Morgunblaðið - 19.12.2009, Qupperneq 63
Dagbók 63
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 2009
Heiðrún Jónsdóttir tekur uppþráðinn í vísum um eltinga-
leik sérsveitarinnar sem kölluð var
út fyrir misskilning vegna mein-
dýraeyðis með vasaljós:
Víkingasveitin vösk og kná
víst á nú skilið mesta hrós
alvopnuð kom með ygglda brá
og yfirbugaði vasaljós.
Og Sigmundur Benediktsson hef-
ur áhyggjur af friðarsúlunni:
Svo að við getum haldið í hrósið
og hentugri skipan komið að
verður að slökkva Viðeyjarljósið
svo Víkingasveitin ei skjóti það.
Ekki fer á milli mála að Hösk-
uldur Jónsson er byrjaður á jóla-
undirbúningnum, eins og sést á
meðfylgjandi hringhendu:
Hús skal svampa hátt og lágt,
hangiframpart reykja,
kaupa lampalýsið hrátt
og ljós með glampa kveikja.
Bjargey Arnórsdóttir yrkir jóla-
stemningu:
Þó að taki vetur völd
vonir mun ei buga,
jólaföstu kyrrðin köld
kveikir ljós í huga.
Ingólfur Ómar Ármannsson
sendir jólavísu:
Jólagleði léttir lund
löngum blíðkar hjarta manns,
andann hrífur helgistund
hátíð ljóss og kærleikans.
Vísnahorn pebl@mbl.is
Af jólum og víkingum
Bórisfrísa
Eftir: Þorgrím Kára Snævarr
Strætisvagnar og
bílar
MIG langar að koma
með tillögu til borgar-
stjórnar/stjórnmála-
manna sem skipu-
leggja strætókerfið á
höfðuborgarsvæðinu.
Reynið nú um jólin að
leggja bílnum „ykkar“
alfarið og takið strætó.
Ef þið alls ekki getið
lagt bílnum, t.d. sökum
þess að þið eruð svo
háð honum, farið þá út
og standið fyrir utan
bílinn „ykkar“ í hálf-
tíma eða klukkutíma
áður en þið leggið á stað. Á meðan
þið bíðið getið þið farið í smá hlut-
verkaleik og þóst vera úti á stoppi-
stöð (og munið að gott er að vera vel
dúðaður). Suma jóladaga gætu þið
þurft að bíða allan daginn, vegna
þess að þá gengur enginn strætó.
Kannski lagast strætisvagnakerfið
þegar þið hafið farið í þannig hlut-
verkaleik.
Borgarbúi.
Jólakveðja frá öryrkja
Ég óska forsvarsmönnum Gildi líf-
eyrissjóðs gleðilegra jóla og góðrar
afkomu á komandi árum. Mig langar
að segja frá því að flest jól hef ég
fengið einhverja jóla-
gjöf en það er ekkert
aðalatriði fyrir mig.
Stundum hef ég ekki
fengið neina gjöf og
það er líka í lagi mín
vegna. Nú fyrir þessi
jól kemur hinsvegar í
ljós að ég hef verið
rænd jólunum og það
er slæmt þar sem ég
hef ekki á nokkurn hátt
til þess unnið að eiga
skilið þessa framkomu.
Gildi, minn lífeyr-
issjóður, sendi mér til-
kynningu nú í byrjun
jólamánaðar þar sem
fram kemur að ör-
orkubætur mínar verði framvegis
skertar en þær hafa lækkað stöðugt
allt þetta ár. Skerðing þessi er nú
studd af dómstólum svo að það verð-
ur víst ekki mikið um jólagleði á
næstunni. Þetta verður því í fyrsta
skipti sem ég stend frammi fyrir því
að fara í jólaköttinn og það finnst
mér verulega slæmt. En ég end-
urtek jólakveðjur mínar til ykkar
sem að þessum breytingum stóðuð
og óska ykkur farsæls komandi árs.
Kveðja,
Dagrún Sigurðardóttir.
Ást er…
… að leggja heitan
bakstur á kvalið bak.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Gullsmárinn
Síðasti spiladagurinn á þessu ári
var fimmtudaginn 17. desember.
Spilað var á 15 borðum.
Úrslit í N/S
Sigurður Njálsson - Pétur Jónsson 239
Dóra Friðleifsd. - Heiður Gestsdóttir 203
Ernst Backman - Hermann Guðmss. 201
Örn Einarsson - Unnar A. Guðmss. 198
A/V
Guðrún Gestsd. - Bragi V. Björnsson 232
Ármann J.Láruss. - Sævar Magnúss.217
Bent Jónsson - Garðar Sigurðsson 205
Einar Markúss. - Steindór Árnason 201
Spilamennska á nýju ári hefst svo
fimmtudaginn 7. janúar. Bridsdeild-
in óskar félögum og landsmönnum
öllum gleðilegra jóla. Þökkum fyrir
frábært samstarf Arnórs Ragnars-
sonar og deildarinnar.
Bridsdeild FEB í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð fimm-
tud. 17. des. og urðu úrslit þessi í
N/S:
Ólafur B. Theodórs - Björn E. Péturss. 267
Sigurður Jóhannss. - Siguróli Jóhannss.
242
Sigurður Pálss. - Ásgrímur Aðalsteinss 235
A-V
Magnús Jónsson - Gunnar Jónsson 273
Helgi Hallgrímsson - Jón Hallgrímsson
258
Björn Svavarsson - Jóhannes Guðmannss.
221
Afhent voru verðlaun fyrir mánu-
dagstvímenning 7. umferðir. Hlut-
skarpastir urðu:
Ragnar Björnss. - Guðjón Kristjánss. 1325
Júlíus Guðmss. - Rafn Kristjánsson 1251
Magnús Oddss. - Oliver Kristóferss. 1207
Næst verður spilað 4. janúar.
Bridsfélag Hreyfils
Sl. mánudag var spilaður jólatví-
menningur hjá bílstjórunum. Daníel
Halldórsson og Ágúst Benediktsson
sigruðu með yfirburðum, 68,2%
skor.
Næstu pör:
Skafti Björnsson - Jón Sigtryggss.54,7%
Skúli Sigurðss. - Vigdís Sigurjónsd.54,2%
Björn Stefánss. - Eyvindur Magnúss.54,2%
Þetta var síðasta mót ársins.
Keppni hefst á ný 11. janúar. Spilað
er í Hreyfilshúsinu kl. 19.30.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is