Morgunblaðið - 28.11.2009, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 28.11.2009, Qupperneq 20
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2009 Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is KÍNVERJAR hafa byggt upp út- flutningsveldi sitt á framleiðslu varnings í verksmiðjum sem eru oft og tíðum knúnar með bruna jarð- efnaeldsneytis í úreltum orkuverum. Orkunýtnin í mörgum kolaorku- verum er þannig lítil en þar sem kol- in hafa verið ódýr er orkan sem fæst með bruna þeirra nógu ódýr til að vega þar á móti. Hin slæma orkunýtni skýrir hvers vegna Kínverjar kjósa að miða við kolefnisstuðul (e. carbon intensity) í loftslagsstefnu sinni. Með því að miða við stuðulinn geta Kínverjar haldið áfram að auka los- un gróðurhúsalofttegunda með þeim rökum að aukningin sé hlutfallslegur samdráttur ef miðað er við aukna verðmætasköpun. Illa farið með auðlindirnar Eins og sjá má á kortinu hér til hliðar er orkunýtnin afar léleg í olíu- vinnsluríkjunum Íran og Rússlandi en vitað er að í fyrrnefnda ríkinu eiga niðurgreiðslur þátt í bruðli með hræódýrt bensín. Athygli vekur hversu stuðullinn er hár í Ástralíu (þeim mun hærri, þeim mun minni orkunýtni), einu mesta kolaútflutningsríki heims. Þá er at- hyglisvert að stuðullinn er tiltölulega lágur í Bandaríkjunum en ganga má út frá því að hann lækki frekar þegar ný lög um bætta eldsneytisnýtni ökutækja verða að fullu komin fram. Bætt orkunýtni stuðli að minni losun í Kína Endurnýjun orkukerfisins lykillinn að loftslagsstefnunni Úkraína Íran Rússland Kína Suður-Afríka Indland Sádi-Arabía Indónesía Ástralía Kanada Nýja-Sjáland Mexíkó Spánn Bandaríkin Brasilía Þýskaland Ítalía Bretland Frakkland Japan 2005 | 2006 7,78 | 6,77 4,83 | 4,83 4,86 | 4,54 2,87 | 2,85 2,72 | 2,62 1,82 | 1,80 1,78 | 1,78 1,56 | 1,28 0,92 | 0,89 0,77 | 0,73 0,60 | 0,60 0,58 | 0,60 0,56 | 0,53 0,55 | 0,52 0,50 | 0,49 0.44 | 0.43 0,41 | 0,40 0,36 | 0,35 0,29 | 0,28 0,25 | 0,24 Kínversk stjórnvöld hafa skýrt frá takmarki sínu um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda. Markmiðið byggist á hlutfalli á milli losunar koldíoxíðs og þjóðarframleiðslu. Öll framleiðsla og öll umsvif í efnahagslífinu krefjast orku sem er að stærstum hluta sótt í jarðefnaeldsneyti í þessu fjölmennasta ríki heims. LOSUNARMARKMIÐ KÍNVERJA Heimild: Energy Information Administration (EIA) Tonn af CO2 á hverja 1.000 dali (tölur frá árinu 2000) Losun á koldíoxíði (CO2) vegna bruna jarðefnaeldsneytis á hverja 1.000 dali í þjóðarframleiðslu HVAÐ ER KOLEFNISSTUÐULL? Kolefnisstuðullinn er mælikvarði á fjölda koldoxíðseininga sem losaðar eru í andrúmsloftið á hverja efnahagseiningu. Losunin er mæld í tonnum en þjóðarfram- leiðslan í þeirri verðmætasköpun sem fer fram í þjóðfélaginu. HVERS VEGNA HAFA KÍNVERJAR KOSIÐ AÐ MIÐA VIÐ KOLEFNIS- STUÐULINN? Stuðullinn gerir Kínverjum kleift að verða við alþjóðlegum þrýstingi um að draga úr losun um leið og þeir geta haldið á lofti því sjónarmiði að uppbygging í þróunarríkinu sé forgangsatriði. Kínversk stjórnvöld hyggjast lækka kolefnisstuðulinn um 40-45% fyrir 2020 miðað við 2005 eða niður 1,72-1,58. BÚLGARSKA geimrannsóknastofn- in fullyrðir að geimverur fylgist grannt með mannlífinu hér á jörð og reyni að koma boðum til mannfólks- ins, meðal annars með hringjunum frægu á ökrum. Lachezar Filipov, aðstoðarforstjóri stofnunarinnar, staðfesti í samtali við breska dag- blaðið Daily Telegraph að rannsókn á hinum framandi verum færi fram en um 30 spurningar hafa þegar verið lagðar fyrir þær. Filipov segir hugskeyti verða notuð við samskiptin en hann kveðst þess fullviss að mannkynið muni koma á beinum samskiptum við verurnar á næstu 10-15 árum. Filipov segir hina langt að komnu gesti vinveitta. Ræða við geimverur BÓKIN Mein Kampf, eða Barátta mín, eftir Adolf Hitler, leiðtoga Þriðja ríkis nasista, selst vel á göt- um úti í Dhaka, höfuðborg Bangla- desh. Fjallað er um málið á vef breska útvarpsins, BBC, en þar seg- ir að Mein Kampf seljist jafn vel og skáldsagan The Lost Symbol eftir metsöluhöfundinn Dan Brown. Salan fer fram við fjölfarnar um- ferðaræðar og eru eintökin ólögleg- ar ljósritanir sem fátæk börn bjóða vegfarendum. Breska útvarpið ræðir við unglinginn Mabul, sem er 15 ára, en hann segir menntafólk spennt fyrir hinni umdeildu bók Hitlers. Hann selji 5-6 eintök á dag. Mein Kampf rýkur út ÞÓTT um 100 milljón ár séu liðin frá því að hún reikaði um slétturnar er hin 8 metra langa þorneðla ekki árennileg þar sem hún hvílir uppstillt á sýningu á stein- gervingum sem boðnir verða upp í París eftir helgi. Ásamt beinum risaeðla verða ýmsir steingervingar og verðmætar steintegundir á uppboðinu. Þorneðlur lifðu í Norður-Afríku en talið er að þær hafi verið uppi fyrir 112-93,5 milljónum ára. RISAEÐLA TIL SÖLU Reuters Hættumatsnefnd Skaftárhrepps Endurskoðuð tillaga að hættumati vegna ofanflóða á Kirkjubæjarklaustri var kynnt á íbúafundi þar síðastliðinn fimmtudag, 26. nóvember 2009, í samræmi við ákvæði laga nr. 49/1997 og reglugerðar nr. 505/2000. Tillagan liggur nú frammi til frekari kynningar á skrifstofu Skaftárhrepps. Athugasemdum skal skilað til Skaftárhrepps í síðasta lagi miðvikudaginn 30. desember 2009. Hættumat fyrir Kirkjubæjarklaustur Fullinnréttað rúmlega 3600m² skrifstofuhúsnæði í 5 hæða lyftuhúsi á besta stað í Kringlunni sem hýsti áður höfuðstöðvar Mbl. Afh. í janúar. Möguleiki á 1600-2000m² á einni hæð. Húsið getur leigst í heilu lagi eða í einingum. Sveigjanleiki í innréttingum. Serverherbergi og tölvulagnir um allt. Loftræstikerfi. Næg bílastæði á svæðinu svo ekki sé minnst á alla þá þjónustu sem Kringlan býður upp á í næsta nágrenni. Teikningar og nánari upplýsingar veitir Guðlaugur 896-0747. Getum einnig boðið upp á stærri eignir á eftirfarandi svæðum: • Glæsilegt rúml. 1500m² skrifstofuhúsnæði á pnr.105, útsýni • Nýl. innréttað 1350-1800m² skrifstofuhúsnæði nálægt Kringlunni • Vandað fullinnréttað um 2.200m² skrifstofhúsnæði á 3 hæðum á pnr. 108, laust flótl. • Innréttað eftir þörfum leigjanda (allt nýtt) 1000-5000m² á pnr. 110, ath. mjög hagst. verð • Glæsilega innréttaðar og óinnréttaðar hæðir í Borgartúni 900-1200m² ofl. Kringlan 1 – Til leigu Sími: 511-2900 L E I G U M I Ð L U N

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.