Morgunblaðið - 29.01.2010, Qupperneq 39
Menning 39FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 2010
ÚT er komin bókin Þjóð-
kirkjan og lýðræðið. Hún inni-
heldur greinar sem fjalla um
málefni kirkjunnar, með hlið-
sjón af hugmyndafræði þjóð-
kirkjulaganna frá árinu 1997.
Bókin kallar á rökræðu um
kirkjuna í íslensku samfélagi.
Hér er margþætt efni á ferð-
inni, fyrir alla sem láta sig
þjóðkirkjuna varða. Þjóð-
kirkjan og lýðræðið inniheldur
ólíka nálgun fjölda höfunda, sagnfræðilega, guð-
fræðilega, stjórnunarlega og lögfræðilega. Rit-
stjórar eru Gunnar Kristjánsson og Skúli S.
Ólafsson, Kjalarnessprófastsdæmi gefur út.
Bækur
Málefni kirkjunnar
á líðandi stund
Þjóðkirkjan og
lýðræðið.
ÚTÓN stendur seinnipartinn í
dag fyrir hringborðsumræðum
um alþjóðleg tækifæri og
kynningu á listamönnum.
Í samstarfi við TÍ og Tón-
verkamiðstöðina verður boðið
upp á hringborðsumræður með
listrænum stjórnendum og
fólki sem vinnur að framgangi
nútímatónlistar í Evrópu. Leit-
að verður svara við spurn-
ingum á borð við hvernig þróa
tónlistarmenn og tónskáld listrænan feril sinn á
alþjóðavísu? Hringborðsumræðurnar fara fram í
salarkynnum Tónverkamiðstöðvarinnar á 6. hæð,
Skúlatúni 2, á milli kl. 15.30 og 16.30.
Tónlist
Umræður um al-
þjóðleg tækifæri
Rætt verður um
kynningu tónlistar.
RASK-RÁÐSTEFNA um ís-
lenskt mál og almenna mál-
fræði, sú 24., verður haldin á
morgun, laugardag, í fyrir-
lestrasal Þjóðminjasafns Ís-
lands. Hefst dagskráin klukk-
an 9.00. Íslenska
málfræðifélagið og Málvís-
indastofnun Háskóla Íslands
halda þessa árlegu ráðstefnu.
Á annan tug fyrirlesara
fjalla um ýmsa þætti málfræði.
Þar á meðal eru þau Kristín Bjarnadóttir, María
Garðarsdóttir, Sigríður Þorvaldsdóttir, Baldur
Sigurðsson, Hrafnhildur Ragnarsdóttir, Jón
Hilmar Jónsson og Þórdís Úlfarsdóttir.
Málvísindi
Rask-ráðstefna um
mál og málfræði
Jón G. Friðjónsson
er einn fyrirlesara.
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
TÓNSKÁLDIÐ Daníel Bjarnason hefur látið tals-
vert að sér kveða á undanförnum árum, enda af-
kastamikill og hugmyndaríkur í senn. Ný breið-
skífa með verkum hans, Processions, kom út í
frumstæðri útgáfu rétt fyrir jól, en opinber útgáfa
hennar um heim allan verður nú á mánudaginn.
Verkin á plötunni eru ekki beinlínis samin fyrir
skífuna að sögn Daníels, en á plötunni eru þrjú
verk; Bow to String, píanókonsertinn Processions
og Skelja. Bow to
String flytur Sæ-
unn Þorsteins-
dóttir sellóleikari,
óteljandi lög af
sellóröddum sem
síðan er unnið úr í
hljóðverinu, ein-
leikari með Sin-
fóníuhljómsveit
Íslands í Proces-
sions er Víkingur
Ólafsson og Skelja
er verk fyrir
hörpu og slagverk
með Katie Buck-
ley á hörpu og
Frank Aarnink á
slagverk.
„Tvö verkanna
eru frá síðasta ári,
þ.e. píanókonsertinn og sellóverkið, en það þriðja er
nokkurra ára gamalt. Við vorum eiginlega búnir að
taka upp tvö önnur stór verk sem áttu að vera á
plötunni, en ákváðum að láta þau bíða og nota frek-
ar Processions eftir að hann var frumfluttur á síð-
asta ári og við gátum tekið hann upp með Víkingi
og Sinfóníunni.“
Plötufyrirtækið Bedroom Community, sem er
hugarfóstur Valgeirs Sigurðssonar, gefur Proces-
sions út en það hefur helst haslað sér völl á sviði til-
raunakenndrar raftónlistar, óhljóðalistar og eins-
konar danstónlistar, en obbinn af því sem
fyrirtækið gefur út jaðrar þó við það sem kallast
jafnan nútímatónlist eða nútíma klassík. Þessi
merkimiðaflækja er ekki beinlínis gagnleg, en að-
spurður í hvaða rekka hann myndi setja plötuna
svarar Daníel eftir smá umhugsun: „Í frétta-
tilkynningu með plötunni stendur að það eigi að
setja hana í „rokk“ plöturekkann,“ segir hann og
hlær við. Segir svo af meiri alvöru: „Ef ég þyrfti að
flokka hana myndi ég setja hana með klassíkinni,
tilraunatónlist, jaðartónlist og raftónlist. Það vefst
stundum fyrir fólki hvar á að staðsetja mig, en mað-
ur á bara að treysta á músíkina sjálfa.“
Plata með verkum Daníels Bjarnasonar væntanleg eftir helgi
Það á að treysta á músíkina
Morgunblaðið/Heiddi
Útgáfa Verk Daníels Bjarnasonar spanna klassík, tilraunatónlist, jaðartónlist og raftónlist.
Í HNOTSKURN
»Á Myrkum músík-dögum verða flutt
verk eftir Daníel á laug-
ardagskvöld í Sódómu
undir yfirskriftinni Tón-
verk fyrir uppmagnaða
kammersveit.
»Flutt verða verk eftirhann frá síðustu ár-
um, valin með tilliti til
rýmisins á Sódómu.
»Meðal verkanna erBow to String sem er
á Processions.
MENNINGAR- og ferðamálaráð
Reykjavíkurborgar tilkynnti í gær
um styrkveitingar til menningar-
mála. Alls bárust 177 umsóknir
vegna ársins 2010 og var samtals
sótt um tæpar 275 milljónir.
Undanfarinn áratug hafa jafn-
framt verið gerðir samstarfssamn-
ingar til fleiri ára í senn. Í ljósi fjár-
hagsástandsins voru þeir hins vegar
ekki gerðir nema til eins árs fyrir ár-
ið 2009 og ákveðið var að stofna ekki
til nýrra langtímasamninga fyrir ár-
ið 2010 heldur veita styrki í staðinn.
Af 58 samningum í gildi 2009 voru
54 lausir um áramót. Þrátt fyrir hag-
ræðingu var því óvenju mikið til út-
hlutunar í ár eða 62 milljónir króna
og var þeim deilt á 91 umsækjanda.
Stórsveit Reykjavíkur var valin
Tónlistarhópur Reykjavíkur 2010 og
hlýtur tveggja milljóna króna styrk.
Hæsta styrkinn 4,5 milljónir hlaut
Nýlistasafnið, en það er að flytja í
stærra og ódýrara húsnæði á Skúla-
götu 28. Næsthæsta styrkinn, 2,3
milljónir, hlaut Möguleikhúsið sem
hefur lengi verið eina barnaleikhúsið
í höfuðborginni.
Styrk að upphæð tvær milljónir
hlutu Íslenski dansflokkurinn, Leik-
hópurinn Vesturport, Caput-
hópurinn, Kammersveit Reykjavík-
ur, Nýsköpunarsjóður tónlistar, Mu-
sica Nova og Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar.
Þá hlaut Jazzhátíð í Reykjavík 1,9
milljónir, Hönnunarmiðstöð Íslands
1,6, Lókal leiklistarhátíð 1,5,
Reykjavík Dance Festival 1,3 og
Kling og Bang gallerí 1,2, og Íslensk
tónverkamiðstöð og Kirkjulistahátíð
900 þúsund krónur. Fjölda lægri
styrkja var úthlutað. efi@mbl.is
Menningar- og ferðamálaráð úthlutaði 62 milljónum í styrki
Nýlistasafnið hlaut hæsta
styrkinn, 4,5 milljónir
Morgunblaðið/hag
Stórsveitin á tónleikum Sveitin er
Tónlistarhópur Reykjavíkur í ár.
LEIKRIT Kristjáns Þórðar Hrafns-
sonar, leikskálds og rithöfundar,
Fyrir framan annað fólk, fékk lof-
samlegar viðtökur þegar það var
sýnt fimmtán sinnum í Hafnarfjarð-
arleikhúsinu síðastliðið haust og
fram í desember. Nú hefur verið
ákveðið að hafa þrjár aukasýningar
á verkinu, í Iðnó að þessu sinni.
Sýnt verður í Iðnó föstudagana 5.,
12. og 19. febrúar.
Kristján Þórður segir að þetta sé
uppfærsla sem byggist á list leikar-
ans og tiltölulega auðvelt sé að
flytja hana og laga að nýju rými.
„Í þessu leikriti erum við að fjalla
um viðkvæmt málefni, þegar innri
öfl verða svo sterk að þau taka að
stjórna lífi einstaklingsins og hann
missir tökin á tilverunni,“ segir
Kristján Þórður. Leikritið er sagt í
senn fyndið og harmrænt. Það
fjallar um mann, sem Svein Geirs-
son leikur, sem er gæddur
skemmtilegum hæfileikum sem
hann notar óspart til að heilla kon-
una sem hann elskar, en Tinna
Hrafnsdóttir fer með hlutverk
hennar. Smám saman snúast hæfi-
leikarnir upp í áráttu.
„Í raun er leikritið allegóría fyrir
innra stjórnleysi,“ segir Kristján
Þórður.
Leikstjóri sýningarinnar er Mel-
korka Tekla Ólafsdóttir. efi@mbl.is
Einstaklingur missir
tökin á tilverunni
Fyrir framan ann-
að fólk sýnt í Iðnó
Áráttuhegðun Tinna Hrafnsdóttir
og Sveinn Geirsson í sýningunni.
Hann lamdi húðir
sínar af slíkri
áfergju að rót komst á ið-
ur hlustenda í búknum 42
»
Í DAG
Kl. 12.10 Auður Hafsteinsdóttir
fiðluleikari og og Anna Guðný
Guðmundsdóttir píanóleikari
flytja íslenska tónlist fyrir fiðlu
og píanó á Kjarvalsstöðum.
Verkin eru eftir Þorkel Sigur-
björnsson, Jón Nordal og Karl
O. Runólfsson.
Kl. 14.00
Bandaríska
tónskáldið
Wayne Siegel
fjallar um eig-
in tónlist og
kynnir Tónlist-
arháskólann í
Árósum í Sölvhóli, sal Listahá-
skóla Íslands, Sölvhólsgötu 13.
Kl. 20.00 Raftónleikar verða
haldnir í Batteríinu og þar
frumflutt sjö ný raftónverk eft-
ir Ríkharð H. Friðriksson, Hilm-
ar Örn Hilmarsson, Ragnhildi
Gísladóttur, Kolbein Einarsson,
Lýdíu Grétarsdóttur, Wayne
Siegel og Kjartan Ólafsson.
Einleikari er Markus Zahn-
hausen, sem leikur á blokk-
flautu.
Kl. 22.00 Verkið Rökkur andar
hljóði, sem byggist á níu þátt-
um og blandar saman ýmsum
þáttum í tón- og myndflutningi
verður flutt í Sölvhóli, sal
Listaháskóla Íslands, Sölvhóls-
götu 13. Rökkur andar saman-
stendur af nokkrum smærri
verkum sem mynda eitt
heildarverk, um klukkutíma
langt, og er mikið til elektrón-
ískt, en slagverksleikari spilar
inni í flygli og hörpuleikari leik-
ur einnig í verkinu. Þetta er
frumflutningur á hluta smá-
verkanna og því frumflutningur
á heildarverk-
inu.
Flytjendur eru
Anna Þor-
valdsdóttir,
sem semur
tónlistina og
annast hljóð-
og mynd-
vinnslu, Daniel Shapira sér um
hljóð- og tæknivinnslu, Frank
Aarnink leikur á slagverk og
flygil, Katie Buckley á hörpu og
Hjörtur Jóhann Jónsson og
Ólöf leggja til raddir.
Myrkir músíkdagar