SunnudagsMogginn - 21.08.2011, Page 6
6 21. ágúst 2011
Eftir að Manchester City liðið var
keypt af Abu Dhabi United Group í
ágústmánuði árið 2008 hefur
gengið á ýmsu innan félagsins.
Fyrstu kaup eigendanna voru á
brasilísku stjörnunni Robinho fyrir
32,5 milljónir punda. Kaupin
vöktu mikla athygli en þau voru
kláruð á nokkrum klukkustundum
rétt fyrir lok félagaskiptaglugg-
ans en félagið gerði jafnframt til-
boð í leikmenn á borð við David
Villa og Mario Gomez. Næsta
sumar var félagið stórtækt á leik-
mannamarkaðnum en þá voru Ga-
reth Barry, Roque Santa Cruz,
Kolo Touré, Emmanuel Adebayor,
Carlos Tevez og Joleon Lescott
keyptir til félagsins. Eftir brösótt
gengi var Mark Hughes þjálfari
látinn taka pokann sinn og gamli
refurinn Roberto Mancini tók við
liðinu. Fyrir síðasta tímabil voru
Jerome Boateng, Yaya Touré, Dav-
id Silva, Alexander Kolorov, Mario
Balotelli og James Milner keyptir
til liðsins og Edin Dzeko kom svo í
janúar á þessu ári.
Aguero er því sjöundi dýri fram-
herjinn sem gengur til liðs við lið-
ið á þessum þremur árum sem
hafa liðið frá því að Sheikh
Mansour keypti liðið.
Margir góðir leikmenn hafa verið keyptir til liðsins
Sheikh Mansour keypti lið Manchester City síðsumars 2008 og hefur
síðan þá eytt miklum fjármunum í að byggja upp lið sem hefur alla burði
til að verða stórveldi í Evrópufótboltanum.
F
yrsta umferð ensku úrvalsdeildarinnar var
leikin um síðustu helgi. Að stærstu leyti
var umferðin tilþrifalítil: Manchester
United vann nauman skyldusigur, Arsenal
og Chelsea gerðu bæði markalaus jafntefli og Liver-
pool-liðið olli vonbrigðum. Hinsvegar hafa áhang-
endur Manchester City ástæðu til að líta tímabilið
björtum augum eftir að nýjasti leikmaður liðsins,
Sergio Aguero, fór á kostum í sínum fyrsta leik fyrir
liðið. Argentínumaðurinn lágvaxni sem var keyptur
til liðsins frá Atletico Madrid á 38 milljónir punda
eða um 7 milljarða kr., skoraði tvö mörk á þeim
rúmu 30 mínútum sem hann lék. Að vísu má segja
að frammistaða leikmannsins gegn nýliðum Swan-
sea sem hafa ekki leikið í efstu deild síðan snemma á
níunda áratugnum og hafði barist fyrir lífi sínu í
leiknum í 60 mínútur, sé mögulega ekki besti
mælikvarðinn til að dæma um getu framherjans.
Engu að síður var hægt að sjá ýmislegt í leik hans
sem gæti mögulega reynst stjörnum prýddu liði
bláliðanna dýrmætt. Í liðinu er nóg fyrir af góðum
leikmönnum sem hafa verið keyptir dýrum dómum
en samt sem áður náði liðið ekki að blanda sér af al-
vöru í baráttuna um titilinn á síðasta tímabili.
Aguero sýndi í leiknum að hann hefur ýmsa kosti
umfram tæknilega getu og hraða. Á mánudaginn
sást að Kun Aguero eins og hann er kallaður, er
ástríðufullur leikmaður með mikið keppnisskap og
er hungraður í að sanna sig og vinna titla fyrir Man-
chester City. En liðið hefur einungis unnið ensku
deildina tvisvar: árin 1937 og 1968.
Quique Sánchez Flores þjálfari Atletico á síðasta
tímabili sá nægilega leiðtogahæfileika í Aguero til að
skipa hann sem varafyrirliða liðsins en Úrúgvæinn
Diego Forlan er fyrirliði liðsins.
Glæsilegur ferill
Þrátt fyrir að vera ungur að árum hefur Aguero af-
rekað mikið á ferli sínum. Hann lék sinn fyrsta leik í
argentínsku deildinni fyrir Indiependiente þegar
hann var rétt orðinn 15 ára. Hann varð þar með
yngsti leikmaðurinn til að leika í deildinni en sá sem
hafði átt fyrra metið var goðsögnin Diego Maradona
sem var um tíma tengdafaðir Aguero. Á næstu árum
náði hann að festa sig í sessi innan liðsins og skoraði
23 mörk í 56 leikjum sem var nóg til að vekja áhuga
stórliða í Evrópu. Í maí 2006 gekk hann í raðir Atle-
tico Madrid á Spáni en kaupverðið er talið hafa
numið 23 milljónum evra. Aguero sló í gegn á Spáni
og skoraði reglulega fyrir liðið sem náði fínum ár-
angri. Í 234 leikjum fyrir liðið skoraði Aguero 101
mark fyrir Atletico Madrid sem lék á tímabilinu í
Meistaradeild Evrópu eftir langa bið og vann Evr-
ópudeildina vorið 2010 þar sem Aguero var einn af
lykilmönnum liðsins. Þá varð Aguero ólympíu-
meistari með Argentínumönnum í Peking árið
2008. Á HM undir tuttugu ára liða í Kanada árið
2007 varð hann markahæsti leikmaður mótsins og
jafnframt valinn besti leikmaður.
Eftirvæntingin sem ríkir á Ethiad leikvangnum í
Manchester er því ekki úr lausu lofti gripin og aðrir
framherjar liðsins hafa ekki verið til fyrirmyndar
upp á síðkastið. Mario Balotelli virðist hafa einstakt
lag á að koma sér í vandræði og leiðtogi liðsins Car-
los Tevez virðist ekki ætla að tolla lengi í Manchest-
erborg. Vonir þeirra bláklæddu um að Aguero sé
maðurinn sem muni gera gæfumuninn í baráttu um
titilinn eru því skiljanlegar.
Nýjasta stjarnan
í enska boltanum
Er Aguero maðurinn sem mun
færa Manchester City titilinn?
Í sínum fyrsta deildarleik fyrir liðið skoraði hann tvö mörk og lagði upp
annað fyrir David Silva. City ferillinn byrjar því vel hjá Aguero.
Reuters
Sergio Aguero heillaði aðdáendur City með tæknilegri
getu en ekki síður með baráttu og keppnisskapi og
binda þeir vonir við að hann geri gæfumuninn í vetur.
Vikuspegill
Hallur Már Hallsson hallur@mbl.is
Aguero er trúlofaður Gianninu
Maradona, dóttur eins fræg-
asta og besta knattspyrnu-
manns allra tíma, Diego
Maradona. Saman eiga þau
soninn Benjamin sem fædd-
ist árið 2009. Hann á því ekki
langt að sækja hæfileikana
og verður vafalaust undir
smásjá stórliða í framtíðinni.
Sonur Maradona, Diego Si-
nagra, leikur hinsvegar í
fjórðu deild á Ítalíu.
Boltafjölskylda
Skólatöskur, pennaveski, litir, blýantar,
stílabækur, möppur, skæri og allt sem
þarf fyrir skólann!
ALLT FYR
IR
SKÓLANN– á lágu verði
Verð frá
49 kr. stk.
kortatímabil
!Nýtt