Morgunblaðið - 19.12.2009, Page 62
62 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 2009
Sudoku
Frumstig
8 7
5 1 6
8 2 6
5 3 8
2
4 7 6 3
6 8 1 3
4 7
3 1 4
6
4 8 1
7 5 6 4
7 8
3 7 1
2
4 1 8
6 1 3 7 4
8 7 5 3
8 5
7 4
3 9 8 6
7
4 2 8 5 9
6 5
8 3 1 2
9 3 8
7
3 4 5 2 7 1 6 9 8
8 1 7 6 4 9 5 3 2
9 2 6 3 8 5 1 7 4
4 5 1 9 3 8 7 2 6
2 3 8 7 5 6 4 1 9
7 6 9 1 2 4 8 5 3
6 9 4 5 1 2 3 8 7
5 8 3 4 9 7 2 6 1
1 7 2 8 6 3 9 4 5
6 7 2 8 4 3 9 1 5
8 1 3 5 9 6 7 2 4
9 5 4 2 7 1 6 3 8
1 9 7 6 3 5 4 8 2
2 3 6 4 8 9 5 7 1
5 4 8 7 1 2 3 9 6
4 8 1 9 5 7 2 6 3
3 6 9 1 2 4 8 5 7
7 2 5 3 6 8 1 4 9
3 1 9 4 5 6 2 8 7
2 7 6 8 9 3 4 5 1
8 4 5 2 1 7 6 9 3
6 3 8 7 4 9 1 2 5
4 5 7 1 2 8 9 3 6
1 9 2 6 3 5 7 4 8
9 8 1 5 6 4 3 7 2
7 2 4 3 8 1 5 6 9
5 6 3 9 7 2 8 1 4
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er laugardagur 19. desember,
353. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Þegar þú leggst til hvíldar, þarft
þú ekki að hræðast, og hvílist þú mun svefninn
verða vær. (Ok. 3, 24.)
Tilburðir Víkverja til að skreytaheimili fyrir jólin sitt hafa
gengið nokkuð á afturfótunum þenn-
an desembermánuð og kallað á end-
urteknar ferðir í verslanir vegna
vandræðanna. Víkverji setti sig fyr-
irfram í stellingar hins vonsvikna
neytanda og þóttist nokkuð viss um
að kvörtunum hans yrði fálega tekið,
en annað kom á daginn.
Í Blómaval fór Víkverji kvitt-
unarlaus með vikugamalt aðventu-
ljós sem drepið hafði á sér. Það var
ekki vandamál, liðlegur af-
greiðslumaður skipti með hraði um
þrjár perur og aðventuljósið skein á
nýjan leik. Því næst hélt Víkverji í
Rúmfatalagerinn þar sem hann
hafði fyrir einhvern misskilning
greitt fyrir fjóra jólagardínukappa,
en aðeins fengið tvo með sér heim.
Það var auðvitað engin leið fyrir
Víkverja að sanna að hann hefði ver-
ið sniðgenginn en verslunarstjórinn
sýndi Víkverja fullt traust og útveg-
aði honum endurgjaldslaust kapp-
ana tvo sem upp á vantaði.
Hefði Víkverja verið vísað á dyr
hefði hann sennilega ekki lagt leið
sína í þessar verslanir framar en
þessi þjónustulund gladdi Víkverja
og mun hann því með glöðu gleði
eiga viðskipti áfram við Blómaval og
Rúmfatalagerinn.
x x x
Víkverji hefur farið nokkrar ferð-ir á Laugaveginn í miklu jóla-
skapi að skoða í glugga og njóta
mannlífsins. Eftir slíkt rölt um dag-
inn tyllti Víkverji sér inn á Súfistann
til að hita kroppinn á heitu súkkulaði
og greip í leiðinni með sér kilju af
handahófi.
Þótt Víkverji væri staddur í bóka-
búð var það ekki meiningin að kaupa
bók þennan dag, en klukkustund síð-
ar gekk hann engu að síður alsæll út
með þessa sömu kilju í poka.
Þetta var Minnisbók Sigurðar
Pálssonar sem kom út árið 2007.
Endurminningar Sigurðar frá náms-
árum sínum í Frakklandi fengu Vík-
verja til að skella svo hressilega upp
úr að tárin drupu ofan í súkkulaði-
bollann og hann sá sig knúinn til að
kaupa hana. Sigurði eru hér með
færðar þakkir fyrir frábærlega
skemmtilega bók. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 mjög veikur, 8
meðvindur, 9 hörku-
frosts, 10 aðgæti, 11
munnbiti, 13 rás, 15 nag-
dýrs, 18 vinningur, 21
tryllt, 22 sori, 23 ævi-
skeiðið, 24 blys.
Lóðrétt | 2 viðdvöl, 3
þolna, 4 votir, 5 snúin, 6
ljómi, 7 duft, 12 mán-
uður, 14 vafi, 15 stæk, 16
syllu, 17 stillt, 18 hvell,
19 borguðu, 20 streymdi.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 fölur, 4 skörp, 7 ræfil, 8 aular, 9 arð, 11 aurs,
13 egna, 14 ótukt, 15 hnýt, 17 alda, 20 ata, 22 afinn, 23
rúmar, 24 nagga, 25 auður.
Lóðrétt: 1 förla, 2 lofar, 3 rola, 4 spað, 5 öflug, 6 púrra,
10 raust, 12 sót, 13 eta, 15 hjarn, 16 ýring, 18 lamað, 19
akrar, 20 ansa, 21 arða.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. cxd5 Rxd5
5. e4 Rxc3 6. bxc3 Bg7 7. Rf3 c5 8. Hb1
O-O 9. Be2 b6 10. O-O Bb7 11. d5 Bxc3
12. Bc4 Bg7 13. e5 Ba6 14. Dd3 Bxc4 15.
Dxc4 Rd7 16. He1 a6 17. Dh4 e6 18.
Bg5 Dc7 19. d6 Dc6 20. Bh6 f6 21. exf6
Hxf6 22. Rg5 Rf8 23. d7 Bxh6 24. Dxh6
Dxd7 25. Re4 Hf7 26. Hxb6 c4 27. De3
Dd3 28. Dc1 Hd8 29. Hxa6 Dd4 30. Hc6
Da7 31. Dxc4 Hd4 32. Dc2 Ha4 33. He2
Dd4 34. h3 Da1+ 35. Kh2 De5+ 36.
Rg3 Df4 37. Hc8 Kg7 38. Dc3+ Kh6 39.
f3 g5
Staðan kom upp á hraðskákmóti sem
lauk fyrir skömmu í Osló. Sigurvegari
mótsins, bandaríski ofurstórmeistarinn
Hikaru Nakamura (2715) hafði hvítt
gegn norska kollega sínum Magnusi
Carlsen (2801). 40. Hxf8! og svartur
gafst upp. Bandaríkjamaðurinn vann
Carlsen 3-1 í úrslitaeinvígi mótsins.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Draumamakkerinn.
Norður
♠ÁG652
♥K5432
♦2
♣65
Vestur Austur
♠K10743 ♠8
♥G96 ♥ÁD107
♦97 ♦10654
♣ÁG2 ♣10987
Suður
♠D9
♥8
♦ÁKDG83
♣KD43
Suður spilar 3G.
„Með sjálfan mig sem makker væri
ég ósigrandi,“ er haft eftir Grimma
gelti. Þótt Mike Passell sé laus við
slíkan hroka hefur hugsunin ef til vill
hvarflað að honum eitt andartak.
Passell var í vestur. Suður vakti á
tígli, Passell sagði 1♠, norður doblaði
neikvætt og suður stökk í þrjú grönd.
Passell lagði niður ♣Á og uppskar
tíuna frá makker, frávísun. Af því dró
Passell þá ályktun að rétt væri að
skipta yfir í hjarta – og valdi gosann!
Spilið er frá sveitakeppni öldunga í
San Diego. Sagnhafi lét smátt úr
borði og austur missti af tækifæri til
að fullkomna vörnina með því að
leggja tíuna undir gosann. Hann lét
duga að kalla með sjöunni og átti svo
næsta slag þvingað á tíuna. Austur
reyndi lauf, en þar var ekkert meira
að hafa.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Það er alveg hægt að rökræða við
fólk án þess að allt fari í hund og kött.
Mundu að allt er best í hófi. Næsta helgi
verður ánægjuleg.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú verður hugsanlega beðin/n um að
taka að þér verkefni sem tengist einhvers
konar hönnun eða skreytingu. Hvort sem
þú ert ein/n, með vinum eða fyrir framan
áhorfendur þá ertu aldrei leiðinleg/ur.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þetta er frábær dagur fyrir leiki,
veislur, glens og grín með smáfólkinu.
Reyndu að týna þér ekki í jólaundirbún-
ingnum.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Leyndarmál gætu verið afhjúpuð í
dag. Þú veist hvað klukkan slær í sam-
bandi við unglinginn á heimilinu. Þú
hleypur undir bagga með nágranna.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Láttu ekki dagdrauma spilla fyrir
árangri þínum í dag. Nýttu þér ferðalög
og nám til að uppfylla drauma þína.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Rómantískasta kvöldið sem þú get-
ur átt er heima fyrir, ekki úti á lífinu.
Gufubað hjálpar til við að leysa upp og
sleppa gamalli bræði.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Farðu þér hægt í öllum fjármála-
umsvifum og láttu ekki aðra tala þig inn á
hluti, sem þú ert innst inni andvíg/ur. Nú
virðist vera rétta tækifærið fyrir þig að
koma málum þínum áfram.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú ert í fínu formi þessa dag-
ana og átt hiklaust að nota það bæði í leik
og starfi. Gagngerra viðgerða er þörf, þá
þýðir ekkert hálfkák.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Skoðaðu samskipti þín við yf-
irboðara. Góðverk er góð gjöf. Útivera
skiptir öllu fyrir þig þessa dagana.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Það getur verið dýrkeypt að
blanda sér í annarra mál að ástæðulausu.
Allt sem þú segir í dag er svo jákvætt og
uppbyggilegt að aðrir láta sannfærast.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Einhver sem þú treystir segir
þér eitthvað sem þú vilt ekki heyra. Þú
ert á báðum áttum með atvinnutilboð sem
þú fékkst.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Ekki eru allir viðhlæjendur vinir,
en það er samt ekki ástæða til þess að
vera með hundshaus við hvern þann, sem
við þig talar. Að halda aftur af skoðunum
sínum getur borgað sig stundum.
Stjörnuspá
19. desember 1901
Tólf hús brunnu á Akureyri og
meira en fimmtíu manns urðu
heimilislausir. „Mestur eldur
sem kviknað hefir á Íslandi,“
sagði blaðið Norðurland.
19. desember 1969
Aðild Íslands að Fríversl-
unarsamtökum Evrópu
(EFTA) var samþykkt á Al-
þingi. Hún tók gildi 1. mars
1970.
19. desember 1983
Hjónin Ingibjörg Daðadóttir,
99 ára, og Sigurður Magn-
ússon, 103 ára, áttu 75 ára hjú-
skaparafmæli, sem er eins-
dæmi hér á landi. Sigurður
lifði tæplega fimm mánuði
fram yfir þetta afmæli en Ingi-
björg í rúm fjögur ár. Þau
bjuggu í Stykkishólmi.
19. desember 2006
Flutningaskipið Wilson Muuga
strandaði í Hvalsnesfjöru á
Reykjanesi. Skipverjunum tólf
var bjargað í land, en átta
menn af danska varðskipinu
Triton lentu í sjávarháska við
björgunarstörf. Einn lést en
þyrla Landhelgisgæslunnar
bjargaði hinum. Skipið náðist
á flot í apríl.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Gylfi Þór Gísla-
son fyrrum
landsliðsmaður,
íþróttafrömuður,
stórsöngvari,
leikari, kennari
og lífskúnstner,
verður sextugur
á morgun, 20.
desember. Hann
mun eyða afmælisdeginum með
fjölskyldu sinni en tekur á móti
heillaóskum í húsnæði Karlakórs
Selfoss á milli kl. 14 og 16.
60 ára
Í TILEFNI 60 ára afmælis síns blæs Jón Gunn-
laugsson, knattspyrnufrömuður á Akranesi og
umdæmisstjóri VÍS á Vesturlandi, til veislu í
Safnaskálanum á Görðum á Akranesi klukkan
16:00 í dag. „Ég er í raun frekar lítið afmæl-
isbarn,“ segir Jón, sem er kvæntur Elínu Ein-
arsdóttur hjúkrunarfræðingi. „Þegar ég var þrí-
tugur hélt ég upp á daginn og þá komu einhverjir
með Akraborginni í brjáluðu veðri og fóru til baka
daginn eftir í enn verra veðri. Nú er ekkert að
veðrinu og ekki þarf að sigla. Fjölskyldan hvatti
mig til þess að halda upp á daginn og ég sló til.“
Jón segist lítið hafa verið með hugann við afmæli sitt í gegnum tíð-
ina. „Í gamla daga fór tíminn í að safna í áramótabrennu og annað
tengt jólahátíðinni en nú er törn í vinnunni og því heppilegt að afmæl-
ið ber upp á laugardag.“ Annars hefur knattspyrnan átt hug hans all-
an en eftir að Jón hætti að spila sjálfur sneri hann sér að félagsmál-
unum og er meðal annars stjórnarmaður KSÍ og formaður
landsliðsnefndar karla. Hann er harður stuðningsmaður Manchester
United og missir helst ekki af sjónvarpsleik. „Ég næ fyrri hálfleik á
móti Fulham,“ segir hann um viðureign dagsins. steinthor@mbl.is
Jón Gunnlaugsson sextugur
Nær fyrri hálfleik hjá United
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is