SunnudagsMogginn - 21.08.2011, Qupperneq 8
8 21. ágúst 2011
Rick Perry þykir fjallmyndarlegur, fljótur að átta sig
og hann getur verið orðheppinn. Mörgum þykir hann
heillandi í viðkynningu og hann segist hafa lært mik-
ið af því að hafa unnið fyrir sér sem sölumaður á
yngri árum. „Þetta er eins og að bjóða sig fram gegn
Guði, allt gengur honum í haginn!“ sagði demókrat-
inn John Sharp, sem er gamall vinur Perrys en barð-
ist við hann um embætti vararíkisstjóra Texas 1998.
„Annaðhvort er hann heppnasti maður í heimi eða
Skaparinn heldur verndarhendi yfir honum.“
Ríkisstjórinn er af fátækum bómullarbændum í
Texas kominn, hann lauk háskólanámi í dýrafræði og
var síðar í fimm ár flughernum sem hann segir að hafi
verið sér afar dýrmæt. Fjölskyldulíf hans þykir til fyr-
irmyndar, eiginkonan Anita er hjúkrunarfræðingur og
tekur mikinn þátt í félagslegu hjálparstarfi. Börnin
eru tvö. Perry er sanntrúaður meþódisti, hann er
leikpredikari og nýlega komu um 30.000 manns
saman í Houston til að hlýða á hann
Forsetaefni á ysta jaðri færa sig að jafnaði inn á
miðjuna þegar þau eru búin að tryggja sér útnefn-
inguna, þá er biðlað til miðjunnar. Og Perry var sjálfur
demókrati fram undir fertugt. En fellur stóryrðastíll
hans í góðan jarðveg utan Texas? Mörgum blöskraði
þegar hann gagnrýndi nýlega Ben Bernanke seðla-
bankastjóra. „...ef þessi náungi prentaði meira af
peningum fram að kosningunum myndum við fara
mjög illa með hann í Texas,“ sagði Perry. Það væru
nánast „föðurlandssvik“ að nota peningaprentun í
pólitískum tilgangi. Karl Rove, helsti ráðgjafi Bush,
sagði þetta ekki „forsetalegt“, menn sökuðu ekki
seðlabankastjóra landsins um að svíkja þjóðina.
„Eins og að bjóða sig fram gegn Guði“
Rick Perry með eiginkonu sinni, Anitu. Þau eiga son-
inn Griffin og dótturina Sydney.
Reuters
F
ylgi Baracks Obama hefur aldrei verið
minna, margir demókratar eru farnir
að líta svo á að hann hafi ekki burði til
að fást við þrálátan efnahagsvandann.
Repúblikanar eru farnir að eygja von um að
koma sínum manni í Hvíta húsið á næsta ári.
En hverjum? Ef opinber skuldasöfnun, at-
vinnuleysi og almenn óáran í efnahagsmálum
verða aðalmálin á næsta ári getur það skipt
sköpum fyrir repúblíkana að bjóða upp á
kraftmikið forsetaefni sem segist hafa lausnir
og getur rökstutt þá fullyrðingu. Margir álíta
að sá frambjóðandi sé nú fundinn.
James Richard (Rick) Perry er 61 árs, mjög
hægrisinnaður og sannfærður um að Banda-
ríkin séu Guðs eigið land, það sem þurfi sé að
hverfa frá taumlausum ríkisafskiptum og
bruðli af hálfu alríkisstjórnarinnar í Wash-
ington. Hann er andvígur auknum réttindum
samkynhneigðra, á móti fóstureyðingum,
styður dauðarefsingar og frelsi til að bera
vopn, efast um að hlýnun lofthjúpsins sé af
mannavöldum og segir mörg göt vera á þróun-
arkenningu Darwins.
Rick Perry lýsti nýlega yfir framboði sínu en
hann er dyggur stuðningsmaður Teboðshreyf-
ingarinnar sem berst gegn öllum skattahækk-
unum. Perry hefur verið ríkisstjóri í næst-
fjölmennasta sambandsríkinu, Texas, frá árinu
2000 þegar hann tók við af George W. Bush
sem stefndi þá á Hvíta húsið.
Perry hefur sigrað í öllum kosningum sem
hann hefur tekið þátt í á stjórnmálaferli sínum
sem hófst 1984 þegar hann tók sæti í full-
trúadeild þingsins í Texas. Síðast var hann
endurkjörinn ríkisstjóri í fyrra og var þá með
13 prósentustig fram yfir keppinaut sinn.
Perry hefur verið laginn við að tryggja sér
mikinn fjárstuðning frá auðugum ein-
staklingum og fyrirtækjum en veitt þeim í
staðinn margs konar fríðindi. En stuðnings-
menn ríkisstjórans segja að um sé að ræða ill-
kvittnislegan áróður. Skýringin á góðu gengi
Texas sé að Perry hafi ýtt undir fjárfestingar og
atvinnusköpun með lágum sköttum og al-
mennt vinsamlegu fyrirtækjaumhverfi.
Ríkisvaldið á bara að „halda sköttum niðri,
vera með réttlátt og fyrirsjáanlegt regluverk,
koma í veg fyrir ofvöxt í taumlausum máls-
höfðunum og fjármagna menntakerfi sem sýn-
ir árangur og tryggir nægilega mikið af hæfu
vinnuafli,“ er haft eftir Perry í The Weekly
Standard. „Síðan á það að þvælast ekki fyrir og
láta einkaframtakið um það sem það gerir
best.“
Hann státar af því að hafa ávallt skilað halla-
lausum fjárlögum í Texas án þess að hækka
skatta. Hann beitti í upphafi ríkisstjóraferilsins
neitunarvaldi oftar en dæmi eru um í sögu
Texas, einkum gegn eyðslutillögum. Eitt sinn
lagði hann áherslu á aðhaldssama fjár-
lagastefnu sína með 15 blaðsíðna tillögum þar
sem fjölmörg mál voru afgreidd með nið-
urstöðutölunni 0. Engin fjárveiting.
En nær 37% nýrra starfa sem sköpuð hafa
verið í sambandsríkjunum 50 frá 2009 urðu til
í Texas. Í grein á vefsíðu BBC er bent á að svo
einfalt sé málið þó ekki, fyrst og fremst sé um
láglaunastörf að ræða, líta verði á ýmsa þætti
sem hafi áhrif á þennan samanburð, fólks-
fjölgun, hækkandi olíuverð sem gagnast Texas
og fleira. En í langflestum ríkjunum hafa verið
sköpuð færri störf en þau sem hafa tapast.
Teboðsatkvæðin gætu dreifst
Og ekki er víst að tölur sem sýna að frammi-
staða barna í skólum Texas er verri en í lang-
flestum hinum ríkjunum, að atvinnuleysi er
álíka mikið og landsmeðaltalið, mengun mikil,
hafi áhrif. Þorri landsmanna hefur fyrst og
fremst áhyggjur af því að geta ekki fengið
vinnu eða staðið við skuldbindingar sínar og
margir grípa fagnandi á lofti boðskap um von.
„Ég kom Texas í lag og get komið Bandaríkj-
unum í lag,“ segir Perry. Fyrstu viðbrögð
demókrata sýna að þeir gera sér vel grein fyrir
því að Perry geti orðið hættulegur andstæð-
ingur. En svo gæti farið að í forkosningum
dreifist atkvæði stuðningsmanna Teboðs-
hreyfingarinnar milli Perrys og Michele Bach-
mann og jafnvel Söruh Palin sem gæti tryggt
hinum hófsama Mitt Romney útnefningu
repúblikana.
Nýjar
lausnir
frá Texas
Rick Perry rík-
isstjóri líklegt
forsetaefni
Rick Perry, ríkisstjóri í Texas, gaf nýlega kost á sér sem forsetaefni repúblikana í forsetakosningunum í Bandaríkjunum.
Reuters
Vikuspegill
Kristján Jónsson kjon@mbl.is
George W. Bush var
sanntrúaður og
hægrisinnaður rík-
isstjóri í Texas og
vangaveltur eru nú
uppi um að Obama
muni duga að rifja
upp þau hugrenn-
ingatengsl í baráttu
við Perry.
Ríkisstjórinn var
spurður hvort hann
óttaðist þessi tengsl.
„Við erum ekki allir
steyptir í sama mót í
Texas, við erum hver
með sínum hætti,“
svaraði hann.
Annar
Bush?
www.noatun.is
Nóatúni
Nýttu þér nóttina í
Verslanir Nóatúns eru
opnar allan sólarhringinn