SunnudagsMogginn - 21.08.2011, Side 2
2 21. ágúst 2011
Við mælum með …
20. ágúst
Reykjavíkurborg verður eins og eitt stórt hlaðborð í dag, laugardag,
drekkhlaðið af viðburðum af ýmsum stærðum og gerðum. Dagskrá
Menningarnætur er allt í senn fjölbreytt, spennandi og skemmtileg.
Njótum þess að smakka á því sem er á hlaðborðinu. Allir ættu að geta
fundið eitthvað við sitt hæfi og farið saddir heim.
Morgunblaðið/Heiddi
… Menningarnótt
4-8 Vikuspeglar
Tengdasonur Maradona sýnir tilþrif, Rick Perry nýr forsetaframbjóð-
andinn vestra og hvernig Osama Bin Laden olli hruni Bandaríkjanna.
13 Tíska
Ný hönnunarlína Amy Winehouse kemur brátt á markað.
14 „Það kom aldrei til greina að rífa
húsið“
Fjölskyldan í Sólheimatungu í Borgarfirði ræðst í framkvæmdir til að
varðveita 100 ára gamalt hús.
20 Jarðskjálftaspár
Er hægt að spá fyrir um jarðskjálfta? Ný bók frá Ragnari skjálfta.
24 Ný sjónvarpsþáttaröð
Ný þáttaröð á SkjáEinum um gullaldarár PAN AM flugfélagsins. Gunn-
ar Eyjólfsson var flugþjónn þar.
30 Finnskt rokk
Það er líka spilað rokk í Finnlandi.
33 Myndaalbúmið
Diljá Mist Einarsdóttir hleypur fyrir
góðan málstað í Reykjavík-
urmaraþoninu.
38 Frægð og furður
Cat Deeley úr sjónvarpsþáttunum So You Think You Can Dance.
Lesbók
42 Djasshátíð
Það rignir tónum frá öllum heimshornum í höfuðborginni.
47 Síðasta orðið
Rætt við Bjarna Harðarson bóksala með meiru.
34
40
Efnisyfirlit
Forsíðumyndina tók Eggert Jóhannesson af fjölskyldu sem æfir taekwondo.
Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans:
Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Helgi Snær Sigurðsson, Inga Rún Sigurðardóttir, Ingveldur Geirsdóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir,
Kristín Heiða Kristinsdóttir, María Ólafsdóttir, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir, Skapti Hallgrímsson.
Augnablikið
Þ
að er við hæfi á afmæli Reykjavík-
urborgar að óska borgarbúum til ham-
ingju með að eiga svona skemmtilegan
stað eins og Nauthólsvíkina. Ég hef
margoft farið þarna framhjá og staldrað stutt við
en fór um daginn með alla fjölskylduna og það var
hreint út sagt frábær lífsreynsla. Eldri strákurinn
minn var búinn að spyrja oft í sumar: Hvenær för-
um við á ströndina? Það virkaði fremur langsótt
(hver fer til útlanda núna?) þangað til ég mundi
eftir Ylströndinni. Á góðviðrisdegi í ágúst græj-
uðum við okkur, rétt eins og værum að fara ekta
strandferð að suðrænum hætti, stráhattar og allt.
Þetta var frábær ferð, ungum drengjum fannst
stórkostlegt að busla í sjónum og líka var gott að
hafa pottana til að hlýja sér inn á milli. Svo er eitt-
hvað sérstaklega endurnærandi við sjávarloftið.
Það er verst að hafa ekki áttað sig á þessum gull-
mola fyrr. Nú er sumaropnun að baki á Ylströnd-
inni (minna opið á veturna) en ég spái því að
heimsóknirnar verði fleiri næsta sumar.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Morgunblaðið/Inga Rún Sigurðardóttir
Stráhattar og allt
Skóflur og fleira dót er til taks á staðnum.
Það er nauðsynlegt að hafa nesti með sér og hlýja sér undir handklæði á milli þess sem buslað er í sjónum.
Leikarahópurinn úr hinni þekktu mynd Coen-bræðra The Big Le-
bowski kom saman nýverið í tilefni af því að það var að koma út
Blu-ray útgáfa af myndinni. Myndinni vegnaði ekkert sérstaklega
vel frumsýningarhelgina í mars 1998 en er nú sígild skemmtun. Hér
má sjá þau Julianne Moore og Jeff Bridges sitja fyrir svörum.
Veröld
Reuters
Saman á ný
20. ágúst
Sýning á fatn-
aði frá
forsetatíð Vig-
dísar Finn-
bogadóttur verður til sýnis í
ELLU í Ingólfsstræti á menning-
arnótt. Einstök sýning sem
blandar saman merkilegum
tímamótum í sögu landsins.
20. ágúst
Þarftu að
endurnýja
bókaskápinn
og búin/n að
slíta öllum
skóm? Þá er
að koma og kíkja við í hinni
stórglæsilegu Bílskúrsbúllu á
Grettisgötu 34. Kaffi í boði á
meðan þú skoðar þig um og
þegar kaffið er búið getur þú
látið hina dularfullu spákonu
Rönku lesa í bollann þinn.