Morgunblaðið - 19.12.2009, Síða 56
56 Minningar MESSUR Á MORGUN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 2009
AÐVENTKIRKJAN:
Aðventkirkjan Reykjavík | Samkoma í
dag, laugardag, kl. 11, hefst með biblíu-
fræðslu fyrir börn, unglinga og fullorðna.
Einnig er boðið upp á biblíufræðslu á
ensku. Guðsþjónusta kl. 12. Þóra S. Jóns-
dóttir prédikar.
Aðventkirkjan Vestmannaeyjum | Sam-
koma í dag, laugardag, kl. 11. Boðið upp
á biblíufræðslu fyrir börn og fullorðna.
Guðþjónusta kl. 12. Bein útsending frá
Reykjavík. Þóra S. Jónsdóttir prédikar.
Aðventsöfnuðurinn Árnesi | Samkoma á
Selfossi í dag, laugardag, kl. 10, hefst
með biblíufræðslu fyrir börn og fullorðna.
Guðsþjónusta kl. 11. Jóhann Þorvaldsson
prédikar.
Aðventsöfnuðurinn Hafnarfirði | Sam-
koma í Loftsalnum í dag, laugardag, hefst
með fjölskyldusamkomu kl. 11. Björgvin
Snorrason prédikar. Biblíufræðsla fyrir
börn, unglinga og fullorðna kl. 11.50. Boð-
ið upp á biblíufræðslu á ensku.
Aðventsöfnuðurinn Suðurnesjum | Sam-
koma í dag, laugardag, kl. 11 í Reykja-
nesbæ hefst með biblíufræðslu. Guðþjón-
usta kl. 12. Manred Lemke prédikar.
AKRANESKIRKJA | Jólasöngvar kl. 14.
Hljómur, kór eldri borgara, leiðir sönginn.
Englakertið tendrað.
ÁSKIRKJA | Jól í gripahúsinu kl. 11.
Sunnudagaskólinn fer í heimsókn í Hús-
dýragarðinn í Laugardal. Jólaguðspjallið,
þjóðsaga og söngur í fjárhúsinu. Messa
kl. 14. Sóknarprestur prédikar og þjónar
fyrir altari ásamt Ásdísi Pétursdóttur Blön-
dal djákna. Kór Áskirkju syngur, organisti
Magnús Ragnarsson. Sjá askirkja.is.
ÁSTJARNARKIRKJA | Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Jólasaga og jólasöngur, org-
anisti er Helga Þórdís Guðmundsdóttir,
kór kirkjunnar og prestur er sr. Bára Frið-
riksdóttir. Fríða og leiðtogaefni úr sunnu-
dagaskólanum aðstoða.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Jólasöngvar fjöl-
skyldunnar kl. 11. Djákni Nína Björg Vil-
helmsdóttir, eldri og yngri barnakórar
syngja, organisti Julian Isaacs. Tekið við
söfnunarbaukum Hjálparstarfs kirkjunnar.
Kaffi í safnaðarheimili á eftir.
BÚSTAÐAKIRKJA | Jólasöngvar fjölskyld-
unnar kl. 11, ein samvera þennan dag.
Börn úr Fossvogskóla flytja jólaguðspjallið
í helgileik og jólalögin sungin með yngri
kórum kirkjunnar undir stjórn Jóhönnu Þór-
hallsdóttur. Organisti er Renata Ivan og
prestur er Pálmi Matthíasson.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl 11. Prestur
sr. Gunnar Sigurjónsson og organisti er
Kjartan Sigurjónsson, kór Digraneskirkju
A hópur. Sunnudagaskóli á sama tíma í
kapellu. Jólastund fjölskyldunnar kl. 16.
DÓMKIRKJAN | Norsk-íslensk messa kl.
11. Sr. Hjálmar Jónsson prédikar, sr.
Anna Sigríður Pálsdóttir þjónar fyrir altari,
Dómkórinn syngur, organisti er Marteinn
Friðriksson. Æðruleysismessa kl. 20. Sr.
Skírnir Garðarsson prédikar og þjónar fyrir
altari ásamt sr. Hjálmari Jónssyni.
Bræðrabandið sér um tónlistina og Bjarni
Arason syngur.
FELLA- og Hólakirkja | Jólasöngvar við
kertaljós kl. 11. Prestur sr. Svavar Stef-
ánsson og Þórey Dögg Jónsdóttir djákna-
nemi tekur þátt í stundinni. Kór Fella- og
Hólakirkju leiðir almennan safnaðarsöng
undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur kant-
ors. Leikmenn lesa ritningarlestra sem
tengjast jólunum og á milli lestranna eru
sungnir jólasálmar. Meðhjálpari er Kristín
Ingólfsdóttir.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Jólasöngvar fjöl-
skyldunnar kl. 11. Hljómsveit kirkjunnar
leiðir sönginn og barnakórinn syngur. Að-
ventustund fyrir alla fjölskylduna.
FRÍKIRKJAN Kefas | Samkoma kl. 14.
Umsjón hefur Björg R. Pálsdóttir, lofgjörð,
hátíðarsöngvar og -sálmar, saga og leikrit
fyrir börn og síðan barnastarf á meðan
fullorðnir heyra aðra sögu og hugleiðingu.
Í lokin verður síðan boðið til brauðsbrotn-
ingar fyrir alla. Að samkomu lokinni verður
kaffi og samvera.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Helgistund fyrir
alla fjölskylduna kl. 14. Barn borið til
skírnar og síðasta aðventuljósið tendrað.
Tónlistastjórarnir Anna Sigga og Carl Möll-
er leiða tónlistina ásamt kór Fríkirkjunnar.
Anna Hulda annast barnastarfið.
GLERÁRKIRKJA | Barnastarf og messa kl.
11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór
Glerárkirkju leiða söng, organisti er Val-
mar Valjaots og sr. Arnaldur Bárðarson
þjónar.
GRAFARVOGSKIRKJA | Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Prestur sr. Vigfús Þór
Árnason og umsjón hefur Guðrún Lofts-
dóttir, undirleikari er Stefán Birkisson.
Jólasveinar koma í heimsókn.
Borgarholtsskóli Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11. Prestur sr. Guðrún Karlsdóttir, um-
sjón hefur Gunnar Einar Steingrímsson
djákni og organisti er Guðlaugur Vikt-
orsson. Jólasveinar koma í heimsókn.
GRENSÁSKIRKJA | Jólasamvera
barnanna kl. 11. 5 ára börn sýna helgileik
og jólaskemmtun í safnaðarheimilinu.
Kyrrðarstund á þriðjud. kl. 12.10.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Helgi-
stund kl. 11. Jólaball sunnudagaskólans
á eftir. Gengið í kringum jólatré, sungið og
farið í leiki. Sr. Petrína Mjöll, Árni Þorlákur
og Ester Ólafsdóttir sjá um stundina.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa kl. 11
á Maríusunnudag. Prestur er sr. Þórhallur
Heimisson, organisti og kórstjóri Guð-
mundur Sigurðsson og Barbörukórinn
syngur. Messunni er útvarpað á Rás 1.
HALLGRÍMSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11 í umsjá sr. Birgis Ásgeirs-
sonar, Magneu Sverrisdóttur djákna og
Rósu Árnadóttur, með þátttöku barna út
TTT-starfinu. Drengjakór Reykjavíkur í Hall-
grímskirkju syngur undir stjórn Friðriks S.
Kristinssonar og börn úr Allegro/Suzuki-
skólanum leika á fiðlu undir stjórn Lilju
Hjaltadóttur, organisti Hörður Áskelsson.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa og barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Umsjón með barnastarfi
hafa Sunna Kristrún og Páll Ágúst. Org-
anisti er Douglas A Brotchie og prestur
Tómas Sveinsson. Veitingar eftir messu.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Jólasöngvar
fjölskyldunnar kl. 11. Jólastund að enskri
fyrirmynd þar sem jóla- og aðventulög eru
sungin á milli ritningarlestra. Forsöng ann-
ast kór Hjallakirkju og Kvennakór við Há-
skóla Íslands, stjórnandi kvennakórs Mar-
grét Bóasdóttir, organisti Jón Ólafur
Sigurðsson og prestar kirkjunnar, fólk úr
kirkjustarfinu annast ritningarlestra. Sjá
hjallakirkja.is.
HJÁLPRÆÐISHERINN Akureyri | Sam-
koma kl. 17. Jólin sungin inn.
HJÁLPRÆÐISHERINN Reykjavík | Jólin
sungin inn kl. 20. Umsjón hefur kafteinn
Sigurður Hörður Ingimarsson. Anniina
Härkönen syngur einsöng, Hanna Gísla-
dóttir píanóleikari og Steinar Kristinsson
trompetleikari sjá um tónlistina, ásamt
Sigurði Ingimars á gítar.
HVALSNESSÓKN | Sameiginleg barna-
messa Útskálaprestakalls í Útskálakirkju
kl. 11. Jólasöngvar, börn úr kirkjuskóla og
NTT starfi syngja.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Sam-
komur kl. 11. Jólasálmarnir sungnir auk
nokkurra laga af jólatónleikum kirkj-
unnnar. Guðni Einarsson flytur hugvekju.
Alþjóðakirkjan í hliðarsalnum kl. 13.
Ræðumaður er Helgi Guðnason, sam-
koma á ensku. Vitnisburðasamkoma kl.
16.30. UNG sér um lofgjörðina.
ÍSLENSKA KIRKJAN í Svíþjóð | Aðventu-
og jólaguðsþjónusta kl. 11 í Norsku kirkj-
unni, Kronprinsesse Märthas kirke, Stig-
bergsgatan 24 á Södermalm. Einar Svein-
björnsson leikur á fiðlu og Brynja
Guðmundsdóttir á orgel, prestur er Ágúst
Einarsson. Jólasamvera eftir guðsþjón-
ustu í umsjón Íslendingafélagsins.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Jólahátíð fjöl-
skyldunnar kl. 11. Söngur, helgileikur,
hugvekja og gengið í kringum jólatré. Sam-
koma kl. 20. Örn Leó Guðmundsson pre-
dikar.
KAÞÓLSKA Kirkjan:
Péturskirkja, Akureyri | Messa kl. 11 og
laugardag kl. 18.
Þorlákskapella, Reyðarf. | Messa kl. 11
og 19. Virka daga er messa kl. 18.
Jósefskirkja, Hafnarfirði | Messa kl.
10.30 og virka daga kl. 18.30 (nema
föstudaga).
Orð dagsins:
Vitnisburður Jóhann-
esar.
(Jóh. 1)
Fella- og Hólakirkja.
✝ Grímur Magn-ússon fæddist í
Flögu í Villingaholts-
hreppi 8. september
1927. Hann lést á
dvalarheimilinu Sól-
völlum á Eyrarbakka
12. desember sl. For-
eldrar hans voru
Magnús Árnason
bóndi og hreppstjóri
í Flögu, f. að Hurð-
arbaki 18. október
1887, d. 23. desem-
ber 1973 og Vigdís
Stefánsdóttir, f. að
Háakoti í Fljótshlíð 13. október
1891, d. 14. mars 1977. Systkini
Gríms eru Árni, f. 7. desember
1917, Guðrún, f. 9. ágúst 1919,
Stefanía, f. 29. apríl 1921, Brynj-
ólfur, f. 15. júlí 1922, d. 19. janúar
1983, Sigríður, f. 1. nóvember
1924, d. 13. júlí 1987, Guðríður, f.
30. júní 1926, Anna, f. 17. apríl
1929, d. 14. janúar 2005, og Unn-
ur, f. 28. mars 1930. Uppeld-
isbróðir, Stefán Jónsson, f. 5 nóv-
að störfum 67 ára að aldri. Þar
fyrir utan vann hann tímabundið
önnur störf, vann m.a. við hafn-
argerðina í Þorlákshöfn og eina
vertíð í Hafnarnesi h.f. Um 1970
færir Grímur sig um set í Þor-
lákshöfn og bjó eftir það að B-
götu 9.
Árið 1979 bregður Árni, bróðir
Gríms, búi í Flögu og þá fara flest
systkinin að nýta jörðina sem frí-
stundajörð. Eftir það eyðir Grím-
ur flestum sínum frístundum og
öllum sumarfríum í Flögu við hey-
skap og annað sem til féll af mikl-
um áhuga og eljusemi.
Eftir að Grímur lætur af störf-
um 1994 flytur hann alfarið á
æskuslóðirnar og byggir sér íbúð-
arhús í Króki, sem er hluti jarð-
arinnar Flögu, en þar hafði hann
áður komið sér upp sumarað-
stöðu. Eftir að heilsunni hrakaði
og hann sá sér ekki lengur fært
að búa einn flyst hann í byrjun
þessa árs á dvalarheimilið Sólvelli
á Eyrarbakka og naut þar góðrar
aðhlynningar til hinstu stundar.
Útför Gríms fer fram frá Sel-
fosskirkju í dag, laugardaginn 19.
desember 2009, og hefst athöfnin
kl. 13.30.
Meira: mbl.is/minningar
ember 1934.
Grímur ólst upp í
Flögu og vann að búi
foreldra sinna. Upp
úr tvítugu réði hann
sig til sjós á vertíð-
um og réri bæði frá
Vestmannaeyjum og
Þorlákshöfn. Þá
vann hann um tíma
við pípulagnir hjá
Kaupfélagi Árnes-
inga. Á þessum árum
aðstoðaði hann við
búskapinn í Flögu
flest sumur og í sín-
um frístundum. Hann flytur alfar-
ið til Þorlákshafnar uppúr 1960
og byggir sér hús að B-götu 24 og
var sjálfstætt starfandi vörubíl-
stjóri um árabil. Eftir að hann
hætti rekstri eigin vörubifreiðar
gerðist hann vörubílstjóri og vann
fleiri störf hjá Meitlinum h.f. í
Þorlákshöfn. Að síðustu starfaði
Grímur hjá Glettingi h.f. í Þor-
lákshöfn við salfisk, síldar- og
aðra fiskvinnslu þar til hann lét
Okkur langar í nokkrum orðum
að minnast Gríms frá Flögu sem
borinn er til grafar í dag.
Eins langt og minni okkar
hjónanna nær til bernskuáranna
hefur Grímur í Flögu verið hluti af
tilverunni. Föðurbróðir Sigurbergs,
heimagangur á æskuheimili hans og
mikil og sterk tengsl þeirra bræðra
Brynjólfs og Gríms við æskustöðv-
arnar í Flögu. Frændi í föðurfjöl-
skyldu Kolbrúnar, maður sem hún
umgekkst þó nokkuð í æsku í gegn-
um frændfólk sitt á Sólvöllunum á
Selfossi.
Grímur var sterkur karakter, há-
vær mjög og fór ekki á milli mála ef
hann var á staðnum. Hann var
óhræddur við að segja sínar skoð-
anir á mönnum og málefnum, en
hefur verið okkur góður vinur og
frændi.
Barngóður var hann og hafði
ágætis lag á krökkum, þau sóttu í
fang hans og létu sér vel líka trölla-
og nautasögur sem oft voru sagðar
með heilmiklum hávaða og leiktil-
burðum.
Sigurbergi eru minnisstæðar
margar ferðir þeirra frænda saman
austur í Flögu og síðar Krók til að
líta eftir búpeningnum sem í gegn-
um tíðina hefur verið stór hluti af
lífi Gríms. Var þá oft farið á Villys
jeppa Gríms og stundum urðu ferð-
irnar kaldar og erfiðar í ófærð á
vetrum, skepnurnar þurftu að fá
sitt, það passaði frændi vel upp á
alla tíð.
Þegar leið að starfslokum hjá
Grími í Þorlákshöfn eftir áratuga
streð bæði til sjós og lands, var hans
draumur að flytja í sveitina, heim á
æskustöðvarnar í Flóanum. Allur
hans frítími svo og sumarfrí á síð-
ustu árum starfsævinnar fóru í að
koma sér upp aðstöðu fyrir sig og
búpeninginn í Króki sem er partur
úr landi Flögu. Kom sér þá vel að
Grímur var hraustur og sterkur, oft
varð lítil spítnahrúga og smá slatti
af steypumöl upphaf af skemmu eða
skúr og var oft undravert hvað hann
einsamall gat framkvæmt.
Eftir að starfsævinni lauk lét
hann smíða fyrir sig hús sem stend-
ur í Króki. Þar undi hann sér vel
með sínar kindur og hesta, nokkrar
hænur og oftast með hund og kött.
Þar höfum við fjölskyldan átt marg-
ar stundir með honum, krakkarnir
hafa notið þess mjög að fá að kynn-
ast sauðburði og dýralífinu í sveit-
inni. Enginn hefur heimsótt Grím að
Króki öðruvísi en að vera boðið
upp á góðgerðir og er kakan með
bleika kreminu eins og Grímur
bauð mjög oft upp á aldrei kölluð
annað en Grímskaka hér á heim-
ilinu.
Að taka í spil þótti Grími gaman
og var það áhugamál sem helst
varð til þess að hann fór af bæ.
Hann lét vetrarveður ekki stoppa
sig heima ef sveitakeppni í bridge,
félagsvist eða þessháttar var á döf-
inni. Minnast ættingar hans
margra stunda við eldhúsborðið í
Flögu við að spila kana eða vist við
Grím, var þá oft mikill hávaði í
húsinu, þessi svokallaði Hurðar-
baks hávaði.
Það var Grími þungbært þegar
líkaminn fór að bila en hugurinn til
verka var hinn sami. Fyrir tæpu
ári síðan flutti Grímur á dvalar-
heimilið Sólvelli á Eyrarbakka, þar
sem hann naut góðrar umönnunar,
sem hann var ánægður með. Vilj-
um við koma á framfæri kærum
þökkum og góðum kveðjum til
allra heimilismanna og starfsfólks
þar.
Guð blessi minningu Gríms
Magnússonar.
Sigurbergur og Kolbrún.
Grímur Magnússon
Níels Kjeldsen Busk
✝ Níels KjeldsenBusk fæddist
á Jótlandi hinn 20.
desember árið
1919. Hann lést 5.
maí sl.
Hann var sonur
Maríu Kjeldsen, en
faðir hans, Viktor,
fór til Ameríku áð-
ur en drengurinn fæddist og hafði ekki
afskipti af uppeldi hans. María réð sig
síðar í vist í Auning og kynntist þar
manni að nafni Jens Marius Busk og
gengu þau í hjónaband 10. júní 1926.
Jens ættleiddi Niels og gekk honum í
föðurstað. Níels ólst upp í Auning við
mikinn aga og reglusemi og góð og göm-
ul gildi. Jens Marius var reiðhjólasmiður
og María sá um hús og heimili. Níels
gekk í skóla í Auning og fór einnig
snemma að vinna almenn bústörf í ná-
grenninu. Hann hafði mikinn áhuga á
íþróttum og taldi ekki eftir sér að hjóla
13 km heiman og heim á æfingar í frjáls-
um íþróttum, handbolta og hnefaleikum.
Níels veiktist af berklum og dvaldi á
berklahæli í Randers, en náði fullri
heilsu. Hann fékk mikinn áhuga á garð-
yrkju og ræktun og sótti sér menntun til
þeirra starfa við garðyrkjuskólann í Be-
der á Jótlandi. Hann lærði þar almenn
garðyrkjufræði og bætti við sig sérnámi í
gróðurhúsaræktun. Öll stríðsárin vann
hann við garðyrkju í Herning. Hann tók
virkan þátt í andspyrnuhreyfingunni og
komst a.m.k. einu sinni naumlega hjá
handtöku. Strax eftir stríðið vildi Níels
fara til Kanada, en ákvað að leggja lykkju
á leið sína og réðst til starfa við búið á
Syðri-Reykjum í Biskupstungum. Hann
kom til Íslands í desember 1945.
Sumarið 1946 kynntist hann Ragn-
heiði Kjartansdóttur og gengu þau í
hjónaband 2. janúar 1949. Börn þeirra
eru: María, f. 1951, Kjartan Rúnar, f.
1958, og Ragnheiður Elsa, f. 1961. Barna-
börnin eru 11 og barnabarnabörnin sex. Í
tvö ár leigðu þau gróðrarstöðina Reykja-
lund í Grímsnesi. Eftir það fluttu þau sig
til Reykjavíkur og var Níels í skamman
tíma kokkur til sjós, en réð sig síðan til
garðyrkjustarfa í gróðrarstöðinni Alaska,
um tíma var hann ásamt öðrum með eig-
in rekstur við lóðafrágang og hirðingu.
Hann starfaði um langt árabil hjá
Reykjavíkurborg og sá þar m.a. um fjöl-
farin almenningssvæði á borð við Hall-
argarðinn og Austurvöll. Vöktu skreyt-
ingar hans og öll umhirða athygli fyrir
listrænt, fágað og glæsilegt yfirbragð og
vandaða framsetningu. Um áramótin
1961-’62 réðst hann til starfa við Heilsu-
hæli NLFÍ í Hveragerði og veitti gróðr-
arstöðinni þar forystu í 25 ár, eða til 67
ára aldurs. Hann vann síðan um skeið við
bensínafgreiðslu hjá Esso og síðan í átta
ár við gróðurhirðingu og gróðurhús Dval-
arheimilisins Áss í Hveragerði.
Útför Níelsar fór fram í kyrrþey frá
Hveragerðiskirkju hinn 9. maí 2009.
Meira: mbl.is/minningar
Minningar á mbl.isMinningar á mbl.is
Eggert Ólafsson
Höfundar: Logi Björgvinsson
og fjölskylda
Grímur Magnússon
Höfundur: Árni á Skúfslæk
Ingibjörg
Sigurðardóttir
Höfundur: Hjördís
Karvelsdóttir
Kristmundur
Harðarson
Höfundur: Tryggvi Leifur
Óttarsson
Meira: mbl.is/minningar
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu aðstand-
endur senda inn. Þar koma fram
upplýsingar um hvar og hvenær sá
sem fjallað er um fæddist, hvar og
hvenær hann lést og loks hvaðan og
klukkan hvað útförin fer fram. Þar
mega einnig koma fram upplýsing-
ar um foreldra, systkini, maka og
börn. num.
Undirskrift | Minningargreina-
höfundar eru beðnir að hafa skírn-
arnöfn sín en ekki stuttnefni undir
greinunum.
Minningargreinar