Morgunblaðið - 05.12.2009, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2009
MIKIÐ er rætt um
sjómannaafslátt um
þessar mundir. Eftir
því sem ég best veit
byrjaði þetta allt á
fréttinni um 30 millj-
óna króna hásetann
sem er ekki til. Frétt-
in hljómaði einhvern
veginn þannig að ef
háseti á einu af allra
aflahæstu skipum Ís-
lands hefði farið alla túrana á þessu
ári myndi hann hugsanlega ná 30
milljónum í hlut. Ætla að lofa mér
að fullyrða að sá maður sé ekki til.
Einnig hef ég tekið eftir því að
hugmyndir manna um sjó-
mannaafsláttinn eru frjálslegar svo
ekki sé meira sagt. Talað er um að
þetta sé einhver uppbót vegna fjar-
veru og annað en það var í það
minnsta ekki tilgangurinn á sínum
tíma.
Svo farið sé á handahlaupum yfir
sögu sjómannaafsláttarins hljómar
hún einhvern veginn svona. Það var
árið 1954 sem það kom ívilnun sem
kallaðist hlífðarfatafrádráttur. Á
sama ári kom svo fæðisfrádráttur.
Báðir þessir frádrættir fóru til
þeirra sem þurftu að borga meira
en aðrir. Sjómenn á fiskibátum
þurftu að sjá sjálfir um mat t.d.
meðan togarasjómenn fengu frítt
fæði. Þetta var því eingöngu til
jöfnunar en ekki voru nein umfram
fríðindi í þessu.
1957 kom „sérstakur frádráttur“
en hann var settur á til að laða Ís-
lendinga á sjóinn. 1967 fengu far-
menn einnig þennan frádrátt. 1972
kom fiskimannaafsláttur, farmenn
fengu hann árið 1985. Hlífð-
arfatafrádrátturinn og „sérstaki
frádrátturinn“ voru síðan samein-
aðir í sjómannafrádrátt árið 1978.
Skattlausa árið 1987 voru svo allir
frádrættir felldir niður. 1988 kom
svo sjómannaafslátturinn.
En hvað þýðir sjómannaafslátt-
urinn fyrir sjómenn? Fyrir 30 millj-
óna króna hásetann, sem er ekki til,
skiptir hann sjálfsagt í raun litlu
máli svona peningalega séð. Með
tekjuskatt upp á 47% skiptir varla
höfuðmáli hvort hann borgar 14,1
eða 14,3 milljónir í skatt. Hvað ætli
það séu margir sem hafa svona
laun? Það eru ekki svo mörg skip
sem koma til greina sem 30 millj-
óna króna hásetinn, sem er ekki til,
gæti verið á.
Hvað skyldi svo valda því að 30
milljóna króna hásetinn, sem er
ekki til, hafi svona góð laun? Hann
er á plássi sem er að vinna aflann
til manneldis sem gefur hærra verð
og það telur auðvitað. En það sem
skiptir allra mestu máli er að þá
hefur hann svona góð laun út af því
að gengið er í bullinu. Hvað hefði
sami maður haft í laun fyrir sömu
vinnu og sama afla í tonnum fyrir
þremur árum? 30 milljóna króna
maðurinn, sem er ekki til, hefði haft
á að giska 12-13 milljónir, kannski.
Hvað svo með þá sjómenn sem eru
ekki á bestu plássunum? Sjómenn
sem fá uppgert eftir íslenskri
krónu? Sjómenn sem eru ekki einu
sinni á hlut heldur á föstum rík-
istaxta allt árið um kring. Grunn-
laun yfirvélstjóra á skipum Haf-
rannsóknastofnunar voru 252.000
krónur 1. nóvember 2008. Grunn-
laun yfirvélstjóra hjá Landhelg-
isgæslunni voru 552.000 árið 2005
og ef ég skil samninginn rétt þá er
það með 40 stunda vinnuviku auk
110 yfirvinnutíma á mánuði. Ég
hugsa að sjómannaafslátturinn
skipti nokkuð miklu máli pen-
ingalega séð fyrir þessa menn. Svo
er fjöldinn allur af sjómönnum sem
eru þarna einhvers staðar á milli.
Nokkuð oft hefur verið minnst á
að á síðustu tveimur árum hafi laun
sjómanna hækkað um sem nemur
30% ef ég man þetta rétt. En
hvernig væri að fara aðeins lengra
aftur í tímann og tala um launa-
hækkun síðustu 10 ára kannski.
Ekkert vit í því að byrja að reikna
dæmið rétt frá þeim
tíma þegar evran byrj-
aði að fara úr 80 kr. í
rúmlega 180 kr. Í ein-
um samningunum var
meira að segja samið
upp á launalækkun.
Það var annaðhvort
það eða fá dóm upp á
launalækkun.
14. janúar 1994, 16.
maí 2001, mars 2003
voru lög sett á verkföll
sjómanna. Gæti
kannski grafið upp
fleiri dæmi en þetta en þetta er það
sem ég man eftir.
26. nóvember boðaði Steingrímur
J. afnám sjómannaafsláttar einmitt
þegar kjarasamningar renna út.
Febrúar 2011. Lög sett á verkfall
sjómanna?
Þetta fer að nálgast það ansi
mikið að vera orðið að einelti við
eina starfsstétt í landinu. Vissulega
er eitthvert ástand í gangi á land-
inu sem kallast kreppa. Vissulega
má færa rök fyrir skattahækkunum
til að loka fjárlagagatinu. En ætlar
einhver að segja mér að 30 milljóna
króna hásetinn, sem er ekki til, skili
ekki sínum sköttum til þjóðfélags-
ins þótt hann fái að halda í sjó-
mannaafsláttinn? Ekki er hann með
einkahlutafélag. Ekki getur hann
gefið upp lágmarkslaun og lifað svo
á arðgreiðslum. Miðað við laun
bankastjóra árið 2007 er hann
meira að segja á lúsarlaunum. Samt
á núna í dag að skattleggja hann
meira en alla aðra í landinu. Mann-
inn sem stundar heiðarlega vinnu
og er þar að auki að skapa landinu
gjaldeyri.
Sjómannaafslátturinn á örugg-
lega eftir að hverfa einhvern tím-
ann. En er ekki hægt að gera það
öðruvísi en að stela honum með
lagasetningu rétt eins og gert hefur
verið með velflestar kjaradeilur
okkar síðustu ára?
Eftir Val
Hafsteinsson
» Þetta fer að nálgast
það ansi mikið að
vera orðið að einelti við
eina starfsstétt í land-
inu.
Valur Hafsteinsson
Höfundur er vélstjóri.
Sjómannaafsláttur
Fátt er betur til þess fallið en hátíðleg tónlist til
að koma manni í jólaskap. Á aðventutónleikum
Sinfóníuhjómsveitar Íslands hljómar hátíðleg
jólatónlist frá ýmsum tímum í flutningi tveggja
af okkar fremstu söngvurum;
og .
Bach, Handel, Corelli, Mozart, Adolphe Adam
og Sigvaldi Kaldalóns eiga allir sinn skerf á
þessari hátíðlegu og jólalegu efnisskrá. Hljóm-
sveitarstjóri er .
Miðaverð: 3.700/3.300 kr.
Tryggðu þér miða á www.sinfonia.is
eða í síma 545 2500
„Tónlistin
er ekki
uppfinning
mannanna,
heldur gjöf
guðs.“
Marteinn Lúther
ÖRYGGISMÖRK
Í HEILBRIGÐISÞJÓNUSTU
Ráðstefna á vegum Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu
á Grand hótel miðvikudaginn 9. desember kl. 13:30
• Er endalaust hægt að skera niður í heilbrigðisþjónustunni?
• Hvenær er öryggismörkum náð í mönnun heilbrigðisstofnanna?
• Hver ber ábyrgðina sé þjónusta undir öryggismörkum?
Fundarstjóri: Þóra Arnórsdóttir fjölmiðlakona
Setning: Gísli Páll Pálsson formaður
Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu
Að lokinni framsögu verða pallborðsumræður
AÐGANGUR ÓKEYPIS
Frummælendur verða:
Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra
Árni Páll Árnason félags- og tryggingamálaráðherra
Anna Stefánsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar
á Landspítala Háskólasjúkrahúsi
Eva Þengilsdóttir formaður samtakanna Almannaheill
Pétur Blöndal alþingismaður