Morgunblaðið - 29.01.2010, Blaðsíða 27
Minningar 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 2010
V i n n i n g u r
Kr. 7.000 Kr. 14.000 (tvöfaldur)
123 6209 14021 21738 31085 39613 47417 55747 64258 72136
167 6390 14280 21920 31334 39624 48103 55970 64345 72301
325 6440 14417 22454 31502 39656 48261 56526 64691 72380
841 6709 14751 22880 32269 40285 48339 56561 64741 72870
999 6925 14885 23017 32431 40335 48519 57391 64838 72908
1057 7261 14903 23038 32469 40591 49297 57513 64900 73308
1200 7437 15037 23766 32475 40702 49328 58060 64915 73589
1548 7480 15219 23868 32550 40831 49860 58320 65100 73687
1691 7516 15277 24254 32842 41007 50022 58547 65787 73820
1764 7651 15311 24292 32936 41297 50152 58936 66063 73848
1804 7768 15445 24343 32977 41427 50323 59219 66112 73865
1892 7872 15552 24939 33042 41626 50529 59249 66166 74190
2088 8033 15571 25164 33586 41700 50617 59315 66363 74270
2175 8436 15807 25407 33607 41762 50792 59350 66554 74282
2687 8675 15825 26097 33692 41766 50888 59781 66709 74436
2861 8866 16396 26671 33751 41983 50955 59888 67294 74516
2869 9536 16414 27182 33894 42010 50959 59913 67569 74596
2982 9564 16618 27299 33936 42082 51016 60092 67715 74749
3008 9701 16652 27349 33957 42112 51213 60158 67880 75106
3267 9719 17107 27472 34279 42331 51331 60187 68157 75184
3480 9816 17508 27574 34316 42372 51494 60806 68249 75210
3584 9930 17646 27897 34350 42608 51665 60807 68252 75293
3839 10267 17669 28031 34466 42666 51804 61045 68851 75778
3975 10610 18232 28049 34605 42775 51917 61464 69041 75876
4013 11320 18270 28061 34749 42999 52114 61618 69147 76002
4345 11618 18520 28156 34835 43680 52254 61687 69220 76397
4366 11771 18597 28508 34942 43842 52426 61788 69414 76600
4434 11812 18610 28656 35183 44726 52469 61841 69422 77395
4651 12090 18778 28797 35222 45083 52698 62022 69456 77614
5273 12095 18909 29109 35303 45433 53074 62117 69492 77652
5310 12165 19777 29379 35770 45460 53254 62262 69560 77669
5395 12316 19924 29906 35861 45496 54250 62750 69916 77819
5526 12492 20193 30208 36453 45519 54278 62906 70004 77825
5664 12563 20594 30293 36782 45704 54605 63095 70052 77970
5669 12822 20989 30350 36944 46410 54652 63248 70679 78264
5704 12927 21203 30431 37430 46591 55097 63289 70969 78609
5846 13267 21209 30675 37957 47155 55169 63322 71029 78801
5941 13739 21210 30697 38268 47162 55326 63489 71198 79241
6069 13942 21497 30882 38934 47183 55435 64131 71622 79357
6127 14017 21616 30926 39556 47358 55524 64228 71758 79592
Næstu útdrættir fara fram 4. feb, 11. feb, 18. feb & 25. feb 2010
Heimasíða á Interneti: www.das.is
V i n n i n g a s k r á
39. útdráttur 28. janúar 2010
A ð a l v i n n i n g u r
Kr. 2.000.000 kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
7 7 1 1 3
V i n n i n g u r
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
8 5 2 9 3 5 9 9 5 4 7 4 8 7 6 6 3 2 2
V i n n i n g u r
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
422 28653 40958 49750 60333 77233
25774 28781 46180 51245 66337 77311
V i n n i n g u r
Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur)
5 5 0 5 3 5 1 2 0 0 8 9 2 9 0 7 4 3 6 0 8 5 4 4 5 7 4 5 5 1 1 0 6 9 0 5 2
9 9 6 6 6 5 5 2 0 2 8 1 2 9 8 1 3 3 6 1 6 4 4 4 7 4 7 5 5 1 1 9 6 9 3 1 8
1 0 6 4 9 7 6 2 2 0 3 1 5 3 0 5 0 4 3 6 9 0 6 4 5 7 1 8 5 5 4 8 1 7 0 4 7 2
1 3 1 3 1 1 8 5 7 2 0 5 4 8 3 0 8 5 0 3 6 9 5 5 4 6 1 8 6 5 8 7 6 7 7 0 7 0 4
1 4 8 1 1 2 2 3 6 2 1 3 5 5 3 1 0 6 1 3 7 5 3 4 4 6 4 3 1 5 8 9 8 2 7 6 3 7 7
1 7 2 8 1 6 0 6 5 2 1 4 7 4 3 1 2 5 0 3 9 3 5 1 4 7 7 0 1 6 4 2 2 1 7 7 0 3 4
2 5 0 2 1 6 6 5 8 2 2 9 3 3 3 2 6 8 8 4 0 7 4 2 4 7 9 0 5 6 4 3 9 8 7 7 0 5 4
2 8 9 4 1 6 7 0 9 2 2 9 8 8 3 2 7 0 7 4 2 0 0 1 4 9 7 9 3 6 5 0 0 4 7 7 5 9 3
3 7 7 5 1 6 8 5 8 2 3 1 0 9 3 2 8 2 5 4 2 2 7 0 5 0 7 8 9 6 5 4 2 1 7 8 1 0 8
3 8 1 3 1 7 0 6 9 2 5 4 4 0 3 4 0 7 1 4 2 9 2 1 5 1 3 0 6 6 6 7 7 9
4 1 0 5 1 7 2 2 3 2 6 3 5 7 3 4 1 3 8 4 3 2 8 6 5 1 7 1 1 6 6 8 8 5
4 7 9 7 1 7 9 4 3 2 7 9 6 0 3 5 2 6 0 4 3 9 1 9 5 4 1 7 5 6 8 2 0 0
4 8 7 7 1 9 0 6 3 2 8 1 0 9 3 5 5 3 3 4 4 0 6 1 5 4 7 7 0 6 8 7 3 5
✝ Jarþrúður GrétaJónsdóttir fæddist
í Eyvík á Grímsstaða-
holti 12. janúar 1925.
Hún lést hinn 20. jan-
úar sl. á Dvalarheimili
aldraðra í Borgarnesi.
Foreldrar hennar
voru Jón Kristmunds-
son, f. 10.4. 1886, d.
1.12. 1952, og Magnea
Tómasdóttir, f. 2.6.
1889, d. 31.8. 1974,
hjón í Eyvík á Gríms-
staðaholti. Systkini
hennar eru Krist-
mundur, f. 1920, d. 1997, Gunnar
Tómas, f. 1921, d. 1995, Halldóra, f.
1922, Auður, f. 1926, og Inga Hall-
veig, f. 1928.
Hinn 20.7. 1946 giftist Jarþrúður
Jakobi Jónssyni bónda á Varmalæk.
Foreldrar hans voru Jón Jakobsson,
f. 1888, d. 1971, og Kristín Jónatans-
dóttir, f. 1883, d. 1967. Börn Jar-
þrúðar og Jakobs eru 1) Guðný
Birna, f. 14.6. 1946, gift Halldóri
Ósk Ásmundsdóttir, f. 11.2. 1961,
synir þeirra eru a) Jóhann Kristinn,
f. 20.9. 1986. b) Ásmundur Svavar, f.
12.6. 1988. c) Jakob Grétar, f. 17.2.
1994. 6) Magnea Kristín, f. 13.11.
1964, gift Ragnari Andréssyni, f. 2.6.
1961, dóttir Magneu og Boga Þ.
Friðrikssonar er Gréta, f. 4.11. 1990.
Jarþrúður ólst upp í foreldra-
húsum í Eyvík í glaðværum systk-
inahópi. Eftir hefðbundna skóla-
göngu fór hún í Húsmæðraskóla
Reykjavíkur. Ung að árum fór hún
til kaupamennsku að Varmalæk í
Borgarfirði sem varð hennar heimili
upp frá því. Ævistarf Jarþrúðar var
því húsmóðurstarf á fjölmennu
sveitaheimi með miklum gestagangi
og mikilli reisn frá árinu 1946 til
2002. Jafnframt því var hún um ára-
bil stöðvarstjóri símstöðvarinnar á
Varmalæk. Jarþrúður átti við nokk-
urn heilsubrest að stríða sem aftraði
henni þó ekki frá því að koma barna-
hópi til manns og rækja sínar skyld-
ur. Hennar fólk minnist hennar nú í
djúpri lotningu og þökk.
Aðstandendur Jarþrúðar þakka
gott atlæti á Dvalarheimili aldraðra í
Borgarnesi en þar dvaldi hún síðustu
æviárin.
Útför Jarþrúðar verður gerð frá
Borgarneskirkju í dag, föstudaginn
29. janúar, og hefst athöfnin kl. 14.
Bjarnasyni, f. 5.8. 1945.
Börn þeirra a) Herdís, f.
10.10. 1971, gift Jóni
Þór Friðgeirssyni,
þeirra börn Guðný Dís,
Einar Ágúst og Elísa. b)
Þórður, f. 10.10. 1971,
sambýliskona Kristín
Erla Kristjánsdóttir. c)
Grétar Björn, f. 20.10.
1978. 2) Jón, f. 28.4.
1947, kvæntur Kristínu
Guðbrandsdóttur, f.
14.2. 1951, sonur þeirra
Jón Óskar, f. 18.2. 1981,
sambýliskona Anna
Leoniak. 3) Helga, f. 8.9. 1950, gift
Hallgeiri Pálmasyni, f. 28.8. 1953,
börn þeirra a) Jakob, f. 24.4. 1975,
sambýliskona Sandra Zarif. Sonur
þeirra Ísak Geir. b) Berglind Þóra, f.
15.3. 1979, sambýlismaður Gústav Ax-
el Gunnlaugsson. Sonur Berglindar
og Guðlaugs Rafnssonar er Alex
Rafn. 4) Drengur óskírður, f. 29.7.
1955, d. 29.11. 1955. 5) Sigurður, f.
9.12. 1959, sambýliskona Heiðbjört
Allt hefur sitt upphaf og endi. Ekk-
ert í þessu lífi er víst og öruggt nema
dauðinn.
Að Jöru tengdamóður minni geng-
inni leitar margt á hugann. Hvernig
var til dæmis fyrir tvítuga Reykjavík-
urmær að gerast húsmóðir á borg-
firsku sveitaheimili laust fyrir miðja
síðustu öld?
Á Varmalæk í Bæjarsveit hafði stað-
ið búskapur með miklum blóma um
langt skeið. Þar hafði búið Herdís Sig-
urðardóttir frá Efstabæ með sonum
sínum, tvíburunum Jóni og Sigurði.
Herdís missti mann sinn, Jakob Jóns-
son frá Deildartungu, árið 1913 og stóð
hún fyrir búi á Varmalæk allt til 1946
er Jakob sonarsonur hennar og hans
unga kona Jara taka við búi. Á Varma-
læk var því margt í heimili á þessum
tíma. Sannkölluð stórfjölskylda. Sem
dæmi er að bæði Herdís og Kristín
tengdadóttir hennar og tengdamóðir
Jöru voru á heimilinu þegar Jara
gengur þar í bú. Tvítugar stúlkur nú til
dags geta spurt sig hvort ekki væri
nokkur vandi á höndum að taka við
búsforráðum við slíkar aðstæður. Allt
bundið gömlum venjum og siðum og
ekki sagt nokkrum til lasts þótt erfitt
sé að láta ráðin í annarra hendur. Allt
þetta leysti Jara með miklum sóma
með sinni einstöku lund og góða skapi.
Búskapur Jakobs og Jöru stóð með
miklum myndarskap frá árinu 1946
allt til 2002 en nokkru fyrr hafði Sig-
urður sonur þeirra og kona hans geng-
ið í bú með þeim.
Varmalækur er í alfaraleið og þar
hefur löngum verið mikill gestagang-
ur. Á sumrin komu ættingjar í heim-
sókn og þá var ekki stoppað smá dag-
stund. Oftast verið einhverja daga. Þá
voru samgöngur með öðrum hætti en
nú. Það var því ekki lítið sem reyndi á
húsfreyjuna á Varmalæk á þessum
tíma.
Jara átti löngum við nokkra fötlun
að stríða. Hún hafði fæðst með galla í
mjöðm sem tók að hrjá hana er líða tók
á ævina. Fór hún í erfiðar aðgerðir
sem ekki tókust alltaf sem skyldi enda
tækni lakari þá en nú. Um tíma var
hún nánast óvinnufær af þessum sök-
um, en fékk seinna góða bót með til-
komu bættrar tækni og læknavísind-
um. Hlutskipti Jöru var því ekki alltaf
auðvelt en allt bjargaðist fyrir hennar
einstaka lundarfar.
Að leiðarlokum leita myndir á hug-
ann. Alltaf var sérstakt að koma til
Jakobs og Jöru. Fyrst í eldra húsið
sem Jakob byggði í upphafi búskapar
þeirra Jöru og seinna í húsið sem hann
byggði til að rýma fyrir næstu kynslóð.
Þarna var góður andi og notalegheit
sem húsfreyjan átti ekki minnstan þátt
í að skapa.
Að lokum vil ég þakka Jöru fyrir
rúmlega fjörutíu ára samfylgd og bið
henni guðs blessunar.
Halldór Bjarnason.
Í dag fylgjum við til grafar elsku-
legri ömmu okkar. Amma var merki-
leg kona og sérstök. Ef það væri ein-
hver sem ekki þekkti skilgreininguna
á góðri manneskju þá lægi beinast við
að segja: amma, hún amma var sú
manneskja, svo þyrfti ekki að segja
neitt meir. Hún skildi við okkur í friði
með hugann fullan af góðum minning-
um. Hún lifði sínu lífi fyrst fyrir aðra
og síðast fyrir sig, og það gerði hún af
æðruleysi og einlægni. „Æ, ég veit
ekki hvort ég á neitt handa ykkur,“
sagði hún alltaf og svo hvarf hún inn í
búr í mínútu eða tvær og tíndi til sort
eftir sort, sem auðvitað voru ekki nógu
góðar eða margar að hennar mati og
„ósköp lítið“, en alltaf veisla fyrir okk-
ur.
Við munum eftir henni í sveitinni,
það var stór partur af lífi okkar í upp-
vextinum að fara í sveitina til ömmu og
afa og mikil gæfa að fá að njóta svo
sterkra tengsla við sveitina með öllu
því sem hún hefur upp á að bjóða. Og
alltaf var hún að. Amma að baka,
steikja klatta og flatkökur, á fjórum
fótum í garðinum að reyta arfa, að
dást að og hlúa að blómunum, að
hugsa um litlu móðurlausu lömbin og
fleira og fleira; og svo er hún höfundur
að hinu víðfræga malakoffsalati.
Minningar, minningar … Það eina
sem hver að lokum skilur eftir sig þeg-
ar hann endanlega fer eru minningar í
huga þeirra sem eftir lifa. Hvort sem
veröldin er myrk og vonlaus eða sólrík
og blíð verður það ekki metið til
neinna mælikvarða að hafa kynnst
manneskju sem var sjálf hlýjan og
kærleikurinn holdi klædd. Manneskju
sem skilur eftir sig minningar um sig
og það sem hún í látleysi sínu stóð fyr-
ir með því einfaldlega að hafa verið
hún sjálf alla tíð, með verkum sínum,
nálægð og hlýju. Minningin um slíka
manneskju er skjólið fyrir öllu von-
leysi. Slík minning hverfur manni ekki
og verður aldrei frá manni tekin. Slík
minning er það dýrmætasta sem
nokkur getur eftir sig látið og nokkur
frá öðrum fengið. Af slíkum mann-
eskjum lærir maður, lærir það sem er
þess vert. Einmitt þannig manneskja
var amma og hún skilur eftir sig nóg af
minningum fyrir okkur til að hlýja sér
við í framtíðinni. Megi hún hvíla í friði
og minning hennar lifa áfram.
Ég fell að fótum þínum
og faðma lífsins tré.
Með innri augum mínum
ég undur mikil sé.
Þú stýrir vorsins veldi
og verndar hverja rós.
Frá þínum ástareldi
fá allir heimar ljós.
(D. Stefánsson frá Fagraskógi)
Með djúpu þakklæti fyrir kynnin,
hlýjuna og vináttuna, sem þó ekki
hverfa þótt þú sért farin.
Þórður, Herdís og Grétar Björn.
„Stelpur mínar, klukkan er orðin
átta og það er nóg að gera í dag. Það
þarf að fara í þvottahúsið og þvo þvott-
inn og ein ykkar þarf að fara út að
snúa og svo þarf að baka í dag.“ Já,
störfin kölluðu og Jara kom í dyrnar
og vakti okkur stelpurnar sem sváfum
í stelpnaherberginu og höfðum
kannski verið að spjalla saman eitt-
hvað fram eftir og vorum ekki alveg
vaknaðar. Hún hafði þýða og milda
rödd og það var gott að vakna við
þessa rödd. Verkum dagsins var skipt
milli okkar þarna í morgunsárið og við
vöknuðum til hinna ýmsu verkefna
sem biðu.
Ég var svo lánsöm að fá að vera í
sveitinni á sumrin hjá frændfólkinu á
Varmalæk, mér leið alltaf vel í sveit-
inni og fannst gaman að fá að vera
þátttakandi í þessum venjulegu
sveitastörfum. Þar lærði ég að vinna
hin ýmsu störf sem kom í góðar þarfir
þegar ég fór sjálf að búa í sveitinni.
Jara móðursystir mín hafði ung far-
ið sem kaupakona í Borgarfjörðinn og
kom ekki mikið heim eftir það því þar
kynntist hún Jakobi og þau hófu bú-
skap árið 1946. Börnin fæddust hvert
af öðru, sex talsins. Það var margt
heimilisfólk á sveitabæjum á þessum
tíma og ekki voru nútímaþægindi til að
létta störfin. Jara glímdi líka við fötlun
frá fæðingu sem gerði það að verkum
að hún gat ekki gengið í öll störf. Hún
var afskaplega samviskusöm og stýrði
heimilinu af miklum myndarskap.
Hún hafði yndi af allskonar handa-
vinnu og til eru margir hlutir sem hún
bjó til, ýmist heklaðir, saumaðir eða
prjónaðir. Svo var hún líka flink að
mála og búa til ýmsa skemmtilega
hluti úr því sem til féll. Jara hafði líka
fengið í vöggugjöf léttleika og hún sá
oft spaugilegu hliðarnar á tilverunni.
Gestagangur var mikill á Varmalæk
og varla leið sá dagur að ekki kæmu
gestir. Það kom í hlut húsmóðurinnar
að hafa til kaffi og bakkelsi, því enginn
skyldi koma á hlaðið án þess að þiggja
veitingar.
Síðustu árin dvaldi Jara á Dvalar-
heimili aldraðra í Borgarnesi. Þar var
vel hugsað um hana og þar leið henni
vel. Daginn áður en Jara kvaddi þetta
jarðlíf kom ég til hennar og hún fann
að mér var kalt á höndunum. Hún vildi
hlýja mér og það voru okkar síðustu
fundir, svo dæmigerðir fyrir hana, því
hún hugsaði ávallt um það hvernig
aðrir hefðu það og hvernig hún gæti
bætt líðan okkar hinna.
Sárt er vinar að sakna.
Sorgin er djúp og hljóð.
Minningar mætar vakna.
Margar úr gleymsku rakna.
Svo var þín samfylgd góð.
Daprast hugur og hjarta.
Húmskuggi féll á brá.
Lifir þó ljósið bjarta,
lýsir upp myrkrið svarta.
Vinur þó félli frá.
Góða minning að geyma
gefur syrgjendum fró.
Til þín munu þakkir streyma.
Þér munum við ei gleyma.
Sofðu í sælli ró.
(Höf. ók.)
Ég þakka Jöru fyrir samfylgdina.
Magnea Kristleifsdóttir.
Jarþrúður Gréta
Jónsdóttir
Minningar á mbl.is
Guðbjörn Jósíasson
Höfundur: Kolbrún.
Hjördís Áskelsdóttir
Höfundar: Elín Kjartansdóttir.
Jónas Halldór Friðriksson.
Edda Hrafnsdóttir.
Halla Sif, Stefán og Elma.
Sigríður Emilía Bjarnadóttir
Jarþrúður Gréta
Jónsdóttir
Höfundar: Helga.
Berglind Þóra.
Jónas Helgi
Ólafsson
Höfundar: Öddi, Jón Tryggvi
og Stjáni.
Kristinn Ólafsson
Höfundar: Guðbjartur Á. Ólafs-
son og systkini frá Kollsvík.
Hilmar Össurarson og fjölskylda
fá Kollsvík.
Kristrún
Guðjónsdóttir
Höfundur: Gróa Halldórsdóttir.
Meira: mbl.is/minningar