER-
FECT, það var frumsýnt á
Reykjavík Dance Festival árið
2007 og var í kjölfarið tilnefnt til
Grímuverðlauna. „Þetta verk er
frekar minimaliskt á allan hátt.
Búningarnir eru mjög einfaldir
og umgjörðin lítil í kringum
dansinn," segir Steinunn Ketils-
dóttir höfundur og dansari. „ Í
heildina er hægt að lýsa því sem
hálfgerðri Disneymynd.“
Þá kemur verkið Love always,
Debbie and Susan sem hlaut
fyrstu verðlaun á Danshöf-
undakeppninni Danssolutions í
Kaupmannahöfn 2008. Steinunn
lýsir því sem reiðum uppreisnar-
ungling. „Það er popptónlist, föt
út um allt svið og umgjörðin er
öll meiri en í fyrst verkinu, lýs-
ingin er til dæmis flóknari.“
Þriðja verkið var framleitt af
Dancescenen leikhúsinu í Kaup-
mannahöfn og nefnist það The
Butterface. „Þetta verk er eins
og ævintýri sem verður að hálf-
gerðri martröð.“
Steinunni segir verkin eiga
margt sameiginlegt. „Þau fjalla
öll um mismunandi hliðar á ást-
inni, kynlífi og samböndum.
„Dansararnir bjóða upp á fleira
en dans.“ Milli atriða eru hlé, þá
eru gogo dansarar frammi, dj og
ýmislegt óvænt. Við vonum að
þar skapist partístemmning. Eftir
sýninguna er gestum velkomið að
vera áfram og dansa og skemmta
sér með okkur, kannski verða
ástfangnir,“ segir Steinunn að
lokum.
Sýningarnar eru kl. 20 í Hafn-
arfjarðarleikhúsinu í kvöld og á
morgun. Miðasala er á Midi.is.
Morgunblaðið/Kristinn
Crazy Love Butter Brian Gerke og Steinunn Ketilsdóttir sýna þrjá frum-
samda dansdúetta um helgina í Hafnarfjarðarleikhúsinu.
Disneymynd, unglingur og
ævintýri breytist í martröð
Crazy Love Butter, danssýning í Hafnarfjarðarleikhúsinu
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
HEIMIR Eyvindarson heitir maður
og er hljómborðsleikari hinnar
ágætu hljómsveitar Á móti sól. Nú
hefur sú sveit loks sent frá sér átt-
undu breiðskífuna, 8, óþreyjufullum
aðdáendum til mikils léttis.
Tólf ár eru liðin frá því sveitin
sendi fyrstu breiðskífuna frá sér,
Gumpinn, og margt vatn hefur
runnið til sjávar. Magni Ásgeirsson,
söngvari sveitarinnar, lagðist í vík-
ing og tók þátt í Rockstar árið 2006,
eins og frægt er orðið, og gaf svo út
sólóplötu. Hljómsveitin beið þol-
inmóð eftir Magna sínum, beið þess
að Rockstar-öldurnar lægði. Vinna
við plötuna 8 hefur staðið yfir frá
árinu 2006 og nú er hún komin, ell-
efu laga gripur. „Við ætluðum alltaf
að gefa hana út fyrir jólin 2006 en
svo var brjálæðið svo mikið þegar
hann kom heim að það var enginn
tími til að klára.“
Þetta er allt Magna að kenna,
s.s.?
„Já, þetta er allt Magna að
kenna,“ svarar Heimir kíminn.
Hljómsveitin hafi lítið spilað á þessu
Rockstar-tímabili en svo ákveðið að
reyna að gefa plötuna út fyrir jól
2008. Sveitin hélt til Danmerkur
sumarið 2008 og var ætlunin að
klára plötuna. Um haustið skall
kreppan á og sveitin ákvað að fresta
enn útgáfunni, fram á næsta ár, þar
sem platan var framleidd erlendis
og gengið sérlega óhagstætt. Ekki
fór þó kreppan. „Ég er samt ánægð-
ur með að við skyldum ákveða að
fresta henni, það gaf okkur meiri
tíma til að nostra við hana.“
Flott tala
Nú heitir platan 8 og í tölvupósti
talar þú um að talan átta sé marg-
brotin, í japönskum fræðum sé hún
tákn um vaxandi happasæld og oft
litið á hana sem tákn um óendanlega
og eilífa vináttu. Ætlar sveitin að
spila endalaust, ríkir innan hennar
eilíf vinátta?
„Þetta er nú ekki eins djúpt og
þetta hljómar. Það bara skaut ein-
hver þessari hugmynd út í loftið,
þegar við vorum að kasta á milli
okkar nöfnum. Eiginlega var það
hönnuðurinn okkar sem greip þetta
á lofti og fór að vísa í öll þessi tákn,
hvað þetta þýddi. Okkur fannst það
bara dálítið flott. En eilíf vinátta,
það á vel við okkur.“
Þið eruð búnir að gefa út sex lög
af plötunni, „singla“ á bransamáli.
Það eru bara fimm lög eftir …
„Já, það er bara þannig. Fyrsta
lagið sem fór í spilun af þessari
plötu kom út í ársbyrjun 2008 og við
vorum að senda sjötta lagið, „Verst
að ég er viss“, það fór út fyrir tveim-
ur vikum eða svo.“ Öll lögin sex hafa
náð góðri spilun í útvarpi, að sögn
Heimis.
Er verið að semja um ástina,
blómin og rokkið?
„Ástina, blómin, lífið og allt þetta.
Jú, jú, það er náttúrlega mjög mis-
jafnt. Við erum þrír sem semjum:
ég, Magni og Sævar gítarleikari. Við
erum mjög ólíkir, Magni er mesti
rokkarinn, dálítið ólíkur okkur Sæv-
ari, þannig að það eru þarna ýmsir
stælar eins og alltaf á öllum plöt-
unum okkar.“
Það eru óvenjumargir kenn-
aramenntaðir meðlimir í hljómsveit-
inni miðað við það sem gengur og
gerist í rokkhljómsveitum, þrír alls,
tveir starfandi. Heimir og Sævar
kenna við grunnskólann í Hvera-
gerði. Hefur reynsluheimur kenn-
arans ekkert skilað sér í textagerð
sveitarinnar?
„Neeei, ekki nema þá kannski
óbeint, í mesta lagi. Það er ekki
komið að því. En samt, þarna er nú
lagður grunnurinn að lífinu þannig
að þetta hlýtur að hafa einhver
áhrif.“
Á móti sól ætlar ekki að halda út-
gáfutónleika en ætlar þó að halda
útgáfupartí á næstu dögum, óvíst
hvenær og hvar. Næstu tónleikar í
Reykjavík verða á Players, 5. des-
ember, en fram að því spila kapp-
arnir aðeins á lokuðum böllum.
„Eilíf vinátta, það á vel við okkur“
Áttunda breiðskífa poppsveitarinnar Á móti sól er komin út, tveimur árum
eftir fyrirhugaðan útgáfutíma Rockstar og kreppan töfðu fyrir útgáfunni
Ljósmynd/Árni Torfason
Á móti sól Þessi forláta filmubútur sýnir þá Sævar Helgason, Heimi Ey-
vindarson, Þóri Gunnarsson, Stefán Þórhallsson og Magna Ásgeirsson.
Breiðskífur
Á móti sól
eru eftirfar-
andi: Gump-
urinn (1997),
1999 (1999),
ÁMS (2001,
jafnframt fyrsta platan með
Magna sem söngvara), Fiðrildi
(2003), 12 íslensk topplög
(2004), Hin 12 topplögin
(2005), Á móti sól í 10 ár
(2006, safnplata með smellum
og þremur nýjum lögum) og svo
8 (2009).
Allt frá Gumpi til 8
amotisol.blog.is