Morgunblaðið - 19.12.2009, Síða 44

Morgunblaðið - 19.12.2009, Síða 44
44 Umræðan BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 2009 SKÚTUVOGUR HJARTA VÖRUFLUTNINGA LANDSINS, MIÐSVÆÐIS OG GÓÐAR TENGINGAR VIÐ ALLAR HELSTU SAMGÖNGUÆÐAR HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS Helgi Bjarnason, viðskiptafræðingur, MBA, löggiltur leigumiðlari og löggiltur fasteignasali Ólafur Jóhannsson, rekstarfræðingur, löggiltur leigumiðlari Mjög gott 700 fm lagerhúsnæði - Tvær háar og góðar innkeyrsludyr (3,6h x 3,55b). Mikið útipláss, góð gámaaðstaða. Um 5 metra lofthæð. Brettarekkar og tínsluhillur eru í húsnæðinu og geta fylgt - allt á einum gólffleti. Einnig um 270 fm lagerhúsnæði í sama húsi laust. Allar frekari upplýsingar í gefur Ólafur í 534-1023 / 824-6703 olafur@atvinnueignir.is JÓN BÖ Á BÓK! holar@simnet.is Einn fremsti sagnamaður landsins segir frá. Sumar sögurnar eru græskulaus- ar, aðrar með broddi í og auðvitað verður staldrað við fornsögurnar. Finnum við ef til vill samsvörun í Sturl- ungu við átök nútímans? Fróðleg en umfram allt skemmtileg bók. 2. PRENTUN komin í búðir FRÉTTIN um inn- rás Sovétríkjanna í Finnland að morgni 30. nóv. 1930 barst til Íslands seinni part sama dags. Fréttin var lesin í fréttatíma útvarpsins og birtist í öllum dagblöðum daginn eftir. Íbúar landsins voru rúm- lega 130 þús. manns og tæplega 40 þús. bjuggu í Reykjavík. Atvinnuleysi var mikið, efnahagsbatinn eftir kreppu 4. áratugarins gekk hægt fyrir sig. Viðbrögð þjóðarinnar voru mikil, en á þau verður að líta með augum þess tíma. Íslendingar hrifust af frelsisbaráttu Finna og baráttu þeirra við ofríki Svía og Rússa. Róttæki hluti verkalýðshreyfing- arinnar upplifði ósigur rauðliðanna í borgarastríðinu 1918 sem harm- leik, en borgarastéttin dáðist að framgöngu Mannerheims hers- höfðingja og hvítliðahersveitum hans. Eins og öðrum ríkjum við aust- anvert Eystrasalt bárust Finnum boð um að koma til Moskvu til við- ræðna um „raunhæf pólitísk mál- efni“ eins og það var orðað í bréfi Molotov. Eistland, Lettland og Litháen sendu strax fulltrúa til Moskvu til viðræðna og í fram- haldi af þeim viðræðunum opnuðu þau lönd sín fyrir sovéskum her- stöðvum. Finnar ákváðu að fara öðru vísi að. Um leið og boðin bár- ust var ákveðið að senda út al- menna herkvaðningu og efna til sérstakra heræfinga í Kirjálum, skammt frá landamærum Sov- étríkjanna. Til að forða því að Moskvumenn litu á heræfingarnar sem ögrun voru þær kallaðar „sér- stakar aukaheræfingar“. Finnar fylgdust ekki síður en aðrir með framvindu mála. Allur herinn var kominn í við- bragðsstöðu um það leyti sem Väinö Tanner utanríkisráðherra og Juho Kusti Paasikivi, sendiherra Finna í Stokkhólmi (forsætisráð- herra 1944 og forseti landsins 1946 til 1956) lögðu af stað til viðræðna við Josef Stalín og Vatitslav Molo- tov í Moskvu. Engin niðurstaða náðist og klukkan rúmlega 7 að morgni 30. nóvember réðust Sovétmenn fyr- irvaralaust inn yfir finnsku landamærin á Kirjálanesinu. Vetrarstríðið stóð yfir í 105 daga og kostaði um 27.000 mannslíf í Finnlandi. Tölur um sovéska mannfallið eru á reiki, en talað er um 85.000 manns í hersveitum Rauða hersins. Í Reykjavík var verið að und- irbúa hátíðarhöld vegna 1. desem- ber, en allir stjórnmálaflokkar höfðu í hyggju að efna til hátíð- arhalda. Nú ákváðu menn að hætta slíkum áform, nema sósíal- istar. Lögreglan mat ástandið það viðkvæmt að það gæti raskað al- mennri röð og reglu í bænum og bannaði sósíalistum að efna til veislu. Pétur Ottesen, forseti sam- einaðs Alþingis, ávarpaði þjóðina en byrjaði á að lýsa samstöðu og samhug íslensku þjóðarinnar í garð Finna vegna þeirrar hörmu- legu stöðu sem þjóð þeirra væri lent í og gæti ógnað allri tilveru hennar. Hann vonaði að þjóðinni tækist að varðveita lýðræði og mannréttindi í landi sínu og að í þessum hildarleik fengi réttlætið en ekki aflsmunir að ráða örlög- unum. Þegar öllum hátíðarhöldum hafði verið slegið á frest ákváðu samtök háskólastúdenta að efna til blysfarar að finnsku ræð- ismannaskrifstofunni í gamla Geysishúsinu. Þátttaka var mikil, um 10.000 manns (stærsta mót- mælaganga í sögu Reykjavíkur miðað við íbúafjölda). Formaður stúdentafélagsins, J. Hafstein, ávarpaði finnska ræðismanninn, Ludvig Andersen, og bað hann að skila samstöðukveðjum íslenskra stúdenta og allra Íslendinga til finnsku þjóðarinnar. Eftir þessi fyrstu viðbrögð var hafist handa. Rauði kross Íslands varð 15 ára 10. desember og gerð- ur að Finnlandsdegi að frumkvæði RKÍ. Almenn fjársöfnun fór af stað þann dag og hófst á ávarpi biskups Íslands, Sigurgeirs Sig- urðssonar, af svölum Alþingis, en ávarpinu var útvarpað beint um allt land. Menntskælingar seldu merki dagsins út um alla borg, í Nýja bíói og Gamla bíói voru hald- in Finnlandskvöld með dagskrá. Rithöfundar lásu eigin ljóð um Finnland, báðir karlakórar borg- arinnar sungu m.a. á finnsku. Í ársskýrslu RKÍ fyrir árin 1939 og 1940 kemur fram að söfnunin gekk mjög vel út febrúar 1940, en dó út eftir innrás Þjóðverja í Danmörku og Noreg 10. apríl 1940. Alls söfn- uðust 165.662 kr. (um 25.000$). Vetrarhjálpin 1939 féll alfarið í skugga Finnlandssöfnunarinnar. Helmingur upphæðarinnar var sendur sem peningar, um 13.000$, hinum helmingnum var varið til kaupa á 10 tunnum af lýsi, ull- arfatnaði og skinnum. Fjórir Ís- lendingar mættu sjálfir til leiks í Finnlandi. Tveir læknar, Gunnar Finsen sem vann á hersjúkrahúsi í Gamla Karleby-Kokkola, og Snorri Hallgrímsson sem var á Salla víg- stöðvunum í Norður-Finnlandi. Hinir tveir voru óbreyttir her- menn, Ásgeir Einarsson, sem tók þátt í viðgerðarvinnu í Mann- erheim-víglínunni. Ásgeir varð áfram í Finnlandi og tók þátt í orrustum á Hangö-víglínunni 1941 en kom til Stokkhólms í desember 1941. Þórarinn Sigmundsson var sá eini í hópi fjórmenninganna sem meiddist, en hann datt af bíl- palli og fékk heilahristing. Hann kom til Finnlands í byrjun mars 1940 og tók aldrei þátt í neinum hernaðarátökum. Hann fékk leyfi til að fara til Petsamo og komst um borð í Esjuna í byrjun sept- ember 1940 og heim. Ég veit því miður ekkert um afdrif tveggja síðarnefndu sjálfboðaliðanna og gaman væri að fá upplýsingar um þá. borgtor@mmedia.is Ísland og vetrarstríðið Eftir Borgþór S. Kjærnested » Fjórir Íslendingar skráðu sig sem sjálf- boðaliðar í finnska vetr- arstríðið 1939-40 og Ís- lendingar söfnuðu 25.000$. Borgþór S. Kjærnested Höfundur er fv. fréttaritari. Blaðinu hefur borist athugasemd við frétt Morgunblaðsins af íbúa- fundi á Álftanesi í gær, 17. desem- ber. Íbúafundur um kynningu á fjár- hagsmálum Álftaness sem fram fór sl. fimmtudag var skipulagður án samráðs við minnihluta bæj- arstjórnar þótt eðlilegt hefði verið að bæjarstjórn stæði saman að kynningunni. Fyrrum bæjarstjóri, Sigurður Magnússon, fór fram á það við fund- arstjóra að hann fengi 10 mínútur til að kynna athugasemdir minnihlut- ans á eftir kynningu bæjaryfirvalda og fulltrúa Eftirlitsnefndar sveitarfélaganna en þessir aðilar tóku klukkustund í upphafi fundarins. Þetta samþykkti fund- arstjórinn en sjálfstæðismenn í saln- um stóðu þá upp og gengu til dyra með háreysti og stöppuðu niður fót- um. Þetta kom í sjálfu sér ekki á óvart enda hafa þessir aðilar ekki verið þekktir fyrir kurteisi í gagnrýni sinni á bæjarfulltrúa Á-lista sem tóku af þeim völdin, með naumum meirihluta, í síðustu kosningum. Á forsíðu Morgunblaðsins í gær er sagt frá fundinum og réttilega sagt að þessi órólegi hópur sjálfstæð- ismanna var um þriðjungur fund- armanna. Væntanlega gefur atburðurinn góða vísbendingu um fylgi D-listans í sveitarstjórnarkosningunum á Álftanesi næsta vor. Kristinn Guðmundsson, fulltrúi Á-lista í skipulags- og bygginganefnd. Þriðjungur fundarmanna stappaði niður fótum GUNNAR fer með fé lífeyrisþega og einnig skattfé ríkis og sveitarfélaga. Hann telur mikinn voða fyrir hönd- um ef skattféið er tekið úr hans vörslu. Hann seg- ist fara létt með að ávaxta það með 5% vöxtum (væntanlega raunvextir) og þá hækki það um 160% á 20 árum. Við höfum heyrt svona óraunhæfar væntingar áður og þekkjum hvert þær hafa leitt okkur. Lífeyrissjóð- irnir eru til að ávaxta fé sem við geymum til elliáranna. Skattféið, sem er inni í lífeyrissjóðunum hefur engin áhrif á eign sjóðsfélaga. Þeir fá það aldrei greitt, hins vegar munu þeir eins og aðrir landsmenn blæða fyrir ofurskuldir ríkisins, sem eru með háu vaxtatryggingarálagi. Staða okkar er sú núna að ríkið þarf að fá það fé að láni, sem það verður af vegna skattfríðinda inn- greiðslna í sjóðina. Vaxtakjörin eru ekki góð og því vandséð að það sé hagstætt að geyma það í lífeyrissjóð- unum. Um skattekjur eftir 20 ár er það að segja að vissulega fást þá ekki skattar af lífeyrisgreiðslum, en skattar af inngreiðslum í lífeyris- sjóðina koma í staðinn. Þeir eru nú miklu hærri og verða það væntan- lega a.m.k. næsta áratuginn. Ég hef ekki miklar áhyggjur af að ríkið verði af þessum háu greiðslum sem Gunnar lýsir. Takist að ná þessari ávöxtun hjá lífeyrissjóðunum lifa líf- eyrisþegar eins og blóm í eggi og þurfa litlar greiðslur frá almanna- tryggingakerfinu, fara jafnvel að borga hátekjuskatt. (Sjá einnig grein undirritaðs í Mbl. 25. nóv. sl.). Ég er þó sammála Gunnari um það að vafasamt er að nota þetta fé til lækkunar skatta með það í huga að auka eyðslu Íslendinga, til þess hafa þeir ekki þurft neina kvattningu. HARALDUR SVEINBJÖRNSSON Húsalind 8, Kópavogi. Athugasemd við grein Gunnars Baldvinssonar Frá Haraldi Sveinbjörnssyni Haraldur Sveinbjörnsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.