SunnudagsMogginn - 17.01.2010, Blaðsíða 48

SunnudagsMogginn - 17.01.2010, Blaðsíða 48
48 17. janúar 2010 Þ að er gaman að spjalla um stíl. Og það eru til ágætar bækur um þetta efni, t.d. Íslensk stílfræði eftir Þorleif Hauksson og Þóri Óskarsson. Þá eru miklar upplýsingar um stílfræðileg atriði í bókinni Hugtök og heiti í bókmenntafræði sem Jakob Benedikts- son ritstýrði. Þórbergur Þórðarson skrifaði merkar greinar um stíl en kannski dálítið einhæf- ar. Hann gat verið ósanngjarn í garð góðra höfunda með því að vitna í verk þeirra og nota sem dæmi um vondan stíl. Pétur Gunnarsson hefur bent á að í greininni Einum kennt – öðrum bent hafi Þórbergur í rauninni vegið að stíl sjálfs Laxness þótt hann notaði verk annars manns (Horn- strendingabók) til að taka stíldæmi úr. Þessu til stuðnings má minna á eftirfar- andi orð Þórbergs sem reyndar birtust ekki á prenti meðan hann var á lífi (Með hug og orði. Af blöðum Vilmundar Jóns- sonar landlæknis 1985): „Hann [þ.e. Laxness] hrifsar til sín orðasambönd héðan og þaðan og stillir þessu út í ritverkum sínum […] Hann skrifar íslensku eins og útlendingur sem hefur lært málið á bók.“ Guðmundur Andri Thorsson skrifaði árið 1993 grein í Tímarit Máls og menn- ingar þar sem hann líkti eftir stíl nokkurra þekktra rithöfunda og „leggur þeim í munn“ atvikið í Njálu þegar Gunnar sneri aftur. Frásögin eins þeirra hefst svona (og við skulum segja að það sé Þ.Þ.): „Hvílík hræsni! Hvílíkur yfirdrep- skapur! Hvílík grængolandi óheilindi! Í þessari sögu felst hinn dýpsti sannleiki um sögu kynslóðanna. Þar vitrast oss hin skærasta lygi um líf þeirra. Það var föstudaginn 8. júní árið 990, í 7. viku sumars, 158di dagur ársins. Þurrt að kalla, austangola en dumbungslegt í suð- suð-austri þar sem skýjabakki breiddi úr sér eins og saddur biskup. Markarfljótið lygnt eins og ráðsett kona með ættarnafn.“ Eftir lát Þórbergs var stofnaður minn- ingarsjóður hans og konu hans og var honum m.a. ætlað að styrkja efnilega rit- höfunda. Mig minnir að Gyrðir Elíasson hafi fyrstur hlotið viðurkenningu úr þess- um sjóði. Fyrir jólin kom út bókin Milli trjánna, smásögur eftir Gyrði, og hefur hún verið tilnefnd til íslensku bókmenntaverð- launanna. Ég var nýlega spurður að því hvað ég hefði um stílinn á sögum Gyrðis að segja. Sannast sagna vafðist mér tunga um tönn. En óhætt er að halda því fram að stíll hans sé einfaldur. Allt sem snýr að setningaskipan er hefðbundið og skýrt og ljóst. Sagan „Bréf um föður“ byrjar t.d. svona: „Ég er kallaður Jóhannes. Það er ekki mitt rétta nafn, en ég hef verið kallaður þetta frá því ég var lítill, og hitt nafnið, sem er allt annað, hef ég sjaldan notað nema þegar ég skrifa undir eitthvað. Afi minn hét Jóhannes, og ég þótti snemma líkur honum svo mamma fór að kalla mig þetta strax og ég fór að ganga. Hún sagði að ég væri alveg eins í göngulagi og pabbi hennar. Samt var ég skírður öðru nafni. Mig grunar ástæðuna fyrir því.“ En í látlausri framsetningu er spenna vakin. Það er ekki allt með felldu. Við skynjum að stirt er á milli hjóna og eins milli feðga (sbr. Egils sögu). Hjónin eru andstæður: hún hugsar um garð og gróð- ur, hann um steinsteypu enda byggir hann hús, en lýkur þó aldrei við sitt eigið. Í einfaldleikanum hjá Gyrði er semsagt einhver galdur, einhver dulúð, já, eitthvað draumkennt en án væmni. Og í hófsemi sinni leynir hann þaulhugsuðum stíl- brögðum. Mikill húmor (og háð) kemur fram þó dimmt sé gjarnan yfir og undir- aldan köld. Aðeins ein setning er höfð beint eftir föðurnum í umræddri sögu en hún nægir til að gera að engu fyrirhugaða trúlofun sonarins („Svo það verður Opinberun Jó- hannesar“). Og svo kemur þetta óvænta í lokin sem einkennir flestar smásögur Gyrðis. Hér eru það háu gluggarnir í húsinu sem fað- irinn hafði sjálfur teiknað. Við minnumst þess þá að móðirin var lágvaxin – og við höfum skynjað örlítinn sannleik um hversdagsleikann og lífið. Gyrðir Elíasson við skriftir. „Í einfaldleikanum hjá Gyrði er semsagt einhver galdur, ein- hver dulúð, já, eitthvað draumkennt en án væmni,“ skrifar höfundurinn. Morgunblaðið/Einar Falur Opinberun Jóhannesar Ég var nýlega spurður að því hvað ég hefði um stílinn á sögum Gyrðis að segja. Sannast sagna vafð- ist mér tunga um tönn. Tungutak Baldur Hafstað bhafstad@hi.is H lutverk borga í lífi manna hefur stöðugt aukist frá miðri 18. öld og nú er svo komið að helmingur jarð- arbúa hefur heimili sitt í þéttbýli. Þróun þessi fór ekki framhjá Ís- landi: Á síðustu öld breyttist landið á miklum hraða frá bændaþjóðfélagi yfir í borgarþjóðfélag með miðstýringu í höfuðborginni. Skilningur á þeim þáttum sem gera borgir manneskjulegar hefur aukist síðustu áratugi, a.m.k. í Evrópu. Menn hafa áttað sig á því að flestar borgir eiga einhverjar perlur og meistaraverk byggingarlistar sem eru þess virði að halda í og vernda, svo í það minnsta nánasta umhverfi skerðist ekki. Gömlu borgirnar á Ítalíu eru perlur sem komist hafa hjá byltingarkenndum hreinsunum síðari tíma og eru eft- irsóttir staðir að búa og starfa í, og ekki síður af gestum bara til að njóta. Undirstaða borgarmenningar á þessum stöðum var opið lýðræði og innblásnar hugsjónir bornar uppi af félagslegu stolti og trú. Bera má saman borgarkjarnana og það sem byggt hefur verið umhverfis þá, með efnishyggju síðustu aldar að leiðarljósi. Þá komast menn fljótt að því að myndast hafa gapandi sprungur og skerandi mishljómar sem virka illa á okkur flest. Þegar Berlínarmúrinn féll fyrir 20 árum kviknaði von um að Berlín myndi verða fyrirmynd í gerð borga á 21. öldinni. Því miður er reyndin önn- ur í dag: Einkaframtakinu hefur alltof oft tekist að smjúga eigin leiðir með neikvæðum afleiðingum fyrir heildar- yfirbragð borgarinnar. Jákvætt er hins- vegar að þau verk sem hið opinbera hefur unnið að, fyrir fé borgaranna og fyrir þá, hafa í heildina tekist vel og eru í allmörgum tilvikum til fyr- irmyndar. Þetta á bæði við um ný- byggingar og viðgerðir á þeim gömlu meistaraverkum sem borgina prýða. Perla í Berlín Dæmigerð fyrir varðveislu á gersemi sem Berlínarborg státar af er endurnýj- un hins svokallaða Neues Museum eða „Nýja safns“ á safnaeyjunni í miðri borginni. Erfitt mun vera að finna byggingu í Berlínarborg þar sem saga Evrópu fléttast jafn rækilega saman í einum punkti. Á miðri 19. öld var hafist handa við að þróa hugmyndir um gerð safnsins. Svokölluð nýklassík í anda leiðandi arkitekts og uppbyggjanda borg- arinnar, Schinkels, var þá allsráðandi. Nemandi hans, Stueler, sameinaði ríkjandi viðhorf og nýja tæknimögu- leika sem voru að þróast í kjölfar iðn- byltingarinnar um þær mundir og tókst að skapa einstaka og persónulega byggingu. Svo illa var farið með bygginguna, bæði í seinni heimsstyrjöldinni og á tíma hins kommúníska austur-þýska alþýðulýðveldis, að einungis hlutar hennar stóðu uppi þegar endurreisn mannvirkisins varð að veruleika í lok síðustu aldar. Einstök samvinna enskra og þýskra sérfræðinga er undirstaða þess sannfærandi árangurs sem náðist við endurgerðina. Aldrei leikur vafi á því hvað er gamalt og hvað nýtt. Undir stjórn Englendinganna Chipperfield og Harraps var tekin ákvörðun um að halda í allt sem nothæft var og flétta saman við það hlutum og efnum sem framleidd eru í dag. Þessari aðferð hafa menn eins og Ítalinn Scarpa eða Norð- maðurinn Fehn beitt með góðum ár- angri í safnabyggingum eigin landa. Hin nýju formmeðöl safnsins í Berlín eru einföld og í ætt við þau klassísku, Perlur með sögu og sál Umhverfi safnaeyjunnar í Berlín hefur að sögn höfundar, sem starfar sem arkitekt í Köln, verið verndað fyrir framandi, afkáralegum bygg- ingum. Hann veltir hinu endurgerða Neues Mu- seum fyrir sér sem og skipulagi í Reykjavík Gunnlaugur Stefán Baldursson arkitekt | info@baldursson.de Hvergi sjást ann- arleg tískufyr- irbrigði sem svo oft bera ofurliði það sem talið er „djarfar“ ný- byggingar um allan heim. Í Berlínarsafninu hefur tekist að skapa tímalausa og háleita kyrrð. Lesbók
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.