Morgunblaðið - 05.12.2009, Blaðsíða 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2009
ARION banki býður nú þeim viðskiptavinum sínum sem
tekið hafa erlend fasteignalán að lækka mánaðarlegar af-
borganir með „leiðréttingu“ lánsins.
Valmöguleikarnir eru tveir. Annars vegar að lækka höf-
uðstól lánsins um 30% og breyta því í fasteignalán í íslensk-
um krónum til allt að 40 ára. Hægt er að fá lánið með 6%
óverðtryggðum vöxtum til næstu þriggja ára en að því loknu
„færist vaxtaprósentan yfir í bestu fáanlegu íbúðalánavexti
sem bjóðast hjá bankanum“, að því er fram kemur í tilkynn-
ingu frá Arion banka.
Hinum megin við hrunið
Segir þar jafnframt að eftir þessa leiðréttingu lánsins
verði „staða þess sú sama og hún var þann 29. september
2008“ en þessi leið er talin henta vel þar sem veðhlutfallið er
undir 155% af verðmæti húseignarinnar.
Hins vegar stendur viðskiptavinum bankans til boða að
lækka höfuðstól lánsins í 110% af markaðsvirði eignarinnar.
„Láninu er þá breytt í íslenskt fasteignalán, óverðtryggt
eða verðtryggt“ og ber „breytilega markaðsvexti verð-
tryggðra lána, sem eru nú 5,4%, eða breytilega markaðs-
vexti óverðtryggðra lána, sem eru nú 9,75%“, að því er segir
í tilkynningu frá bankanum. Þeim sem hafa minni greiðslu-
getu en sem nemur 110% veðhlutfalli stendur sértæk
skuldaaðlögun til boða. Virði fasteignar miðast þá við núver-
andi markaðsvirði en aldrei undir fasteignamati 1. desem-
ber 2009. Er leiðin talin henta þar sem veðhlutfallið er yfir
155% af verðmæti eignar.
Lækka höfuðstólinn með
„leiðréttingu“ erlendra lána
Arion banki býður viðskipta-
vinum að lækka afborganir
Leiðtoga-
fundur í
Reykjavík?
ENDURBÆTUR á Höfða eru að
komast á lokastig. Ekkert er því
til fyrirstöðu að halda þar leið-
togafund eftir jól. Samkvæmt frétt
á vef New York Times hefur
Reykjavík verið nefnd sem hugs-
anlegur fundarstaður þegar nýtt
samkomulag um fækkun kjarna-
vopna verður undirritað.
Genf og Helsinki koma einnig til
greina en búast má við að Obama
Bandaríkjaforseti og Medvedev
Rússlandsforseti verði viðstaddir
undirritunina, jafnvel í næstu
viku. Undirritunin yrði framhald
af afvopnunarferli sem Mikhaíl
Gorbatsjov og Ronald Reagan
ræddu á fundi sínum í Höfða í
Reykjavík árið 1986. Eldur kom
upp í Höfða fyrr á árinu, en síð-
ustu vikur hefur verið unnið að
endurbótum á húsinu. Fram-
kvæmdir eru á lokastigi.
Samkvæmt upplýsingum frá
Kristjáni Guy Burgess, aðstoð-
armanni utanríkisráðherra, hafa
átt sér stað samtöl milli íslenskra
og bandarískra stjórnvalda um
þetta mál. Engin formleg fyr-
irspurn hefur komið fram af hálfu
bandarískra yfirvalda til Íslands
um hvort við treystum okkur að
halda leiðtogafund. egol@mbl.is
Framkvæmdir við
Höfða á lokastigi
SKULDIR ríkissjóðs eru örlítið lægri en þeg-
ar fyrsta endurskoðun á efnahagsáætlun Ís-
lands fór fram, miðað við nýjustu upplýsingar
sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, AGS, hefur
fengið. Í yfirlýsingu sem sendinefnd AGS
sendi frá sér í gær kemur fram að nýju mati
sjóðsins á erlendri skuldastöðu Íslands sé ekki
lokið. AGS segir skýringuna á minni skuldum
ríkisins vera kaup skilanefnda Glitnis og
Kaupþings á Íslandsbanka og Arionbanka.
Ríkið þurfi ekki lengur að dæla inn fé í nýju
bankana.
Aðspurður hvaða þetta upplýsingar séu seg-
ist Franek J. Rozwadowski, fulltrúi AGS á Ís-
landi, ekki geta greint frá því, annað en að við-
ræður um erlendar skuldir Íslands fari jafnan
fram með starfsmönnum Seðlabankans. Þar
sem þær viðræður standi enn yfir sé ekki rétt
að tjá sig frekar.
Sendinefnd AGS sendi yfir-
lýsingu frá sér vegna frétta í
fjölmiðlum í gær, og er þar
væntanlega m.a. að vísa til
frétta í Morgunblaðinu. Þar
kom m.a. fram að skuldabyrði
þjóðarinnar hefði aukist frá
síðustu endurskoðun AGS og
erlendar skuldir Íslendinga
væru nú 350% af þjóðarfram-
leiðslu í stað 310% í síðustu
endurskoðun. Haft var eftir
Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni
Framsóknarflokksins, að fulltrúar AGS hefðu
viðurkennt að skuldabyrði Íslands væri meiri
en fram hefði komið.
Spurður um þetta vildi Rozwadowski ekki
kannast við að upplýsingar um hærri skuldir
væru komnar frá sjóðunum. Engar endanlega
tölur lægju fyrir þar sem endurskoðun sjóðs-
ins væri ekki lokið.
Í yfirlýsingu sendinefndar sjóðsins segir að
fram hafi komið nýjar upplýsingar sem í sum-
um tilvikum hækki skuldir en í öðrum tilvikum
lækki þær.
Segir ennfremur í yfirlýsingunni að ekkert
hafi enn komið fram sem bendi til þess að Ís-
land geti ekki staðið við skuldbindingar sínar.
Sökum flókinna fjárhagslegra tengsla milli Ís-
lands og erlendra fjármálastofnana sé erfitt að
komast að endanlegum upphæðum. Við fyrstu
endurskoðun sjóðsins hafi komið fram að nýjar
upplýsingar gætu leitt til frekara endurmats.
Að endingu biður sendinefndin fjölmiðla að
hafa það í huga að hægt sé að hafa samband
við sendinefndina ef eitthvað sé óljóst varðandi
staðreyndir. Það geti komið í veg fyrir mis-
skilning. bjb@mbl.is
Segja skuldir ríkis lægri
Fulltrúi AGS á Íslandi segir upplýsingar um skuldastöðu þjóðarbúsins
ekki komnar frá sjóðnum Viðræður standi yfir við Seðlabankann
Franek J.
Rozwadowski
RÚMLEGA 25.000 manns hafa skor-
að á Ólaf Ragnar Grímsson, forseta
Íslands, að synja nýjum Icesave-
lögum staðfestingar á vef InDefence-
hópsins, www.indefence.is.
Samkvæmt Hagstofunni voru Ís-
lendingar 319.368 1. janúar 2009 og
hafa því um 8% þjóðarinnar skorað á
forsetann.
Söfnuninni var hleypt af stokk-
unum miðvikudagskvöldið 25. nóv-
ember og skrifuðu 7.000 manns undir
á einum og hálfum sólarhring.
Jóhannes Þ. Skúlason, einn að-
standenda hópsins, kveðst ánægður
með viðtökurnar og segir þær sýna
að almenningur sé ekki orðinn
þreyttur á Icesave-málinu, líkt og
haldið hafi verið fram í fjölmiðlum.
25.000 skora
á forsetann
STEMNING var á nytjamarkaði SORPU, Góða hirð-
inum, í gær þegar haldið var uppboð á ýmsum munum í
þeim tilgangi að safna peningum fyrir Lyngás, þjón-
ustustofnun fyrir mjög fötluð börn.
Allur ágóðinn rennur til þeirrar stofnunar og þeir sem
komust yfir eftirsóknarverða muni lögðu því góðu mál-
efni lið í leiðinni. Margir „gimsteinar“ leynast innan um
annað minna verðmætt hjá hirðinum góða og
tónlistarmaðurinn Kristján Kristjánsson sem flestir
þekkja sem KK, stóð sig með mikilli prýði sem upp-
boðshaldari. Hann var með réttu taktana á hreinu þeg-
ar hann bauð fólki að bjóða í. Hér kallar hann eftir til-
boði í lágmynd af Jóni Sigurðssyni, einn af þeim mörgu
dýrgripum sem voru á uppboðinu. Hann sagði rauðu
axlaböndin vera nauðsynleg fyrir stjórnanda uppboðs
sem og hæfileikann til að tala mjög hratt.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
HRAÐMÆLTUR KK Í GÓÐA HIRÐINUM
FRJÁLSI fjárfestingarbankinn
býður upp á 26% lækkun höfuð-
stóls að meðaltali þegar láni er
skuldbreytt í íslenskar krónur.
Lækkunin tekur mið af mynt-
samsetningu og lengd lána-
samnings. Við skuldbreytinguna
verður lánið að ísl. verðtryggðu
láni, 25 eða 40 ára, með föstum
3,95% vöxtum í þrjú ár og mögu-
leika á lengingu um eitt ár. Á breytingin að lækka
greiðslubyrði af erl. fasteignalánum um allt að 41%.
Frjálsi lækkar líka
Náttúruverndarsamtök Íslands hafa
lagt fram stjórnsýslukæru vegna
ákvörðunar Skipulagsstofnunar um að
Suðvesturlína skuli ekki metin með
öðrum framkvæmdum, sem henni eru
háðar og/eða eru á sama svæði.
Samtökin telja að í samræmi við lög
um mat á umhverfisáhrifum verði að
meta tengdar framkvæmdir, fram-
kvæmdir sem háðar eru hver annarri,
(álver, orkuver og raflínulagnir, auk
vegagerðar) sameiginlega. Ekki fáist
heildarmynd af umhverfisáhrifum
þeirra nema þær séu metnar saman í
einu lagi.
Kæra vegna
Suðvesturlínu
SIGMUNDUR Davíð Gunnlaugsson, for-
maður Framsóknarflokksins, stendur við
þau ummæli sín að fulltrúar Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins hafi á
fimmtudag viðurkennt
að skuldabyrði þjóðar-
búsins væri meiri en
fram hafi komið.
En sjóðurinn brást
við fréttum þessa efn-
is í gær með tilkynn-
ingu um að ef litið væri
eingöngu til skulda rík-
isins væru þær nú ör-
lítið lægri en þegar
fyrsta endurskoðunin
á efnahagsáætlun Íslands fór fram.
„Ég bar undir fulltrúa sjóðsins sem ég
hafði heyrt og spurt fjármálaráðherra fyrr
um daginn að skuldastaðan væri verri en
áætlað hefði verið, það er meiri en sem
nemur 310% af þjóðarframleiðslu, og þeir
staðfestu það en vildu þó ekki greina frá
nákvæmri tölu.“
Stendur við ummælin
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
©
IL
V
A
Ís
la
n
d
20
0
9
ILVA Korputorgi, Blikastaðavegi 2-8 112 Reykjavík
laugardag 10-20 sunnudaga 12-20 mánudaga - föstudaga 11-19
Nýr jólabæklingur
á www.ILVA.is
einfaldlega betri kostur
Candle. Rustik kerti.
H29,5 cm.
99,-/stk.
Nýtt kortatímabil