Morgunblaðið - 28.01.2010, Page 22

Morgunblaðið - 28.01.2010, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 2010 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Enginn velk-ist í vafaum að vandi Íslendinga sé mikill um þessar mundir. En við er- um ekki ein á báti, öðru nær. Önnur lönd eru mörg hver einnig í mjög þröngri stöðu eftir stóra skelli í fjár- málalífinu. Gagnvart sumum þessara ríkja er Ísland að mati fremstu sérfræðinga í þeirri öf- undsverðu stöðu að hafa sinn eigin gjaldmiðil, sem lýtur þeim lögmálum sem uppi eru í land- inu sjálfu en binst ekki stöðu annarra sem er gjörólík. Þessi munur skiptir sköpum um að við gætum orðið á undan öðrum upp úr öldudalnum. En þá þvælist heimabakað böl fyrir. Leiðsögnin í landinu þarf þá endilega að vera í molum. Skattar eru hækkaðir á öllum sviðum, skattkerfin eru skemmd í leiðinni og settir klaf- ar upp á hundruð milljarða á þjóðina án þess að fyrir því finnist nokkur lagaleg rök. Þessu til viðbótar kemur hin eyðileggjandi umræða í landinu sem stjórnarforystan stendur fyrir. Margvíslegar breytingar eru keyrðar í gegn í skjóli full- yrðingaflaums og hótana og er eitt notað sem rök í dag og hið gagnstæða á morgun. Allir þekkja síendurteknar fullyrðingar mánuðum saman um að tafir á af- greiðslu rík- isábyrgðar á Ice- save í fáeina daga stefni íslenskum þjóðarhag í voða. Þetta er end- urtekið við hvert nýtt tilefni, þótt hótanirnar hafi jafnan reynst innistæðulausar. Svo þegar hentar er blaðinu snúið við á augabragði. Nýjasta dæm- ið um það er hrópandi. Rann- sóknarnefnd Alþingis þarf að fresta birtingu skýrslu sinnar. Birtingin virðist ætla að falla saman við boðaða þjóð- aratkvæðagreiðslu um Icesave. Steingrímur Sigfússon er þegar kominn með hljóðnemana upp í sig og segir að augljóst sé að fresta verði atkvæðagreiðsl- unni um Icesave því í skýrsl- unni kunni að vera mikilvægar upplýsingar sem þurfi að liggja fyrir við atkvæðagreiðsluna. Steingrímur heimtaði fyrir fjórum vikum að Icesave yrði afgreitt án tafar í þinginu því annars færi allt í upplausn og voða eins og jafnan áður. Þá var von á rannsóknarskýrslunni eftir fjórar vikur. Af hverju varð ekki þingið að bíða með af- greiðsluna þá ef Steingrímur telur að í henni sé að finna at- riði sem skipti höfuðmáli um af- greiðslu Icesave? Hvað hefur gerst í millitíðinni? Hvaða ráð- leysisruglandi er þetta? Forystuleysið og ruglandi í allri um- ræðu er orðinn stór- skaðlegur} Þurfti þingið ekki að lesa skýrsluna? Seðlabankinnhefur lækkað stýrivexti sína og þarf ekki að koma á óvart. Endur- skoðun Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins og vaxtalækkunar- ferli bankans voru tafin með pólitískri aðför minnihluta- stjórnarinnar sl. vor. Hafa fyr- irtækin og almenningur í land- inu tapað stórkostlegum fjár- hæðum vegna þessa, eins og augljóst er. Vaxtalækkunin nú er já- kvæð, þótt hún sé síðbúin með- al annars af framangreindum ástæðum. En það er annað sem er mikið umhugsunarefni við þessa vaxtalækkun og rök- stuðninginn fyrir henni. Á nokkrum undanförnum vikum og mánuðum hefur Seðlabank- inn margoft gengið erinda ríkisstjórnarinnar í svonefndu Icesave-máli og verið sá sem helst hefur séð um að mála skrattann á vegginn. Nú síðast um áramótin. Þá var því lýst að Seðlabankinn hefði blessað hryllilegar hrak- spár ríkisstjórn- arinnar, sem for- setanum voru sendar, um hvað myndi gerast ef Icesave yrði ekki afgreitt tafarlaust. Þá var sagt að gengið myndi bila, verðbólga aukast og vaxtalækkunarferlið stöðvast. Hagfræðingar bættu reyndar um betur og sögðu að ekki kæmi á óvart þótt vextir yrðu hækkaðir ef Icesave yrði ekki staðfest. Nú segir Seðlabank- inn að ástæða fyrir lækkun vaxta sé sú að gengið sé stöð- ugt, verðbólga fari lækkandi og því sé rými til vaxtalækkunar. Seðlabankinn hefur áður verið hvattur til þess að hætta að líta á sig sem ómerkari partinn af aðstoðarmannakerfi ríkis- stjórnarinnar og taka að iðka það sjálfstæði sem honum ber að gera lögum samkvæmt. Hin- ar hryllilegu hrakspár annars vegar og rökstuðningur gær- dagsins hins vegar hafa sett hann í dapurlegt ljós. Hvar eru hagfræð- ingarnir sem full- yrtu að synjun for- seta ónýtti vaxta- lækkunarferlið?} Var ekkert að marka pöntuðu hrakspárnar? D ræm þátttaka í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík um síðustu helgi hlýtur að vera til marks um vantrú fólks á stjórn- málamönnum. Engin ástæða er til að ætla að þetta áhugaleysi sé einungis bundið við sjálfstæðismenn, enda eru stjórn- málamenn í þeirra röðum hvorki betri né verri en stjórnmálamenn í öðrum flokkum. Um þessa helgi fer fram prófkjör Samfylk- ingar í borginni og kjósendur þess flokks munu varla streyma að til að setja númer við missviplausa borgarfulltrúa eða nýliða sem virðast fátt hafa fram að færa. Enda er engin ástæða til að leggja í ferðalög nema maður sjái tilganginn með þeim og viti að maður hafi ánægju af ferðinni. Upp til hópa eru íslenskir stjórnmálamenn svo ótrúverðugir að fólk nennir ekki að hreyfa sig úr stað til að gera upp á milli þeirra með því að setja númer við þá í lokuðum klefa. Einn borgarfulltrúa Sjálfstæð- isflokksins sagði í einkasamtali að það hefðu að stærst- um hluta verið miðaldra karlmenn sem hefðu nennt að mæta til að kjósa í prófkjöri flokksins. Mann grunar að hjá Samfylkingunni verði það aðallega miðaldra „rétt- hugsandi“ vinstrikonur sem mæti til að kjósa í prófkjöri. Niðurstaðan verður mjög sennilega í takt við það. Meðan almenningur sýnir prófkjörunum áhugaleysi forðast hæft fólk að gefa kost á sér í stjórnmálastörf. Það er beinlínis orðið að þjóðfélagslegu vandamáli hversu andlega vanmáttugir íslenskir stjórn- málamenn eru. Þeir hafa ekki næga yfirsýn, geta þeirra er sannarlega takmörkuð og margir þeirra virðast hreinlega ekki nógu vel gefnir. Í íslensku þjóðfélagi vinnur og starfar fólk sem býr yfir góðum gáfum, er hug- myndaríkt, kann að leysa úr vanda og þolir álag. En þetta fólk er bara svo vel gert að ekki hvarflar að því að fara út í pólitík þar sem menn verða að nenna að bulla, ekki bara tímunum saman heldur stanslaust í nokkrar vikur eða jafnvel mánuði fram að næsta langa sumarfríi eða jólafríi. Vel upplýst manneskja með sæmilega sómakennd hefur einfald- lega ekki geð í sér til að taka þátt í þeim skrípaleik sem íslensk pólitík er orðin að. Maður breytir ekki fólki. Fólk verður sjálft að sjá þegar það er komið í öngstræti. Það er hins vegar stundum nauðsynlegt að segja fólki til. Hvað eftir annað hefur íslenska þjóðin sent stjórn- málamönnum þau skilaboð að hún treysti þeim ekki. Stjórnmálamennirnir eru hins vegar orðnir svo vanir því að hlusta bara á það sem þeim líkar að þeir nema ekki þessi sterku skilaboð. Þeir halda bara áfram sínu til- gangslausa flokkspólitíska rausi. Þeir vilja ekki breyta sér enda sjá þeir engan tilgang með því. Þeim finnst þeir standa sig alveg ágætlega miðað við aðstæður. Meðan þeir lifa í þeim misskilningi er engin ástæða til að fara sérstaklega út úr húsi til að greiða götu þeirra. kolbrun@mbl.is Kolbrún Berg- þórsdóttir Pistill Skrípaleikur stjórnmálamanna STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon Margra vikna frestun er brot á stjórnarskrá FRÉTTASKÝRING Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is P ÓLITÍSKT mat og vilji stjórnmálamanna ræður því, innan hóflegra en óljósra marka, hvort hægt er að fresta þjóð- aratkvæðagreiðslunni um rík- isábyrgð á Icesave-samningunum, vegna annarra mála. Rætt er um að fresta kosningunni svo hún skarist ekki við birtingu skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, sem gæti veitt nýja sýn á málið og að- draganda þess. Alls óvíst er hins veg- ar hvort skýrslan varpar nýju ljósi á samningana, greiðslugetu eða skyldu ríkisins til að greiða yfirleitt. Það ákvæði stjórnarskrárinnar sem vakið hefur hugleiðingar um lög- mæti þess að fresta kosningunni er í 26. grein. Þar segir að lög sem forseti hefur synjað samþykkis skuli bera svo fljótt sem kostur er undir atkvæði allra kosningarbærra manna í land- inu. Björg Thorarensen, prófessor í stjórnskipunarrétti við Háskóla Ís- lands, segir orðalag greinarinnar ekki svara því hvernig skuli tímasetja þjóðaratkvæðagreiðsluna út frá öðr- um málum sem geta haft áhrif á hana. „Það má kannski líta svo á að ekki sé kostur á að halda kosninguna vegna einhverra aðstæðna sem eru uppi og það má endalaust velta slíkum að- stæðum fyrir sér. Ég fæ ekki séð að það væri brot á stjórnarskránni,“ segir Björg. Þungvæg rök þarf til að fresta „Ég hef verið þeirrar skoðunar að sá tími sem Alþingi ákvað til 6. mars rúmaðist innan þessa ákvæðis. Þá eru liðnir um tveir mánuðir frá því að for- seti synjaði frumvarpinu staðfest- ingar, sem mér finnst vera rúmur tími til að undirbúa kosningu og gefa mönnum kost á að kynna sér málið,“ segir Eiríkur Tómasson, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands. Hann segir það varla brot á stjórnarskránni að fresta um skamman tíma, en heppilegra sé að það verði ekki gert. „Ef menn telja ástæðu til að fresta kosningunni þurfa að vera mjög þungvæg rök sem liggja þar að baki. Eitt af því sem skiptir máli er að menn gangi upplýstir til kosning- arinnar. Það getur verið réttlætan- legt að fresta þessu í mjög skamman tíma til viðbótar, en ég held að menn verði að fara mjög varlega í slíka frestun. Ég tel að það væri augljóst brot á stjórnarskrá ef menn vildu fresta þessu um margar vikur til við- bótar,“ segir Eiríkur. Ein vika til eða frá innan marka Björg tekur ekki svo djúpt í árinni. Hún tekur undir að þingið hafi ekki algerlega frjálsar hendur um lengd frestsins. Skynsamleg niðurstaða um stuttan viðbótarfrest standist þó stjórnarskrá. „Ein vika til eða frá finnst mér ekki vekja upp spurningar um hvort verið sé að fara á svig við stjórnarskrána, enda er ljóst að stjórnvöld tóku hratt til við að hefja undirbúning hennar.“ Aðspurð segir hún erfitt að leggja lögfræðilegt mat á hvort sé betra, að fresta birtingu skýrslunnar fram yfir kosningar, eða að fresta kosning- unum. Það sé einfaldlega háð mati stjórnvalda. Eiríkur Tómasson er á sama máli um það. Morgunblaðið/RAX Stór mál Hvað þarf til að fresta atkvæðagreiðslu um versta deilumál síðari ára á Íslandi? Ef til vill þarf áhugaverðustu skýrslu sem birst hefur á Fróni. Lögfræðingar eru sammála um að hægt sé að fresta kosningunni um Icesave-lögin en líklega þarf að fara mjög varlega í sakirnar til að varast brot á stjórnarskrá lýð- veldisins. Á VEFNUM stjórnarskrá.is er sam- antekt á helstu skrifum lögfræð- inga um 26. grein stjórnarskrár- innar. Um tímasetningu þjóðar- atkvæðagreiðslu segir þar að augljóslega beri að hraða fram- kvæmd atkvæðagreiðslunnar svo sem kostur er. Ákvæðið hafi verið skýrt þannig að slík atkvæðagreiðsla megi al- mennt ekki fara fram fyrr en liðnar eru að minnsta kosti fjórar vikur frá því að synjun forseta liggur fyr- ir og að jafnaði skuli efnt til hennar innan tveggja mánaða frá því tíma- marki. Þó megi deila um þetta eins og mörg ákvæði greinarinnar. Forseti synjaði lögunum staðfest- ingar þann 5. janúar síðastliðinn og sem stendur er kjördagur ákveðinn 6. mars. Samkvæmt þessu er málið nú þegar í ákveðinni tímaþröng og á gráu svæði að fresta atkvæða- greiðslunni um langan tíma. NÚ ÞEGAR Í TÍMAÞRÖNG ››

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.