Morgunblaðið - 19.12.2009, Page 41
Bók fyrir fólk á aldrinum 10 til 106 ára sem hefur
gaman af að hugsa.
Hver rakar rakarann sem rakar alla sem raka sig
ekki sjálfir?
Hvað varð um týnda jólasveininn?
Er hægt að koma sjö krökkum á sex stóla,
þannig að hver hafi sitt sæti?
Getum við ferðast inn í fortíð eða framtíð og
snúið aftur?
Er talan níu tengd afmælisdögum alls frægs
fólks?
Þessar spurningar og miklu fleiri eru settar fram í bókinni
AHA! Ekki er allt sem sýnist. Í henni eru furðulegar þrautir og
þversagnir fyrir alla sem eru klárir og skemmtilegir.
Heimur hf. 512-7575, Pantanir: aha@heimur.is
Aha! - þá þarftu ekki að leita lengur að jólagjöfinni fyrir þá.
er allt sem sýnist
ÞRAUTIR OG ÞVERSAGNIR FYRIRALLA
Martin Gardner
aha!
Ekki
Átt þú klára
og skemmtilega vini
á aldrinum 10-106 ára?
ÉG ÁTTI nýlega
tækifæri að tala við
mann sem tók þátt í að
gera nýjustu „Mats-
skýrslu um Loftslags-
breytingar“ á vegum
„Milliríkjanefndar
Sameinuðu Þjóðanna
um Loftslagsbreyt-
ingar“ (IPCC). Ég
sagðist hafa áhyggjur
af því að pólitíski arm-
ur IPCC væri að vefa
þétt alþjóðlegt hagsmunatengslanet
ríkisstjórna og viðskiptalífs sem
hagnaðist á kenningunni um mann-
drifna hlýnun jarðar. Ég sagði hon-
um að áhyggjur mínar vöknuðu við
að sjá að slíkt hagsmunanet myndi
þurfa að leggjast gegn gagnrýnum
vísindamönnum til að verja sína
hagsmuni og ef kenningin væri röng
myndu þeir þurfa að fela og falsa
upplýsingar til að sannleikurinn
kæmi ekki í ljós. Ég benti honum á
að slíkt hagsmunanet ógnaði vísind-
unum.
Hagsmunagæsla IPCC
Áhyggjur mínar voru staðfestar
stuttu síðar þegar vefpóstum virtra
vísindamanna sem IPCC styðst við
var lekið. Þar ræddu þeir hvernig
þeir hindruðu aðgang að upplýs-
ingum, fölsuðu þær og földu, kúguðu
vísindatímarit til að birta ekki grein-
ar eftir gagnrýna vísindamenn
o.s.frv.
Ég viðraði þessar áhyggjur við
innanbúðar mann IPCC því ég vildi
vita hvort vísindamenn sem efast um
kenninguna um manndrifna hlýnun
jarðar hafi sæti í vísindaarmi IPCC.
Hann svaraði: „No, we don’t let
them.“ eða „Nei, við leyfum þeim
það ekki.“
Þegar vísindi ógna valdi
En hvað ef ástæða hlýnunar jarð-
ar er önnur en koltvísýrings út-
blástur manna og hvað ef hægt er að
stöðva hlýnunina? Slík vísindakenn-
ing ógnar valdamesta hagsmunaneti
heimsins frá upphafi. Hún ógnar
koltvísýrings skattheimtu allra ríkja
heims. Hún ógnar einn-
ig koltvísýrings kvóta-
kerfi á valdi stærstu
orku- og iðnfyrirtækja
heims (stóru olíu-
fyrirtækin eru nú þeg-
ar farin að græða á
kvóta sem þeir hafa
fengið endurgjalds-
laust). Hún ógnar þar
að auki arðbærum
kvóta viðskiptum
stærstu fjármálastofn-
anna heimsins.
Koltvísýringskvóti
mun m.a. hafa í för með
sér: hærri skatta, hægari efnahags-
bata, hærra matvælaverð og hung-
urdauða. Guð mun ekki hjálpa okkur
þegar hagsmunanetið er fullofið og
lögfest um allan heim, og gagnrýnir
vísindamenn munu eiga við ramman
reip að draga að losa okkur undan
því.
Vísindamenn eru að hluta háðir
þessu hagsmunaneti. Þeir þurfa
fjármagn til rannsókna, vísindafjöl-
miðla til að koma kenningum sínum
á framfæri og félagsskap við aðra
vísindamenn sem allir þurfa að
hugsa um að bíta ekki höndina sem
fæðir þá. Hlustum því vel á þá vís-
indamenn sem ýtt hefur verið út í
kuldann fyrir að gagnrýna kenningu
sem er notuð til að réttlæta verulega
tilfærslu verðmæta til valdamestu
hagsmunaaðila heims.
Valdamesta hags-
munanet heimsins
Eftir Jón Þór
Ólafsson »Ég vildi vita hvort
vísindamenn sem
efast um manndrifna
hlýnun jarðar hafi sæti í
vísindaarmi IPCC.
Hann svaraði: „No, we
don’t let them.“
Jón Þór Ólafsson
Höfundur er stjórnmálafræðinemi.