Morgunblaðið - 29.01.2010, Blaðsíða 21
Fréttir 21ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 2010
DÓMSTÓLL í
París sýknaði í
gær Dominique
de Villepin, fyrr-
verandi forsætis-
ráðherra Frakk-
lands, af ákæru
um rógsherferð
til að koma í veg
fyrir að Nicolas
Sarkozy yrði
kjörinn forseti
Frakklands. Dómstóllinn sagði að
engar forsendur væru fyrir því að
sakfella Villepin fyrir að hafa borið
út óhróður um Sarkozy árið 2004.
Þeir Villepin og Sarkosy stefndu þá
báðir að því að taka við forsetaemb-
ættinu af Jacques Chirac.
Villepin sýkn-
aður af ákæru
um rógburð
Dominique de
Villepin
RÍKI heims lof-
uðu í gær að
veita stjórn Ham-
ids Karzai, for-
seta Afganistans,
aðstoð að and-
virði 140 millj-
ónir dollara, nær
18 milljarða
króna, á fyrsta
ári áætlunar um
samstarf við hófsama talibana. Á
ráðstefnu 70 landa í London var
einnig samþykkt áætlun um að Afg-
anar tækju við stjórn öryggismála í
nokkrum héruðum Afganistans fyr-
ir lok ársins og í öllu landinu innan
fimm ára.
Lofa aðstoð við
stjórn Afganistans
Hamid Karzai
RÍKISSTJÓRN
Danmerkur
kvaðst í gær ekki
ætla að leggja til
algert bann við
því að konur not-
uðu íslamskar
andlitsblæjur
opinberlega.
Stjórnin boðaði
hins vegar laga-
frumvarp sem heimilar skólum,
opinberum stofnunum og fyrir-
tækjum í Danmörku að banna eða
takmarka íslamskan fatnað á borð
við búrku eða niqab.
Stjórnin hyggst einnig leggja til
bann við því að neyða konur til að
klæðast búrku eða niqab.
Boðar takmarkað
bann við búrkum
Kona í niqab
FORSÆTISRÁÐHERRA Haítís,
Jean-Max Bellerive, sagði í gær að
sala á börnum og líffærum úr látnu
fólki væri á meðal helstu vandamála
landsins.
Bellerive sagði í viðtali við CNN-
sjónvarpið að vitað væri að ólögleg
sala á líffærum úr látnu fólki, meðal
annars börnum, viðgengist eftir
jarðskjálftann mikla sem reið yfir
Haítí 12. þessa mánaðar.
Forsætisráðherrann sagði að yfir-
völd á Haítí væru að reyna að finna
og skrá börn, sem misstu heimili sitt
í hamförunum, til að hægt yrði að
koma þeim til fjölskyldna sinna eða
sjá til þess að þau yrðu ættleidd með
löglegum hætti. „Sala á börnum er
eitt af helstu vandamálum okkar,“
sagði Bellerive.
Ráðherrann sagði að margir
þeirra, sem kæmu til Haítís til að
finna munaðarlaus börn til ættleið-
ingar, störfuðu með löglegum hætti.
Aðrir tækju börn af götunum og
hygðust fara strax með þau til
Bandaríkjanna.
Bellerive kvaðst hafa leitað eftir
samstarfi við sendiráð í Port-au-
Prince til að vernda börnin. Banda-
ríska utanríkisráðuneytið kvaðst
einnig vilja sjá til þess að aðeins
munaðarlaus börn yrðu tekin til ætt-
leiðingar í Bandaríkjunum, ekki
börn sem ættu foreldra á lífi.
Nær 170.000 lík hafa fundist
Rene Preval, forseti Haítís, sagði í
gær að nær 170.000 lík hefðu fundist
á hamfarasvæðinu, en áður hafði
verið áætlað að um 150.000 manns
hefðu farist.
Björgunarsveitir hafa bjargað um
135 manns úr rústunum, þeirra á
meðal sextán ára stúlku sem fannst í
rústum húss í Port-au-Prince, fimm-
tán dögum eftir jarðskjálftann. Hún
var orðin svo veikburða að hún gat
varla talað, að sögn björgunar-
manna. bogi@mbl.is
Reynt að hindra sölu á börnum
Reuters
Björgun Franskir björgunarmenn bera stúlku sem bjargað var í Port-au-Prince 15 dögum eftir skjálftann.
Sala á börnum og líffærum sögð eitt af
helstu vandamálunum á Haítí
Chevrolet gæði - frábært verð