Morgunblaðið - 19.12.2009, Page 12

Morgunblaðið - 19.12.2009, Page 12
FRÉTTASKÝRING Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is SKULDIR sveitarfélaganna á höf- uðborgarsvæðinu nema samtals um 411 milljörðum króna. Staðan er mis- jöfn, sum skulda nánast ekki neitt á meðan önnur glíma við nánast ókleif skuldafjöll. Í nokkrum tilvikum mun- ar töluvert um svonefndar skuldbind- ingar utan efnahagsreiknings en þær eru ekki tilgreindar sem skuldir í fjárhagsáætlunum sveitarfélaganna og geta því auðveldlega farið framhjá grunlausum kjósendum. Álag dugar ekki fyrir leigu Á Álftanesi nema leiguskuldbind- ingar sem bæjarfélagið hefur gert vegna íþróttamannvirkja um þremur milljörðum. Eftir nýlega, tíma- bundna, lækkun á leigunni er skuld- bindingin orðin að um 2,1 milljarði. Leigugreiðslur lækkuðu þar með í 155 milljónir á ári en það er um 50 milljónum meira en sú fjárhæð sem bæjarstjórn Álftaness telur að fáist með að leggja 10% álag á útsvar íbú- anna og hækka fasteignaskatta. Þótt leiguskuldbindingarnar séu utan efnahagsreiknings sveitarfé- lagsins og ekki flokkaðar sem skuldir eru áhrifin á greiðslugetu sveitarfé- lagsins þau sömu; greiðslurnar verð- ur að inna af hendi, rétt eins og af- borganir af skuldum. Álftanes er þó síður en svo eina sveitarfélagið sem er með skuldbind- ingar utan efnahags eins og sést á meðfylgjandi töflum. Reykjavíkurborg er með lang- mestu skuldbindingar utan efnahags eða um 320 milljarða. Af þeirri upp- hæð eru um 194 milljarðar vegna ábyrgða fyrir Orkuveitu Reykjavíkur og önnur borgarfyrirtæki sem til- heyra B-hluta borgarsjóðs. Ábyrgð- irnar eru því í raun innifaldar í skuld- um þeirra og þær koma skýrt fram í fjárhagsáætlun. Þá er borgin í ábyrgð fyrir um 110 milljörðum fyrir Lands- virkjun. Eftir standa um 17 millj- arðar sem eru skuldbindingar vegna starfsemi sem að mestu eða öllu leyti fellur undir hefðbundna borg- arstarfsemi (A-hluta), s.s. rekstur íþróttahúsa, og þar er reyndar einnig að finna skuldbindingu vegna Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhússins o.fl. Skuldbindingarnar koma þó ekki fram sem skuldir í fjárhagsáætlun eða í ársreikningum. Væru þær reiknaðar sem skuldir væru skuldir A-hluta borgarsjóðs 60 milljarðar en ekki 42,8 milljarðar. Hér er því alls ekki haldið fram að sveitarfélög velji meðvitað að stofna til skuldbindinga utan efnahags frem- ur en að færa þær sem skuldir. Í mörgum tilfellum er um að ræða skuldbindingar sem ekki er hægt að færa sem skuldir en í öðrum tilvikum hefði allt eins mátt skuldfæra þær. Sveitarstjórnarmenn ættu þó að hafa í huga að íbúar eru fæstir vanir að lesa út úr ársreikningum og fáum dettur í hug að kíkja á skýringar með ársreikningum, en þar er sundurliðun á skuldbindingum utan efnahags að finna. Margar slíkar skuldbindingar eru lítt frábrugðnar raunverulegum skuldum, t.d. skiptir litlu máli í raun og veru hvort sveitarfélag tekur lán fyrir íþróttahúsi eða gerir bindandi leigusamning. Menning myndar ekki eign Gísli Hlíðberg Guðmundsson, borgarbókari hjá Reykjavíkurborg, segir að færsla skuldbindinga utan efnahags hjá borginni sé í samræmi við reikningsskilareglur. Í sumum til- fellum sé óeðlilegt að færa skuldbind- ingar sem skuldir í efnahagsreikn- ingi. Slíkt gæti t.d. ekki gengið þegar gerðir væru samningar til nokkurra ára um styrki til menningarstarfsemi. Þeir mynduðu ekki eign þótt þeir væru væntanlega verðmætir í augum borgarbúa. Greiðslur vegna leigu- greiðslna og skuldbindinga utan efna- hags væru gjaldfærðar í rekstr- arreikningi á greiðsludegi og kæmu því fram í fjárhagsáætlun sem rekstr- argjöld. Gísli Hlíðberg sagði þessi mál nú í skoðun hjá reikningsskila- og upplýsinganefnd sveitarfélaga og ekki ólíklegt að reglur yrðu túlkaðar þrengra þannig að einhverjar skuld- bindingar sem eru nú utan efnahags yrðu færðar inn í efnahagsreikning, bæði sem skuld og eign. Skulda ekki bara skuldir  Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu skulda samtals 411 milljarða  Þar af er 251 milljarður vegna Orkuveitu Reykjavíkur  Ofan á fjallháar skuldir bætast stundum skuldbindingar utan efnahags Skuldastaða sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu er misjöfn. Sum skulda meira en önnur og mörg þeirra skulda mun meira en skuldirnar. 12 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 2009 Mörkinni 6, sími 588 5518 Opið sunnudag frá kl. 12-18 laugardaga frá kl. 10-22 virka daga kl. 10-20 Gefðu hlýja gjöf Yfirhafnir kvenna, frábært úrval Úlpur • ullarjakkar/kápur • peysur dúnkápur/úlpur • húfur Ólafur Nilsson, formaður eftirlits- nefndar með fjármálum sveitarfé- laga, vill setja reglur um hversu mikið sveitarfélög megi skuldsetja sig. Tiltölulega auðvelt sé að sjá hvaða möguleika sveitarfélagið hafi á að greiða skuldir og þegar þeir útreikningar liggi fyrir sé hægt að setja skuldaþak. Slíkt skuldaþak ætti að binda í lög og reglur. Þá bendir Ólafur á að verið sé að gera reglur um skuldbindingar ut- an efnahags skýrari. Hann sé þeirrar skoðunar að sveit- arfélögum sem öðrum beri að fara með rekstrarleigusamninga til langs tíma vegna sérhæfðra fast- eigna líkt og fjármögnunarleigu- samninga, þ.e. sem eignir og skuldir í efna- hagsreikn- ingum en ekki sem skuldbind- ingar utan efnahags. Sérstakar reglur um þetta efni eru í gildi fyrir sveit- arfélög. Aðspurður segir Ólafur að eðlilegt hefði verið að færa leigusamning vegna íþróttahússins á Álftanesi bæði til eignar og skuldar, enda sé um að ræða mjög sérhæft húsnæði sem eingöngu sé notað fyrir starfsemi sveitarfélagsins. Vill setja skuldaþak á sveitarfélög Samanburður milli sveitarfélaga Skuldbindingar Skuldir og Skuldir A- og B-hluta utan efnahags skuldbindingar Fjárhagsáætlun 2010 Ársreikningar utan efnahags Milljarðar Milljarðar Milljarðar Reykjavík 3261) 17,4 343,4 Ábyrgðir A-hluta til þriðja aðila 304,52) 304,52) Hafnarfjörður 37 1,8 38,8 Kópavogur 33,1 4,2 37,3 Mosfellsbær 5,9 0,3 6,2 Álftanes 4,4 33) 4,4 Seltjarnarnes 0,321 0,321 Garðabær 4,6 1,54) 4,6 Alls 411,3 435,0 (545,05)) 5) Að meðtaldri ábyrgð Reykjavíkur- borgar á hluta af skuldum Landsvirkjunar. 1) Þar af eru skuldir og skuldbindingar A-hluta borgarsjóðs 42,8 milljarðar en ríflega 60 milljarðar ef tekið er tilliti til skuldbindinga utan efnahags sem falla undir starfsemi A-hluta. Skuldir B-hlutans nema því 283 milljörðum. Þar af er hlutur Orkuveitu Reykjavíkur 251 milljarður. 2) Um 188,5 milljarðar eru vegna ábyrgða við OR og 6 milljarðar vegna fyrirtækja borgarinnar en þegar er búið að gera grein fyrir skuldum þeirra í fjárhagsáætlun, skv. upplýsingum frá Reykjavíkurborg. Þá er borgin í 110 milljarða ábyrgð vegna Landsvirkjunar. 3) Búið er að semja um tímabundna lækkun. Ef hún verður varanleg lækkar skuldbindingin í um 2milljarða. 4) Einkum vegna 1. áfanga Sjálandsskóla Skuldbindingar Reykjavíkur utan efnahags 2009 Starfsemi sem tilheyrir B-hluta Starfsemi sem fella mætti undir A-hluta Rekstrar- og þjónustusamningar Milljónir Milljónir Styrkir á vegum borgarráðs 124,4 Styrkir vegna menningarmála 2.159 Styrkir vegna ÍTR 275 Stykir og þjónustusamningar vegna velferðarmála 442 Húsaleigu- og rekstrarleigusamningar 53 Leigusamningur vegna Aðalstrætis 2 128,6 Rekstrarleigusamningur vegna Landsnámsskála 331,2 Rekstrarleigusamningur vegna Íþrótta- og sýningarhallar 2.116 Rekstrarleigusamningur vegna yfirbyggðs knattspyrnuvallar 2.544 Tónlistar- og ráðstefnuhús 5.187 ÍBR vegna reksturs og viðhalds Skautahallar 62,5 KSÍ vegna reksturs og viðhalds Laugardalsvallar 3,3 Verksamningar hjá Eignasjóði 2.807 Rekstrarleigusamnignar Eignasjóðs. 32,7 Skuldbindingar bílastæðasjóðs 800 Samt: 17.066 Ábyrgðir til þriðja aðila Vegna kirkjubygginga 334,5 Landsvirkjun 110.164 Félagsbústaðir 2.583 Skuldbindingar Faxaflóahafnir 1.275 Orkuveita Reykjavíkur 188.517 Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins 7,7 Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins 904,6 Sorpa 323,4 Strætó 805 Samtals 17.400 304.580 Ólafur Nilsson HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur fallist á varakröfu Fjárfest- ingarfélagsins Gaums um að úr- skurður yfirskattanefndar verði að hluta felldur úr gildi og að í stað tæplega 670 milljóna króna tekna vegna sölu á eignarhluta í Bónus ár- ið 1998 skuli Gaumur tekjufæra 175 milljónir. Gaumur krafðist þess aðallega að tekjufærslan yrði felld niður. Þá krafðist Gaumur þess einnig að tekjuviðbót á árinu 2001 að fjárhæð rúmlega 1,2 milljarðar króna vegna sölu á hlutabréfum í breska félaginu Arcadia yrði felld niður eða lækkuð en á það var ekki fallist. Málið var höfðað vegna úrskurðar ríkisskattstjóra árið 2004, sem end- urákvarðaði opinber gjöld Gaums fyrir árin 1999 til 2003 á grundvelli rannsóknar skattrannsóknarstjóra ríkisins. Gaumur kærði úrskurð rík- isskattstjóra til yfirskattanefndar, sem staðfesti hann árið 2007. Gaum- ur höfðaði þá mál vegna tveggja liða. Annað þeirra varðaði verðmat á 25% eignarhluta í Bónus, sem látinn var í skiptum ásamt hlutum í öðrum félögum og greiðslu í peningum vegna kaupa á 25% hlutafé í Hag- kaupum árið 1998. Héraðsdómur féllst á það sjónarmið Gaums, að ekki væri réttmætt að miða verðmat 25% eignarhluta í Bónus við dag- setninguna 3. eða 19. júní 1998 held- ur yrði að miða mat á eðlilegu verði við mun eldri dagsetningu þar sem tekið væri tillit til aðstæðna og að- draganda samningsins. Hitt varðaði viðskipti með hluta- bréf í Arcadia Group PLC á árunum 2000 og 2001 og skattlagningu sölu- hagnaðar þegar hlutabréfin voru lögð inn í A Holding S.A. og skipt á bréfum í því félagi og hlutbréfum í Baugi. Fram kemur í dómnum, að A Holding hafi verið stofnað um eign- arhald í hlutum í Arcadia Group. Fé- lagið var stofnað í Lúxemborg í jan- úar 2001 af tveimur félögum skráðum til heimilis í pósthólfum á Bresku jómfrúaeyjum en stjórnað af starfsmanni Kaupþings í Lúxem- borg. Gaumur hélt því fram að dóttur- félag þess, Gaumur Holding AS, hefði í raun verið eigandi hlutabréf- anna í Arcadia þegar þau voru lögð inn í A Holding. Héraðsdómur segir hins vegar að gögn málsins sýni með fullnægjandi hætti að Gaumur hafi verið kaupandi hlutabréfanna í Ar- cadia en að hugmyndir hafi komið fram þegar liðið var á árið 2001 að það yrði skattalega hagstæðara að Gaumur Holding væri talinn eiga hlutabréfin þannig að ekki kæmi til skattgreiðslna á Íslandi þegar þau yrðu lögð inn í A Holding. Gaumur átti sjálfur bréfin í Arcadia Morgunblaðið/Golli

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.