Morgunblaðið - 29.01.2010, Page 35
stutt eða til lengri tíma. Þú varst allt-
af mikill þátttakandi á heimilinu,
sama hvort þú varst að lesa fyrir
okkur, gefa okkur að borða eða
klæða okkur. Þú varst alltaf til staðar
og það breyttist aldrei, sama þó að
aldurinn færðist yfir mann, alltaf var
pabbi að redda einhverju. Persónu-
leiki þinn var svo sterkur og góður og
ekki má gleyma húmornum eða frá-
sagnargleðinni. Þetta skilur eftir
minningar og þrár til að hafa þig enn
hjá okkur.
Þegar ég hugsa til baka um ferða-
lögin á sumrin og allar skautaferð-
irnar, þar sem við skemmtum okkur
vel og þú kenndir mér ýmsar æfing-
ar, skíðaferðir sem öll fjölskyldan fór
saman í, en sá tími var stórkostlegur.
Öll fjölskyldan elskaði þær ferðir
enda ríkti oft mikil gleði á okkar
heimili í gegnum tíðina.
Elsku pabbi minn, þú varst alveg
einstakur maður, hvíl þú í friði.
þín elskandi dóttir,
Sigurborg.
Elsku pabbi, nú þegar leiðir skilur
um sinn er ég afar þakklátur fyrir að
hafa átt þig að og að hafa kynnst
þeim mannkostum sem þú hafðir til
að bera. Hjartahlýr, hreinskiptinn og
ljúfur í umgengni við alla í kringum
þig. Þú varst kærleiksríkur faðir,
eiginmaður og afi sem naut sín svo
vel í faðmi fjölskyldunnar. Uppeldis-
árin á Tunguvegi voru yndisleg. Þú,
pabbi, þessi afreksmaður í frjálsum
íþróttum sem flestir þekktu, en samt
algerlega laus við hégóma og stæri-
læti. Þú miklaðir ekki afrek þín og
þegar fólk færði þau í tal við þig
dróst þú jafnan úr og endaðir mál
þitt á þann veg að þú hefðir svo sem
verið alveg skítsæmilegur.
Hæst bar afrek þitt í Brussel á
Evrópumeistaramótinu þar sem þú
náðir 4. sæti í 400 m hlaupi, auk þátt-
töku á Ólympíuleikum, svo allir sigr-
arnir hér heima á Íslandi. Íslands-
met þitt í 400 m hlaupi var 48,0 sek.
og stóðst það met öll áhlaup í 21 ár.
Ég átti mér þann draum að feta í fót-
spor þín og verða íþróttamaður eins
og þú. Þegar hugur minn hneigðist
til fótboltans, vantaði ekki stuðning-
inn frá ykkur mömmu. Þið hvöttuð
mig áfram og sýnduð því nánast
endalausan skilning þegar ég eyddi
meiri tíma í boltann en bækurnar.
Svo þegar ég 14 ára gamall ætlaði að
verða atvinnumaður í fótbolta, sem
var fjarlægur draumur á þessum
tíma, leyfðuð þið mér að eiga þann
draum og létuð mig aldrei finna að
þarna væri barnaskapur og vitleysa
á ferðinni. Þú gafst mér góð ráð en
varst einnig gagnrýninn þegar þér
fannst þörf á. Svo voru ótaldar auka-
æfingarnar sem þú tókst mig á til að
bæta hraðann. Þú vissir það, þó að þú
værir ekki sérfróður um fótbolta, að
enginn næði árangri í þeirri íþrótt,
nema saman færi spretthraði og
knattleikni.
Þú varst glaðlyndur og hafðir
gaman af tvíræðum bröndurum. Þú
varst gæddur góðri frásagnargáfu.
Þær voru margar eftirminnilegar
sögurnar frá keppnisferðalögum. Þú
varst mikill ljóðaunnandi og fórst
með heilu ljóðabálkana hnökralaust.
Þar skiptust á ljóð eftir þitt uppá-
haldsljóðskáld Davíð Stefánsson, og
ljóð með aðeins minna listrænu gildi.
Síðustu árin, þegar skammtíma-
minnið var farið að gefa eftir, mæltir
þú oft í bundnu máli og var með
hreinum ólíkindum að hlusta á þig
fara með hin margslungnustu kvæði.
Þar var minni þínu í engu ábótavant.
Þú varst einstaklega verklaginn
og hjálpsamur og ég gat alltaf leitað
til þín, hvort sem var um að ræða
bílaviðgerðir eða viðhald heimilisins.
Börnin mín, þau Linda Björk og
Guðmundur Ragnar, voru þér svo
náin. Í þeim sé ég líka part af þér,
Linda Björk keppir í frjálsum og
Mummi hefur verklagið þitt og áhug-
ann á bílum og bílaviðgerðum. Í
heilsubresti þínum, sem setti mark
sitt svo rækilega á þig síðustu tvö ár,
ekki hvað síst eftir að þú varðst
bundinn við hjólastól vegna lærbrots
árið 2009, var þáttur mömmu svo
óendanlega stór. Hún var vakin og
sofin yfir velferð þinn og fyrir hennar
umhyggju og umönnun auðnaðist þér
að dvelja heima lengur en annars
hefði orðið.
Hvíl í friði, kæri pabbi og vinur.
Lárus.
Mig langar í fáum orðum að minn-
ast tengdaföður míns Guðmundar er
lést að kvöldi 14. janúar á hjúkrunar-
heimilinu Skógarbæ.
Ég kynntist Guðmundi í lok árs
1979 þegar ég fór að venja komur
mínar á Tunguveginn. Mér varð fljótt
ljóst hve ljúfur og góður maður hann
var og ég fann strax að ég var vel-
komin.
Guðmundur og Sunna tóku mér
eins og sinni eigin dóttur. Ég held að
ég hafi aldrei kynnst jafn greiðvikn-
um manni, hann sagði alltaf já ég
kem, þegar ég hringdi og bað um ein-
hverja aðstoð hvort sem það var í
formi viðgerða, að sækja afabörnin
eða passa þau.
Þegar við Lárus bjuggum í Belgíu
og Þýskalandi fengum við þau Guð-
mund og Sunnu oft í heimsókn. Guð-
mundur var einstaklega handlaginn
og gat gert við allt, þannig að hlut-
irnir voru hreinlega látnir sitja á hak-
anum þangað til hann kom í heimsókn
því yngsti sonur hans hafði fengið allt
í fæturna og gat varla skrúfað eina
skrúfu á þessum árum, enda snerist
allt um fótbolta hjá honum.
Fyrir utan það að hafa verið mikill
afreksmaður í frjálsum íþróttum var
Guðmundur líka mikill skíðamaður og
var hann duglegur að renna niður
brekkurnar með Lindu og Mumma
og kenna þeim tæknina.
Elsku Guðmundur, ég á ótal
skemmtilegar minningar um þig sem
ég geymi. Alltaf var stutt í grínið hjá
þér og ég held bara svei mér þá að
það hafi verið það síðasta sem yfirgaf
þig.
Ég veit að þér líður vel núna og vil
ég þakka þér fyrir samveruna og alla
aðstoðina í gegnum tíðina.
Þín tengdadóttir,
Ásgerður.
Minningar 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 2010
Raðauglýsingar 569 1100
Fundir/Mannfagnaðir
Sjálfstæðisfélag Kópavogs
Fundur
Jón Gunnarsson alþingismaður boðar til
fundar um stjórnmálaviðhorfið í félagsheimili
Sjálfstæðismanna að Hlíðarsmára 19 í
Kópavogi. Fundurinn hefst kl. 10 laugardaginn
30. janúar. Allir velkomnir.
Sjálfstæðisfélagið í Kópavogi,
Stöndum saman.
Sjálfstæðisfélagið
Njarðvíkingur
Aðalfundur
Sjálfstæðisfélagið Njarðvíkingur boðar til
aðalfundar fimmtudaginn 4. febrúar kl. 20:00 í
Sjálfstæðishúsinu að Hólagötu 15, Njarðvík.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Gestur fundarins: Árni Sigfússon bæjarstjóri.
3. Önnur mál.
Stjórnin.
Nauðungarsala
Uppboð
Uppboð munu byrja þriðjudaginn 2. febrúar 2010 kl. 10:00
á skrifstofu embættisins að Hnjúkabyggð 33, Blönduósi,
sem hér segir á eftirfarandi eignum:
Krókssel (fnr. 145860), Skagabyggð, þingl. eig. Árni Sigurjón
Sveinbjörnsson, gerðarbeiðandi Krákur ehf.
Eyrarland (fnr. 224-9744), Húnaþingi vestra, þingl. eig. Breidd ehf.,
gerðarbeiðandi Byggðastofnun.
Brekkugata 9 (fnr. 213-3804), Hvammstanga, þingl. eig. Reynir Ingi
Guðmundsson og Jóhanna Erla Jóhannsdóttir, gerðarbeiðandi
Íbúðalánasjóður og Vélaverkstæði Hjartar Eiríkssonar ehf.
Sýslumaðurinn á Blönduósi,
28. janúar 2010.
Bjarni Stefánsson, sýslumaður.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Fagrasíða 5B, eignarhl. íb.16-0101 (214-6150) Akureyri , þingl. eig.
Björgvin Jónsson, gerðarbeiðandi Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda,
miðvikudaginn 3. febrúar 2010 kl. 10:00.
Höfðahlíð 1, íb. 01-0102 (224-7165) Akureyri, þingl. eig. Ingvar Herbert
Ívarsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 3. febrúar
2010 kl. 10:30.
Kiðagil 7, íb. 04-0102 (226-6561) Akureyri, þingl. eig. Hrannar Örn
Sigursteinsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 3.
febrúar 2010 kl. 10:45.
Sólvellir 19, íb. 01-0301 (215-0682) Akureyri, þingl. eig. Bergþór Rúnar
Bragason, gerðarbeiðendur Akureyrarkaupstaður og Vörður
tryggingar hf., miðvikudaginn 3. febrúar 2010 kl. 11:00.
Strandgata 6, verslun 03-0101 (215-0931) Akureyri, þingl. eig. Ljósco
ehf., gerðarbeiðandi Stafir lífeyrissjóður, miðvikudaginn 3. febrúar
2010 kl. 11:15.
Vanabyggð 15, íb. 01-0101 (215-1544) Akureyri, þingl. eig. Katrín
Kristjánsdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Söfnunarsjóður
lífeyrisréttinda ogTryggingamiðstöðin hf., miðvikudaginn 3. febrúar
2010 kl. 11:45.
Vestursíða 34, íb. A 02-0101 (215-1621) Akureyri, þingl. eig. Páll
Þorvaldsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn
3. febrúar 2010 kl. 12:00.
Öldugata 18, verslun 01-0101 (215-6660) Dalvíkurbyggð, þingl. eig.
Konný ehf., gerðarbeiðendur Dalvíkurbyggð, Lífeyrissjóður verslunar-
manna og Sýslumaðurinn á Akureyri, miðvikudaginn 3. febrúar 2010
kl. 14:30.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
28. janúar 2010.
Halla Einarsdóttir, ftr.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Eiríksgata 17, 200-8837, Reykjavík, þingl. eig. Þinghús ehf.,
gerðarbeiðendur Álfaborg ehf., Frændur Pípulagnir ehf. og Reykja-
víkurborg, þriðjudaginn 2. febrúar 2010 kl. 11:40.
Háholt 4a, 229-8897, Mosfellsbæ, þingl. eig. Þóra Bjarney
Guðmundsdóttir, gerðarbeiðendur AFL - sparisjóður, Íbúðalánasjóður
og Sparisjóður Rvíkur og nágr., útib., þriðjudaginn 2. febrúar 2010 kl.
10:30.
Njálsgata 36, 200-8071, Reykjavík, þingl. eig. Sævar Eyjólfsson,
gerðarbeiðandi Sparisjóður Rvíkur og nágr., útib., þriðjudaginn
2. febrúar 2010 kl. 15:00.
Vatnsstígur 5, 200-4654, Reykjavík, þingl. eig. Slóð ehf.,
gerðarbeiðandi Frjálsi fjárfestingarbankinn hf., þriðjudaginn
2. febrúar 2010 kl. 13:30.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
28. janúar 2010.
Tilkynningar
Efnistaka í landi Hvamms
Sveitarfélagið Ölfus
Kynning á tillögu að matsáætlun
Hér er auglýst tillaga að matsáætlun vegna
efnistöku í landi Hvamms, Sveitarfélaginu
Ölfusi. Framkvæmdaraðili er Pétur Guðmunds-
son. Bölti ehf. hefur umsjón með mati á um-
hverfisáhrifum framkvæmdarinnar. Hægt er að
skoða tillöguna á heimasíðu Bölta ehf.,
www.bölti.is. Almenningi gefst kostur á að
senda athugasemdir við tillöguna til Bölta ehf.
á netfang sigjak@simnet.is, eða á heimilis-
fangið: Lyngheiði 23, 810 Hveragerði, eigi síðar
en 14. febrúar 2010.
Félagslíf
I.O.O.F. 1 1901298 81/2.0.*I.O.O.F. 12 19012981/2 Þk
ÁSKRIFTASÍMI 569 1100
AÐ SKRIFA MINNINGARGREIN
Sami skilafrestur er á greinum vegna útfara í kyrrþey.
Minningargreinar sem berast blaðinu innan tilskilins frests verða birtar
í blaðinu. Leitast verður við að birta þær á útfarardegi eða sem næst þeim
degi.Hvemargar greinar birtast í blaðinu á útfarardegi viðkomandi, ræðst
af stærð blaðsins hverju sinni.
Minningargreinar, sem berast eftir tilskilinn frest eða útfarardag,
verða eingöngu birtar á vefnum á www.mbl.is/minningar. Tilvísun á
vefslóðina verður í greinum eða æviágripi sem birtast í blaðinu.
Netgreinarnar eru öllum opnar.
Þeim, sem vilja fá birta minningargreinar í Morgunblaðinu,
er bent á að skilafrestur til birtingar í blaðinu er á hádegi
tveimur virkum dögum fyrir útfarardag, þ.e.:
Birtingardagur Skilatími
Mánudagsblað Hádegi föstudag
Þriðjudagsblað Hádegi föstudag
Miðvikudagsblað Hádegi mánudag
Fimmtudagsblað Hádegi þriðjudag
Föstudagsblað Hádegi miðvikudag
Laugardagsblað Hádegi fimmtudag
Bridsdeild
Breiðfirðingafélagsins
Eftir tvö kvöld í fjögurra kvölda
tvímenningskeppni er staða efstu
para þessi.
Friðrik Jónss. - Jóhannes Guðmannss. 509
Oddur Hanness. - Árni Hanness. 490
Sigurður Erlendss. - Magnús Ingólfss. 481
Jón Hákon Jónss. - Bergljót Gunnarsd. 457
Sunnudaginn 24/1 mættu 28 pör
til leiks. Hæsta skor kvöldsins í
N/S:
Sigurður Erlendss. - Magnús Ingólfss. 257
Magnús Sverriss. - Halldór Þorvaldss. 254
Oddur Hanness. - Árni Hanness. 254
Austur/Vestur:
Kristín Óskarsd. - Freyst. Björgvinss. 319
Sveinn Sigurjónss. - Ágúst Vilhelmss. 266
Garðar V. Jónss. - Baldur Bjartmarss.
242
Spilað er í Breiðfirðingabúð,
Faxafeni 14, á sunnudögum kl. 19.
Bridsfélag Hreyfils
Hafinn er fjögurra kvölda tví-
menningur þar sem þrjú bestu
kvöldin gilda til verðlauna.
Úrslit fyrsta kvölds:
Daníel Halldórss. - Ágúst Benedikts 55%
Áki Ingvarss. - Sigurrós Gissurard. 55%
Magni Ólafsson -
Randver Steinsson 54,6%
Sigurður Ólafss. - Birgir Sigurðars. 52,9%
Næsta umferð verður spiluð nk.
mánudagskvöld kl. 19.30 í Hreyf-
ilshúsinu.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is