Morgunblaðið - 29.01.2010, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 2010
FRÉTTASKÝRING
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
U
nnið er að undirbúningi tveggja
einkarekinna sjúkrahúsa í tengslum
við ferðaþjónustu. Komist þau á legg
verða Íslendingar raunverulegir
þátttakendur í heilsuferðaþjónustu sem fer
mjög vaxandi í hinum vestræna heimi. Það
mun skapa þúsundir starfa í landinu og auka
tekjur ferðaþjónustunnar.
„Ég sé mikla möguleika í heilsutengdri
ferðaþjónustu, ekki síst í ljósi þess hversu
mikið samkeppnisumhverfið hefur batnað
vegna stöðu íslensku krónunnar,“ segir Grím-
ur Sæmundsen, læknir og forstjóri Bláa lóns-
ins. Í Lækningalind Bláa lónsins er veitt með-
ferð við psoriasis og auk þess spa-meðferð á
baðstaðnum og í Reykjavík. Grímur og við-
mælendur úr öðrum fyrirtækjum sem vinna
að uppbyggingu heilsuferðaþjónustu telja
kjörnar aðstæður til að byggja upp slíka að-
stöðu hér og kynna landið sem heilsuland.
Gunnar Ármannsson, framkvæmdastjóri
PrimaCare sem undirbýr liðskiptasjúkrahús í
Mosfellsbæ, segir að markaðurinn sé mikill
og vaxandi fyrir þjónustu af þessu tagi. Hann
nefnir sem dæmi að eftirspurnin vaxi vegna
þess að fólk fari í þessar aðgerðir yngra en
áður og þurfi sumir því að fara í þær tvisvar á
ævinni. Sífellt erfiðara verði fyrir lækna í
Bandaríkjunum að anna eftirspurninni með
núverandi fyrirkomulagi.
Sjúklingar geta valið
Tveir þættir mynda heilsuferðaþjónustu.
Annars vegna læknisþjónusta fyrir útlend-
inga sem veitt er á læknastofum eða sjúkra-
húsum og hins vegar meðferðarþjónusta og
almenn vellíðunarstarfsemi sem veitt er af
ýmsum fyrirtækjum og stofnunum.
Sjúklingar í Evrópu og Bandaríkjunum
sækja ýmsa þjónustu af þessu tagi til annarra
landa, til dæmis í austurhluta Evrópu og As-
íu.
Einstaklingar gera það ýmist fyrir eigin
reikning eða á kostnað trygginga sinna, jafnt
opinberra sem keyptra.
Mikil þróun er á reglum innan Evrópusam-
bandsins sem miðar að því að auka möguleika
fólks til að velja sér þjónustu og sækja
læknisþjónustu til annarra landa. Dæmi um
það eru reglur sem heimila fólki sem lendir á
löngum biðlista að fara í læknisaðgerð til ann-
ars lands. Því fylgir jafnframt að þeir sem
veita þjónustuna þurfa að fullnægja
ákveðnum skilyrðum og geta staðfest það
með vottun.
Starfseminni fylgir ferðaþjónusta. Fólkið
þarf að fara á milli landa og gista og borða og
nýtir svo ýmsa aðra þjónustu sem í boði er.
Hver einstaklingur skilur eftir margfalt meiri
gjaldeyri en hefðbundinn ferðamaður. Svo er
algengt að maki og jafnvel fleiri úr fjölskyld-
unni séu með í för.
Í smáum stíl
Íslendingar hafa tekið lítinn þátt í þessu æv-
intýri en það getur breyst á skömmum tíma,
nái áætlanir fram að ganga.
Dæmi eru um það að læknar, til dæmis
augnlæknar og lýtalæknar, taki á móti er-
lendum sjúklingum á stofum sínum. Land-
spítali – háskólasjúkrahús tekur við vaxandi
fjölda sjúklinga frá Grænlandi og Færeyjum
til aðgerða. Það er að ósk stjórnvalda í þess-
um löndum sem greiða fyrir þjónustuna, þar
sem þægilegra og ódýrara er að sækja hana
hingað en til Danmerkur. Útlit er fyrir að
þessi starfsemi fari fremur vaxandi en hitt.
Bláa lónið byggði upp meðferðarstofnun
fyrir psoriasis-sjúklinga og hefur tekið við
fólki frá um 20 þjóðlöndum í meðferð. Á með-
an krónan var sem sterkust dró mjög úr kom-
um erlendra sjúklinga en Grímur Sæmundsen
segir að aðstæður séu breyttar og nú verði
lögð aukin áhersla á starfsemi Lækninga-
lindar um leið og hugað verði að möguleikum
á meðferð við öðrum sjúkdómum við Bláa lón-
ið.
Fleiri meðferðarstofnanir taka við erlend-
um gestum. Nýjung á því sviði er Detox-
meðferðarstöð Jónínu Benediktsdóttur á
Ásbrú.
Kynning að hefjast
Tvö fyrirtæki eru að undirbúa einkarekin
sjúkrahús hér á landi og tilheyrandi ferða-
þjónustu. Það eru Iceland Health sem fær að-
stöðu á Ásbrú, meðal annars hersjúkrahúsið á
Keflavíkurflugvelli og íbúðarblokkir þar í ná-
grenninu. Hitt fyrirtækið er PrimaCare sem
undirbýr byggingu liðskiptasjúkrahúss ásamt
hóteli í Mosfellsbæ.
Nái þessar áætlanir fram að ganga munu
mörg þúsund manns koma hingað í aðgerðir á
hverju ári, ásamt aðstandendum. Það mun
skapa mörg hundruð störf á hvorum stað fyr-
ir sig, auk afleiddra starfa, og umtalsverð
aukin umsvif í ferðaþjónustu og annarri þjón-
ustu og verslun.
Lestin er að komast af stað því Pure
Health, ferðaþjónustuhluti Iceland Health, er
að hefja kynningu á Íslandi sem áfangastað í
heilbrigðisferðaþjónustu í samvinnu við út-
flutningsráð og sendiráð Íslands. Þetta fyrsta
skref grundvallast á því að íslenskir læknar
og læknastofur geta bætt við sig verkefnum,
til dæmis augnlæknar, lýtalæknar og tann-
læknar. „Við vinnum með læknunum að því
að búa til sameinað afl til að sækja sjúklinga í
þessa þjónustu hér,“ segir Elín María Björns-
dóttir framkvæmdastjóri.
Morgunblaðið/ÞÖK
Heilsubót í öðru landi
Tvö einkarekin liðskiptasjúkrahús í undirbúningi Sjúklingarnir sóttir til útlanda
Sjúkrahúsin skapa mikil umsvif í ferðaþjónustu Kynning á þjónustu íslenskra lækna er að hefjast
Starfsemi orkuskólanna byggist á erlendum nemendum Gróska í útflutningi jarðhitaþekkingar
Sóknarfæri Íslands
Sagt er frá nýsköpunarstarfi í sjöttu og
síðustu fréttaskýringunni í greinaflokki
um sóknarfæri í íslensku atvinnulífi.
Á morgun
Gamla hersjúkrahúsið
verður tekið í notkun
ICELAND Health mun nota gamla her-
sjúkrahúsið á Ásbrú sem kjarnann í starf-
semi sinni. Aðstaðan er í umsjá Þróunar-
félags Keflavíkurflugvallar.
Iceland Health er í eigu Róberts Wess-
mann, Ólafs Más Björnssonar augnlæknis,
Otto Nordhus læknis, Péturs Jónssonar
sjúkraþjálfara og Elínar Maríu Björns-
dóttur framkvæmdastjóra. Eigendurnir
hafa sambönd í Evrópu og Bandaríkjunum.
Þróunarfélagið mun ásamt fleiri fjár-
festum stofna félag um sjúkrahúsið og þær
miklu lagfæringar sem gera þarf á því, og
leigja síðan rekstrarfélaginu. Jafnframt
fær fyrirtækið nokkrar íbúðarblokkir í ná-
grenni spítalans.
Iceland Health óskaði þess í upphafi að
fá afnot af skurðstofum Heilbrigðisstofn-
unar Suðurnesja, til að komast fyrr af stað.
Ekki var áhugi fyrir því hjá yfirvöldum
heilbrigðismála og hefur það seinkað því
að starfsemin hæfist.
PrimaCare byggir
umhverfisvænt
PRIMACARE áformar að byggja frá
grunni liðskiptasjúkrahús ásamt hóteli á
Leirvogstungumelum í Mosfellsbæ.
Sjúkrahúsið verður sérhæft í mjaðma- og
hnjáliðaaðgerðum.
Gunnar Ármannsson, framkvæmdastjóri
PrimaCare, segir unnið að undirbúningi
verkefnisins og kynningar fyrir fagfjár-
festum. Áhersla er lögð á að byggja upp
aðstöðuna með eins umhverfisvænum
hætti og unnt er. Gunnar segir að það sé
talið eftirsóknarvert og hjálpi til við fjár-
mögnun og rekstur.
Kostnaður við uppbygginguna sam-
svarar hátt í 20 milljörðum króna en tekj-
urnar geta einnig orðið miklar, eða 15-20
milljarðar á ári. Þar fyrir utan er önnur
þjónusta sem sjúklingar og aðstandendur
nýta sér í ferð sinni hingað til lands.
Hugmyndin er að sjúklingarnir gisti á
hóteli fyrir og eftir aðgerð, og séu aðeins á
sjúkrahúsinu í tvo til þrjá daga.
1200
þúsund sjúklingar fara til Taí-
lands í læknismeðferð á ári
500
þúsund útlendingar sækja
læknismeðferð til Indlands
1000
þúsund Bandaríkjamenn leita
sér lækninga í öðrum löndum
3600
milljarða króna velta heilbrigð-
isferðaþjónusta í Evrópu
3000
milljóna kr. gjaldeyristekjur
myndu skapast á ári ef hingað
kæmu 400 sjúklingar á mánuði