SunnudagsMogginn - 17.01.2010, Blaðsíða 28

SunnudagsMogginn - 17.01.2010, Blaðsíða 28
28 17. janúar 2010 Þ að hélaði á rúðurnar að innan og við reyndum að halda þeim hreinum, pússuðum þær stöðugt með öllum tuskum sem við fundum í vélinni. Lofthiti fyrir utan hefur verið mínus 65 gráður. Við vorum á fimm hundruð og fimmtíu km hraða í tólf km hæð í þotu á milli Íslands og Grænlands haustið 1986 að mynda sól- myrkva á eina staðnum þar sem hann mundi sjást frá jörð- inni. Þess má geta að í venjulegu farþegaflugi er oftast flogið í kringum 33.000 feta hæð, við vorum í rúmlega 40.000 fet- um. Það mátti ekki skeika meira en fimm kílómetrum, þá yrði allt unnið fyrir gýg. Um borð voru fimm Íslendingar og fjórir Bandaríkjamenn í fyrstu einkaþotu Íslendinga í eigu Þotuflugs. Svitinn bogaði af okkur vegna spennu og einbeitingar. Það var eins og ósýnileg hönd drægi skugga eftir skýjunum á ógnarhraða, ég hafði aldrei séð neitt í líkingu við þetta áður. Menn báru óttablandna virðingu fyrir því sem var í vændum. Vísindamenn höfðu reiknað út hvar myrkvinn myndi sjást best. Markmiðið var að ná myndum af því og sjá fjallaskörðin á tunglinu þegar geislar sólarinnar rétt skína yfir öllu yfir- borði tunglsins og mynda einskonar hringmyrkva þar sem sólin myrkvast ekki að fullu. Þegar tunglið fer fyrir sólina sjást eldgos frá sólinni spýtast út í loftið af ógnarkrafti með mikilli litadýrð. Við urðum að stóla á að flugstjórinn, Stefán Sæmundsson, yrði á réttum stað á réttum tíma. Amerísku vísindamenn- irnir höfðu reiknað út hvernig og hvar við ættum að vera. Þorsteinn Sæmundsson, sá merki stjörnufræðingur okkar Íslendinga, var efins um að útreikningar væru réttir og hafði yfirfarið þá síðustu vikurnar fyrir flugið og endurreiknað staðsetninguna þar sem myrkvinn myndi sjást. Það varð því úr að flogið var eftir útreikningum Þorsteins. Stefán flug- stjóri og Þorsteinn eru bræður og spjölluðu þeir sín á milli um staðsetninguna og flugið sjálft. Sólin byrjaði að myrkvast um klukkan sex, rúmlega klukkustund fyrir myrkvann sjálfan. Þegar sólin og tunglið byrjuðu að skarast æddi skugginn áfram ofan á skýjahulunni á þrjú þúsund og þrjú hundruð kílómetra hraða, nálgaðist óðfluga og fór fram úr okkur að lokum. Allir voru tilbúnir með myndavélarnar til að smella myndum af stóru stundinni. Ég hef aldrei átt almennilegar myndavélar og hálfskammaðist mín með draslið mitt á með- an bandaríski vísindamaðurinn var með fjórar vélar límdar saman í hring. Þær áttu allar að smella af í einu. Tunglið myrkvaði ásjónu sólarinnar hægt í fyrstu en myrkvinn sjálf- ur átti að vera í tæpar fimm sekúndur. Nú reyndi á að hafa stáltaugar. Páll Reynisson, kvikmyndatökumaður sjón- varpsins, pússaði héluna af rúðunni hjá sér, ég reyndi að halda mínum glugga hreinum, þar sem ég lá á hnjánum með linsuna alveg upp við gluggann og hélt niðri í mér andanum. Það var eins með alla þá sem voru um borð. Amerísku vís- indamennirnir höfðu gefið okkur litaða filmu eða fólíu sem þeir sögðu að best væri að hafa fyrir linsunni svo við mynd- um sjá hápunkt myrkvans. Ég hafði aldrei séð sólmyrkva áð- ur, og var ekki viss hvort þetta væri rétt. Ég klippti filmuna niður og stakk henni ofan í gat á linsunni sem er gert sér- staklega fyrir filter. Ég sá að allir gerðu það sama og komu fólíunni fyrir fyrir framan linsurnar. Nú var stutt í stóru stundina eða um fimmtán sekúndur. Það var eins og eitthvað segði við mig að þetta gæti ekki ver- ið rétt. Það væri eins og að horfa á norðurljósin með sólgler- augum. Ég varð að hugsa hratt því það mátti ekkert klikka. Á ég að hafa fólíuna yfir linsunni eða ekki, hugsaði ég með mér. 10 sekúndur, 9, 8, 7, 6, 5 … Skítt með það, þetta getur ekki verið rétt. Það mun verða of mikið myrkur þegar þetta ger- ist. Í einni andrá kippti ég lituðu plastfólíunni upp úr lins- unni, fjórum sekúndum áður enn myrkvinn skall á, og hélt Eins og að koma úr geim- ferð Leiðangursmenn fagna eftir velheppnaða flugferð. Hámark sólmyrkvans. Ferlið sem við sjáum á aðalmyndinni og tveimur innfelldu myndunum tók aðeins tæpar fimm sekúndur. Sagan bak við myndina Ragnar Axelsson rax@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.