Morgunblaðið - 19.12.2009, Side 70
Sími 462 3500
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Sími 551 9000 Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Avatar 2D kl. 1:45(600kr) - 3:20 - 5 - 6:45 - 8:30 - 10:10 B.i.10 ára
Saw 6 kl. 8 - 10 B.i.16 ára
Bad Lieutenant kl. 3(600kr) - 5:30 - 10:30 B.i.16 ára
Julie and Julia kl. 2:40(600kr) - 5:20 - 8 LEYFÐ
Avatar kl. 4(550kr) - 6 - 8 - 10 (Kraftsýning) B.i. 10 ára
9 kl. 4(550kr) B.i.10 ára
SÝND Í REGNBOGANUM SÝND Í HÁSKÓLABÍÓISÝND Í REGNBOGANUM
HHHH
„Ein magnaðasta
mynd ársins”
S.V. - MBL
HHHH
Roger Ebert -
Chicago Sun-Times
HHHH
„Þrekvirki!”
- HS, Mbl
ÍSLENSKT TAL
JÓLAMYNDIN 2009
BIÐIN ER Á ENDA!
Nýr kafli í kvikmyndasögunni hefst í kvöld! Missið ekki af þessari
byltingarkenndu stórmynd frá James Cameron leikstjóra Titanic.
TILNEFNINGAR
TIL GO LDEN GL OBE VERÐLAUNA
BESTA MYND - BESTI LEIKSTJÓRI - BESTA TÓNLIST - BESTA LAG
BÍÓUPPLIFUN ALDARINNAR!
SÝND Í SMÁRABÍÓI
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI, REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI
Avatar 3D kl. 2:40 (950kr) - 6 - 9:20 B.i.10 ára
Avatar 2D kl. 2:40 (600kr) - 6 - 9:20 B.i.10 ára
Anvil kl. 4(600kr) - 6 B.i.7 ára
Whatever Works kl. 5:50 - 8 B.i.7 ára
A Serious Man kl. 3:30(600kr) - 10:10 B.i.12 ára
Desember kl. 8 - 10 B.i.10 ára
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann m
Þú færð 5%
endurgreitt
í Háskólabíó
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 2009
James Cameron var fjórtán árað gera Avatar, nýjustu ogstærstu mynd sína til þess.Allan þann tíma lofaði hann
áhorfendum að myndin yrði mik-
ilfenglegri en allt sem á undan er
gengið og því var eftirvænting
áhorfenda orðin stjarnfræðileg.
Nú hefur hún verið tekin til sýn-
inga um allan heim og óhætt er að
lofa að áhorfið svíkur engan.
Sagan gerist árið 2154 og segir
af lömuðum fyrrum hermanni sem
er sendur til fjarlægrar plánetu,
til þess að stýra avatar og starfa
þannig sem málaliði í erjum
manna og frumbyggja um auðæfi
plánetunnar. Hann heillast af
heimi Na’vi frumbyggjanna og
þarf að gera upp við sig hvort
hann vilji hlýða skipunum og taka
þátt í ofstækisfullu arðráni mann-
anna eða ganga til liðs við Na’vi
ættbálkinn og standa vörð um æv-
intýralegan heim hans. Tveggja
heima sýnin sem birtist á tjaldinu
er einkar áhugaverð og vel útfærð
enda var heildstæður menningar-
heimur, náttúrulíf og tungumál
smíðað fyrir Na’vi ættbálkinn.
Framvindan minnir um margt á
söguna um indíánaprinsessuna
Pochahontas sem Disney gerði
fræga teiknimynd um árið 1995,
þar sem ástarsaga frumbyggjast-
úlku og fyrrum óskabarns vest-
rænnar heimsvaldsstefnu er í for-
grunni. Hún sver sig einnig í ætt
við myndir á borð við Apocalypse
Now (1979) þar sem öfgafull hern-
aðarhyggja með dramatísku þyrlu-
flugi, þjóðarmorði og klikkuðum
ofursta ræður ríkjum. Avatar er
auk þess epísk vísindaskáld-
skapar-geimópera svo hún ætti
augljóslega að höfða til breiðrar
fylkingar áhorfenda.
Aðalhetjan er óvenjuleg þar
sem hún er bundin við hjólastól í
heimi manna. Myndin skartar ekki
heldur stórstjörnum í aðal-
hlutverkum og því flækist stjör-
nuímynd, fyrri hlutverk og einka-
líf leikara ekki um of fyrir
áhorfendum sem geta hér sökkt
sér alfarið inn í þetta framandlega
ævintýri og teygað upplifunina í
botn.
Fyrir utan að vera strauml-
ínulagaður og svolítið klisju-
kenndur Hollywood-stórsmellur
(e. blockbuster) – það er æsi-
spennandi og hugljúf afþreying
með ærnum framleiðslukostnaði
og herkænsku-markaðssetningu
sem nær iðulega að slá í gegn
meðal áhorfenda er hér brotið
blað í kvikmyndasögunni. Ný vídd
er að opnast í bíóupplifun þar sem
stökkbreytt tæknileg framþróun
hefur átt sér stað. Þrívíddar-
tæknin hefur verið fullkomnuð og
raunsæi tölvugrafískra persóna
verið aukið til muna þannig að
áhorfendur geta auðveldlega sam-
samað sig við þær. Auk þess nær
litadýrð og áferð myndefnis að
höfða á nýstárlegan hátt til snerti-
skyns áhorfenda. Sjónarspilið er
því í alla staði vægast sagt stór-
brotið.
Undur og stórmerki gerast enn!
Avatar „Sjónarspilið er því í alla staði vægast sagt stórbrotið.“
Smárabíó, Háskólabíó, Laugar-
ásbíó, Sambíóin Keflavík
Avatar bbbbb
Leikstjórn og handrit: James Cameron.
Aðalhlutverk: Sam Worthington, Zoë
Saldaña, Stephen Lang, Michelle Ro-
driguez, Giovanni Ribisi, Sigourney
Weaver. 161 mín. Bandaríkin, 2009.
HJÖRDÍS
STEFÁNSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
ORÐIÐ avatar merkir afkvæmi
guða sem kemur til jarðar af himn-
um ofan. Eina elstu vísun í fyrir-
bærið er að finna í heilagri ritningu
hindútrúar (frá u.þ.b. 3138 f. Kr.),
en þar er hlutverk avatars sagt
vera að koma á réttsýni og stöð-
ugleika í samfélagi manna og sam-
skiptum þess við alheiminn. Í tölvu-
heimum samtímans er avatar
fulltrúi notanda eða annað sjálf
hans hvort sem það er í þrívíðu
rúmi eins og í tölvuleikjum eða
ímynd í samskiptum á vefnum. Í
kvikmynd Camerons er avatarinn í
raun allt þetta og meira til, hann
verður eiginlegur og áþreifanlegur
holdgervingur notanda síns og get-
ur átt bein samskipti við umhverfi í
raunheimi.
Avatar – mann-
gervingur