SunnudagsMogginn - 17.01.2010, Blaðsíða 39

SunnudagsMogginn - 17.01.2010, Blaðsíða 39
17. janúar 2010 39 Aurora íssafnið í Alaska í Bandaríkjunum er starfrækt allt árið um kring og er búið til úr yfir 1.000 tonnum af ís. Það var opnað fyrir fimm ár- um og með sérstökum bún- aði er 7 stiga frosti alltaf við- haldið innandyra. Á safninu má sjá fjölda stórbrotinna ísstyttna sem margfaldur heimsmeistari í ísskurði, ásamt samstarfs- mönnum, bjó til. Hópurinn hefur einnig skorið hring- stiga úr ís, snjóhús og úti- kamar. Lítið hótel er inn af safninu og skar hópurinn út íshúsgögn í hótelherbergin. Næturgestir fá svefn- poka fóðraða með hreindýrafeldi til að halda á sér hita. Þegar gestir koma inn í safnið heillast þeir flestir af stórum ís- ljósakrónum sem vegna ljósbrotsins í ísnum minna á norðurljósin. Eftir að hafa skoðað ísstytturnar á safninu geta þeir slakað á við ísbarinn og fengið sér drykk í martíníglasi, sem að sjálfsögðu er búið til úr ís. Óþarfi er að taka fram að gestir þurfa að klæða sig vel en safnið leigir þeim sem eru vanbúnir dúnúlpur, fóðraðar buxur og fóðruð stígvél. Inn á safninu er alltaf 7 stiga frost, sama hvert hitastigið er utandyra. Þúsund tonna íssafn Martíníglös o.fl. eru búin til á vinnustofu safnsins. Phnom Penh, Kambódía. Hæ hæ, Ég sat á þessu æðislega franska kaffi- húsi um daginn að njóta vestrænna áhrifa á Kambódíu með dýrindis kaffibolla og nýbakað bakkelsi. Þarna sat ég og naut útsýnisins af Tonle Sap og Mekong og horfði á fólkið sem fór framhjá mér, þegar fíll kom inn á kaffi- húsið. Fíllinn heitir Sambo, hún gengur alltaf heim úr vinnunni og stoppar á La Crosi- ette til að fá sér eftirmiðdagssnarl, nýtt baguette og ananas er hennar uppáhald. Bestu kveðjur, Erna Eiríksdóttir Póstkort frá Phnom Penh Fíllinn heitir Sambo, hún gengur alltaf heim úr vinnunni. Skortur á vatni og hreinlæti Steinar Þór segir að þótt skortur á mat og fátækt sé vandamál í flóttamannabúðunum sé eitt aðalvanda- málið skortur á vatni og hreinlæti. „Meðferðin á vatninu, skorturinn á hreinlæti þegar það er flutt um búðirnar, er þannig að fólk veikist. Börnin eru við- kvæmust – veikjast, nærast ekki og deyja úr sjúkdómum en ungbarnadauði er upp undir 15%.“ Hann segir margar búðanna vera afar fjölmennar, í sumum þeirra séu um 100 þús- und manns og sé skortur á mat ekki algeng- asta vandamálið þar sem fjöldi flóttamanna hafi tekið búpening sinn með sér í búðirnar. „Vandamálið er að þó að vatnið komi sæmi- lega hreint úr vatnshananum mengast það oft á leiðinni í brúsum og ílátum. Þar er því stöð- ug fræðsla um þrifnað, að fólk eigi að þvo á sér hendurnar, þrífa sig og byggja salerni.“ Að sögn Steinars Þórs var umhverfið magn- að en það sem stendur helst upp úr eftir dvölina í Darfúr er fólkið. „Sama hvert maður fer maður kynnist alltaf yndislegu fólki. Allt fólkið sem ég hef kynnst og unnið með, í Kabúl, Írak, á Srí Lanka eða í Darfúr, er yndislegt fólk. Maður hugsar af hverju ástandið þurfi að vera svona þegar það er til svona mikið af góðu fólki. Það er auðvitað bara skelfilegt.“ Steinar Þór segir að þótt skortur á mat og fátækt sé vandamál í flóttamannabúð- unum sé eitt að- alvandamálið skort- ur á vatni og hreinlæti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.