Morgunblaðið - 16.12.2009, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 16.12.2009, Qupperneq 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 2009 Goðsögnin kveikir eld í sál- inni og opnar nýjar víddir. Einstakar ljósmyndir og uppbyggjandi boðskapur. Bókin fæst bæði á íslensku og ensku (Legend). Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is FRÉTTASKÝRING Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is HVERT pláss á bráðadeildum Landspítalans við Hringbraut og í Fossvogi var fullnýtt í síðustu viku og þurftu sjúklingar að liggja á göngum um tíma á meðan reynt var að finna legurými á öðrum deildum fyrir innlagnir. Leggja þurfti inn mikið veikt fólk, ekki var um flensu- tilfelli að ræða enda hefur sá far- aldur verið í rénun að undanförnu. Davíð O. Arnar, yfirlæknir á bráðamóttökunni á Hringbraut, tel- ur ekki tímabært að fullyrða að lok- anir á legurýmum eigi einar og sér sök á auknu álagi á bráðamót- tökunni, til þess þurfi að skoða ástandið yfir lengri tíma en tvær vikur. „Gerðar hafa verið ýmsar við- bótarráðstafanir til að mæta þessari fækkun legurýma og það þarf tíma til að slípa þær til. Hins vegar er ekki hægt að neita því að fækkun legurýma á sjúkrahúsinu er áhyggjuefni þar sem aðsóknin að bráðamóttökunni við Hringbraut hefur farið heldur vaxandi en hitt.“ Ekki óþekkt vandamál Að sögn Davíðs hefur verið mjög mikið að gera á bráðamóttökunni það sem af er desember. Komið hafi dagar þar sem erfitt hefur verið að finna legupláss á spítalanum fyrir þá sjúklinga sem hefur þurft að leggja inn. „Þetta er þó ekki alveg óþekkt vandamál hjá okkur. Það eru sveifl- ur í komum á bráðamóttöku og þeg- ar mest er að gera getur tekið tíma að finna legupláss. Undir þeim kringumstæðum þarf að nýta allt til- tækt pláss á bráðamóttökunni og því miður kemur það fyrir að sjúklingar þurfi að liggja á göngum. Þeir hafa þó sýnt þessu mikinn skilning og starfsfólkið staðið sig mjög vel við oft erfiðar aðstæður,“ segir Davíð. Undir þetta tekur Anne Mette Pedersen, hjúkrunardeildarstjóri á bráðamóttökunni á Hringbraut. Komur þangað séu breytilegar og reglulega komi toppar eins og í síð- ustu viku. Við þessar aðstæður þurfi að forgangsraða verkefnum en tek- ist hafi að sinna öllum sjúklingum án þess að nokkur hætta stafaði af. Álag hefur sem fyrr segir einnig verið mikið á bráðamóttökunni í Fossvogi. Ófeigur T. Þorgeirsson yf- irlæknir segir sjúklinga þar ekki hafa orðið fyrir óþægindum og ör- yggi þeirra ekki verið stefnt í hættu. Hildur Helgadóttir, innlagnastjóri Landspítalans, segir ástandið á spít- alanum hafa verið vel viðráðanlegt þrátt fyrir aukið álag í haust vegna flensunnar og mikilla veikinda. Síð- asta vika hafi vissulega verið erfið en deildirnar náð að anna álaginu. Verklaginu hafi verið breytt svo að hægt sé að bregðast við fækkun legurýma á spítalanum. Álag á bráðadeildum  Oft á tíðum erfitt að finna legurými fyrir innlagða sjúklinga  Yfirlæknir á LSH hefur áhyggjur af fækkun legurýma Morgunblaðið/Golli Annríki Anne Mette Pedersen hefur ásamt starfsfólki sínu á bráðadeild á Hringbraut staðið í ströngu undanfarið. Vegna sparnaðar í rekstri Land- spítalans hefur þurft að fækka legurýmum, loka deildum og breyta sumum í dagdeildir. Þess- ar breytingar tóku gildi á nokkr- um stöðum 1. desember sl. 10.911 komur á bráðamóttöku á Hringbraut jan.-okt. 2008 11.562 komur á bráðamóttöku á Hringbraut jan.-okt. 2009 6% fjölgun á komum á Hringbrautina milli ára Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is ENSKA lögfræðistofan Mishcon de Reya skilar í dag fjárlaganefnd Alþing- is álitsgerð um tiltekin atriði samning- anna við Breta og Hollendinga um Ice- save. Leitað var til lögfræðistofunnar fyrr í þessum mánuði. ,,Þeir brugðust vel við og tóku þetta verkefni,“ segir Guðbjartur Hannesson, formaður fjár- laganefndar. Einnig rennur í dag út frestur þriggja fastanefnda þingsins til að skila niðurstöðum um afmörkuð úrlausnar- efni sem þeim voru fengin til meðferð- ar. Gert er ráð fyrir að fjárlaganefnd komi saman á morgun til að fara yfir Icesave-frumvarpið og hefja umfjöllun um þau 16 atriði sem stjórnarandstað- an kynnti í yfirlýsingu 4. desember og samkomulag náðist um að kanna sér- staklega. Guðbjartur segir ekki liggja fyrir hve langan tíma taki fjárlaganefnd að fara yfir þessi atriði og afgreiða málið. Engu sé þá hægt að svara um hvort fundað verði á milli jóla og nýárs eða hvorum megin við jólin málið verði tek- ið til afgreiðslu. Fjármálaráðherra hef- ur sagt að stefnt sé að því að ljúka um- ræðunni fyrir jól en engar dagsetningar hafi þó verið settar niður. Halda ekki endalaust áfram ,,Þetta er allt að koma saman til fjár- laganefndar [í dag] og á fimmtudag,“ segir Guðbjartur um þau viðbótargögn og álitsgerðir sem aflað er vegna Ice- save-ábyrgðarinnar. „Við ætlum að fara í gegnum þessi 16 atriði eins og óskað var. Síðan verður bara að meta hvenær það verður tilbúið.“ Þingmenn stjórnarandstöðu, bæði Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks, hafa gagnrýnt vinnulag á þingi í sam- bandi við samkomulagið um meðferð Icesave-málsins og efndir þess. Guð- bjartur segir ágreining hafa verið frá upphafi um hvað samkomulagið eigi að ná yfir. ,,Samkomulagið var um að fara í gegnum þessi 16 atriði. Það hafa kom- ið óskir um viðbætur og það er ekki bú- ið að afgreiða það, en hugmyndin er ekki sú að halda endalaust áfram ef nýj- ar upplýsingar kalla á einhverjar aðrar. Við erum búin að taka 6 mánuði í það.“ Breska lög- fræðistofan skilar áliti sínu Óvíst hvenær fjárlaganefnd afgreiðir Icesave Morgunblaðið/Heiddi Icesave Ekki liggur fyrir hve lang- an tíma fjárlaganefnd tekur í málið. Lokið er annarri umræðu um fjárlagafrumvarpið og voru at- kvæði greidd um breyting- artillögur á þingfundi í gær. Þá fór einnig fram þriðja umræða um fjáraukalagafrumvarp vegna yfirstandandi árs á Al- þingi í gær. Þingmenn stjórnarandstöðu í fjárlaganefnd skiluðu nefnd- aráliti vegna fjáraukalaga þar sem fram kemur að miklar breytingar hafa orðið á frum- varpinu í meðförum nefnd- arinnar. Tekjur ríkissjóðs hækka um 8.766 milljónir kr. og útgjöld lækka um 6.092 millj. Þar af hækka skattar á tekjur og rekstrarhagnað einstaklinga um 2 milljarða, tekjuskattur lögaðila hækkar um 3 milljarða, skattur á fjármagnstekjur ein- staklinga lækkar um 1.250 millj. kr., vaxtatekjur af endur- lánum hækka um tæpa 2,5 milljarða og aðrar vaxtatekjur lækka um 1.210 milljónir kr. Miklar breytingar á tekjum og gjöldum Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is LÍKLEGT er að jörð verði hvít víðast hvar um landið á aðfangadag, snjór fyrir norðan og austan og að minnsta kosti snjóföl sunnanlands og vestan. Spár svo langt fram í tímann eru þó með öllum fyrirvörum og ef skil suður af landinu koma inn á landið á aðfangadag breytist veður fljótt. Sibylle von Löwis, veðurfræðingur hjá Veðurstofu ís- lands, sagði í gær að spáð væri snjókomu fyrir norðan og austan um helgina. Reikna mætti með að lægð suðvestur af landinu kæmi með snjókomu eða él sunnan- og vestan- lands á þriðjudag og miðvikudag. Oftast alhvít jörð í höfuðborginni „Nýjustu spákort sýna svo norðaustanátt og þá bjart- viðri í Reykjavík með hitastigi um frostmark á aðfanga- dag. Ef skilin ná inn á landið getur fylgt þeim slydda eða rigning, en eins og staðan er núna er útlit fyrir að snjór verði fyrir norðan, en að minnsta kosti snjóföl suðvest- anlands,“ sagði Sibylle. Ef skoðaðir eru fróðleiksmolar um jólaveðrið á vef Veðurstofunnar má sjá að frá árinu 1921 teljast 37 jóladagar á þessu 88 ára tímabili alhvítir í Reykjavík, þar á meðal tveir síðustu jóladagar. Miðað er við kl. 9 að morgni jóladags og getur snjóinn hafa tekið upp síðdegis í einhverjum tilvikum. Sextán sinnum hefur jörð verið flekkótt og þrjátíu sinnum hefur verið alautt að morgni jóladags. Mestur snjór var árin 1979-1982 og aftur 1984 og svo voru hvít jól 1990 og 1992-1995. Árið 1982 mældist mesta snjódýptin, 29 sentimetrar. Hvítur aðfangadagur? 29 sentimetra snjór mældist á jóladagsmorgun árið 1982 Morgunblaðið/Golli

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.