Morgunblaðið - 16.12.2009, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 2009
MEÐVIRKNI hef-
ur áhrif á allt líf okkar.
En enginn talar um
meðvirkni. Enginn vill
opna augun og sjá „líf-
ið“ og sjá hvernig með-
virkni heftir jafnvel
eigið líf. Ómeðvitað,
stundum meðvitað, er
allt gert til að viðhalda
„stöðugleika“, það má
ekkert breytast.
En hvað kostar það okkur að halda
óbreyttri stefnu sama hvað gerist og
hvert stefnir? Hvað kostar að vera
sjón- og heyrnarlaus til að forðast
eigin tilfinningar? Er núverandi
ástand á Íslandi til komið vegna með-
virkni?
Eitt einkenni meðvirkni er „Ég
breyti gildum mínum og heilindum til
þess að forðast höfnun eða reiði ann-
arra“. Kannast einhver við þessa full-
yrðingu? Og ef svo er, hver vill standa
upp og segja að það sé „bleikur fíll“ í
stofunni? Hvort sem stofan er heima,
í vinnunni á stjórnarheimilinu eða Al-
þingi?
Áfengis- og vímuefnaneysla er án
efa eitt stærsta heilbrigðisvandamál
okkar Íslendinga. Samantekt Hag-
stofunnar sýnir að það megi áætla að
rúmlega einn einstaklingur látist í
viku hverri af völdum beinnar eða
óbeinnar neyslu. Annað sem er ekki
síður alvarlegt er að samkvæmt
bandarískum tölum eru það um 18%
Bandaríkjamanna 12 ára og eldri sem
drekka óhóflega. Enn aðrar tölur
segja að í kring um hvern alkóhólista
séu að meðaltali fjórir aðstandendur
sem skaðast að einhverju leyti af fíkl-
inum. Ef þessar tölur eru yfirfærðar
á íslenskan veruleika þá erum við að
tala um rúmlega 70% hlutfall að-
standenda/meðvirkra hér á landi. Ef
þetta er raunin þá er stærri hluti
þjóðarinnar haldinn meðvirkni á ein-
hverju stígi. Sannleikann getum við
sjálf séð ef við lítum í eigin barm og
kringum okkur. Hvar sem er heima, í
vinnu, hjá vinum og fleiri stöðum!
Hver kannast ekki við eitthvað af
eftirfarandi lýsingum:
Mér finnst ég algjörlega óeig-
ingjarn og einarðlega helgaður
velferð annarra.
Ég er fram úr hófi trúr fólki og
kem mér því ekki nógu fljótt úr
skaðlegum aðstæðum.
Ég gef öðrum ráð og leiðbein-
ingar óspurður.
Ég á erfitt með að taka ákvarð-
anir.
Meðvirkni er sjúkdómur sem tærir
upp sál okkar. Hann hefur áhrif á allt
okkar líf, fjölskyldur okkar, börn,
vini, skyldmenni, fyrirtæki, frama,
heilsu og andlegan þroska. Hann er
hamlandi og ómeðhöndlaður hefur
hann eyðileggjandi áhrif á okkur sjálf
og aðra enn frekar. Mörg okkar enda
í þeirri aðstöðu að þurfa að leita til
annarra eftir hjálp. Meðvirkni tærir
sálina oft án þess að við sjáum það
sjálf. Meðvirkni er háttalag þar sem
manneskja tekur ábyrgð á gjörðum
annarra og hjálpar viðkomandi að
forðast það að takast á við vanda-
málið á beinan hátt, gert til að við-
halda stöðugleika í samskiptum fjöl-
skyldunnar. Meðvirkni byrjar sem
eðlileg viðbrögð við óeðlilegum að-
stæðum. Í meðvirkni missum við af
eigin lifi, lifum fyrir aðra og hvað
þeim finnst um okkur. Við lifum í
stöðugri skömm og sektarkennd.
Engin meðferð er til á Íslandi fyrir
meðvirka einstaklinga. Langtíma eft-
irfylgni og stuðning vantar. Opinber
viðkenning á meðvirkni sem skað-
andi og eyðileggjandi hegðun fyrir
einstaklinga, fjölskyldur og þjóð
vantar. Við erum inní miðju hvirf-
ilbylsins og sjáum ekki eyðilegg-
inguna utan við okkur.
Við sjáum ekki að meðvirkni er
stærsta heilbrigðisvandamál Ís-
lensks samfélags í dag og enginn þor-
ir að viðurkenna það því þá þarf við-
komandi að horfa í eigin barm.
Við viljum ekki sjá þá sem þurfa og
vilja þiggja þessa hjálp. Þeir hafa í fá
hús að vernda. Því óttinn hjá þeim
sem hafa völdin, óttinn við að líta í
eigin barm og viðurkenna að við er-
um öll mannleg, með kosti og galla
eins og aðrir, erum ekki meiri eða
minni. Óttinn við að missa grímuna,
missa hina ímynduðu fullkomnun, er
svo mikill að þeir velja að sjá ekki
þann gríðarstóra vanda sem heltekur
samfélagið okkar. Vandinn er án
nokkurs vafa gríðarlega stór og til að
sporna við honum þarf fyrst og
fremst að viðurkenna hann. Við þurf-
um að vera tilbúin að skoða okkur
sjálf, vera tilbúin í að laga þá bresti
sem há okkur hverju og einu. Enginn
er mikilvægastur, engin skoðun rétt-
ari en önnur, aðeins sameiginlegir
hagsmunir og löngun í gott líf getur
leitt okkur áfram.
Mikilvægt er að við spurjum okkur
eftirfarandi spurninga.
Er lífið ekki til þess að lifa því lif-
andi og í hamingju? Vantar eitthvað
upp á það hjá mér? Hvað get ég gert
til að breyta núverandi ástandi mínu
og samfélagsins?
Meðvirkni, falinn alvarlegur
heilbrigðisvandi?
Eftir Percy B. Stef-
ánsson og Kjartan
Pálmason
»Meðvirkni er sjúk-
dómur sem tærir
upp sál okkar. Hefur
áhrif á allt okkar líf, fjöl-
skyldur okkar, börn,
vini, skyldmenni; fyr-
irtæki okkar og frama.
Percy B. Stefánsson
Percy er formaður stjórnar Lausn-
arinnar. Kjartan er framkvæmda-
stjóri Lausnarinnar
Kjartan Pálmason
MORGUNBLAÐIÐ birtir alla útgáfudaga aðsendar umræðugreinar
frá lesendum. Blaðið áskilur sér rétt til að hafna greinum, stytta texta í
samráði við höfunda og ákveða hvort grein birtist í umræðunni, í bréf-
um til blaðsins eða á vefnum mbl.is.
Innsendikerfið
Þeir sem þurfa að senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Formið er undir liðnum „Senda
inn efni“ ofarlega á forsíðu mbl.is. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Ekki er lengur tekið við greinum sem sendar eru í tölvupósti.
Í fyrsta skipti sem formið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í
kerfið, en næst þegar kerfið er notað er nóg að slá inn netfang og lyk-
ilorð og er þá notandasvæðið virkt.
Móttaka aðsendra greina
Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Þjónusta á landsbyggðinni | sími: 568 6880 | www.heyrnartaekni.is
Pantaðu tíma í fría
heyrnarmælingu í síma
568 6880
Allt frá árinu 2001 hefur Heyrnartækni boðið upp á mikið úrval vandaðra heyrnartækja
frá Oticon. Í dag er útlit heyrnartækja frá Oticon þannig að þau eru nánast því ósýnileg
bakvið eyrun og tæknin svo fullkomin að hún kemur notendum nær eðlilegri heyrn en
nokkrun tímann fyrr.
Heyrnartækni er leiðandi fyrirtæki í þjónustu við heyrnarskerta á landsbyggðinni.
Auk daglegrar þjónustu í Reykjavík þá bjóðum við reglulega upp á heyrnarmælingar og
heyrnartækjaþjónustu á 18 stöðum á landsbyggðinni.
Bjóðum upp margar gerðir heyrnartækja í ólíkum verðflokkum.
Heyrðu betur
með vönduðu
heyrnartæki
www.heyrn a rtæ kn i . is
– meira fyrir áskrifendur
Skólar og
námskeið
Fáðu þér áskrift á
mbl.is/askrift
Í blaðinu verður fjallað um menntun og
þá fjölbreyttu flóru sem í boði er fyrir
þá sem vilja auðga líf sitt og möguleika
með því að afla sér nýrrar þekkingar og
stefna því á nám og námskeiða.
Morgunblaðið gefur út glæsilegt
sérblað um menntun, skóla og
námskeið þriðjudaginn
5. janúar 2010.
Meðal efnis verður :
Háskólanám og endurmenntun.
Fjarmenntun á háskólastigi.
Verklegt nám/iðnnám á framhalds og
háskólastigi.
Endurmenntun.
Símenntun.
Listanám.
Sérhæft nám.
Námsráðgjöf og nám erlendis.
Kennsluefni.
Tómstundanámskeið og almenn námskeið.
Lánamöguleikar til náms.
Ásamt fullt af öðru spennandi efni.
Pöntunartími auglýsinga er fyrir klukkan 16.00
mánudaginn 21. desember
Nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir
í síma 569 1105, kata@mbl.is