Morgunblaðið - 29.01.2010, Side 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 2010
Banki þeirra Ara og Jóns er ennkominn á kreik. Fáum líst á
blikuna, a.m.k. ekki Páli Vilhjálms-
syni. Hann skrifar:
Ólafur Ólafssoner aðalhöf-
undurinn að leik-
ritinu um arab-
íska furstann sem
„keypti“ hlut í
Kaupþingi kort-
éri fyrir hrun til
að hækka hluta-
bréfaverð,“ segir
Páll og bendir á að Ólafur var einn
stærsti eigandi bankans. „Gjörning-
urinn er til rannsóknar hjá sér-
stökum saksóknara. Í gær bárust
þær fréttir að Ólafi hafi verið gert
kleift að eignast á ný Samskip sem
var grunnurinn að veldi hans. Áður
var skipafélagið í eigu samvinnu-
hreyfingarinnar en Ólafur var hluti
af fámennum hópi manna sem söls-
aði undir sig eigur félagsmála-
hreyfingarinnar sálugu.
Arion banki aðstoðaði Ólaf við aðleysa til sín Samskip. Banka-
menn virðast siðlausir í bókstaflegri
merkingu orðsins; þeir hafa enga
siði. Bankamenn eru varla svo skyni
skroppnir að vita ekki að án siða og
siðvitundar virkar samfélagið ekki.
Hrunið varð vegna þess að menneins og Ólafur misþyrmdu illi-
lega meginþáttum siðaðs samfélags,
trausti og trúnaði. Menn eins og
Ólafur komast til álna vegna þess að
almenningur virðir meginreglur
samfélagsins um að samningar skuli
standa, helgi eignarréttarins og
skilvísi. Ólafur og hans kónar gefa
dauðann og djöfulinn í siði sam-
félagsins.
Hvernig dettur Arion banka í hugað þjónusta einn aðalsökudólg
hrunsins?“
Svona spyr Páll. Skyldu verða gef-in einhver málefnaleg svör við
réttmætum spurningum?
Er nema von að spurt sé?
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 3 skýjað Lúxemborg 1 snjóél Algarve 16 heiðskírt
Bolungarvík 2 skýjað Brussel 3 skúrir Madríd 10 heiðskírt
Akureyri -1 heiðskírt Dublin 6 súld Barcelona 9 heiðskírt
Egilsstaðir -5 léttskýjað Glasgow 7 skýjað Mallorca 11 heiðskírt
Kirkjubæjarkl. 3 skýjað London 6 léttskýjað Róm 6 skúrir
Nuuk 2 skýjað París 5 skýjað Aþena 9 alskýjað
Þórshöfn 1 alskýjað Amsterdam 4 léttskýjað Winnipeg -23 léttskýjað
Ósló -2 skýjað Hamborg 2 léttskýjað Montreal -4 snjókoma
Kaupmannahöfn 1 heiðskírt Berlín 1 snjóél New York 2 alskýjað
Stokkhólmur -8 snjókoma Vín 1 skýjað Chicago -13 léttskýjað
Helsinki -16 skafrenningur Moskva -13 þoka Orlando 17 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
29. janúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5.36 4,1 11.59 0,5 18.03 3,8 10:17 17:05
ÍSAFJÖRÐUR 1.22 0,3 7.30 2,3 14.04 0,2 19.58 2,0 10:40 16:52
SIGLUFJÖRÐUR 3.24 0,4 9.40 1,4 16.08 0,1 22.34 1,3 10:24 16:35
DJÚPIVOGUR 2.48 2,1 9.05 0,4 15.01 1,8 21.07 0,1 9:51 16:30
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á laugardag
Norðan 8-13 m/s og él við
austurströndina, annars hæg-
ari vindur og bjart veður. Frost
yfirleitt 3 til 10 stig.
Á sunnudag
Hæg breytileg átt. Skýjað með
köflum og yfirleitt þurrt. Frost 0
til 8 stig, en 0 til 5 stiga hiti
vestast.
Á mánudag
Austlæg átt og dálítil slydda
eða snjókoma suðvestantil, en
annars þurrt að kalla. Hiti 0 til 5
stig við suður- og suðvestur-
ströndina, annars 0 til 8 stiga
frost.
Á þriðjudag og miðvikudag
Suðaustlæg átt og dálítil slydda
sunnan- og vestantil, en annars
úrkomulítið. Hlýnar lítið eitt.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Víða þurrt og bjart veður í dag.
Kólnandi, frost 0 til 8 stig, kald-
ast í innsveitum.
JANÚAR hófst með kuldakasti og
hann mun kveðja með kuldakasti.
Þess á milli telst mánuðurinn hafa
verið óvenjuhlýr.
Sigurður Þór Guðjónsson veður-
sagnfræðingur bloggaði á miðviku-
daginn. „Meðalhiti mánaðarins er nú
2,8 stig í Reykjavík og er það meira
en þrjú stig yfir meðallagi. Fyrstu
fimm dagar mánaðarins voru undir
frostmarki en meðalhiti síðustu 18
daga er 5,0 stig eða 5,5 stig yfir með-
allagi og er þetta með lengstu og
sterkustu hlýindaköflum á þessum
árstíma. Ekki hefur frosið í Reykja-
vík síðan 7. janúar. En janúar-
hitametið er samt nokkuð langt í
burtu vegna kuldanna í upphafi mán-
aðarins og svo er frosti spáð í lok
mánaðarins og mun þá meðalhitinn
lækka um nálægt hálft stig.
Meðalhiti þessa janúar mun því
þrátt fyrir allt ekki teljast til neinna
verulega sérstakra tíðinda.“
Fram kemur hjá Sigurði að hitinn
hafi farið í 16,9 stig í byrjun vikunnar
á Skjaldþingsstöðum í Vopnafirði
sem er mesti hiti sem mælst hefur í
janúar á veðurstöðvum í því héraði
en mælingar ná til ársins 1930 fyrir
janúar. Á sjálfvirku stöðinni mældust
17,6 stig. Aðeins á einum stað á Spáni
og öðrum í Portúgal mældist meiri
hiti þennan dag í Evrópu en hér.
Mesti hiti sem mælst hefur á landinu
í janúar er 18,8 stig, þ.e. á Dalatanga
hinn 14. 1992. sisi@mbl.is
Janúar byrjaði kaldur og kveður kaldur
Hitinn í mánuðinum vel yfir meðallagi
en engu að síður nokkuð frá metinu
Morgunblaðið/Golli
Janúar Íslendingar hafa glaðst.
ALÞINGI kemur saman í hádeginu
í dag. Ásta Ragnheiður Jóhannes-
dóttir, forseti Alþingis, á ekki von á
löngum fundi en m.a. verður kosið í
stjórn Ríkisútvarpsins til eins árs,
fyrsta umræða fer fram um frum-
varp til laga um fjármálafyrirtæki
og eins óundirbúinn fyrirspurnar-
tími.
Næsti þingfundur hefst svo um
miðjan dag á mánudag samkvæmt
dagskrá. Spurð hvort ákveðið hafi
verið hvort lögum um rannsóknar-
nefnd Alþingis verði breytt segir
Ásta það ekki hafa verið rætt. Hún
gerir ekkert frekar ráð fyrir því að
lögunum verði breytt enda telji
aðallögfræðingur Alþingis ekki
þörf á því þó svo að skil skýrsl-
unnar tefjist aðeins. andri@mbl.is
Þingfundur hefst í hádeginu