Morgunblaðið - 19.12.2009, Qupperneq 68
68 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 2009
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
LEIKRITIÐ Devotion hefur verið tekið til sýninga
hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar í Lækjarskóla. Það er
hrátt, fyndið og ögrandi og fjallar um átök þriggja
ungra einstaklinga í leit að sjálfum sér og sínum
stað í samfélaginu. Hver eru mörk leiks og alvöru?
Þeirri spurningu er varpað fram í verkinu og ein af
þungamiðjum verksins er tjáning með ýmsum gerð-
um ofbeldis. Þá koma viðkvæm mál á borð við einelti
við sögu. Þrír ungir leikarar leika í verkinu, þau Al-
dís Davíðsdóttir, Alexander Roberts og Kári Við-
arsson en leikstjóri er Árni Grétar Jóhannsson. Öll
hafa þau numið við Rose Bruford College of Theatre
& Performance í London. Devotion er byggt á sam-
nefndu verki eftir Leo Butler frá árinu 2002 og er að-
eins 45 mínútur að lengd.
„Það fjallar eiginlega um vináttu og samskipti
milli ungs fólks, um þrjár ungar manneskjur og
samskipti þeirra á milli og inn í þau tvinnast of-
beldi með skírskotun í einelti,“ segir Kári. Verkið
sé samsett úr stuttum þáttum.
– Hefur það forvarnargildi?
„Já, ég held að það sé mikið forvarnargildi í
þessu, ég held að þetta leikrit komi öllum við,“
svarar Kári. Verkið verður sýnt kl. 16 í dag og kl.
20 á mánudaginn. Miðapantanir fara fram í síma
8659432 en einnig má senda tölvupóst á karivid-
ars@gmail.com.
Vígaleg Kári,
Alexander og
Aldís.
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
DAVÍÐ Berndsen varð óvart að listamann-
inum Berndsen eftir að saklaus hringitónapæl-
ing fór úr böndunum.
„Ég hef alltaf verið að dútla við að búa til
tónlist,“ segir hann. „Ég kynntist síðan
Hermigervli, Sveinbirni Thorarensen, úti í
Hollandi en við vorum saman í hljóðtækninámi
við SAE (School of Audio Engineering) í
Amsterdam. Þetta var 2006.“
Hann og Hermigervill hófust þá handa við
að semja tónlist en Berndsen viðurkennir að
upphaflega hafi þetta verið meira grín en al-
vöru.
„Lagið „Supertime“ hóf líf sem tilraun mín
til að búa til eigin hringitón. Svo ákvað ég að
bæta aðeins við hann (hlær). Þetta fór að hlaða
utan á sig og við félagarnir fórum að taka þetta
traustari og ögn alvarlegri tökum.“
Gott myndband, ömurlegt lag
Berndsen og Hermigervill mæna feimn-
islaust til níunda áratugarins hvað innblástur
áhrærir og meistarar eins og Giorgio Moroder,
Ultravox, Falco, OMD og fleiri eru á stalli.
„Stefnan var að láta þetta hljóma eins og
þetta væru týndar upptökur frá ’83 eða ’84. Við
notumst t.a.m. eingöngu við græjur frá því
tímabili.“
Myndband Berndsen við áðurnefnt lag, „Su-
pertime“, hefur vakið mikla athygli og hefur
fengið 160.000 flettingar á youtube.
„Fólk er að stoppa mig úti á götu og hrósa
mér fyrir myndbandið en segir um leið að lagið
sé ömurlegt (hlær). Helgi Jóhannsson heitir
hann sem gerði myndbandið og við vorum rétt
í þessu að klára nýtt myndband, við lagið „Yo-
ung Boy“. Það verður ekki eins sjúkt og það
síðasta, meira svona grallaragrín í anda Mad-
ness.“
Nýtt líf
Á tíma var talað um myndbandið sem dautt
form en með tilstilli samskiptavefja eins og
youtube og facebook hafa þau öðlast nýtt líf;
þúsundir manna horfa og það sem meira er,
skiptast á skoðunum um mátt og megin afurð-
anna.
„Ég hef verið að fá beiðnir frá leikstjórum í
Hollandi og Bretlandi um að fá að leikstýra
næsta myndbandi! Fyndið. Svo fáum við slatta
af tölvupóstum frá öðrum löndum, það er von-
andi að einhverjir þeirra sem þá senda kræki
sér í disk.“
Berndsen segist vera ánægður með að hafa
komið plötunni út fyrir jól, á tímabili hafi hann
verið að pæla í að fresta henni en svo ákveðið
að drífa hana í flóðið.
„Enda erum við komnir á kaf í plötu númer
tvö. Það er allt að gerast. Það þýðir ekkert að
hanga mikið lengur yfir þessari!“
Mænir ófeiminn til
níunda áratugarins
Berndsen gefur út Lover in the Dark Mynd-
band við lagið „Supertime“ nýtur mikillar hylli
Fortíðarfíkill Berndsen, elskhuginn í myrkrinu. Ögrandi Atriði úr hinu víðfræga „Supertime“.
Góð
hugmynd
fyrir
jólasveininn!
Iðnmark ehf
Gjótuhraun 5 | 220 Hafnarfjörður
Sími: 565 2555 | Fax: 565-0291
snakk@snakk.is | www.snakk.is
Hollt og gottí skóinn
K
onan er hið stóra við-
fang rithöfundarins
og tilvistarspekúlants-
ins Gullbrands
Högnasonar. Hann er
í leit að hinni fullkomnu konu, en
hún þarf að vera einhvers konar
endurspeglun af
leikkonunni Aud-
rey Hepburn –
hún er með háls-
inn, sígarettum-
unnstykkið og
varirnar sem
horfa á mann.
Audrey Hepburn
er það sem vant-
ar í líf hans.
Sagan er rituð í dagbókarformi
og hefst í París þar sem segja má
að leitin að Audrey hefjist. Sú
fyrsta af mörgum ástkonum bók-
arinnar kemur þar við sögu, hin
japanska Ayoko. Fjórum árum síð-
ar erum við stödd með Gullbrandi í
Róm þar sem hann kynnist barns-
móður sinni og átta árum síðar er
söguhetjan í sumarfríi á Eyrabakka
með sjö ára syni sínum Snorra.
Fjórði hlutinn gerist í mjög nálægri
fortíð, bankahrunið hefur átt sér
stað og sögusviðið er ýmist öld-
urhús Reykjavíkur eða svefnher-
bergi Gullbrands. Í síðasta hluta
bókarinnar er söguhetjan flutt á
Eyrarbakka og svo virðist sem að
leitinni að Audrey sé lokið.
Sögunni er skipt niður í fimm
hluta og það má segja að hver hluti
geymi sérstakan tón þó að leitin að
Audrey sé ávallt í fyrirrúmi og til-
vistarlegar vangaveltur sömuleiðis
fyrirferðamiklar. Það er t.d. mun
meiri leikur og gleði í fyrstu tveim-
ur hlutunum en í hinum og að sama
skapi er talsvert meiri tregi og dep-
urð í fjórða hlutanum. Þriðji hlut-
inn, „Sumarfrí með Snorra“, er svo-
lítið sér á báti en þar kveður við
öðruvísi tón. Þar er eins og sögu-
hetjan sé í fríi frá sjálfum sér og
öllum sálarófriðnum sem hrjáir
hann venjulega. Þar er Audrey
sömuleiðis fjarri góðu gamni.
Dagbókin er haldreipi Gullbrands
í leitinni miklu. Frásögnin er hlaðin
tilvísunum og sundurlausum hug-
renningum söguhetjunnar allt frá
Parísardvölinni árið 1995 og fram
til 2009. Lesandinn fær að rýna í
allsherjar sjálfsskoðun, eða sjálfs-
leit, í dagbókarfærslum Gullbrands
sem virðast í fyrstu lausar við
nokkurt samhengi. En á einhvern
lúmskan hátt rennur þetta allt sam-
an í heilsteypta einingu þannig að
úr verður skemmtileg og falleg bók.
Leitin mikla
Skáldsaga
Leitin að Audrey Hepburn
bbbmn
Eftir Bjarna Bjarnason.
Uppheimar gefa út.
Þormóður
Dagsson
BÆKUR
Bjarni Sagan er rituð í dagbókarformi og hefst leitin að Audrey í París.
Tjáning þriggja ungmenna með ofbeldi