Morgunblaðið - 29.01.2010, Síða 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 2010
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
GYLFI Magnússon, efnahags- og
viðskiptaráðherra, segir stjórnvöld
þurfa að heyja varnarbaráttu á er-
lendum lánamörkuðum, en lánafyr-
irtæki hafi hótað breyta lánakjörum
eða segja upp lánum opinberra fyr-
irtækja og sveitarfélaga.
Gylfi segir að staðan á erlendum
lánamörkuðum sé Íslendingum
mjög erfið um þessar mundir. „Er-
lendar lánastofnanir sem höfðu
hugsað sér að fjármagna eitthvað á
Íslandi eru kannski ekki búnar að
slá það af en ætla að bíða og sjá til.
Þetta er það svar sem þær gefa
flestar. Þær vilja sjá hvernig spilast
úr þessu áður en þær taka ákvörð-
un.
Síðan stöndum við í varnarbaráttu
með lán sem þegar hafa verið veitt,
að það sé ekki
breytt skilmálum
á þeim eða þeim
sagt upp.“
Gylfi segir að
orkufyrirtæki og
sveitarfélög
standi frammi
fyrir þessari
stöðu og hann
segist gera ráð
fyrir að það sama
eigi við um einkafyrirtæki. Málið
snýst um að ákvæði í lánaskilmálum
hafa verið rofin, t.d. vegna þess að
eiginfjárhlutfall er komið niður fyrir
viss mörk eða lánshæfismat hefur
lækkað. Samkvæmt lánaskilmálum
hafa lánveitendur heimild til að
breyta lánakjörum til hins verra ef
þessi viðmið eru rofin.
Endurskoðun efnahagsáætlunar
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur ver-
ið sett í bið vegna þess að Norð-
urlöndin vilja ekki greiða út lán
meðan ekki er búið að ljúka deilu við
Breta og Hollendinga um Icesave.
Gylfi sagðist óttast að endurskoð-
un áætlunar AGS gæti dregist í
marga mánuði. „Það er það sem
gerðist á síðasta ári og við óttumst
að sagan endurtaki sig, en auðvitað
verður allt gert til að reyna að af-
stýra því.“
Gylfi segir að eitt af því sem geti
haft áhrif á hversu fljótt menn nái að
leysa Icesave-málið sé að kosningar
verði bæði í Bretlandi og Hollandi í
vor. Það sé alls ekki útilokað að mál-
ið verði ekki klárað fyrr en eftir
þær.
„Það getur orðið erfitt að ná at-
hygli stjórnvalda í löndunum á með-
an. Ef lausnin dregst fram eftir ári
og AGS-áætlunin verður í bið á með-
an þá eru það skelfilegar fréttir.“
Gylfi segir sé ekki útilokað að
endurskoðun áætlunarinnar ljúki án
þess að niðurstaða sé komin í Ice-
save, en hann segist hins vegar ekki
sjá nein teikn á lofti um annað en að
áætlunin verði í biðstöðu þangað til
niðurstaða sé komin í Icesave.
Hóta að breyta lánakjörum
Gylfi Magnússon segir að við þurfum að heyja varnarbaráttu á erlendum lána-
mörkuðum vegna þess að lánveitendur hóti að breyta lánakjörum til hins verra
» Næstu endurskoðun AGS átti að ljúka í janúar
» Norðurlöndin vilja ekki greiða út lánin í bili
» Erlendir bankar hafa sett afgreiðslu lána í bið
Gylfi Magnússon
Það voru glaðir krakkar á Skógarborg sem tóku
á móti pappírsgjöf frá Póstinum, Odda og Um-
slagi í gær. En fyrirtækin þrjú hafa ákveðið að
gefa leikskólum landsins fjögur tonn af pappír
að gjöf.
Á Skógarborg létu börnin hendur strax standa
fram úr ermum, því eftir að hafa hjálpað fulltrú-
um fyrirtækjanna inn með pappírskassana, var
strax hafist handa við að teikna.
SKÖPUNARGLEÐIN VIRKJUÐ Á SKÓGARBORG
Morgunblaðið/Heiddi
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„ÞAÐ hefur sýnt sig að heyfengur-
inn fylgir nærri því eins vel vetrar-
hitanum og samanlögðum vetrar- og
sumarhitanum. Það lítur vel út með
grassprettuna í ár. Ég nota Stykkis-
hólm, hitann þar. Hann er góður
núna. Það eru liðnir fjórir mánuðir af
sjö sem ég legg til grundvallar og
samanlagt hafa þeir verið hlýrri en í
meðallagi,“ segir Páll Bergþórsson,
fyrrverandi veðurstofustjóri, um ár-
vissa grassprettuspá sína í ár.
– Hvernig er útlitið miðað við
undanfarinn áratug?
„Það er nú kannski ekki betra því
að þetta er besti
áratugurinn sem
hefur komið í háa
herrans tíð.“
– Þetta er því
enn eitt árið sem
útlit er fyrir góða
sprettu?
„Enn sem kom-
ið er er útlit fyrir
það og heldur
ólíklegt að það breytist.“
Þarf að fara aftur til 1979
– Hvað þarf að fara langt aftur til
að finna ár sem spretta var léleg?
„Það var alverst árið 1979. Það var
lítið betra en 1918 eftir frostavetur-
inn mikla. Kuldinn byrjaði á hafís-
árunum 1965 og svo batnaði þetta
ekki mikið eftir 1970 fyrr en um 1990.
Þá fór að hlýna. Ég held að árið 1979
hafi verið kaldara en öll önnur ár á
þessu tímabili. En þá náttúrlega
bjargaði það mönnum að þá gátu þeir
bætt sér þetta upp með tilbúnum
áburði sem ekki var hægt 1918.
Annað mál er það að þá var heyjað
miklu meira útengi, fyrir utan túnin,
og það var ekki eins illa farið. Þetta
eru líklega þau tvö ár sem heyfengur
hefur verið lakastur í um 100 ár. Ef
það eru góðar horfur geta bændur
sparað áburð. Það er ekki lítils virði
núna,“ segir Páll sem telur að bænd-
ur geti verið bjartsýnir.
Útlit fyrir að grasspretta
verði með besta móti í ár
Gott veðurfar gerir bændum kleift að spara dýrmætan áburð
Páll Bergþórsson
Úrskurður hæstaréttar Bretlands
um að sérstök fyrirmæli breska fjár-
málaráðuneytisins um að frysting
eigna meintra
hryðjuverka-
manna sé ólögleg,
hefur ekki áhrif á
stöðu Íslands.
Þetta er mat Guð-
mundar J. Odds-
sonar, forstöðu-
manns skrifstofu
Logos í London.
„Ég hef ekki náð
að kynna mér
dóminn ítarlega, en við fyrstu skoðun
sýnist mér að svo sé ekki,“ segir Guð-
mundur. Ekki sé um sömu löggjöf að
ræða í málunum tveimur. „Í þessu til-
tekna máli [þar sem frystar voru
eignir fimm manna sem grunaðir
voru um aðild að hryðjuverka-
starfsemi] nýttu bresk yfirvöld lög-
gjöf tengda baráttu Sameinuðu þjóð-
anna gegn hryðjuverkastarfsemi og
sú löggjöf gerir strangar kröfur til
heimildar framkvæmdavaldsins til að
beita slíkum úrræðum beint og án að-
komu breska þingsins.“
Löggjöfin sem breska fjármálaeft-
irlitið notaði gegn Landsbankanum
og Singer Friedlander hafi hins vegar
verið sk. hryðjuverkalöggjöf [e. anti
terrorist act] og þar virðist heimildin
vera til staðar. „Við skoðuðum þetta
ítarlega á sínum tíma og heimildin er
fyrir hendi. Það er frekar spurning
um hvort bresk yfirvöld hafi gengið of
harkalega fram með því að nota regl-
una og þannig gerst brotleg, meðal
annars hvort svo kölluð meðalhófs-
regla hafi verið virt að vettugi.“ Segir
Guðmundur ennfremur viss ummæli
dómara í úrskurðinum sem nú féll
raunar frekar styrkja hryðjuverka-
löggjöfina þar sem tekið er fram að
sú heimild sem þar er til frystingar
eigna sé ekki háð sömu ströngu skil-
yrðum og sú sem er í löggjöfinni um
Sameinuðu þjóðirnar.
Ekki áhrif
á stöðu
Íslands
Guðmundur J.
Oddsson
Úrskurðurinn styrkir
hryðjuverkalöggjöf
LÖGREGLAN stöðvaði konu á þrí-
tugsaldri á Reykjanesbraut í
fyrradag eftir að bíll hennar
mældist á yfir 120 km hraða. Kon-
an kvaðst vera ólétt og komin með
hríðarverki. Hún þyrfti því að
flýta sér á slysadeild. Lögreglan
fylgdi henni þangað beinustu leið.
Ekki var þó von á barninu alveg
strax, að sögn lögreglu. Konan má
búast við því að eftirmál verði
vegna hraðakstursins – auk þess
sem hún reyndist próflaus.
Ólétt á 120 km hraða
Hólmfríður Bjarnadóttir, eða Hófý eins
og við flest þekkjum hana, fararstjóri
Bændaferða, verður á skrifstofu
Bændaferða mánudaginn 1. febrúar
til föstudagsins 5. febrúar frá
kl. 9.00 - 16.00.
Það er því alveg upplagt að kíkja í
Síðumúlann í kaffi, hitta Hófý og fá
upplýsingar um ferðirnar.
Sp
ör
-
Ra
gn
he
ið
ur
In
gu
nn
Ág
ús
ts
dó
tt
ir
s: 570 2790www.baendaferdir.is
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
Hófý, fararstjóri Bændaferða
verður á skrifstofunni 1. - 5. febrúar
Bændaferðir • Síðumúla 2