Skólablaðið - 01.03.1987, Blaðsíða 44
44 SKÓLABLAÐIÐ
Sergei Mikhalovich
Eisenstein
Eftir Bjarna Felix Bjarnason
Þegar hugað er að upphafsmönnum kvikmyndalist-
arinnar í heiminum skýtur Sergei Eisenstein fljótlega
upp kollinum. Flestir kvikmyndaáhugamenn þekkja
myndir hans, myndir eins og Beitiskipið Potemkin,
ívan grimma og Verkfall, eða kannast við hinar fjöl-
mörgu kenningar hans og rit. En hver var hann, þessi
snillingur sem fjölmargir álita fremsta kvikmyndar-
gerðarmann sem komið hafi fram fyrr og síðar?
Eisenstein fæddist 23. jan. 1898 í borginni Riga í
Lettlandi. Hann var af efnamiklu fólki úr borgarastétt,
en þrátt fyrir efnin var æska hans vansæl og foreldrar
hans skildu, þegar hann var 14 ára, eftir margra ára
óhamingjusamt hjónaband. Fyrir áeggjan föður síns
innritaði Eisenstein sig í verkmenntaskóla í Petrograd
(St. Pétursborg) til að læra verkfræði, en þegarbyltingin
skall á árið 1917, breyttist margt í lífi hans.
Hann sneri baki við verkfræðináminu og þeim of-
verndaða heimi sem hann hafði lifað í og gerðist sjálf-
boðaliði í Rauða hernum. Þaðan lá leiðin síðan til
Moskvu árið 1919 í leikhús byltingarinnar, Proletkúlt.
í leikhúsinu á þessum tíma voru menn helst á því að
leggja ætti listina niður. Listin, sem þjónað hafði yfir-
stéttinni á tímum keisarastjórnarinnar, átti að víkja, en
í staðinn átti eitthvað alveg nýtt að koma. ný list handa
nýjum áhorfendum.
Eisenstein gerðist nemandi Vsevolod Meuerholds,
sem þá var forystumaður í leikiiússlífi Moskvuborgar,
en sneri sér síðart að leikstjórn í Proletkúlt. Þar setti
hann t.d. upp leikritið Gasgrímur, sem hann sviðsetti í
gasverksmiðju til að ná tilætluðum áhrifum. En Eisen-
stein fannst sem hann gæti ekki náð til fjöldans um
leikhúsið, og um 1923 snýr hann sér aftur að kvik-
myndunum.
Sergei Eisenstein
Eins og Meyerhold hafði verið meistari Eisensteins í
leikhúsinu varð kvikmyndaleikstjórinn Lev Luleshov
lærifaðir hans í kvikmyndunum og eyddu þeir saman
fjölmörgum kvöldstundum í umræður fram og aftur
um kvikmyndir.
Fyrsta mynd, sem Eisenstein gerði í fullri lengd. var
Verkfall, sem frumsýnd var árið 1925. í Verkfalli vildi
Eisenstein sýna fram á eðli stéttabaráttunnar. Annars
vegar eru auðvaldssinnarnir, sem hika ekki við að nota
hervald gegn alþýðunni, hins vegar hin vinnandi stétt
sem verður að standa þétt saman. Niðurstaðan getur
aðeins orðið sú að alþýðunni beri að rísa upp gegn
kúgurum sínum hvað sem það kostar.
Þótt Verkfall sé áhrifarík mynd var hún aðeins byrj-
unin, því að sama ár lýkur Eisenstein við eina stórkost-
legustu mynd í sögu kvikmyndanna, Beitiskipið Pot-
emkin. Hún fjallar um uppreisn háseta á beitiskipinu
Potemkin. Myndin er að öllu leyti stórkostleg og
enginn, sem hefurséð hana, mun nokkru sinni gleyma
atriðum eins og blóðbaðinu á tröppunum í Odessa
eða líkfylgdinni á bryggjunum í Odessahöfn.