Morgunblaðið - 19.12.2009, Síða 54
54 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 2009
✝ Sigríður Stef-ánsdóttir fæddist
á Hnappavöllum í
Öræfasveit þann 14.
júlí 1916. Hún lést á
hjúkrunarheimili
HSSA á Hornafirði
þann 10. desember
2009.
Foreldrar hennar
voru Stefán Þorláks-
son f. 14. október
1878, d. 17. janúar
1969 og Ljótunn
Pálsdóttir f. 2. maí
1882, d. 21.desember
1955, bændur í Vestri-Miðbæ á
Hnappavöllum. Sigríður var ein af
11 börnum þeirra sem voru; a)
Páll Arnljótur f. 18.12. 1908, d.
24.7. 1924, b) Þorlákur Ingimund-
ur f. 27.4. 1910, d. 20.2. 1911, c)
Kristín f. 3.9. 1911, d. 30.4. 2005,
d) Guðrún f. 15.10. 1912, d. 24.5.
1996, e) Þóra f. 20.2. 1915, d. 4.4.
1915, f) Páll Sigurður f. 30.5. 1918
d. 17.10. 2005, g) Þóra Ingibjörg f.
31.7. 1919, d. 4.11. 2001, h) Helgi
f. 13.11. 1920, d. 1.7. 1978, i) Þor-
lákur f. 26.3. 1922, d. 20.7. 2003, j)
Þórður f. 17.12. 1923.
Sigríður fór í fóstur á fyrsta ári
til Guðrúnar ömmu sinnar, Páls
afa síns og móðursystkina í Aust-
Elíasdóttir, börn þeirra Birkir
Freyr og stúlka fædd 10. desem-
ber sl. b) Hjalta Sigríður f. 1980,
sambýlismaður hennar er Össur
Ímsland, dóttir þeirra Ása Mar-
grét og c) Guðni Rúnar f. 1989,
sambýliskona hans er Erna Rakel
Baldvinsdóttir. 5) Stefán Bjarna-
son f. 1955, kvæntur Margréti
Guðbrandsdóttur f. 1957. Börn
þeirra; a) Bjarki Elvar f. 1977,
kvæntur Emelíu Bragadóttur, dæt-
ur þeirra Sigríður Margrét og
Þórdís Unnur. b) Helena Marta f.
1983, sambýlismaður hennar er
Teitur Birgisson. c) Svanberg
Addi f. 2002.
Sigríður var einn vetur í vist hjá
Ellingsen-fólkinu í Reykjavík. Hún
hafði mikinn áhuga á tónlist og fór
tvítug til náms í orgelleik hjá
Bjarna á Brekkubæ. Hún var hlé-
dræg kona og því voru fáir sem
nutu orgelleiks hennar utan heim-
ilisins í Kotinu.. Hún var vinnusöm
og ósérhlífin, heimakær og stjórn-
aði heimilinu af myndarbrag og
lagði áherslu á að gestir fengju
alltaf mat eða kaffi og með því.
Sigríður flutti á hjúkrunarheim-
ilið á Höfn árið 2000 þar sem
Bjarni dvaldist þá. Hún kom heim
að Hofi nokkrum sinnum á ári þar
til fyrir um ári er heilsu hennar
hafði hrakað.
Útför Sigríðar verður gerð frá
Hofskirkju í Öræfum laugardaginn
19. desember og hefst athöfnin kl.
14.
urbænum í Svína-
felli.
Sigríður giftist
þann 14. júlí 1940
Bjarna Sigjónssyni f.
29.9. 1909 d. 30.11.
2001. Fyrstu 6 árin
bjuggu þau í Aust-
urbænum í Svínafelli
en fluttu síðan í Hof-
skot á Hofi árið 1943
og bjuggu þar alla
sína búskapartíð.
Börn þeirra eru:
1) Gunnar Páll f.
1940, kvæntur Ingi-
björgu Ingimundardóttur f. 1956.
Börn þeirra: a) Guðrún Bára f.
1974, sambýlismaður hennar er
Samúel Hermannsson, dóttir
þeirra Sandra Sif. b) Helga Sig-
urbjörg f. 1976, sambýlismaður
hennar er Árni Pétur Hilmarsson,
börn þeirra eru Hilmar Þór, Arn-
dís Inga og Áslaug Anna. c) Ingi
Björn f. 1982.
2) Sigurjón Arnar f.1944. 3)
Unnur f. 1947. Sonur hennar er
Bjarni Sigurður Grétarsson f.
1982. 4) Jón Sigurbergur f.1951,
kvæntur Áslaugu Þorbjörgu Guð-
mundsdóttur f. 1956. Börn þeirra;
a) Bjarni Guðmundur f. 1977,
sambýliskona hans er Ingibjörg
Sigríður, tengdamóðir mín,
kvaddi heiminn hljóðlega rétt fyrir
miðnætti þann 10. desember síðast-
liðinn og kom það á óvart jafnvel
þótt maður hafi búist við því í svolít-
inn tíma. Ég kom fyrst í Kotið fyrir
33 árum. Mér leið fljótlega eins og
heima hjá mér og tók þátt í sveitalíf-
inu af fullum krafti. Sigga og Bjarni
sáu um mjaltirnar og svo um alla úr-
vinnslu mjólkur sem ekki var seld í
mjólkurbúið. Sigga var umhverfis-
væn og í raun langt á undan sinni
samtíð í flokkun á sorpi. Hún safnaði
matarafgöngum sem hundurinn og
hænurnar fengu ekki en það var svo
urðað og brennanlegu var safnað
sér.
Í Öræfunum var hrein og klár
verkaskipting, konurnar sáu um
inniverkin og karlarnir um útistörf-
in. Svo kom ég, hálfgerð rauðsokka
sem hafði alist upp vestur í Dölum
og unnið jafnt inniverk og útiverk í
sveitinni og vön að keyra dráttarvél.
Ég man að tengdamóður minni þótti
nóg um þau uppátæki hjá mér að
taka þátt í karlastörfunum eins og
þegar ég vildi fara með út í Höfða
þegar átti að síga eftir eggjum eða
að smala í Breiðamerkurfjalli. Við
vorum ekki alltaf sammála og lét
hún skoðanir sínar óspart í ljós og
vildi halda fast í sína siði.
Sigga var gestrisin og passaði
alltaf að eiga eitthvað gott með
kaffinu ef gesti bæri að garði. Hún
lagði mikið upp úr því að allir gestir
kæmu inn í eldhús og þæðu góðgerð-
ir. Þegar hún fór að fá ellilífeyri voru
það fyrstu aurarnir sem hún fékk í
hendurnar og gat ráðstafað eftir
sínu höfði. Þá fannst henni ekki
nauðsynlegt að kaupa neitt handa
sjálfri sér en var sífellt að gauka
aurum að barnabörnunum. Sigga
talaði hreina skaftfellsku og fannst
mér ýmis orð sem hún notaði svolítið
sérkennileg. Hún sagði alltaf seyt-
ján, skjóla og notaði ýmis orð sem ég
þekkti ekki að vestan.
Ég vil þakka Siggu fyrir hvað
henni var alltaf umhugað um börnin
mín og alltaf til í að hafa þau í lengri
eða skemmri tíma. Hún var hógvær,
vinnusöm og frændrækin og lagði
sig fram við öll sín verk. Hún var
skyldurækin og lagði mikið upp úr
því að einhver frá heimilinu færi í
kirkju þegar messað var en vegna
hlédrægni fannst henni betra að það
væri einhver annar en hún. Blessuð
sé minning hennar. Með þökk fyrir
allt og allt.
Margrét Guðbrandsdóttir.
Elsku amma. Okkur langar að
kveðja þig með nokkrum orðum. Nú
ertu búin að fá þína hvíld og við vit-
um að þú hefur það gott hjá Bjarna
afa. Eftir lifir minningin um góða
konu sem við munum varðveita vel.
Okkur langar að þakka þér fyrir all-
ar góðu stundirnar sem við áttum
með þér. Það var gott að koma til þín
og afa í sveitina og við fundum að við
vorum ávallt velkomin og nutum
stundanna. Það er gaman að rifja
upp dagana þegar við barnabörnin
vorum öll samankomin í Kotinu, þá
var líf og fjör í bænum. Þú varst allt-
af vöknuð og búin að útbúa veislu-
borð, með aðstoð Unnar, áður en við
opnuðum augun á morgnana. Þér
var mjög umhugað um að okkur liði
vel og lagðir áherslu á að við værum
bæði södd og sæl í vistinni.
Oft lá leið okkar barnanna niður
eftir, eða oneftir eins og þú kallaðir
það gjarnan, til að spila fótbolta með
hinum börnunum á bæjunum og þá
fylgdust þið afi gjarnan með í glugg-
anum. Þegar heim var komið var oft
ansi mikill svefngalsi í okkur börn-
unum og var gjarnan glatt á hjalla
meðan kvöldhressingunni voru gerð
góð skil. Þetta eru ógleymanlegar
stundir sem við geymum með okkur
úr sveitinni okkar góðu.
Þessar minningar ásamt mörgum
fleirum geymum við í hjörtum okkar
um ókomna tíð.
Þín barnabörn,
Guðrún Bára, Helga
Sigurbjörg og Ingi Björn.
Í dag er til hvíldar borin Sigríður
Stefánsdóttir, húsfreyja í Hofskoti,
Hofi í Öræfum.
Sigga kom úr stórum systkina-
hópi frá Miðbæ á Hnappavöllum.
Mjög ung var Sigga tekin í fóstur
af móðursystur sinni Helgu Páls-
dóttur í Austurbænum í Svínafelli.
Þar ólst hún upp við gott atlæti en
sárt var það bæði foreldrum og
systkinum að þurfa að skiljast að.
Sigga giftist ung Bjarna Sigjóns-
syni frá Hofskoti á Hofi og bjuggu
þau fyrstu hjúskaparár sín í Aust-
urbænum og þar fæddist frum-
burðurinn.
Þegar aðstæður breytast á
bernskuheimili Bjarna taka þau við
jörð og búi i Hofskoti. Á heimilinu
voru fyrir öldruð móðir Bjarna og
bróðir hans sem var heilsuveill.
Sigga ávann sér strax traust og
virðingu nágranna sinna fyrir góða
umönnun þeirra mæðginanna.
Sigga var hlédræg að eðlisfari og
tranaði sér ekki fram. Hún lærði að
spila á orgel hjá Bjarna á Brekku-
bæ í Nesjum og spilaði stundum á
sínum yngri árum undir kirkju-
söng og á ungmennafélagsskemmt-
unum þar sem mikið var sungið.
Sigga átti orgel og spilaði fyrir
börnin sín á sunnudögum og á há-
tíðum.
Sigga og Bjarni bjuggu myndar-
búi alla tíð og endurnýjuðu bæði
húsa- og tækjakost á jörðinni með
aðstoð barna sinna. Þau voru sér-
lega barngóð og bera afkomendur
þeirra því glöggt vitni. Til þeirra
komu mörg kaupstaðarbörn á
sumrin sem hafa haldið tryggð við
heimilið. Á Hofi er Fundarhúsið,
kirkjan og skólinn og þar var því
æði gestkvæmt á öllum bæjum áð-
ur fyrr og aðkomufólk þurfti oft
viðurgjörning og húsaskjól. Sigga
var einstaklega gestrisin og góð
heim að sækja en á hennar blóma-
skeiði var ekkert keypt tilbúið og
því í nógu að snúast á stóru heimili.
Á ferðalögum okkar austur var
og er gott að heimsækja frændfólk-
ið í Hofskoti enda hefur alltaf verið
kært á milli heimilanna. Sigga bar
fram með ljúfu viðmóti dýrindis
nýbakað bakkelsi og allir settust að
veisluborði í rúmgóðu eldhúsinu og
sögðu nýjustu fréttir af mönnum
og málefnum. Síðan brást ekki við
brottför að Sigga laumaði í vasa
barnanna sælgætisglaðningi sem
hún átti alltaf til.
Við þökkum Siggu góða viðkynn-
ingu og eigum um hana bjartar og
góðar minningar. Við sendum
börnum hennar og fjölskyldum
þeirra innilegar samúðarkveðjur.
Guð blessi minningu hennar.
Sigrún Bergsdóttir og
börn Þóru Stefánsdóttur
frá Hnappavöllum.
Sigríður Stefánsdóttir✝
Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður, sonar og afa,
ANDRESAR KRISTINSSONAR,
Þórólfsgötu 21,
Borgarnesi.
Ásta Kristjana Ragnarsdóttir,
Ragnar Ingimar Andresson, Magnea Kristín Jakobsdóttir,
Sigríður Andresdóttir, Ingólfur Friðjón Magnússon,
Kristinn Grétar Andresson,
Gréta Guðmundsdóttir
og barnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför okkar elsku-
legu
BRYNJU JÓNÍNU PÁLSDÓTTUR
frá Héðinshöfða,
Vestmannaeyjum,
sem lést fimmtudaginn 19. nóvember.
Sérstakar þakkir til starfsfólks í Seljahlíð og á deild
A6 á Landspítalanum.
Guð blessi ykkur.
Heiðar Marteinsson,
Marteinn Heiðarsson,
Sæunn Heiða Marteinsdóttir,
Þórhildur Marteinsdóttir
og systkini hinnar látnu.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
hlýhug og samúð við andlát og útför
GUÐMUNDAR PÉTURSSONAR
hæstaréttarlögmanns,
Hagamel 44,
Reykjavík,
sem lést föstudaginn 20. nóvember.
Sigríður Níelsdóttir,
Pétur Guðmundarson, Erla Jóhannsdóttir,
Níels Guðmundsson, Jónanna Björnsdóttir,
Snorri Guðmundsson, Bolette Steen Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu
okkur hlýhug og samúð við andlát elskulegs sonar
okkar, bróður, frænda og mágs,
GUÐMUNDAR SÆMUNDSSONAR,
Gúmba,
Barmahlíð 39,
Reykjavík.
Stuðningur ykkar er okkur mikill styrkur.
Guð gefi ykkur gleðileg jól og farsælt komandi ár.
Málfríður Anna Guðmundsdóttir,
Sæmundur Kjartansson,
Ingunn, Sigurbjörg, Guðrún
og fjölskyldur.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
TRYGGVU MARGRÉTAR EGGERTSDÓTTUR,
Garðavegi 14,
Hvammstanga,
sem lést miðvikudaginn 25. nóvember.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Heilbrigðis-
stofnunarinnar Hvammstanga fyrir sérlega hlýja og góða umönnun.
Erna Snorradóttir, Marteinn Reimarsson,
Jóhannes Snorrason, Valdís Valbergsdóttir,
Elín Snorradóttir, Högni Jónsson,
Eggert Snorrason, Guðfinna Jónsdóttir,
Hulda Snorradóttir, Ragnar Gunnarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu aðstand-
endur senda inn. Þar koma fram
upplýsingar um hvar og hvenær sá
sem fjallað er um fæddist, hvar og
hvenær hann lést og loks hvaðan og
klukkan hvað útförin fer fram. Þar
mega einnig koma fram upplýsingar
um foreldra, systkini, maka og börn.
Ætlast er til að þetta komi aðeins
fram í formálanum, sem er feitletr-
aður, en ekki í minningargreinunum.
Minningargreinar