Morgunblaðið - 19.12.2009, Blaðsíða 4
Morgunblaðið/Heiddi
ALLSHERJARNEFND Alþingis
fjallaði á fundi sínum í gær um nið-
urstöðu nefndarinnar um hvernig
vinna skuli úr skýrslu Rannsókn-
arnefndar Alþingis um bankahrun-
ið. Formaður nefndarinnar, Stein-
unn Valdís Óskarsdóttir, mun svo
mæla fyrir málinu á þingi í dag,
laugardag.
Að sögn Steinunnar verður fram-
hald málsins væntanlega þannig að
eftir helgina verður skipuð nefnd
þingmanna, sem í eiga sæti tveir
fulltrúar úr hverjum þingflokki, og
mun hún taka ákvörðun um hvort
ástæða þyki til að vísa til lands-
dóms. Dómurinn fer með og dæmir
mál sem Alþingi ákveður að höfða
gegn ráðherrum. Fimmtán sitja í
landsdómi sem hefur þó aldrei ver-
ið kallaður saman frá því hann var
stofnaður fyrir 104 árum.
Fjallað um rannsókn-
arnefnd þingsins
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 2009
Mjúkir pakkar !
Dúnsokkar
Kr. 6.900,-
Faxafeni 5
S. 588 8477
Eftir Sigurð Boga Sævarsson
sbs@mbl.is
„ÁSTANDIÐ á Landspítalanum er
slæmt og útilokað fyrir stjórnendur
að mæla því í mót. Álag á öllum deild-
um hefur aukist auk þess sem oft hef-
ur skort á nauðsynlegt samráð við
starfsfólk, sem auðvitað er forsenda
þess að vel takist til við hagræðingu,“
segir Birkir Högnason, formaður
ungliðadeildar Sjúkraliðafélags Ís-
lands.
Ungir sjúkraliðar ályktuðu um
mikið álag á Landspítala á dögunum
og í framhaldinu boðaði heilbrigðis-
ráðherra Birki Högnason á sinn
fund. Óskað var álits landlæknis á
málinu sem í vikubyrjun bað sjúkra-
liða um umsögnina sem þeir skiluðu í
gær.
Í ítarlegri skýrslu sjúkraliða segir
að á undanförnum misserum hafi
þeim verið falin ýmis ný verkefni.
Stöðugildum sjúkraliða hafi frá í fyrra
fjölgað um rúmlega tuttugu en á
sama tíma hafi stöðum ófaglærðs
fólks sem áður sinnti sömu störfum
fækkað um í kringum fimmtíu.
Læknaritarar við eftirlit
„Starfsfólk á öllum deildum talar
um að álagið hafi aukist mikið. Á
barnaspítalanum til dæmis er mönn-
un langt undir öryggismörkum.
Stundum hefur þurft aðstoð lækna-
ritara til að hafa eftirlit með sjúkling-
um og í stöku tilvikum hefur þurft að-
stoð af öðrum deildum,“ segir Birkir.
Í Morgunblaðinu í gær var haft
eftir Önnu Stefánsdóttur, fram-
kvæmdastjóra hjúkrunar á Land-
spítalanum, að álag á starfsmenn
sjúkrahússins hefði ekki aukist, eins
og nýleg könnun staðfesti. Um þetta
segir Birkir að umrædd könnun hafi
verið gerð í mars á þessu ári. Síðan
þá hafi margt breyst í starfseminni,
deildir verið sameinaðar og fleira
gert og því sé könnunin marklaust
plagg í dag.
Vel að verki staðið
Í samtali við Morgunblaðið sagði
Matthías Halldórsson landlæknir að
farið yrði yfir skýrslu sjúkraliðanna
og aðrar upplýsingar úr starfsemi
Landspítalans. Jafnframt stæði til að
heimsækja þær deildir LSH þar sem
ástandið væri verst, skv. skýrslunni,
og ræða við starfsfólk þar án viðveru
yfirmanna. Niðurstöður ættu að
verða ljósar upp úr áramótum.
„Skýrsla ungliðanna er ítarleg og
ég má til með að hrósa þeim fyrir hve
vel er að verki staðið,“ sagði Matthías
Halldórsson.
Útilokað að mótmæla auknu álagi
Takmarkað samráð er haft við starfsfólk Sjúkraliðum falin ný verkefni sem ófaglærðir sinntu
áður Könnun um álag er frá í mars og sögð úrelt plagg Landlæknir fer yfir mál og ræðir við fólk
Birkir
Högnason
Matthías
Halldórsson
Í HNOTSKURN
» Stöðugildum sjúkraliða áLandspítala fjölgar um
tuttugu en ófaglærðum sem
sinntu sömu störfum fækkar.
»Landlæknir ætlar að heim-sækja álagsdeildirnar og
fá álit starfsfólks.
»Mönnun oft undir örygg-ismörkum, segja sjúkralið-
ar.
Eftir Hlyn Orra Stefansson
hlynurorri@mbl.is
VEGRIÐ hefði mögulega getað
komið í veg fyrir banaslys sem
varð á Hafnarfjarðarveginum við
Arnarnesbrú í gærmorgun. Tveir
létust og einn slasaðist hættulega í
hörðum árekstri tveggja bíla.
„Það verður að teljast líklegt að
vegrið hefði varnað því að bílinn
fór yfir á öfugan vegarhelming,“
segir Ágúst Mogensen, forstöðu-
maður Rannsóknarnefndar umferð-
arslysa.
Hann segir að rannsóknarnefnd-
in muni leggja til að vegrið verði
sett upp á þessum vegakafla og
víðar. „Miðað við öryggiskröfur
þær sem gerðar eru í dag hugsa ég
að vegrið verði sett upp miklu víð-
ar.“
Rætt um vegrið á kaflanum
Jónas Snæbjörnsson, svæðis-
stjóri hjá Vegagerðinni, tekur und-
ir með Ágústi um að vegrið hefði
getað komið í veg fyrir þetta alvar-
legt slys. Hann segir að rætt hafi
verið um að setja upp vegrið á veg-
arkaflanum þar sem slysið varð.
Orsakir slyssins eru enn í rann-
sókn, en svo virðist sem ökumaður
Suzuki-jepplings hafi misst bifreið
sína yfir á öfugan vegarhelming
um klukkan tíu í gærmorgun. Að
sögn Ágústs var hált í köntum er
hann kom á vettvang tuttugu mín-
útum eftir að slysið varð.
Jepplingurinn lenti framan á til-
tölulega stórum Benz-leigubíl sem
kom á móti. Ökumenn beggja
bílanna létust við áreksturinn og
farþegi leigubílsins slasaðist mikið.
Hann hlaut alvarlega höfuðáverka
og er haldið sofandi í öndunarvél á
gjörgæsludeild Landspítalans,
samkvæmt upplýsingum frá lækni.
Jónas segir það vera tiltölulega
ódýrt að setja upp vegrið miðað við
margar aðrar framkvæmdir og að
þrátt fyrir niðurskurð sé lögð
áhersla á ódýrar framkvæmdir sem
geti bjargað mannslífum. Umrætt
slys auki líkurnar á að vegrið verði
sett upp á Hafnarfjarðarvegi þar
sem slysið varð.
Vegrið hefði bjargað
Tveir létust á Hafnarfjarðarvegi og einn alvarlega slasaður
Rannsóknarnefnd kallar eftir vegriði þar sem slysið varð
Sextán einstaklingar hafa látist
í umferðinni hér á landi það sem
af er ári, samkvæmt upplýs-
ingum frá Umferðarstofu. Árið
2008 var óvenjugott þegar
horft er til fjölda látinna í um-
ferðinni, en þá létust 12 í um-
ferðarslysum hér á landi. Árið
þar áður létust 15, en árið 2006
lést 31 einstaklingur í umferð-
inni á Íslandi.
Frá árinu 2001 og til og með
ársins 2005 létust á milli 19 og
29 einstaklingar árlega í um-
ferðinni hér á landi. Aldrei hafa
jafn margir látist í umferðinni
og árið 1977, eða 37 ein-
staklingar.
Sextán látnir í ár
Morgunblaðið/Júlíus
Harður árekstur Ökumaður missti jeppling yfir á öfugan vegarhelming, þannig að hann lenti framan á leigubílnum.
(Til Hafnarfjarðar) (Til Reykjavíkur)
H
A
FN
A
R
FJA
R
Ð
A
R
V
EG
U
R
Árekstur
Banaslys við
Hafnarfjarðarveg
AR
NA
RN
ES
VE
GU
R (
BR
Ú)
„ÉG vil ekki ræða þetta út frá ein-
stökum fyrirtækjum. Ég vísa í
verklagsreglur bankanna sem
gilda almennt um skuldaúrvinnslu
gagnvart fyrirtækjum og heim-
ilum,“ segir Steingrímur J. Sigfús-
son fjármálaráðherra spurður um
könnun MMR sem sýnir að tæp
97% telja ekki réttlætanlegt að
samkomulag um eignarhald á
Högum/1998 við núverandi eig-
endur feli í sér niðurfellingu
skulda. „Menn mega ekki missa
sjónar á því mikilvæga verkefni að
styðja við öll lífvænleg rekstr-
arfélög í landinu
og lágmarka
tjónið.“ Mik-
ilvægt sé að
hafa atvinnuna í
huga „og að við
missum sem fæst
fyrirtæki sem
hægt er að
bjarga og að-
stoða svo verð-
mætasköpunina
og störfin haldist. Það er ekki
hægt að ræða þetta mál nema í
heildarsamhengi“.
„Styðja við öll lífvænleg rekstrarfélög“
Steingrímur J.
Sigfússon