Morgunblaðið - 29.01.2010, Blaðsíða 17
Fréttir 17VIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 2010
Eftir Þórð Gunnarsson
thg@mbl.is
LÁRUS Ásgeirsson, forstjóri Sjóvár, segir í
samtali við Morgunblaðið að rekstur Sjóvár
hafi verið sambærilegur rekstri annarra fé-
laga á árum áður. „Árið 2006 var sú ákvörðun
tekin að koma svokölluðu samsettu hlutfalli
niður fyrir 100%. Ráðist var í ýmsar hagræð-
ingaraðgerðir og tekið hressilega á rekstrar-
kostnaði,“ segir Lárus. Hann segir að stjórn-
endur Sjóvár hafi náð þessu rekstrarmarkmiði
á árinu 2008. „En þetta var auðvitað gert á
kostnað markaðshlutdeildar. Við einblínum á
það nú að hafa góða viðskiptavini, ekki endi-
lega sem flesta.“
– Ef reksturinn var svona góður, hvað var
það þá sem knésetti Sjóvá?
„Starfsemi tryggingafélaga er tvíþætt. Það
sem fólk tengir venjulega við tryggingafélag
er sá hluti sem setur saman og selur trygg-
ingar, innheimtir iðgjöld og greiðir út tjón.
Starfsmenn Sjóvár sáu um tryggingarekstur-
inn sem var og er góður. En hinn hlutinn, fjár-
festingahlutinn, er ekki síður mikilvægur, en
það er sá hluti sem sér um að ávaxta þá fjár-
muni sem koma inn í iðgjöldum og þurfa að
standa undir því að greiða út tjón síðar meir.
Miklar kröfur eru gerðar um eignasafn trygg-
ingafyrirtækja og þeim ber að sýna varkárni
og góða viðskiptahætti. Í gegnum tíðina hafa
fasteignaverkefni og bílalán verið hluti af fjár-
festingum tryggingafyrirtækja. En síðan er
þetta spurning um samsetningu eigna og
áhættu tengda þeim,“ segir Lárus. „Í tilfelli
Sjóvár tóku fyrri eigendurnir yfir fjárfestinga-
starfsemi félagsins sem fór afar illa, eins og
allir vita.
Efnahagsreikningurinn stækkaði mjög
hratt, sérstaklega vegna þátttöku í fasteigna-
verkefnum erlendis. Mikil lækkun varð á fast-
eignamörkuðum, og menn gátu ekki staðið í
skilum með lánin sem lágu þar að baki, auk
þess sem eignirnar í félaginu voru illseljan-
legar. Fyrri eigendur misstu því Sjóvá úr
höndunum á sér,“ segir Lárus.
Segir eignasafnið traust
Við endurskipulagningu Sjóvár voru settar
inn nýjar eignir í félagið sem metnar voru af
þriðja aðila og samþykktar af FME. „Ég met
að þetta sé mjög traust eignasafn,“ segir Lár-
us. „Okkar eignasafn er 75% tryggt af ríkinu
og ég tel að þetta sé eins traust og hægt er að
hafa það og öll bréfin eru í skilum.“
Lárus nefnir að vissulega séu eignir Sjóvár
misseljanlegar, til að mynda teljist margum-
rætt skuldabréf á Eignarhaldsfélagið Fast-
eign, sem er tryggt með veði í íþróttamann-
virkjum og skólasvæði á Álftanesi, ekki til
seljanlegustu eigna. Lárus áréttar að Sjóvá
eigi ekki umræddar fasteignir heldur hefð-
bundið fyrirtækjaskuldabréf á fasteigna-
félagið Fasteign með veði í umræddum eign-
um. „En þarna eru að stærstum hluta eignir
sem er auðvelt að losa og á einhverjum tíma
verður hægt að koma þessu öllu í verð,“ segir
hann.
Forstjórinn segir að þær eignir sem lagðar
voru inn í Sjóvá hafi verið lánaðar til eignar-
haldsfélagins SAT gegn veði í hlutafé Sjóvár.
SAT eignarhaldsfélag er í eigu skilanefndar
Glitnis en félagið á ríflega 90% hlut í Sjóvá í
dag. „Ef kaupanda líst ekki á þær eignir sem
eru inni í félaginu getur hann tekið þær út, en
hann verður auðvitað að koma með eitthvað
annað í staðinn,“ segir hann.
Viðskiptavildin skiptir litlu
Nokkuð hefur verið fjallað um viðskiptavild
Sjóvár á síðum Morgunblaðsins að undan-
förnu.
Lárus viðurkennir að hlutfall viðskiptavild-
ar af heildareignum sé mun hærra en gengur
og gerist meðal tryggingafélaga erlendis.
Óefnislegar eignir nemi þannig ríflega þriðj-
ungi af heildareignum Sjóvár, en efnahags-
reikningur félagsins er 42 milljarðar sam-
kvæmt útboðsgögnum frá Íslandsbanka.
Greint var frá því í Morgunblaðinu 21. janúar
síðastliðinn að sambærilegt hlutfall evrópskra
og bandarískra tryggingafélaga lægi á bilinu
5-6%.
Lárus nefnir að viðskiptavild og aðrir óefn-
islegir þættir skipti litlu máli fyrir trygginga-
félög þar sem engin lán séu tekin út á slíkar
eignir. „Þegar félagið fer í þrot eru ákveðnar
eignir lagðar inn í félagið. Eina leiðin til að
setja efnahaginn rétt upp er að færa inn við-
skiptavild sem nemur því fjármagni umfram
eigið fé, sem lagt var inn í félagið,“ segir Lár-
us. „Síðan mun fara fram virðisrýrnunarpróf,
sem leiðir í ljós hvort eignir standi undir verð-
mati. Þá kemur í ljós hvort viðskiptavildin í fé-
laginu standi undir sér en við reiknum með að
hún verði lækkuð verulega“ segir hann.
Undirboðin eðlileg
Samkvæmt lauslegri samantekt Morgun-
blaðsins á opinberum útboðum kemur í ljós að
Sjóvá hefur tekist að undirbjóða keppinauta
sína síðustu mánuði. Til að mynda bauð Sjóvá-
Landsneti tryggingasamning upp á 15 millj-
ónir, á meðan tilboð keppinautanna voru öll í
kringum 30 milljónir. Inntur eftir því hvernig
það sé mögulegt, í ljósi tíðra forstjóraskipta og
nýlegra áfalla í rekstri félagsins, svarar Lár-
us: „Forstjóraskipti hafa reyndar verið tíð á
síðustu mánuðum. Hins vegar er fram-
kvæmdastjórateymi fyrirtækisins með langan
starfsaldur og hægt hefur verið að treysta
fullkomlega á þá einstaklinga,“ segir Lárus.
„Ég get líka sagt frá því að á árunum 2008-
2009 fóru fram 29 opinber útboð. Sjóvá var áð-
ur með 15 af þeim samningum, og er með 16
núna. Í tilfelli Landsnets var um að ræða við-
skiptavin sem við höfum haft lengi í við-
skiptum og þekkjum mjög vel tjónasögu hans.
Þó að við höfum unnið mörg útboð höfum við
líka tapað mörgum útboðum. Fjármálaeftir-
litið fer með eftirlit með tryggingafélögum og
fylgist mjög grannt með málefnum og við-
skiptaháttum félagsins.“
Ekki víst hvort verður selt
Lárus vill ekki tjá sig um hvaða væntingar
eru gerðar til sölu félagsins: „Íslandsbanki
vann verðmat á Sjóvá eftir hinum ýmsu að-
ferðum sem tíðkast í þeim efnum. Eftir því
sem ég best veit er áhugi og margar fyrir-
spurnir hafa borist Íslandsbanka. Markmiðið
er að ná til baka verðmætunum sem voru lögð
inn í félagið, ef ekki nægilega góð tilboð berast
þá er ekki víst að fyrirtækið verði selt fyrr en
eftir einhvern tíma. Ég get ekki tjáð mig um
hvaða verð menn vilja fá fyrir félagið,“ segir
hann.
Lárus segir tryggingamarkaðinn velta um
40 milljörðum á ári. Samkeppnin sé mikil og
muni aukast: „Við sjáum hvernig trygginga-
markaðurinn er að þróast í Evrópu, þar eru
miklar kröfur gerðar til tryggingafyrirtækja
um lækkun rekstrarkostnaðar. Þó svo að sam-
dráttur sé í atvinnulífinu frá síðustu árum, þá
kemur það minna niður á tryggingafélögum.
Undirliggjandi rekstur Sjóvár er mjög góður
og getur enn batnað,“ segir hann.
Forstjóri Sjóvár segir eigna-
safnið eins gott og það geti orðið
Nýráðinn forstjóri tryggingafyrirtækisins Sjóvár segir að vátryggingarekstur félagsins hafi verið
sterkur þegar félagið lenti í kröggum á síðasta ári, hins vegar hafi fjárfestingastarfsemin farið illa
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tryggingar „Undirliggjandi rekstur Sjóvár er mjög góður og getur enn batnað,“ segir Lárus
Ásgeirsson, forstjóri Sjóvár. Félagið hafi náð svokölluðu samsettu hlutfalli niður fyrir 100%.
Fyrri eigendur misstu því Sjóvá úr hönd-
unum á sér en lánardrottnar og yfirvöld
gerðu úttekt á afleiðingum þess að láta
Sjóvá fara í þrot.
Niðurstaðan matsins var sú að þetta
væri besta leiðin því tjónaskuld fyrirtæk-
isins hefði alltaf lent á ríkinu með einum
eða öðrum hætti. „Önnur afleiðing hefði
verið á endurtryggingamarkaðnum fyrir
Ísland í heild sinni,“ segir Lárus.
„Efnahagsreikningurinn stækkaði mjög
hratt, sérstaklega vegna þátttöku í fast-
eignaverkefnum erlendis. Mikil lækkun
varð á fasteignamörkuðum, og menn gátu
ekki staðið í skilum með lánin sem lágu
þar að baki, auk þess sem eignirnar í fé-
laginu voru illseljanlegar.“
Besta leiðin
Nýherji hf. Símanúmer lagersölu: 569 7590 www.nyherji.is
af nýlegum og notuðum búnaði
að Köllunarklettsvegi 2 og á netverslun.is
Opið í dag frá 10-18 og á morgun frá 10-14
Takmarkað magn!
• Tölvubúnaður
• Prentbúnaður
• Ljósritunarvélar
• og margt fleira