SunnudagsMogginn - 14.11.2010, Síða 28
28 14. nóvember 2010
S
é litið til bókaútgáfu
ársins er ljóst að þar
ríkir ákveðin bjartsýni
því útgáfan hefur
heldur aukist frá síðasta ári
eftir snarpan samdrátt síðustu
ára. Metárið mikla 2007 voru
797 bækur skráðar í bókatíð-
indi Félags íslenskra bókaút-
gefenda, 2008 voru þær 751,
692 2009, en sigla nú aftur upp
á við, eru 747 í bókatíðindum
sem dreift verður eftir helgi.
Bókaútgefendur telja því
greinilega að kreppan sé að
baki, nú eða að hún eigi enn
eftir að dýpka og því þörf fyrir
meiri upplyftingu næsta árið.
Hrun og kreppa
Í kjölfar kreppunnar hrundi
útgáfa á þýddum barnabókum,
eins og sjá má hér til hliðar,
fór úr 186 bókum 2007 niður í
148 árið eftir og enn neðar
2008; voru ekki nema 82 2009,
litlu fleiri en íslensku barna-
bækurnar sem voru mikil tíð-
indi. Nærtækasta skýring á
þessum mikla samdrætti er að
mikið af þessari útgáfu var
svonefndar samprentsbækur,
þ.e. bækur sem prentaðar eru
erlendis fyrir mörg lönd í einu
en textanum skipt út eftir því
sem á. Eitthvað eru menn
hressari að þessu sinni, þess
sér stað að gengi krónunnar
hefur styrkst og að þessu sinni
eru gefnar út 128 þýddar
barnabækur – í skjóli gjaldeyr-
ishafta.
Að öðru leyti er aukning í
útgáfu, í það minnsta sé litið til
þeirra flokka sem meðfylgjandi
skýringarmynd nær til. Þannig
setur útgáfa á íslenskum skáld-
verkum nýtt met; ekki hafa
áður komið út jafn margar
bækur í þeim flokki og vel má
vera að umbrotatímum í ís-
lensku þjóðlífi sé um að kenna
að einhverju leyti; bæði að
mönnum liggi meira á hjarta
og eins að það hafi fleiri tíma
aflögu til að skrifa.
Kreppa og hrun
Það kemur enda varla á óvart
að þenslan og kreppan í kjöl-
farið eru rithöfundum ofarlega
í huga og kreppan kemur beint
við sögu í að minnsta kosti sex
skáldverkum nú fyrir jól –
þenslan í þremur. Sæm dæmi
má nefna að geðshræringin í
þjóðfélaginu er undirrót glæps
í Morgunengli Árna Þórarins-
sonar, þenslan leggur grunn að
glæp í Hröfnum, sóleyjum og
myrru eftir þau Eyrúnu Ósk
Jónsdóttur og Helga Sverr-
isson, hvort tveggja er undirrót
framvindunnar í Sigurðar sögu
fóts eftir Bjarna Harðarson og í
Áttablaðarós Óttars M. Norð-
fjörð eru menn að fást við eft-
irhreytur þenslu og hruns.
Einnig koma út nokkrar
bækur þar sem þensla og hrun
eru til umfjöllunar, hvort sem
það eru hefðbundin varnarrit
eins og bækur ráðherranna
fyrrverandi Árna Mathiesens
og Björgvins G. Sigurðarsonar,
málefnaleg greining eins og
hrunbók Styrmis Gunn-
arssonar, vangaveltur úr rúst-
unum eins og Þjóðgildi Gunn-
ars Hersveins, nú eða
lífreynslusögur þeirra sem
fengu að kenna á auðrónunum
eins og bók Jónínu Benedikts-
dóttur. Ekki má heldur gleyma
bókinni Á vígvelli siðmenn-
ingar eftir Matthías Johann-
essen sem fer vel yfir það
hversu íslenskt þjóðlíf var
gegnsýrt af meðvirkni með
þenslukóngunum.
Allir vilja elda með Disney
Á síðasta ári var kisuæði áber-
andi, þ.e. bækur sem báru
vörumerkið Hello Kitty seldust
óforvarandis eins og heitar
lummur. Sú bók sem hefur
komið einna mest á óvart í
haust er aftur á móti mat-
reiðslubók, Stóra Disney mat-
reiðslubókin, sem selst hefur í
bílförmum, og svo vel reyndar
að hún er uppseld og víst ekki
fáanleg fyrr en eftir mán-
aðamót. Hyllina má skrifa að
einhverju leyti á að sambærileg
bók, Matreiðslubók mín og
Mikka, varð gríðarvinsæl fyrir
tveimur áratugum, en þó fyrst
og fremst vegna þess hve vel
hún er úr garði gerð, upp-
skriftir og myndir allar nýjar
og uppsetning lífleg. Til gam-
ans má svo geta þess að Stóra
Disney matreiðslubókin velti
Rannsóknarskýrslu Alþingis
úr toppsætinu á bóksölulista
Félags bókaútgefenda sem
söluhæsta bók ársins, en þar
hafði síðarnefnda bókin setið
lungann úr árinu.
Annar bókaflokkur sem var
áberandi á síðasta ári, handa-
vinnubækur ýmiskonar, er
ekki í sviðsljósinu núna, en þó
er fólk enn að fást við sitthvað
slíkt; sjá til að mynda síðasta
bóksölulista en bókin Sokkar
og fleira eftir Kristínu Harð-
ardóttur situr þar í fjórða sæti.
Fjöldi ljósmyndabóka
Þetta ár var ævintýralegt um
margt, ekki var bara að við
sátum föst í umræðu um
kreppur og hrun, og sitjum
enn, heldur greip náttúran
heldur en ekki inn í umræðuna
með tveimur eldgosum og þess
sér líka stað á bókamarkaði,
fjölmargar bækur komu út á
árinu með myndum frá þeim
náttúruhamförum, ólíkar að
gerð en allar með mögnuðum
myndum. Ein þeirra, Eyja-
fjallajökull eftir þá Ara Trausta
Guðmundsson og Ragnar Th.
Sigurðsson, er með mest seldu
bókum ársins sem stendur, sit-
ur í tíunda sæti á síðasta bók-
sölulista. Ljósmyndabækur hafa
annars verið óvenjuáberandi,
fjölmargar slíkar komið út og
fjallað um allt frá trúariðkun
víða um heim, til fótboltaiðk-
unar í Afríku, til í mannlífs-
breytinga í magnaðri bók
Ragnars Axelssonar, Veiði-
manna norðursins.
Upp og niður, en þó aðallega upp
Ef hægt er að nota bókaútgáfu sem mælikvarða á þjóðfélagsástand eru menn bjartsýnni fyrir þessi
jól en þau síðustu; bókaútgáfa hefur aukist að nýju eftir skarpa dýfu síðustu tvö ár.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Fjöldi bókatitla eftir árum
í völdum flokkum
2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010
Íslenskar
barnabækur
Þýddar
barnabækur
Íslensk
skáldverk
Þýdd
skáldverk Ljóð Ævisögur
200
180
160
140
120
100
80
60
40
20
0
61
88
54
51
30
36
86
128
85
78
35
31
Jólabækurnar
2001 493
2002 466
2003 515
2004 649
2005 660
2006 675
2007 797
2008 751
2009 692
2010 747
(Fjöldi titla)
Bókaútgáfa
í áratug