Morgunblaðið - 29.01.2010, Blaðsíða 20
20 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 2010
FRÉTTASKÝRING
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
BARACK Obama Bandaríkja-
forseti reyndi að vinna vonsvikna
millistéttarmenn aftur á sitt band
í fyrstu stefnuræðu sinni á Banda-
ríkjaþingi í fyrrinótt að íslenskum
tíma. Forsetinn lagði áherslu á
þörfina á atvinnusköpun í ræðunni
eftir að hafa verið gagnrýndur
fyrir að eyða of miklum tíma í
heilbrigðismálin á kostnað efna-
hagsmálanna frá því að hann tók
við forsetaembættinu fyrir ári.
Tveir þriðju stefnuræðunnar voru
helgaðir efnahagsmálum sem
brenna mest á kjósendunum um
þessar mundir.
„Gefumst ekki upp“
Obama hét því þó að halda um-
bótastefnu sinni í samfélagsmálum
til streitu þrátt fyrir minnkandi
fylgi hans og harða andstöðu
repúblikana. „Við gefumst ekki
upp,“ sagði hann. „Við hættum
ekki. Við látum ekki ótta eða
sundrungu draga kjarkinn úr okk-
ur.“
Í ræðunni kom þó fátt fram um
hvernig forsetinn hyggst knýja
fram áform sín um að breyta
sjúkratryggingakerfinu, herða
eftirlit með fjármálafyrirtækjum
og knýja fram lög um aðgerðir til
að stemma stigu við loftslags-
breytingum.
Forsetinn hefur verið sakaður
um að hafa misst sjónar á þeim
málum sem venjulegt fólk vill að
hafi forgang nú þegar atvinnuleys-
ið er um 10%. Hann beindi orðum
sínum einkum til miðstéttarkjós-
enda sem kusu hann í nóvember
2008 en snerust á sveif með repú-
blikönum í ríkisstjórakosningum í
Virginíu í fyrra og í aukakosning-
um um annað sæti Massachusetts
í öldungadeild Bandaríkjaþings í
vikunni sem leið.
Obama kvaðst ekki hafa hætt
við stóru áformin en viðurkenndi
að hægt hefði gengið að koma á
umbótum og stjórn sinni hefðu
orðið á nokkur mistök. Hann
gagnrýndi þó einnig flokkadrætt-
ina á Bandaríkjaþingi og hvatti
þingmenn til að láta af pólitískum
leikjum sem gerðu almenningi
gramt í geði.
Forsetinn gagnrýndi repbúblik-
ana fyrir að nota hvert tækifæri
sem gæfist til að leggja stein í
götu stefnu hans, lýsti þeim sem
flokki sem segði alltaf nei og hafn-
aði hvers konar umbótum.
Obama vandaði einnig um við
demókrata, sem óttast að þeir bíði
mikinn ósigur fyrir repúblikönum
í þingkosningunum í nóvember og
eru því tregir til að styðja mál
sem gætu styggt óflokksbundna
kjósendur. „Ég vil minna demó-
krata á að við erum með mesta
þingmeirihluta í áratugi og fólkið
ætlast til þess af okkur að við
leysum vandamálin, en flýjum
ekki til fjalla,“ sagði hann.
Obama reyndi að nota tækifærið
til að minna kjósendur á hvers
vegna hann var svo vinsæll fyrir
ári þegar fylgi hans mældist 68% í
skoðanakönnunum. Fylgi hans er
nú undir 50% og margir Banda-
ríkjamenn telja áform hans um
breytingar á heilbrigðiskerfinu of
metnaðarfull og grautarleg. Ræð-
an stóð í u.þ.b. 70 mínútur og
Obama talaði aðeins í nokkrar
mínútur um breytingar á heil-
brigðiskerfinu sem var áður for-
gangsmál hans í innanríkismálum.
Hann talaði fimm sinnum lengur
um efnahagsmál.
Forsetinn talaði aðeins í níu
mínútur í lok ræðunnar um stefnu
sína í utanríkismálum, en það er
óvenjulegt og eftirtektarvert í
ljósi þess að Bandaríkin heyja
stríð í tveimur löndum og landinu
er enn talin stafa mikil hætta af
hryðjuverkastarfsemi.
Obama breytir áherslunum
Reuters
Gegn atvinnuleysi Barack Obama Bandaríkjaforseti flytur stefnuræðu sína í þinghúsinu í Washington. Hann lagði áherslu á að hann hygðist gera ráðstaf-
anir til að fjölga störfum í landinu, meðal annars með auknum útflutningi, opinberum framkvæmdum og auknum stuðningi við smáfyrirtæki.
Bandaríkjaforseti lagði mesta áherslu á þörfina á atvinnusköpun en breytingar á heilbrigðiskerfinu
höfðu minna vægi í stefnuræðu hans Reyndi að vinna vonsvikið miðstéttarfólk á sitt band að nýju
Í HNOTSKURN
» Barack Obama kvaðststefna að því að útflutn-
ingur Bandaríkjanna tvöfald-
aðist á fimm árum.
» Forsetinn sagðist stefnaað því að störfum yrði
fjölgað um 1,5 milljónir á
árinu, m.a. með opinberum
framkvæmdum.
» Hann boðaði einnig auk-inn stuðning við smáfyrir-
tæki til að gera þeim kleift að
ráða nýja starfsmenn.
Barack Obama stokkaði upp í
pólitískum spilastokk sínum í
stefnuræðu sinni á Bandaríkja-
þingi og lagði áherslu á atvinnu-
málin frekar en breytingar á
heilbrigðiskerfinu.
Bob McDonnell, ríkisstjóri Virgin-
íu, gagnrýndi efnahagsstefnu Bar-
acks Obama í svarræðu fyrir repú-
blikana og sagði að forsetinn hefði
ekki gert nóg til að stemma stigu
við vaxandi fjárlagahalla.
Obama lofaði í stefnuræðu sinni
að útgjöld til ákveðinna mála-
flokka yrðu ekki hækkuð á þremur
árum, frá og með næsta ári, en
McDonnell sagði að loforðið væri
aðeins „lítið skref í rétta átt“.
„Það stefnir í að skuldirnar tvö-
faldist á fimm árum og þrefaldist á
tíu árum,“ sagði McDonnell.
„Skuldir alríkisins nema nú þegar
100.000 dollurum [12,8 milljónum
króna] á hverja fjölskyldu. Þetta er
einfaldlega óviðráðanlegt.“
Loforðið hefur einnig mætt and-
stöðu meðal demókrata sem telja
að forsetinn hafi gengið of langt í
því að takmarka útgjöldin.
Nokkrir bandarískir stjórnmála-
skýrendur sögðu að forsetinn
kynni að hafa styrkt stöðu sína
með stefnuræðunni en sá ávinn-
ingur yrði aðeins skammvinnur ef
hann fylgdi ekki ræðunni eftir með
aðgerðum.
Aðstoðarmaður Obama viður-
kenndi að ekkert benti til þess að
repúblikanar léðu máls á mála-
miðlunum í deilunum við stjórnina,
einkum í ljósi þess að hörð and-
staða þeirra á þinginu hefði aukið
sigurlíkur þeirra í þingkosningum í
nóvember.
Repúblikanar gagnrýna skuldasöfnunina
Signý Kolbeinsdóttir hönnuður
50 ilmandi matseðlar.
UMHVERFISVOTTUÐ
PRENTSMIÐJA
Oddi – umhverfisvottuð prentsmiðja. Höfðabakka3-7. 110Reykjavík. Sími5155000. www.oddi.is
Oddi fyrir þig,
þegar hentar,
eins og þér
hentar.
Prentun
frá A til Ö.
Ómar Stefánsson kokkur
20 mismunandi bækur
sem dæma þarf af kápunni.