Morgunblaðið - 28.11.2009, Síða 16
16 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2009
Á MORGUN, sunnudag, verður
haldin aðventuhátíð á Austurvelli
og ljósin tendruð á Oslóartrénu.
Lúðrasveit Reykjavíkur leikur
nokkur jólalög undir stjórn Lár-
usar H. Grímssonar frá kl. 15.30.
Athöfnin sjálf hefst kl. 16.00 með
því að Dómkórinn syngur nokkur
lög undir stjórn Marteins Hunger
Friðrikssonar, auk þess sem Gerð-
ur G. Kristný flytur frumsamið ljóð
um Ketkrók.
Þá tekur Hanna Birna Kristjáns-
dóttir borgarstjóri við trénu, sem
er gjöf Oslóarborgar til Reykvík-
inga. Það er Aud Kvalbein, vara-
borgarstjóri Oslóar, sem afhendir
tréð.
Þá koma Bangsi litli úr Dýrunum
úr Hálsaskógi og ljónið úr Galdra-
karlinum í Oz og fá viðstadda til að
hugsa um það sem skiptir máli. Þá
hafa þrír hressir jólaveinar laumast
til byggða og ætla að heilsa upp á
krakkana á Austurvelli. Dag-
skránni lýkur um kl. 16.45.
Aðventuhátíð á Austurvelli þegar
ljósin verða tendruð á Oslóartrénu
Morgunblaðið/Ómar
Vinarbragð Tréð var fellt fyrir tveimur vikum og sent til Íslands. Í gær
reistu borgarstarfsmenn tréð og gerðu það klárt fyrir hátíðarhöldin.
Í DAG, laugardag, verður haldin jólahátíð í Kópavogi á
Hálstorgi og í nærliggjandi menningarstofnunum. Und-
anfarin ár hefur myndast sannkölluð fjölskyldustemning
þennan dag.
M.a. verður handverksmarkaður opnaður í Gjábakka
kl. 13.00, en þar verður einnig boðið upp á mörg tónlist-
aratriði, m.a. Karlakór Kópavogs o.fl. Í Gerðarsafni
verður haldin sýning á verkum Gerðar Helgadóttur kl.
11-17. Þá munu listamenn í Kópavogi taka sig saman og
hafa opnar vinnustofur víða í bænum. Kl. 16-17 verður
svo dagskrá á Hálstorgi þar sem tendrað verður ljós á vinabæjarjólatrénu
frá Norrköping.
Jóla- og menningarhátíð í Kópavogi
Í DAG, laugardag, kl. 15 verður
tendrað á jólatrénu við Flensborg-
arhöfnina. Tréð er gjöf frá Cux-
haven í Þýskalandi, vinabæ Hafnar-
fjarðar. Lúðrasveit Hafnarfjarðar
leikur nokkur lög auk þess sem
jólasveinar líta í heimsókn.
Klukkan 16 í dag verða ljósin
tendruð á jólatré Mosfellsbæjar á
miðbæjartorgi við Kjarna. Skóla-
hljómsveit Mosfellsbæjar leikur
ásamt barnakór Varmárskóla, auk
þess sem jólasveinar koma við.
Morgunblaðið/ÞÖK
Ljósin tendruð á
trjám í Mosfellsbæ
og Hafnarfirði
Í DAG, laugardag, verður árlegur
jólabasar haldinn á Grund, á A-
gangi, 4. hæð, og stendur frá kl.
13.00-16.00. Á boðstólum verður
fjöldi handunninna muna, vett-
lingar, sokkar, kerti, kort, púðar,
dúkar og ýmislegt fleira. Þá verða
kaffi og vöfflur til sölu á 250 kr.
Jólabasar á Grund
BERKLAVÖRN, sem er deild í
SÍBS, heldur aðventuhátíð á morg-
un, sunnudag, kl. 15 á Grandhóteli
við Sigtún í Reykjavík. Veitingar á
boðstólum og ýmislegt til skemmt-
unar. Allir félagar velkomnir.
Aðventuhátíð
Berklavarnar
Í aðdraganda jóla er hægt að gera sér margt til skemmtunar og fróðleiks og á
aðventunni sækja sér margir andlega og líkamlega næringu. Fram til jóla
mun Morgunblaðið birta upplýsingar um ýmsa viðburði sem tengjast jóla-
haldinu með einum eða öðrum hætti, vítt og breitt um landið.
Aðventan gengur í garð
Í DAG, laugardag, verða ljósin tendruð á jólatrénu á
Garðatorgi. Tréð er gjöf frá Asker, vinabæ Garðabæjar í
Noregi.
Athöfnin hefst rétt fyrir kl. 16 á Garðatorgi í nýja mið-
bæjargarðinum. Blásarasveit Tónlistarskóla Garða-
bæjar leikur fyrir gesti. Sendiherra Noregs á Íslandi,
Margit Tveiten, afhendir tréð fyrir hönd Asker. Skóla-
börn úr Flataskóla syngja nokkur lög og gera má gera
ráð fyrir því að jólasveinarnir líti við.
Í Bókasafni Garðabæjar, kl. 14 sýnir Möguleikhúsið
leikritið ,,Alla Nalla og tunglið" og í Listasal Garðabæjar, fyrir ofan bóka-
safnið, opnar Auður Marinósdóttir myndlistarsýningu kl. 15-18. Í gamla
Hagkaupshúsinu verður jólamarkaður sem er opinn frá kl. 11-17.
Ljósin tendruð á jólatrénu í Garðabæ
STUTT
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur
annaei@mbl.is
AÐSÓKN í jólaúthlutun Mæðra-
styrksnefndar, sem stendur yfir frá
15-18 desember er mikil. Þegar er
byrjað að taka við umsóknum og
verður það gert til 10. desember.
Líkt og í fyrra er jólaúthlutunin
samvinnuverkefni Mæðrastyrks-
nefndar, Íslandsdeildar Rauða
krossins og Hjálparstarfs kirkj-
unnar, og fer hún að þessu sinni
fram á Norðlingabraut 12.
Búist er við fjölgun umsókna
þetta árið. „Við höfum núna haft op-
ið á hverjum miðvikudegi frá kl. 2-5
og síðustu miðvikudaga hafa komið
rúmlega 500 manns og það er mikil
fjölgun“ segir Ragnhildur G. Guð-
mundsdóttir, formaður Mæðra-
styrksnefndar.
„Það er mikil fjölgun hjá ör-
yrkjum, eldri borgurum og yngra
fólki. Eins hefur útlendingum fjölg-
að og þá sérstaklega einstæðum er-
lendum karlmönnum.“ Hún bætir
við að einnig leiti æ fleiri sem misst
hafa vinnuna til Mæðrastyrks-
nefndar.
Hún er þess þó fullviss að nóg
verði af matvöru og öðrum varningi
fyrir jólaúthlutunina. „Menn sýna
okkur yfirleitt mikinn hlýhug fyrir
jólin og á því virðist engin und-
antekning þetta árið.“
Fimmföldun á tveimur árum
Umsóknum um aðstoð hefur einn-
ig fjölgað mikið hjá Hjálparstarfi
kirkjunnar. Sé litið til síðustu
tveggja ára hefur umsóknafjöldinn í
októbermánuði fimmfaldast. Árið
2007 voru þær 171 og eru í ár 886.
Að baki hverri umsókn eru að
meðaltali um 2,7 einstaklingar, sem
þýðir að meira en 2.300 ein-
staklingar nýttu sér aðstoðina.
Fjöldi þeirra sem leitað hafa að-
stoðar hjá Fjölskylduhjálp Íslands
hefur þá rúmlega tvöfaldast á sl.
ári.
Fjögur hundruð og þrjátíu fjöl-
skyldum var úthlutað mat og fatn-
aði í gær á vikulegum úthlut-
unardegi Fjölskylduhjálparinnar og
hafa aldrei fleiri leitað aðstoðar
sama daginn. Eru þetta 115% fleiri
en á sama tíma í fyrra, er úthlutað
var mat og fatnaði til um það bil 200
fjölskyldna vikulega.
Fjölmargir leita aðstoðar
Í HNOTSKURN
»Tekið er við umsóknum íjólaúthlutun Mæðrastyrks-
nefndar dagana 1.-3. og 8.-10.
desember frá kl. 11-14.
»Jólaúthlutunin fer fram15.-18. desember, en einn-
ig verður opið 21.-22. desem-
ber frá kl. 10-12 og 13-16.
Miklar annir eru í aðdraganda jóla hjá Mæðrastyrksnefnd,
Hjálparstarfi kirkjunnar og Fjölskylduhjálp Íslands
Morgunblaðið/Golli
Jólaúthlutun Reynt er að byggja matargjafirnar í jólaúthlutun Mæðra-
styrksnefndar á hefðbundnum jólamat eftir því sem hægt er.
Þjónustuverið er opið kl. 09:00 - 18:00 alla virka daga
og á laugardögum kl. 11:00 - 16:00.
444 7000
Þjónustuver
Arion banka
Hafðu samband
sími 444 7000 • arionbanki.is