Morgunblaðið - 28.11.2009, Qupperneq 21
SÍMI 440 1000
WWW.N1.IS
Meira í leiðinni
Í dag hitum við upp fyrir handboltaveisluna að Hlíðarenda
á morgun. Leikmenn Vals taka á móti gestum og hvatningu
á þjónustustöð N1 við Hringbraut milli kl. 14 og 15.
Við gefum líka miða á leikina. Fyrstur kemur, fyrstur fær!
Handboltaveisla
við Hringbraut
Upphitunin hefst í dag
Pylsa
með öllu
199kr.
Ilmker
ti
25%
afslátt
ur
VALUR – KA/ÞÓR
N1 deild kvenna
á morgun kl. 14
VALUR – HAUKAR
N1 deild karla
á morgun kl.16
Við bj
óðum
upp á
kaffi
og sm
akk
af nýb
ökuðu
bakke
lsi
60%
99 kr.
afsláttur á
nammibar
ís í brauð-
formi
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Fréttir 21ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2009
Á NÆSTU mánuðum munu hundr-
uð, ef ekki þúsundir hagsmunavarða
þurfa að taka pokann sinn og víkja
sæti úr opinberum nefndum sem
veita Bandaríkjastjórn ráðgjöf á hin-
um margvíslegustu sviðum.
Fjallað er um málið í dagblaðinu
The Washington Post en þar segir að
opinberir starfsmenn hafi ekki tölu á
því hversu hagsmunaverðirnir séu
margir, þótt nýjasta áætlun bendi til
að nefndirnar séu hátt í þúsund og að
yfir 60.000 manns eigi sæti í þeim.
Segir á vef blaðsins að þegar nýju
lögin verða komin til framkvæmda
að fullu muni hagsmunaverðir ekki
lengur geta tekið sæti í nefndunum.
Gæta margvíslegra hagsmuna
Yfir 13.000 manns eru sagðir sinna
hagsmunagæslu í höfuðborginni en
málaflokkarnir sem þeir eiga að-
komu að varða öll svið þjóðlífsins,
svo sem regluverkið um verslun og
viðskipti, umhverfislöggjöf og lög
um neytendavernd.
Þótt deilt sé um áhrif hagsmuna-
varða á opinbera stefnumótun er
óumdeilt að ekki er hægt að greina
bandarísk stjórnmál til hlítar án þess
að taka þá með í reikninginn.
Fram kemur í frétt The Wash-
ington Post að gagnrýnendur forset-
ans saki hann um að reyna með
frumvarpinu að slá keilur hjá kjós-
endum sem séu orðnir langþreyttir á
hneykslismálum. Rætt er við hags-
munavörðinn Robert Vastine en
hann fullyrðir að lögin muni leiða til
þess að úr nefndunum fari mikið af
hæfu fólki sem hafi varið löngum
tíma í að kynna sér opinbera löggjöf í
þaula fyrir hönd umbjóðenda sinna.
Löggjöfin löguð að hagsmunum
Stuðningsmenn aðgerðanna
benda hins vegar á að fyrirtækjum
hafi í mörgum tilfellum tekist að
sveigja opinbera löggjöf sér í hag á
kostnað almennings og hafa olíu-
fyrirtækin oftar en ekki verið skot-
spónn slíkrar gagnrýni.
baldura@mbl.is
Hagsmunavörðum
úthýst í Washington
Vikið úr ráðgjafarnefndum Taldir skipta þúsundum
Reuters
Þakkargjörðarhátíðin Barack Obama forseti „náðar“ kalkúninn Courage.
Dætur hans Sasha og Malia fylgjast spenntar með athöfninni árvissu.
Í HNOTSKURN
»Meðal fyrirtækja sem hafahagsmunaverði í fullu
starfi er fyrirtækið Caterpill-
ar sem smíðar vinnuvélar.
»Hagsmunaverðir beitastjórnmálamenn þrýstingi
um að taka til greina hags-
muni fyrirtækjanna sem þeir
vinna fyrir við stefnumótun.
ÞAU hafa í nógu að snúast kínversku fyrirtækin sem selja brúðhjónum
vörur og þjónustu. Það skortir heldur ekki viðskiptavini: Kínversk stjórn-
völd áætla að um 11 milljónir hjóna hafi verið gefin saman í fyrra, um
10,8% fleiri en árið 2007. Kínverjar eru nú rúmlega 1.300 milljónir en áætl-
að er að 143 milljónir barna hafi komið í heiminn á 9. áratugnum.
Þessi fjölmenni hópur er nú að komast á giftingaraldur sem aftur skýrir
annirnar hjá brúðkaupsþjónustum. Hjátrú hefur sitt að segja því Kínverjar
telja að tölurnar 8 og 9 boði gæfu. Ártölin 2008 og 2009 þykja því eftir-
sóknarverð til að ganga í það heilaga.
Giftingaralda í Kína
Reuters