Morgunblaðið - 29.01.2010, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 2010
ÞAÐ RIGNIR MAT!
HHH
„Steikt, frumleg og
sprenghlægileg.”
T.V. - Kvikmyndir.is
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
Fráskilin... með fríðindum
HHH
„...hefur sama
sjarma til að bera
og forverinn“
-S.V., MBL
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
SÝND Í SMÁRABÍÓI, REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI, SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI
Frá höfundi/leikstjóra SOMETHING´S GOTTA GIVE
Fráskilin... með fríðindum
Alvin og Íkornarnir kl. 3:50 LEYFÐ Avatar 3D kl. 4:40 - 8 B.i.10 ára
Did you hear about the Morgans kl. 8 - 10:20 B.i. 7 ára Mamma Gógó kl. 6 - 8 - 10 LEYFÐ
Skýjað með kjötbollum á köflum 3D 3:40 - 5:50 LEYFÐ It‘s Complicated kl. 8 - 10:35 B.i. 12 ára
Skýjað með kjötbollum á köflum 3:40 - 5:50 LEYFÐ It‘s Complicated kl. 5:25 - 8 - 10:35 Lúxus
Þú færð 5%
endurgreitt
í Smárabíó
Sýnd kl. 6 og 9
Sýnd kl. 4
Sýnd kl. 5:50, 8 og 10:10
STÓRKOSTLEG MYND SEM SLEGIÐ
HEFUR RÆKILEGA Í GEGN
Sýnd kl. 4
SÝND MEÐENSKU TALI ÍREGNBOGANUM
ÍSLENSKT TAL
Sýnd kl. 3:50Sýnd kl. 5:40, 8 og 10:20
Skemmtilegasta
teiknimynd ársins!
TVÆR VIKUR Á TO
PPNUM Í USA
100.000
MANNS
Frá höfundi/leikstjóra
SOMETHING´S GOTTA GIVE
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónumwww.laugarasbio.is
50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á
-bara lúxus
Sími 553 2075
með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!
Zacky Vengeance árið 1999. „Við
höfum gengið hlið við hlið í átján ár.
Ég á engar minningar áður en
Jimmy kom til sögunnar,“ segir Sha-
dows. Fljótlega bættist gítarséníið
Synyster Gates í hópinn. Sveitinni
hélst illa á bassaleikurum til að byrja
með en Johnny nokkur Christ hefur
haft það hlutverk með höndum frá
árinu 2002. Velkist einhver í vafa þá
eru þetta allt sviðsnöfn þessara
ágætu manna.
Nafn sveitarinnar er tilvísun í
Biblíuna, söguna um Kaín og Abel. Í
fyrstu Mósebók kemur fram að al-
mættið hafi búið svo um hnúta að sá
sem vogaði sér að vega Kaín eftir
morðið á Abel myndi uppskera sjö-
falda hefnd að launum. Þrátt fyrir
þessa dýpt í nafnavali er Avenged
Sevenfold ekki kristilegt band.
Þeir félagar aðhylltust í upphafi
málmkjarna en á þriðju plötu sinni
árið 2005 – þeirri fyrstu sem kom út
hjá stóru útgáfufyrirtæki – skiptu
þeir yfir í melódískari málm. Síðan
hefur Shadows alfarið haldið sig við
söng í stað þess að rymja. City of
Evil nefnist gripurinn og er almennt
álitin besta verk Avenged Sevenfold
til þessa. Lög á borð við „Beast and
the Harlot“ , „Bat Country“ og hin
angurværa ballaða „Seize the Day“
vöktu óskipta athygli og á MTV-
hátíðinni 2006 var Avenged Seven-
fold valin „besti nýliðinn“. Skaut þar
listamönnum á borð við Rihönnu,
Chris Brown og James Blunt ref fyr-
ir rass.
Fjórðu hljóðversplötu AvengedSevenfold, sem ber nafn sveit-
arinnar, var beðið með eftirvænt-
ingu þegar hún kom í verslanir
2007. Til að gera langa sögu stutta
olli hún vonbrigðum. Fyrir utan of-
ursmellina „Afterlife“ og „Almost
Easy“ var fátt um fína drætti og
platan bæði léttari og tilrauna-
kenndari en City of Evil. Heildar-
svipinn vantaði.
Af samtölum við sveitarmeðlimi
að dæma verður nýja platan meira í
ætt við City of Evil, þung og drunga-
leg. Þrátt fyrir hliðarsporið hafnaði
Avenged Sevenfold í öðru sæti í ný-
legu vali rokkvefsíðunnar Ultimate-
Guitar.com á bandi áratugarins á
eftir Metallica. Í næstu sætum voru
Muse, Green Day og Foo Fighters.
Ljóst er að róðurinn verður þung-
ur hjá Avenged Sevenfold án The
Rev. Hann var ekki bara mikilhæfur
trymbill heldur líka svipmikil og
drífandi manneskja, annálaður húm-
oristi og af eftirmælum að dæma
hefur hann verið sannur vinur vina
sinna – hiklaust sagt til vamms.
»Hann lamdi húðirsínar af slíkri áfergju
að rót komst á iður
hlustenda í búknum.
The Rev var ekki maður
málamiðlana.
FJÓRAR kvikmyndir verða frumsýndar í dag í íslensk-
um bíóhúsum.
The Book of Eli
Töffarinn Denzel Washington leikur Eli, söguhetju
myndarinnar. Eli er uppi á árinu 2043 og allt er í rúst.
Hann gætir hinnar heilögu bókar sem inniheldur fróð-
leik sem bjargað gæti mannkyninu frá glötun. Gary Old-
man leikur illmenni sem komast vill yfir þessa bók með
öllum tiltækum ráðum og blóðsúthellingum.
Erlendir dómar:
Metacritic: 53/100
New York Times: 60/100
Variety: 50/100
Skýjað með kjötbollum á köflum
Teiknimyndin byggð á samnefndri barnabók Judi Bar-
rett og segir af ungum vísindamanni, Flint, sem hannar
matarvél og allt í einu fer að rigna mat. Myndin er sýnd
bæði á íslensku og ensku í þrívídd.
Erlendir dómar:
Metacritic: 66/100
New York Post: 50/100
Variety: 70/100
It’s Complicated
Rómantísk gamanmynd með Meryl Streep, Steve Martin
og Alec Baldwin í aðalhlutverkum. Jane á þrjú upp-
komin börn, rekur bakarí og veitingahús. Samskipti
hennar við fyrrverandi eiginmann sinn Jake hafa verið
til fyrirmyndar í þau tíu ár sem liðin eru frá skiln-
aðinum. Þegar kemur að útskrift sonar þeirra þurfa þau
að verja tíma saman og þá kemur margt óvænt upp á.
Erlendir dómar:
Metacritic: 57/100
New York Times: 60/100
Variety: 40/100
Where the Wild Things Are
Hér er komin nýjasta kvikmynd Spike Jonze. Hún fjallar
um óhlýðinn og hugmyndaríkan strák sem strýkur að
heiman eftir að hafa rifist við móður sína. Hann flýr inn í
ímyndaðan heim þar sem hann hittir fyrir furðuskepnur
sem vingast við hann þar sem þær halda að hann muni
leysa öll þeirra vandamál. Myndin er byggð á sam-
nefndri barnabók Maurice Sendak.
Erlendir dómar:
Metacritic:70/100
New York Times:100/100
Variety: 60/100
Heimsendir og
skrítnar skepnur
Ævintýraheimur Úr Where the Wild Things Are.
KVIKMYNDAFRUMSÝNINGAR»