Morgunblaðið - 19.12.2009, Page 1
L A U G A R D A G U R 1 9. D E S E M B E R 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
337. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
«VERÐLAUNAMYNDA- OG KROSSGÁTA
HÖFUÐIÐ LAGT Í
BLEYTI UM HELGINA
÷ur
÷ó÷i
«SUPERTIME VINSÆLT Á YOUTUBE
Margir vilja leikstýra
næsta myndbandi
6
Eftir Þórð Gunnarsson
thg@mbl.is
HLUTAFÉ 365 miðla er verðlaust
samkvæmt verðmati sem unnið var
fyrir þrotabú Fons. Fons var áður í
eigu athafnamannsins Pálma Har-
aldssonar, en félagið átti 26,12% hlut
í Rauðsól ehf., sem keypti fjölmiðla-
hluta 365 miðla í nóvember á síðasta
ári. Í kjölfar gjaldþrots Fons voru
sérfræðingar fengnir til þess að út-
búa verðmat á eignarhlut félagsins í
Rauðsól. Niðurstaða þess var að
eignarhluturinn er einskis virði.
Skiptastjóri Fons sagði í samtali við
Morgunblaðið að söluverð hlutarins
hefði verið þrotabúinu mjög hagstætt
miðað við verðmatið á félaginu.
Skömmu eftir að Rauðsól keypti
eigin bréf af Fons gekk samruni fyrr-
nefnda félagsins við 365 endanlega í
gegn, en samruninn mun taka gildi 1.
janúar næstkomandi. Þegar Rauðsól
keypti fjölmiðlahluta 365 í nóvember
2008 nam kaupverðið 1,5 milljörðum
króna, auk þess sem tekin var yfir 4,4
milljarða rekstrarskuld. Eftir að
samruni Rauðsólar og 365 tekur gildi
mun Rauðsól verða leyst upp og
skuldirnar sitja eftir í fjölmiðlafyrir-
tækinu. Eftir samrunann munu
vaxtaberandi skuldir fyrirtækisins
nema 4,6 milljörðum króna.
Eignarhlutur í 365 | 22
Hlutabréf í 365 einskis
virði samkvæmt verðmati
Jón Ásgeir
Jóhannesson
Pálmi
Haraldsson
Í HNOTSKURN
»Verðmat, sem unnið var afsérfræðingum að ósk
þrotabús Fons á hlut í Rauðsól
ehf., leiddi í ljós að 365 miðlar
eru verðlausir. Rauðsól
greiddi 1,5 milljarða fyrir fjöl-
miðlahluta 365 fyrir ári og tók
yfir rekstrarskuldir.
»Vaxtaberandi skuldir 365eftir samruna við Rauðsól
munu nema 4,6 milljörðum.
Eftir Agnesi Bragadóttur
agnes@mbl.is
BJARNI Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, segir að flokk-
urinn standi á miklum tímamótum
um þessar mundir. Valdþreytu hafi
verið farið að gæta í flokknum all-
löngu fyrir hrun og nú sé hafið mikið
starf til þess að endurheimta það
traust sem flokkurinn hafi glatað í
alþingiskosningunum í vor.
Bjarni segir í ítarlegu viðtali við
Sunnudagsmoggann að Sjálfstæð-
isflokkurinn hafi glatað trausti fólks
vegna þess að grundvöllur tilver-
unnar hjá svo mörgum hafi gjör-
breyst.
Sótt að öryggi heimilanna
„Það var sótt að öryggi heim-
ilanna í þessari byltu sem við tókum
í fyrra og fyrir það var Sjálfstæð-
isflokknum refsað. Það tel ég vera
skiljanlegt, að vissu marki, en vil þó
árétta, að ég tel að ábyrgðin á
hruninu liggi mjög víða, en hún lá að
sjálfsögðu m.a.
hjá stjórnvöld-
um,“ segir
Bjarni.
Bjarni segir að
stundum sé sagt
að fólk sakni
gamla góða Sjálf-
stæðisflokksins.
„Mitt svar er að
byggja Sjálfstæð-
isflokkinn upp á
grunni hinna gömlu góðu gilda, en
flokkurinn verður að breytast í takt
við tímann.“
Formaðurinn er afdráttarlaus í af-
stöðu sinni til Icesave og segir m.a.:
„Sjálfstæðisflokkurinn mun greiða
atkvæði gegn Icesave-frumvarpinu
og reyna að fella það. Það má ekki
samþykkja þetta frumvarp.“ Hann
segist aldrei munu samþykkja að
krafan um um úrlausn hlutlausra
dómstóla í Icesave-málinu sé flótti
frá skuldbindingum Íslendinga.
Bjarni segir að íslenskum hags-
munum sé best borgið utan ESB.
Valdþreyta all-
löngu fyrir hrun
Formaður Sjálfstæðisflokksins vill fella
Icesave-frumvarpið og vera utan ESB
Bjarni
Benediktsson
JÓLAVERSLUNIN er nú komin á fullt og vænta má að um helgina verði
víða ys og þys þar sem fólk fer og kaupir það sem þarf, svo halda megi hina
heilögu hátíð. Á Laugaveginum voru þessar stöllur á ferðinni í gær. Þar
mátti sjá ótalmargt lokkandi í búðargluggum hvar ljósin skinu skært í
biksvörtu skammdegismyrki, sem strax eftir helgi fer að hörfa.
Í JÓLAÖS Á LAUGAVEGI
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tveir létust í hörðum árekstri
tveggja bifreiða á Hafnarfjarðar-
vegi við Arnarnesbrúna í gærmorg-
un. Farþegi í öðrum bílnum er al-
varlega slasaður og er haldið
sofandi á gjörgæsludeild Landspít-
alans í Fossvogi. Rannsóknarnefnd
umferðarslysa kallar eftir vegriði á
þessum stað en formaður nefnd-
arinnar, Ágúst Mogensen, telur all-
ar líkur á því að vegrið hefði varn-
að því að annar bíllinn fór yfir á
öfugan vegarhelming. Jónas Snæ-
björnsson, svæðisstjóri hjá Vega-
gerðinni, tekur undir með Ágústi.
Orsök slyssins er í rannsókn en
hálka var í vegköntum þegar bíl-
arnir skullu saman. »4
Tveir létust í bílslysi og
einn slasaðist alvarlega
Morgunblaðið/Júlíus
Ráðgjafi emb-
ættis sérstaks
saksóknara í
rannsókninni á
bankahruninu,
Eva Joly, segist
viss um að starf
hans muni bera
góðan árangur.
Fólk verði að
taka á þolinmæð-
inni en stutt sé í verulegan árangur.
Joly verður að þessu sinni hér á
landi í þrjá daga.
„Það tók sinn tíma að koma öllu
þessu öfluga liði á laggirnar. En nú
höfum við þrjá nýja saksóknara
sem er mjög mikilvægt, starfsliðið
er fínt en fleiri verða ráðnir.“
Hún segist ekki vita enn hve
miklar fjárhæðir geti verið um að
tefla í brotamálum sem búast má
við að komi fyrir dómstóla. En það
séu „gríðarlegar fjárhæðir“, segir
Joly. kjon@mbl.is »6
Joly bjartsýn á árangur af
rannsókn saksóknara
Eva Joly
Er við g
ámahö
fnina
Kveðja, Skyrgámur
*Nánar um skilmála á flytjandi.is
PIIPA
R
\
TBW
AA
•
SÍAA
•
9118
81
Faxafeni 5 • S. 588 8477
Opið í dag kl 11-19
Dúnsokkar
Kr. 6.900,-