Morgunblaðið - 28.11.2009, Blaðsíða 41
Dagbók 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2009
Sudoku
Frumstig
9 4
2 7 6 3
3 5 2
2 5 4
7 2
4 5 9
5 3 7
7 4 1 5
6 9
9 6 5 2
4 2 5 6
8
4 8 9
4 3 2
8 7 6
2 5 9 3
6 8 2 7
5
9 4 6 3
8 1 4
3 8 2
9
1 5 7 2
7 2 8
2 7 5
5 1 9
7 6 1 8 4 2 5 3 9
8 3 5 7 9 1 4 6 2
2 9 4 3 5 6 1 7 8
5 7 9 4 8 3 2 1 6
1 8 2 9 6 7 3 5 4
6 4 3 2 1 5 8 9 7
3 5 8 6 7 4 9 2 1
4 2 7 1 3 9 6 8 5
9 1 6 5 2 8 7 4 3
2 8 6 3 5 7 9 1 4
3 7 4 9 1 6 5 2 8
1 9 5 2 4 8 6 7 3
6 4 2 1 8 9 7 3 5
7 1 8 4 3 5 2 6 9
5 3 9 7 6 2 4 8 1
4 5 3 6 2 1 8 9 7
8 6 7 5 9 3 1 4 2
9 2 1 8 7 4 3 5 6
8 5 6 3 4 9 1 2 7
9 2 3 7 6 1 4 5 8
7 1 4 2 5 8 9 3 6
2 6 1 9 7 4 5 8 3
4 7 5 1 8 3 6 9 2
3 9 8 6 2 5 7 4 1
6 3 9 5 1 2 8 7 4
1 8 2 4 9 7 3 6 5
5 4 7 8 3 6 2 1 9
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röð-
inni.
Í dag er laugardagur 28. nóvember,
332. dagur ársins 2009
Orð dagsins: En snúið yður nú til
mín, segir Drottinn, af öllu hjarta,
með föstum, gráti og kveini. (Jl. 2, 12.)
Fáir gamanþættir í sjónvarpssög-unni hafa haft þau áhrif á áhorf-
endur að láta þá hlæja stjórnlaust
langtímum saman. Flestir gam-
anþættir eru í raun ekkert mjög
fyndnir. Í besta falli sniðugir.
Víkverji dagsins hefur heyrt
marga hallmæla hinum nýja gam-
anþætti Ríkisútvarpsins, Marteini.
Hafa sumir félagar Víkverja jafnvel
tekið svo djúpt í árinni að segja að
þar sé komin endanleg sönnun þess
að ríkið eigi að hætta að standa í fjöl-
miðlarekstri. Fjárakornið, ef þá er
nú ekki fullmikið sagt. Sem eft-
irherma af amerískum gamanþáttum
um íturvaxna heimilisfeður sem gift-
ir eru uppfyrir sig er Marteinn bara
ágætis frammistaða.
x x x
Sá gamanþáttur sem hefur fengiðVíkverja til að hlæja hvað mest
er eflaust saga Rowans Atkinsons,
sem einnig lék Mr. Bean, um mein-
hornið Edmund Blackadder. Í þriðju
seríu þeirra þátta er hann þjónn í
höll Georgs Bretaprins, sem er
snobbaður, fáfróður, blauður og
heimskur, eins og aðalsmanna er sið-
ur.
Í einum þættinum fær prinsinn
heimsókn frá vini sínum, Samuel
Johnson, sem vill sýna honum af-
reksverk sitt, orðabókina. ,,Í þessari
bók, herra minn, eru öll orðin í okkar
dáða tungumáli,“ segir Johnson við
prinsinn en Blackadder blandar sér
inn í. ,,Hvert … einasta, herra?“ Mál-
fræðingurinn játar því stoltur, en
þjónninn óskar honum þá til ham-
ingju með því að bjóða honum sitt
innilegasta ,,kontrafribbúlarítet“.
Johnson verður öskuvondur yfir að
hafa ekki heyrt það orð áður og skrif-
ar það hjá sér. Bætir Blackadder því
við að hann sé mjög leiður yfir því að
hafa valdið málfræðingnum hugar-
angri, hann sé jafnvel aníspeptískur,
frasmótískur eða jafnvel comp-
únktúalískur yfir því að hafa valdið
honum slíkri períkombobbúlasjón.
Tekst honum þannig að senda mál-
fræðinginn öfugan út, öskuvondan,
yfir því að hafa enn ekki náð full-
komnum tökum á enskri tungu. Og
yfir því gleðst Svarta naðran óskap-
lega. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 kólga, 8 smá,
9 vegurinn, 10 keyra,
11 glatar, 13 líffærið,
15 undirstöðu, 18
hreyfa, 21 spíra, 22
ófús, 23 óbifanlega, 24
skerðir.
Lóðrétt | 2 blómið, 3
lækkar, 4 vísan, 5 reiðar,
6 fórnfæring, 7 flanið, 12
fag, 14 fiskur, 15 hæfni,
16 klaufdýrin, 17 kom-
umst, 18 karldýr, 19 að-
komumanna, 20 saurgar.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 kræða, 4 sígma, 7 kenna, 8 ólaga, 9 roð, 11
arra, 13 lagi, 14 nakta, 15 forn, 17 gust, 20 hné, 22 túlar,
23 tímum, 24 raust, 25 rolan.
Lóðrétt: 1 kokka, 2 ærnar, 3 afar, 4 stóð, 5 grama, 6 at-
aði, 10 orkan, 12 ann, 13 lag, 15 fótur, 16 rollu, 18 urm-
ul, 19 tóman, 20 hrat, 21 étur.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. c4 c5 3. d5 b5 4. cxb5 a6 5.
bxa6 Bxa6 6. Rc3 d6 7. g3 g6 8. Bg2
Bg7 9. Rf3 Rbd7 10. Hb1 O-O 11. O-O
Re8 12. Dc2 Rc7 13. Hd1 Ha7 14. b3
Bxc3 15. Dxc3 Bxe2 16. Bh6 Rf6 17.
Hd2 Rb5 18. Da1 Bxf3 19. Bxf3 He8 20.
g4 Da5 21. b4 Da3 22. Be3 Rd4 23. Bd1
Re4
Staðan kom upp í opnum flokki Evr-
ópumóts landsliða sem lauk fyrir
skömmu í Novi Sad í Serbíu. Alþjóðlegi
meistarinn Björn Þorfinnsson (2395)
hafði hvítt gegn stórmeistaranum
Zvonko Stanojoski (2492) frá Make-
dóníu. 24. Hxd4! cxd4 25. Dxd4 Rc5
26. bxc5 dxc5 27. De5 Da6 28. Bxc5 f6
29. Dd4 Haa8 30. Bb3 Kg7 31. He1
Da5 32. He6 Ha6 33. d6 Hc6 34. d7 og
svartur gafst upp.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Ókeypis millileikur.
Norður
♠DG3
♥DG5
♦ÁG1074
♣D10
Vestur Austur
♠10876 ♠942
♥9863 ♥1074
♦98 ♦D53
♣G95 ♣K862
Suður
♠ÁK5
♥ÁK2
♦K62
♣Á742
Suður spilar 6G.
Slemman fer beint í sjóinn með blátt
áfram spilamennsku. Tígullinn þarf
helst að gefa fimm slagi og tæknilega
rétta íferðin er að byrja á kóngnum og
svína svo fyrir drottninguna í vestur.
En austur á ♦D og síðan fær vörnin á
endanum slag á lauf. Er hægt að gera
betur? Útspilið er hjarta.
Það er erfitt að finna rök fyrir því að
fara „öfugt“ í tígulinn, en hins vegar er
til millileikur sem ekkert kostar. Hann
felst í því að spila ♣D úr borði í öðrum
slag! Því ekki það? Tígullinn er enn á
sínum stað. Austur er svo óheppinn að
vera með kónginn smátt fjórða í laufi,
sem þýðir að hann þorir varla að leggja
á drottninguna af ótta við að suður sé
með ♣ÁG9xx. Sleppi ♣D í gegn er í
góðu lagi þótt vörnin fái slag á tígul.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú verður að bregðast við óvænt-
um fréttum með stillingu og hugsa þitt
mál vandlega áður en þú afræður til
hvaða aðgerða þú grípur. Ekki vera
feimin/n.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þegar þú þekkir og fylgir forgangs-
röðun þinni gengur allt sem smurt. Tafir
eru óumflýjanlegar. Treystu á ræðusnilld
þína.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Ef þú heldur vel á spöðunum
varðandi ákveðið mál muntu sjá það leys-
ast farsællega. Litlar fréttir eru líka góð-
ar fréttir.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Leggðu þig alla/n fram í sam-
skiptum þínum við aðra í dag. Rasaðu
ekki um ráð fram á lokasprettinum.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þótt bækur séu til margs nytsam-
legar er lífið líka utan blaðsíðna þeirra.
Sýndu sjálfsöryggi og þá munu aðrir sjá
þig í jákvæðu ljósi.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Líklega er ekkert sem þú getur
gert til þess að fá vin þinn til þess að
skipta um skoðun. Mundu að þú ert það
sem þú borðar.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það er mikil hætta á valdabaráttu í
vinnunni hjá þér í dag og því er þetta alls
ekki rétti dagurinn til að deila við yf-
irmanninn. Taktu það rólega í kvöld.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Já, þú sækist eftir full-
komnun. Auðvitað eru nokkrir hlutir sem
þú þarfnast – en mjög fáir. Brjóttu upp
gráma hversdagsins og gerðu góðverk.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú átt auðvelt með að laða
fram það besta í öðrum og miðla málum
þegar menn eru ekki á eitt sáttir. Láttu
alla áhættu lönd og leið.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Reyndu að vera innan
um fólk. Fólk leyfir þér að ráða ferðinni,
því þú virðist vita hvað þú ert að gera.
Gættu þess að ganga ekki á hlut ann-
arra.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Lokaðu þig ekki af frá um-
heiminum þótt þú sért ekki upp á þitt
besta. Slökktu á gemsanum og þá hef-
urðu meiri tíma.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Himintunglin eru þér hliðholl í
dag sem gefur þér nokkurt forskot á
náungann. Taktu til hendinni, það borgar
sig seinna.
Stjörnuspá
28. nóvember 1942
Kaupfélag Reykjavíkur og ná-
grennis opnaði svonefnda
sjálfskiptibúð á Vesturgötu 15
í Reykjavík. Þetta mun hafa
verið fyrsta kjörbúðin hér-
lendis. „Viðskiptavinirnir af-
greiða sig sjálfir,“ sagði Morg-
unblaðið og gat þess að þetta
fyrirkomulag væri mikið not-
að í Ameríku en lítið í Evrópu.
28. nóvember 1971
Bústaðakirkja í Reykjavík var
vígð. Þar með eignaðist
stærsti söfnuður landsins eig-
in kirkju. Mikið fjölmenni var
við vígsluathöfnina og fjöldi
gjafa barst kirkjunni.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Lára Hammer
Sigvardsdóttir,
hjúkrunarheim-
ilinu Eir, verður
hundrað ára á
morgun, sunnu-
daginn 29. nóv-
ember. Lára
fæddist á Ísafirði
en fluttist ung til
Reykjavíkur. Eiginmaður hennar
var Guðmundur Steindórsson, sem
lést árið 1979. Niðjar hennar eru nú
orðnir 78 talsins. Lára verður í
faðmi fjölskyldu sinnar á afmælis-
daginn.
100 ára
Gunnar Gunn-
arsson verður
sjötugur í dag,
laugardaginn
28. nóvember.
Hann mun
fagna deginum
á heimili sínu
með fjölskyldu
og vinum.
70 ára
„ÞAÐ verður engin stórveisla þetta árið. Ég ætla
bara að fá nánustu fjölskylduna í mat. Ég fékk eig-
inlega afmælisgjöfina síðasta fimmtudag [19. nóv-
ember] þegar við eignuðumst stelpu,“ segir Jó-
hannes Ásbjörnsson, betur þekktur sem Jói í
tvíeykinu Jóa og Simma. Fyrir áttu Jóhannes og
sambýliskona hans, Ólína Jóhanna Gísladóttir,
þriggja ára stelpu. „Maður verður þrítugur í sápu-
kúlu,“ segir Jóhannes. Spurður hvernig honum lít-
ist á það að komast á fertugsaldurinn segir Jó-
hannes það „pínu spes að detta inn á nýjan aldur.
En ég kvíði því svo sem ekkert. Ég held að maður
verði eilífðarunglingur. Á meðan maður heldur áfram að gera það
sem manni finnst skemmtilegt og heldur sér frískum þá hef ég engar
áhyggjur af því hvað maður verður gamall í árum talið“.
Inntur eftir minnisstæðum afmælisdögum nefnir Jóhannes sex eða
sjö ára afmælið. „Þá var svo mikill snjór að það komst enginn í afmæl-
ið mitt,“ segir Jóhannes og útskýrir að æskuheimilið hafi verið í efstu
byggðum Árbæjar sem á þeim tíma taldist eiginlega úti í sveit. „Ég
hef nú örugglega verið frekar fúll yfir snjónum þann daginn. Mér
finnst raunar eins og það hafi alltaf verið miklu meiri snjór í gamla
daga. En það var nú sennilega af því að maður var miklu styttri í loft-
inu.“ silja@mbl.is
Jóhannes Ásbjörnsson sjónvarpsmaður 30 ára
„Þrítugur í sápukúlu“
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is