Morgunblaðið - 29.01.2010, Page 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 2010
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór
Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„ÉG held að nokkrir hafi sést á veit-
ingastöðum, skemmtistöðum, í þess-
um bolum og þeir hafa verið teknir.
Það er dálítið síðan. Það var á síð-
asta ári,“ segir Geir Jón Þórisson,
yfirlögregluþjónn á höfuðborgar-
svæðinu, um þjófnað á bolum með
merki lögreglunnar í fyrrasumar.
Alfarið á ábyrgð framleiðanda
Geir telur aðspurður þjófnaðinn
ekki gefa tilefni til að yfirfara fram-
leiðsluferli á fatnaði fyrir lögregl-
una.
„Nei, það sé ég ekki. Það eru
fyrirtæki sem bjóða þetta og þau
eiga síðan að afgreiða þetta frá sín-
um lager. Það er algjörlega á þeirra
ábyrgð. Það er ekkert sem við get-
um gert í þessum efnum.“
– Telurðu að öryggisreglum hafi
verið fylgt nógu vel eftir í málinu?
„Það eru engar sérstakar örygg-
isreglur í þessu máli. Það er samn-
ingur um að þeir eigi að framleiða
þessa vöru og afhenda okkur hana.
Ef þeir tapa þessu eða þessu er stol-
ið er það þeirra mál en ekki okkar.
Það er alltaf bagalegt þegar svona
kemst í umferð en þetta eru bara
bolir en ekki annað sem betur fer
[…] Hvernig geymsla er á þessu
höfum við ekki tekið neitt sérstak-
lega út enda ekki á okkar ábyrgð að
neinu leyti. Það er alfarið á ábyrgð
fyrirtækisins.“
.
Gestir öldurhúsa gripnir í
einkennisklæðum lögreglu
Yfirlögregluþjónn kveðst ekki vita hversu margir lögreglubolir eru í umferð
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi borg-
arstjóri, opnaði Bridgehátíð 2010 í gærkvöldi
með því að melda fyrstu sögnina fyrir Jón Bald-
ursson, fyrrverandi heimsmeistara í bridge. Jón
fylgist hér áhugasamur með yfir öxl Vilhjálms.
72 sveitir mætast í sveitakeppni mótsins sem
fram fer á laugardag og sunnudag en mótslok
verða á sunnudag. Aldrei hafa fleiri erlendir
spilarar mætt til leiks á bridgemót hér á landi.
VILHJÁLMUR MELDAR FYRSTU SÖGNINA FYRIR JÓN
Morgunblaðið/Ómar
GERÐ var húsleit hjá Íslandspósti í
fyrradag. „Þetta var liður í rannsókn
á hugsanlegri misnotkun á markaðs-
ráðandi stöðu,“ segir Páll Gunnar
Pálsson, forstjóri Samkeppniseftir-
litsins, í samtali við Morgunblaðið.
Hann segir Samkeppniseftirlitinu
hafa borist kvartanir og ábendingar
frá keppinautum Íslandspósts og að
eftirlitið hafi fylgst með fyrirtækinu
í nokkurn tíma.
Byggja upp flutningakerfi
Húsleitin stóð ekki lengi yfir, segir
Páll Gunnar. Lagt var hald á bæði
rafræn gögn og pappírsskjöl. „Við
vorum bara að afla gagna sem nauð-
synleg eru til rannsóknar á málinu.“
Íslandspóstur hefur einkaleyfi á
bréfasendingum. Samkvæmt frétt-
um RÚV í gær kvarta keppinautar
Íslandspósts á flutningamarkaði yfir
því að fyrirtækið hafi í krafti einka-
leyfisins byggt upp sterka stöðu á
flutningamarkaðnum.
hlynurorri@mbl.is
Húsleit hjá
Íslandspósti
Hugsanleg mark-
aðsmisnotkun
ÁSBJÖRN Ótt-
arsson, þingmað-
ur Sjálfstæðis-
flokks, tilkynnti í
gær að hann
myndi segja sig
úr níu manna
þingmannanefnd,
sem kosin var á
Alþingi til að
fjalla um vænt-
anlega skýrslu rannsóknarnefndar
Alþingis. Ásbjörn viðurkenndi í vik-
unni í Kastljósi að hafa greitt sér út
ólöglegan 20 milljóna arð úr útgerð-
arfyrirtæki sínu Nesveri fyrir árið
2006. Fram kom í Kastljósinu, að
Ásbjörn hefði endurgreitt arðinn, 20
milljónir króna, fyrir skömmu eftir
að fréttamenn spurðu hann um mál-
ið. Sagðist hann ekki hafa vitað fyrr
en þá, að arðgreiðslan hefði verið
ólögleg þar sem eiginfjárstaða fyrir-
tækisins var neikvæð á þessum tíma.
Mikilvæg vinna framundan
Í yfirlýsingu Ásbjarnar segir að
hann hafi gert grein fyrir því hvern-
ig þeim málum var háttað og gert
allt sem í hans valdi standi til að leið-
rétta þau mistök sem gerð voru. „Ég
hef nú ákveðið að segja mig frá
störfum í nefndinni, til að tryggja að
friður ríki um störf hennar. Þau mál
sem hún mun hafa til umfjöllunar
eru þess eðlis að ekkert má verða til
að draga athyglina frá þeirri mikil-
vægu vinnu sem nefndinni er ætlað
að inna af hendi, þar með talin per-
sónuleg mál einstakra nefndar-
manna.“
Ásbjörn
segir sig úr
nefndinni
Ásbjörn Óttarsson
Vill tryggja frið
um nefndarstörfin
„MÁLIÐ er í eðlilegum farvegi. Ég
á von á því að það verði lagt fram
bréf frá Alcan við þeim fyrir-
spurnum sem við sendum til þeirra í
bæjarráði í næstu viku. Þannig að
málið er á dagskrá þar,“ segir Lúð-
vík Geirsson, bæjarstjóri Hafnar-
fjarðar, um undirbúning væntan-
legrar atkvæðagreiðslu um stækkun
álvers Alcan í Straumsvík.
Aðspurður hvenær reikna megi
með því að kosningin fari fram segir
Lúðvík of snemmt að segja til um
það. Hitt sé ljóst að ekki sé lengur
horft til þess að halda hana samtímis
þjóðaratkvæðagreiðslunni um Ice-
save, enda líti margir svo á að ekki
beri að blanda málunum saman.
Kosningin geti jafnvel farið fram
fyrr en gengið verður til atkvæða í
sveitarstjórnarkosningum.
Rósa Guðbjartsdóttir, fulltrúi
sjálfstæðismanna í Hafnarfirði, vill
að kosningarnar fari fram samtímis.
„Við sjálfstæðismenn viljum ein-
dregið að íbúakosningin fari fram
með bæjarstjórnarkosningunum í
vor,“ segir Rósa, sem kveðst skilja
að Samfylkingin vilji ekki að þessi
háttur verði hafður á í ljósi „af-
stöðuleysis flokksins“ í íbúakosning-
unni um álverið á sínum tíma. Út-
koman hafi reynst dýrkeypt.
Kosið verði
um álverið
Lúðvík
Geirsson
Rósa
Guðbjartsdóttir
„ÞETTA kom með flugi frá Austurlöndum
og það er lögregluskýrsla til um að það
hafi verið brotist inn á svæði DM-
flutninga í Kópavogi og stolið þar 300
bolum á afgirtu svæði,“ segir Halldór
Gunnar Eyjólfsson, forstjóri Sjóklæða-
gerðarinnar.
„Hundrað bolir fundust síðar í fjörunni í
Kópavogi og það er lögregluskýrsla til um
þetta mál. Fatnaðurinn kom til DM-flutn-
inga og það var brotist inn hjá þeim áður
en þeir gátu afhent fatnaðinn til Sjó-
klæðagerðarinnar. Sjóklæðagerðin geym-
ir allan lögreglufatnað í vöruhúsi sínu þar
sem er öryggiskerfi frá Securitas.“
Stolið úr gámi hjá DM-flutningum
Morgunblaðið/Júlíus