Morgunblaðið - 16.12.2009, Síða 8

Morgunblaðið - 16.12.2009, Síða 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 2009 STYRKUR svifryks var yfir mörk- um í Reykjavík í gær. Áfram er spáð hægum vindi og þurrviðri í vikunni og líkur eru á svifryks- mengun næstu daga. Sökum hlý- viðris er ekki hægt að rykbinda um- ferðargötur, segir í tilkynningu frá borginni. Sólarhringsmörk svifryks (PM10) eru 50 míkrógrömm á rúm- metra en mældust í gær 53. Hæsta hálftímagildið mældist 118 á Grens- ásvegi. Sjá má gula mengunarslikju yfir borginni þegar horft er vestur. Hún stafar af útblæstri köfnarefnis- sambanda frá bifreiðum. Þeim sem eru með viðkvæm önd- unarfæri er ráðlagt að taka tillit til þessa og forðast helstu umferðar- götur. Um þessar mundir eru 35% bifreiða í Reykjavík á nagladekkj- um samkvæmt talningu í desember. Svifryk yfir mörkum og áfram spáð þurru STEINGRÍMUR J. Sigfússon fjár- málaráðherra segist í samtali við sjónvarpsfréttir mbl.is undrast mjög orð Gylfa Arnbjörnssonar, forseta ASÍ, um að ríkisstjórnin vinni ekki með samtökunum. „Ég er hissa á þessu, m.a. vegna þess að við áttum góðan fund með honum og fleiri aðilum í gær- morgun [mánudag] þar sem verið var að ræða ýmis mál og vinna að lausn þeirra. Auðvitað gengur ým- islegt á í þessum samskiptum eins og verða vill, en í það heila tel ég að þetta gangi vel og það eru allir að vinna að sameiginlegum mark- miðum. Og þó að stundum beri eitthvað í milli þá eiga menn nú miklu meira sameiginlegt í þessu samstarfi.“ Steingrímur hissa á ummælum Gylfa ÍSLENSKA sjó- mannaalmanakið 2010 er komið út. Þetta nýja almanak byggir á traustum grunni og kemur út núna í 85. sinn. Í Sjómannalma- nakinu 2010 eru vel á annað þúsund myndir af skip- um og bátum. Þar er einnig að finna upplýsingar um aflaheimildir, hafnaskrá, sjávarföll, vitaskrá, sól- artöflur og auk þess upplýsingar eins og lög og reglur sem snúa að veiðum ásamt mörgu öðru. Íslenska Sjómannaalmanakið 2010 er rúm- lega 800 síður að stærð og útgef- andi Myllusetur ehf, ritstjóri Sævar Helgason og auglýsingastjóri Sverrir Heimisson. Hægt er að panta Íslenska sjó- mannaalmanakið á www.skip.is Sjómannaalmanakið fyrir 2010 komið út VINSTRI grænir í Reykjavík efna til forvals fyrir komandi borgar- stjórnarkosningar. Það verður haldið 6. febrúar n.k. í samræmi við reglur sem samþykktar hafa verið. Valið verður í sex efstu sæti framboðslistans og verður jafn hlutur kvenna tryggður við endan- lega uppröðun ef þörf krefur. Framboðsfrestur rennur út 16. jan- úar. Jafnframt er félagsmönnum heimilt að koma með ábendingar um frambjóðendur til 9. janúar. Framboðum og ábendingum skal komið á netfang kjörstjórnar: for- val.reykjavik@vg.is Vinstri grænir efna til forvals í borginni KYLFINGAR á Húsavík hafa tekið veðurblíðunni á aðventunni fagnandi. Hópur golfara iðkaði íþrótt sína á Katlavelli um helgina og þeir Ás- mundur Bjarnason, 82 ára, Magnús Andrésson, 78 ára, og Stefán Þórsson, unglingurinn í hópnum, 64 ára gamall, hafa varla misst dag úr að und- anförnu. „Það hefur verið frábært að geta skotist í golf þessa tvo tíma sem birtan leyfir,“ sagði Ásmundur í spjalli í gær. Þessi margreyndi íþróttagarpur og keppandi í spretthlaupum á tvennum Ólympíu- leikum á árum áður gat reyndar ekki mætt í gær- morgun vegna lítilsháttar íþróttameiðsla. Magnús tók í sama streng. „Þetta hefur verið óvenjuleg tíð eftir að snjóinn tók upp, en þó ekki einsdæmi,“ sagði Magnús. Hann hefur ekki slegið slöku við í haust, því auk golfsins hefur hann farið nokkrum sinnum á gönguskíði upp að Höskulds- vatni og missti varla dag úr í rjúpnaveiðinni, en segist þó aðeins hafa rétt veitt í matinn. Magnús reiknar með að þeir fari í golf í dag. „Hann gæti reyndar frosið í nótt, en þá fáum við bara meira rúll á boltann,“ sagði Magnús Andr- ésson á Húsavík. aij@mbl.is Slá ekki slöku við í aðventugolfinu Golf á aðventu Magnús og Stefán Þórsson eru mjög ánægðir með að kom- ast í golf á þessum árstíma. Magnús segir tíðina núna þó ekkert einsdæmi. Morgunblaðið/Hafþór Golfsveiflan Magnús Andrésson sveiflar kylfunni fagmannlega. Í takt við tímann kr. pk.998 Grillaður kj úklingur, 2 l Pepsi eða P epsi Max 750 grömm 350 grömm kr. pk.166 Passionata margarita p izzaNýtt! 300 grömm 500 ml FP hvítlauk sbrauð279kr.pk. FP kartöflurbátar m/hýði 398kr.pk. FP hafrake x með súkkulaðib itum 269kr.pk. FP sjampó 2in1229kr.stk. Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is TÍU verktakafyrirtæki skiluðu inn forvalsgögnum á mánudag vegna byggingar kvikmyndahúss við Eg- ilshöllina. Af þeim verða 3-5 valdir til að taka þátt í útboði. Áætlað er að framkvæmdirnar kosti 7-800 milljónir króna og að þeim ljúki í lok næsta árs. Aðspurður segir Helgi S. Gunn- arsson, framkvæmdastjóri Regins, dótturfélags Nýja Landsbankans sem sér um að reka og leigja at- vinnuhúsnæði, sem bankinn hefur yfirtekið, að hann heyri ekki annað en rekstur kvikmyndahúsa gangi vel um þessar mundir. „Í svona ár- ferði styrkist innlend afþreying ef eitthvað er og ágætlega virðist sótt í kvikmyndahúisn,“ segir Helgi. Viðræður í gangi við SAM-bíó Rekstraraðili að bíóinu hefur ekki verið valinn, en viðræður hafa staðið yfir við SAM-bíóin um rekst- ur bíósins. „SAM-bíó voru með samning við Borgarhöllina sem átti verkefnið og sá samningur liggur fyrir. Við erum hins vegar nýr aðili og því er sá samningur ekki í gildi gagnvart okkar. Við höfum líka hitt fulltrúa Senu, en ekki verið í við- ræðum við aðra en SAM-bíóin,“ segir Helgi. Fyrirhugað er að selja Egilshöll þegar framkvæmdum við bíóið lýkur og markaðsaðstæður verða hagstæðar. Tíu verktakar vilja byggja bíó „Í svona árferði styrkist innlend afþreying“ Tölvumynd/ONNO Egilshöll Viðbyggingin sem hýsa á kvikmyndahúsið á að vera 7.400 fer- metrar á þremur hæðum. Fjórir sýningarsalir verða í bíóinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.