SunnudagsMogginn - 17.01.2010, Síða 9
17. janúar 2010 9
Þ
ótt enn sé bara janúar
þá er sól tekin að
hækka og styttist óð-
um í að stangveiðin
hefjist. Það eru ekki nema 74
dagar, telst mér til, þar til veiði-
tímabilið hefst...
Annars er veturinn tími sófa-
veiða. Þá nýtur veiðiáhugafólk
þess að lesa veiðisögur, það talar
um liðnar veiðiferðir eða veiði í
misnálægri framtíð – og laumar
svo eftirlætis veiðidiskum sínum
í spilarann. Horfir á sömu tök-
una í eitt skiptið enn. Og lætur
sig dreyma.
Snemma á nýju ári hefja
margir undirbúninginn fyrir
veiðitímabilið. Mörg veiðifélög
sendu frá sér söluskrár í desem-
ber og fólk hefur blaðað í þeim
yfir hátíðirnar og velt kostunum
fyrir sér. Umsóknarfresturinn er
víða liðinn og síðustu daga hafa
margir veiðimenn verið kallaðir
inn á skrifstofu Stangaveiði-
félags Reykjavíkur, sem er
stærsta veiðifélag landsins, til að
draga um það hvort þeir fái að
veiða á eftirlætis veiðisvæðunum
á þeim tíma sem þeir sóttu um.
Spennandi verður að heyra
hver eftirspurnin verður í ár. Ég
þekki nokra sem héldu að sér
höndum í fyrra og slepptu því að
veiða á svæðum sem þeir annars
hafa sótt heim ár eftir ár. Ég
gerði það sjálfur. Nú heyrist mér
að sumir ætli ekki að sleppa því
aftur. Annars fylgjast flestir
veiðimenn grannt með verði
veiðileyfa. Sumsstaðar hafa þau
lækkað, ekki síst dýru lax-
veiðileyfin, en oftar hafa þau
staðið í stað. Það þýðir víst
raunlækkun segja talnaspek-
ingar. Engu að síður er hægt að
fullyrða að veiðileyfi voru orðin
allt of dýr víðast hvað á síðustu
árum, og þótt auðlindinni sé
mjög vel stjórnað, og margir lifi
af þessu heillandi sporti, þá er
víða eðlilegt að leiðrétta verð.
Sjálfur er ég annars lukkuleg-
ur með fyrstu úthlutun ársins,
fékk þann dag í eftirlætis sil-
ungsvatninu mínu sem ég sótti
um, snemma í maí. Bíð spenntur
eftir að sjá hvort aðrar óskir ræt-
ist.
Það er líka á þessum árstíma
sem margir taka hnýtingadótið
út úr geymslunni og rýna í
fluguboxin; metið er hvað vant-
ar eftir afföll síðasta sumars.
Víða eru stór skörð höggvin í
flugusafnið. Silungsveiðimenn
hnýta svo raðir af Krókum, Kill-
erum, Píkokkum og þessum
nauðsynlegu púpum. Þeir sem
leggja áherslu á laxinn skoða
kannski afbrigði sem sýnd eru í
bókum og hnýta eftir þeim, auk
flugnanna sem þeir nota oftast.
Víst er að margir veiðimenn
munu þreyja þorrann með því að
hnýta flugur, ýmist einir heima
eða í hópi annarra vonglaðra
veiðifélaga.
Svo er veturinn tími sófaveiða,
eins og fyrr sagði. Í sófanum las
ég um daginn í Áróði, hinu fína
fréttabréfi Ármanna, sem er fé-
lag sem vill auka hróður þeirrar
íþróttar að veiða vatnafisk á
flugu. Þar skráði félagi númer
643 (Baldur Sigurðsson) samtal
við félaga 617, Kristin Sig-
mundsson, óperusöngvarann
sem heillar heimsbyggðina með
sinni djúpu en þýðu rödd. Veiði-
menn hafa löngum dregið upp
ljóðrænar myndir þar sem þeir
líkja veiðinni við lífið. Kristinn,
sem upplýsir að hann taki flugu-
hnýtingadótið stundum með sér
í söngferðalög, líkir fluguveið-
inni hinsvegar við leitina að hin-
um hreina tóni. Hann segir:
„Leitin að hinum hreina tóni er
kanski eins og leit að hinni einu
og sönnu flugu, hinu fullkomna
kasti og því hvernig maður legg-
ur fluguna til að hann taki.“
Kristinn hlakkar örugglega til
veiðisumarsins, eins og við hin.
Meðan beðið
er eftir sumri
Draumar í hylnum. Nýgengnir laxar í veiðiá á Vesturlandi.
Morgunblaðið/Einar Falur
Stang-
veiði
Einar Falur
Ingólfsson
efi@mbl.is