Morgunblaðið - 29.01.2010, Page 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 2010
BANKASÝSLA
ríkisins hefur
breytt auglýs-
ingu þar sem
auglýst er eftir
starfsmanni sem
á að sinna verk-
efnum á sviði
skjala- og upp-
lýsingamála, en
auglýsingin varð
til þess að Félag um skjalastjórn
mótmælti henni.
Upphafleg var auglýst eftir „sér-
fræðingi í skjala- og upplýsinga-
málum“, en Elín Jónsdóttir, for-
stjóri Bankasýslunnar, segir að
þetta hafi verið mistök og stofn-
unin hafi aldrei ætlað að auglýsa
eftir sérfræðingi á þessu sviði.
Bankasýslan sé lítil stofnun sem
ekki hafi bolmagn til að ráða til sín
sérfræðing á þessu sviði. Núna er
auglýst eftir „verkefnisstjóra til að
sinna verkefnum við skjala- og
upplýsingamál.“
Í upphaflegri auglýsingu sagði að
umsækjendur þyrftu að hafa 3 ára
háskólanám að baki í greinum sem
nýtast í starfi, t.d. „á sviði tungu-
mála, sálfræði og stjórnmálafræði“.
Núna er búið að taka út þessa
setningu. Elín sagði orðalagið hefði
verið óheppilegt. Áfram er tekið
fram að þekking og reynsla af
skjalastjórn og/eða upplýsinga-
málum sé talin kostur en ekki
nauðsyn. egol@mbl.is
Breyttu
auglýsing-
unni
Elín Jónsdóttir
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynurorri@mbl.is
SKRIFAÐ var undir kaup félags
í eigu Grundar á þremur íbúðar-
blokkum í Mörkinni í gær. Íbúð-
irnar voru keyptar af Lands-
bankanum en þær höfðu verið til
sölu síðan bankinn tók blokk-
irnar yfir af Nýsi í september
2008.
Kaupverð var rúmir tveir
milljarðar. Bankinn þarf því að
sögn Ásmundar Stefánssonar,
bankastjóra Nýja Landsbankans,
að afskrifa rúman milljarð vegna
íbúðanna. Athygli hefur vakið að
íbúðirnar voru ekki auglýstar op-
inberlega. Ásmundur bendir á að
íbúðirnar hafi verið lengi til sölu
hjá fasteignasölum og „ættu því
ekki að hafa farið framhjá nein-
um sem hefur áhuga“.
Ásmundur segir ljóst að
íbúðrnar henti ekki sem venju-
legt íbúðarhúsnæði, enda skipu-
lagðar sem hluti af þjónustu-
kjarna, og því hafi bankinn
einungis leitað til þeirra sem
veita t.d. dvalar- og hjúkrunar-
þjónustu. Ýmsir hafi boðið í íbúð-
irnar. Fjárhagsleg sjónarmið
hafi ráðið því að samið var við
Grund.
Umrædd lóð í Mörkinni, Suð-
urlandsbraut 58-62, er því kom-
in aftur í eigu sjálfseignarstofn-
unar en Reykjavíkurborg
úthlutaði lóðinni sjálfseignar-
stofnuninni Markarholti í febr-
úar 2005 á nánast gjafverði.
Markarholt framseldi lóðina til
eignarhaldsfélagsins Markar-
innar, sem síðan var keypt af
Nýsi í apríl 2006.
Lítil hrifning borgarinnar
vegna sölu lóðarinnar
Kaupin vöktu litla hrifningu
borgaryfirvalda, enda var ætl-
unin með úthlutuninni ekki sú
að fjárhagslegur ávinningur
yrði af eigninni. Landsbankinn,
sem fjármagnaði byggingu íbúð-
anna, tók þær svo loks yfir
haustið 2008 af Nýsi, sem síðar
varð gjalþrota.
Grund, sem er sjálfseignar-
stofnun og líknarfélag, ætlar sér
ekki að græða á íbúðunum. Við
undirskrift í gær kom fram fyrir
80 fermetra íbúð þurfi að greiða
7,9 milljóna íbúðarréttargjald,
sem verður endurgreitt við lok
samningsins, og 116 þúsund
króna leiguverð auk hússjóðs.
Grund stækkar við sig
Morgunbladid/Heiddi
Í kastljósi fjölmiðla Suðurlandsbraut 58-62 hefur ítrekað komist í fréttirnar,
fyrst þegar Nýsir eignaðist lóðina sem borgin úthlutaði sjálfseignarstofnun fyrir
lítið. Landsbankinn var svo gagnrýndur fyrir að auglýsa ekki íbúðirnar.
Skrifað var undir kaup Grundar á 78 lúxusíbúðum í Mörkinni Landsbankinn
afskrifar milljarð Bankastjórinn segir alla áhugasama hafa vitað af íbúðunum
Forsvarsmenn Grundar voru að
vonum ánægðir með þessa
fjárfestingu stofnunarinnar,
sem er sú mesta í áttatíu ár,
eða frá því bygging hófst á
dvalar- og hjúkrunarheimilinu
við Hringbraut. Enda eru íbúð-
irnar, sem eru 78 talsins, sér-
staklega glæsilegar og vel út-
búnar.
Við undirskrift í gær, sem
fram fór í einni íbúðinni, sagði
Gísli Páll Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Grundar – Mark-
arinnar ehf. sem eignast íbúð-
irnar, að nú þegar hefðu tíu einstaklinar skráð sig á lista yfir áhugasama
leigjendur. Þó er ekki enn búið að auglýsa íbúðirnar, en það verður að sögn
Gísla Páls gert á næstu dögum.
Hann er ekki í vafa um að þeim takist að leigja út allar íbúðirnar, enda verði
leiguverði stillt í hóf. Íbúðirnar eru frá 80 fermetrum og upp í 140 fermetra
að stærð, og verður leiguverð íbúða af minni gerð um 116 þúsund krónur á
mánuði auk húsgjalds, en leiguverð stærri íbúða hefur ekki verið kynnt.
Ekki í vafa um að það takist að leigja út lúxusíbúðirnar í Mörkinni
Lúxus Íbúðirnar í blokkum Grundar eru mjög glæsilegar og vel búnar.
Ljósmynd/Kjartan Örn Júlíusson
Selt Ásmundur og Gísli Páll skrifa undir.
Morgunblaðið/Heiddi
NORSKT gasflutningaskip sem
Landhelgisgæslan fylgist með er
120 sinnum stærra að brúttótonnum
en íslensku varðskipin, eða 121 þús-
und tonn. Í tilkynningu frá Land-
helgisgæslunni sem vitnað var til í
blaðinu í gær, sagði að Arctic Prin-
cess væri fjórum sinnum stærra en
varðskipin. Hið rétta er að það er
fjórum sinnum lengra, eða 288 metr-
ar. Arctic Princess var í fyrradag
100 sjómílur austur af landinu, en er
nú á leið frá því. Algengt er að Land-
helgisgæslan fylgist með svona
stórum skipum.
Gasflutn-
ingaskip far-
ið framhjá
Gjalddagi afdreginnar staðgreiðslu fjármagnstekjuskatts á tímabilinu
1. október til 31. desember 2009 var 20. janúar 2010 en eindagi er 4. febrúar n.k.
15% staðgreiðsla
Frá 1. júlí 2009 bar bönkum og öðrum fjármálastofnunum að reikna
og halda eftir 15% staðgreiðslu af vaxtatekjum ársfjórðungslega.
Sama gilti um arð sem greiddur var til eigenda af eignarhlutum í
félögum. Af fjármagnstekjum sem til féllu fyrir 1. júlí reiknaðist
10% skattur.
Aðrar fjármagnstekjur
Sem fyrr eru tekjur af söluhagnaði skattlagðar
eftirá, sem og leigutekjur. Frá 1. júlí til 31. desember 2009 gilda
sérstakar reglur um leigutekjur, en á þeim tíma mynda 70% þeirra
skattstofn en 30% eru skattfrjálsar.
Uppgjör við álagningu 2010
Við álagningu ákvarðast 15% skattur á fjármagnstekjur sem til féllu
á tímabilinu júlí-desember 2009 og voru umfram 250.000 kr. (eða
500.000 kr. hjá hjónum). Á tekjur undir þeim mörkum, svo og á allar
fjármagnstekjur á tímabilinu janúar-júní verður lagður 10% skattur.
Staðgreiðsla fjármagnstekjuskatts árið 2010
Fjármagnstekjuskattur er 18% frá 1. janúar 2010.
Gjalddagar afdreginnar staðgreiðslu eru 20. apríl, 20. júlí og
20. október 2010 og 20. janúar 2011.
Eindagi er 15 dögum síðar.
Fjármagnstekjuskattur